Alþýðublaðið - 19.04.1996, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 19.04.1996, Blaðsíða 6
6 ALÞYÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1996 Bréf til blaðsins Kveöja frá Skáksambandin u Reykjavík, 15. apríl 1996 Heiðraði ritstjóri! Sú var tíðin að íslenskir skák- áhugamenn gátu gengið að því vísu að fjölmiðlar landsins flyttu þeim ítarlegar fréttir af helstu skákviðburðum landsins. Heilu og hálfu síðurnar voru teknar undir frásagnir frá mótsstað og skýringar helstu skáka og dagblöðin kepptust við að gera umfjöllun sína um skák sem best úr garði. En nú er öldin önnur og segja má að einungis Morgunblaðið hafi sinnt þessum mikilvæga þætti mannlífsins ineð viðunandi hætti á undanförnum misserum. Umfjöllun Alþýðu- blaðsins um Reykja- víkurmótið var með þvílíkum glæsibrag, að annað eins hefur ekki sést á síðum íslenskra dagblaða í fjölda ára. Það var því mikið gleðiefni fyrir íslenska skákáhugamenn að fylgj- ast með Alþýðublaðinu á meðan 17. Reykjavíkurmótið fór fram í fyrsta mánuði. Þar mátti sjá að ís- lenskir skákmenn höfðu eignast nýjann bandamann og þóttust ýms- ir skákmenn greina dagsbrún nýrra tíma og bjartari fyrir íslenskt skák- líf. Umfjöllun Alþýðublaðsins um Reykjavíkurmótið var með þvílík- um glæsibrag, að annað eins hefur ekki sést á síðum íslenskra dag- blaða í fjölda ára. Sannast því hið fornkveðna að margur er knár þó hann sé smár. Stjórn SÍ færir þér bestu þakkii/ fyrir framtakið og lætur í ljós þá ósk að með umfjöllun þinni um Reykjavíkurmótið hafi Alþýðu- blaðið gefið hinum fjölmiðlum landsins fordæmi sem dugir og að þeir muni á næstu misserum feta í fótspor Alþýðublaðsins í umfjöllun sinni um skák. Kveðja, F.h. Skáksambands íslands Hrannar B. Arnarsson ■ Það hafa aldrei verið framleiddar jafn margar kvikmyndir á íslandi og síðustu árin. Á sama tíma virðist áhugaleysi al- mennings á íslenskri kvikmyndagerð nær algjört, áhorfendur halda sig kirfilega fjarri. Alþýðublaðið fékk nokkra kvikmynda- gerðarmenn og gagnrýnendurtil að velta vöngum yfir þessari óheillaþróun Aðsóknin hrynur Ungir jafnaðarmenn Þeir eru löngu liðnir þeir glöðu dagar, fyrst á hinu /svokallaða íslenska kvikmyndavori, þegar helmingur þjóðarinnar taldi það hina dægilegustu skemmtun að fara á bíó til að horfa á þetta mikla nýmæli, íslenskar kvikmyndir. Nú þarf að leita allt aftur til ársins 1993 til að finna íslenska mynd sem fékk verulega góða aðsókn; það var Karlakórinn Hekla, alþýðlegur gam- anleikur sem virtist kitla skopskyn þjóðarinnar. Hermt er að hún hafi fengið um 60 þúsund áhorfend- ur, en árið áður vom frum- sýndar tvær kvikmyndir sem fengu mikla og góða Sambandsstjórnarfundur SUJ Næsti sambandsstjórnarfundur ungra jafnaðarmanna verður haldinn laugardaginn 20. apríl nk. kl. 13:00 - 18:00, í Listhúsinu í Laugardal, Engjateig 17-19. Dagskrá: 1. Fundargerð síðasta sambandsstjórnarfundar lesin og borin upp til samþykktar. 2. Kosningar í embætti: I. Ritari SUJ. II. Varaforseti málstofu um utanríkismál. III. Fulltrúi í stjórn ÆSÍ. 3. Umræður um menntamál. 4. Önnur mál. Kaffigjald 300 kr. FUJR murt síðan sjá um skemmtidagskrá kvöldsins. Framkvæmdastjórn SUJ Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl kl. 20:30. Fundarstaður Sunnusalur (áðurÁtthagasalur) Hótel Sögu. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með 24. apríl n.k. Dagskrá nánar auglýst síðar. Stjórn Dagsbrúnar -ííicj lá tjtid Ji (Jti UlíHtihl lltJ UIUO U(73VfilliO aðsókn, Veggfóður og Sódóma Reykjavík. Síðan þá hefur allt stefnt niður á við. Það eru reyndar framleiddar myndir í gríð og erg og sennilega aldrei meir en á síðasta ári; með að- sóknartölur er reyndar farið eins og mannsmorð, en víst er að áhorfendur hafa flestir látið sig hverfa þegjandi og hljóðalaust. Síðan á hinum glöðu dög- um Karlakórsins Heklu hafa tólf ís- lenskar bíómyndir verið frumsýndar: Stuttur Frakki, Hin helgu vé, Bíódag- ar, Skýjahöllin, Á köldum klaka, Ein stór fjölskylda, Tár úr steini, Nei er ekkert svar, Benjamín dúfa, Einkalíf, Agnes og Drauinadísir. Sumar af þessum myndurn hafa fengið þokkalega aðsókn, að minnsta kosti sómasamlega, en varla nein eins og vonir höfundanna stóðu til. Sumar hafa ekki einu sinni náð að tæla tíu þúsund áhorfendur í bíó og hljóta að teljast örgustu flopp. Engin mynd sem frumsýnd var á síðasta ári náði 20 þúsund áhorfendum og flestar voru reyndar fjarri því marki. Vinsælar leiksýningar fá til dæmis langtum fleiri áhorfendur. Ef áhorfendur halda áfram að halda sig svo kirfílega fjarri er yarla von nema menn spyrji hvort íslenskar kvikmyndir séu lentar í því fánnu að vera einungis tjármagnaðar af styrkjafé og þeim peningum sem ef til vill er hægt að kría út í útlöndum? Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri Nýjabrumið fariö Einföld skýring er sú að þegar ís- lenskar myndir byrjuðu að koma á markað reglulega voru þær að fylla upp í áratuga eyðu og þörfin eftir þeim var orðin hrópandi mikil. Nýja- brumið hafði hvað mest að segja. Þeg- ar árin líða fer þetta að verða hvers- dagslegra, íslenskar myndir eru þá ekki lengur neitt nýmæli. íslensku myndimar lenda því í samkeppni við erlendar myndir. Flestar íslenskar myndir eru nú að taka inn svipað og erlendar myndir, þær eru ekki að taka inn minna en ekki heldur meira. Myndin mín, Tár úr steini, fékk flesta áhorfendur á síðasta ári, tæplega 20 þúsund, og það er í sjálfu sér mjög gott, hvort sem myndin er íslensk eða útlend. En ég næ ekki endum saman á Islandi, það geri ég hugsanlega með sölu erlendis. Fyrir myndir eins og Einkalíf og Benjamín dúfu er slæmt að fá minni aðsókn en þetta, kannski ekki síst vegna þess að þar var lagt upp með að ná til breiðari hóps. Ég held að skýringanna sé ekki óhjákvæmilega að leita í gæðum myndanna, að minnsta kosti var Benjamín dúfa mjög góð kvikmynd að flestu leyti. Mest áhyggjuefni er þó ef vönduðu mynd- irnar, eins og til dæmis Djöflaeyjan verður vonandi, fá ekki aðsókn. Þetta er vel þekkt saga, byggð á vinsælum bókum og það yrðu vonbrigði ef hún fengi ekki að minnsta kosti 30-40 þús- und áhorfendur. Því hefur verið haldið fram að síð- asta ár hafi verið gott kvikmyndalega og ég held það sé rétt. Það voru sjö myndir frumsýndar á síðasta ári og af því var meirihlutinn mjög frambæri- legur. Tímarnir eru bara breyttir og valkostimir orðnir svo margir. Ég álít að það eigi að gera sjö til átta myndir á ári og þá er eðlilegt að helmingur fái ekki góða aðsókn, einfaldlega vegna þess að þær em ekki nógu vel heppn- Agnes, 1995.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.