Alþýðublaðið - 22.05.1996, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n
Að kjósa frá sér formanninn
Einn daginn, næsta óvænt, var
vandi Sjálfstæðisflokksins orðinn að
vanda Alþýðuflokksins. Það var rétt
eins flokkamir væru í svo innilegu til-
hugalífi að angur annars væri sameig-
inlegt angur þeirra beggja.
Þessi er forsagan: Stuttbuxnadeild
Sjálfstæðisflokksins gat engan veginn
sætt sig við þá tilhugsun að stór hluti
þjóðarinnar vildi Ólaf Ragnar Gríms-
Pallborðið |
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar
son sem næsta forseta lýðveldisins.
Að þeirra mati hafði þjóðin glatað ráði
og rænu og fyrir hana varð að koma
viti. Til þess þurfti greinilega svo
snjallan mann að sjálfstæðismönnum
var ómögulegt að finna hann í eigin
herbúðum heldur vældu í eina stjóm-
málamanni landsins sem nennir að
hafa skoðanir. Þeir vældu í honum
hátt og lengi. Margir urðu til að taka
undir erindi þeirra, jafnvel þeir sem
mestu hefðu glatað yrði hugmyndin
að veruleika. Upp á kontór Alþýðu-
flokksins streymdi hinn stritandi jafn-
aðarmaðúr með sturlaðan Bessastaða-
glampa í augum, reiðubúinn að kjósa
frá sér fórmann sinn.
En hver er formaðurinn sem flokk-
urinn var reiðubúinn að senda frá sér?
Það er maður sem síðustu árin hefur
verið aflvaki pólitískra umræðna, ný-
sköpunar og deilna hér á landi. Hann
hefur hvað eftir annað ögrað ríkjandi
hugmyndafræði og málflutningur hans
hefur hlotið ríkan hljómgmnn meðal
ungrar kynslóðar. Hann hefur rekið
brýn erindi og hvort sem menn hafa
verið honum sammála eða ekki þá
hafa þeir hlustað. Meðan svo er þá er
Alþýðuflokkurinn hafnar því að Jón Baldvin
Hannibalsson verði sendur í pólitíska ófrjósem-
isaðgerð, kostaða af Sjálfstæðisflokknum, og
settur í puntudúkkuhlutverk á Bessastöðum.
ekki til einskis unnið.
Hugmyndafræðingur flokksins átti
í einu vetfangi að ganga frá flokki sín-
um, baráttumálum sínum, hugsjónum
sínum og erindum. Og allt of margir
liðsmenn flokksins urðu einkennilega
glaðir við þá tilhugsun. Bessastaða-
glampinn kom í stað skynsemis-
glampans. Um tíma virtist engu líkara
en einstaka flokksmenn gengu með þá
hugmynd að Jón Baldvin myndi ekki
einungis flytja inn á Bessastaði heldur
flyti flokkurinn með. En einkavina-
væðingin nær ekki svo langt, hvort
sem flokksmenn trúa því eða ekki. An
formanns sfns hefði Alþýðuflokkurinn
einfaldlega eytt sjálfum sér í valdabar-
áttu, hugmyndafæð og uppgjöf.
Þessari idjódísku Valhallarhug-
mynd varð vitaskuld að hafna. Og
henni var hafnað. Alþýðuflokkurinn
hafhar því að Jón Baldvin Hannibals-
son verði sendur í pólitíska ófijósem-
isaðgerð, kostaða af Sjálfstæðis-
flokknum, og settur í puntudúkkuhlut-
verk á Bessastöðum. Flokkurinn hefur
vissulega fært margar fómir á 80 ára
ferli sínum, en þessa fóm er hann eng-
an veginn reiðubúinn að færa.
Auk þess er grundvallarhugsunin í
framboðshugmynd stuttbuxnadeildar-
innar röng og siðlaus. Hún byggir á
því að senda mann til þess eins að
fella annan. Einhver kann að segja að
svona gerist nú einu sinni kaupin á
eyrinni, en slíkar skýringar ber ekki að
taka góðar og gildar. Stjórnmál eru
nefnilega ekki viðbjóður þótt einhyeij-
ir kjósi að gera þau þannig. Ef stutt-
buxnadeildin vill fara í leikinn einung-
is til fella einn frambjóðanda þá skal
hún finna einhvern úr sínum eigin
hópi sem reiðubúinn er til að dansa
eftir hinni ómerkilegu forskrift. Við
alþýðuflokksmenn höfum nægum
verkefnum að sinna og allt öðmm en
þeim að gerast sendisveinar íhaldsins í
svo lágkúmlegum leik.
Við alþýðuflokksmenn er það eitt
að segja að stuðningur þeirra við hug-
myndina um forsetaframboð Jóns
Baldvins er að mörgu leyti eðlilegur
þegar mið er tekið af því að hann
hefði sinnt starfinu með prýði. Og
væm forsendur aðrar hefði flokkurinn
með réttu átt að flykkja sér um hann.
Staðreyndin er hins vegar sú að eins
og er getur flokkurinn ekki verið án
formanns síns. Það er of mörgum
verkum ólokið og þau verða ekki
leidd til sigurs án hans. Alþýðuflokk-
urinn þarfnast formanns síns. Svo ein-
falt er það. ■
Þingfulltrúar Alþýðu-
sambands íslands fjöl-
menntu að Alþingishús-
inu í gær, og afhentu Ól-
afi G. Einarssyni þing-
forseta og Páli Péturs-
syní félagsmálaráðherra
harðorð mótmæli gegn
„skerðingarfrumvörpun-
um" sem svo eru kölluð.
Reyndar gekk treglega að
fá Pál til að hitta þingfull-
trúa, og heyrðist kallað á
Austurvelli: „Ætlar bónd-
adurgurinn ekki að hitta
okkur?" Annar svaraði
stundarhátt: „Nei, hann
er að hleypa til!" Páll
kom um síðir, nokkuð
snúðugur, tók við mót-
mælunum og ætlaði inn
aftur. Einn þingfulltrúa
spurði þá tfvort félags-
málaráðherrann hefði
ekkert að segja, og mælti
Páll nokkur orð af sýni-
legum semingi. Hann
sagði meðal annars að ef
hann og þing Alþýðusam-
bands íslands væru
ósammála - þá yrði bara
að hafa það. Alltaf jafn
dipló, Höllustaða-Páll...
Margir bíða með
óþreyju eftir fundi
sem Félag stjórnmála-
fræðinga heldur með for-
setaframbjóðendunum á
Hótel Sögu á föstudags-
kvöld. Því var fleygt að
Ólafur Ragnar Gríms-
son ætlaði ekki að mæta,
og forðast þannig opin-
berar umræður - og deil-
ur. Þannig hittum við
einn nánasta stuðnings-
mann Ólafs í fyrradag,
sem taldi ólíklegt að Ólaf-
ur léti sjá sig enda væri
hann á fundaherferð úti á
landi. Nú er hinsvegar
staðfest að Ólafur mætir,
og er meira að segja bú-
inn að hengja upp aug-
lýsingu á kosningamið-
stöð sinni. Þetta verður
fyrsti funduririn þarsem
þau verða öll saman, Ól-
afur Ragnar, Pétur Kr.
Hafstein, Guðrún Agn-
arsdóttir og Guðrún
Pétursdóttir. Og svo er
bara að sjá hvað Ástþór
Magnússon gerir...
Það er Ijóst að aðrir
frambjóðendur ætla
ekki að leggja árar í bát
þótt Ólafur Ragnar
Grímsson njóti nú algers
yfirburðafylgis í skoðana-
könnunum. Guðrún
Agnarsdóttir er búin að
gefa út átta síðna lit-
prentað blað sem dreift
er inná öll heimili lands-
ins, og þau Guðrún Pét-
ursdóttir og Pétur Kr.
Hafstein auglýsa grimmt
í sjónvarpi. Enn bólar
ekkert á sjónvarpsauglýs-
ingum frá Ólafi Ragnari
Grímssyni, og mun ekki
á döfinni í herbúðum
hans að taka þátt í aug-
lýsingastríðinu nema
skoðanakannanir gefi til-
efni til. En auðvitað er allt
til reiðu, enda er kosn-
ingabarátta Ólafs þaul-
hugsuð og fagmannleg...
Við verðum Ijónheppin ef okkur tekst nokkurntima að selja
staðinn... Jæja, það er einsog allir klifa á: staðsetning,
staðsetning, staðsetning.
fimm á förnum vegi
Hver heldur þú að verði næsti forseti ASÍ? spurtáAsíþingi
Rafn Olafsson sjómaður:
Það eru margir kallaðir en að-
eins einn útvalinn.
Einar Gunnarsson formað-
ur blikksmiðafélagsins:
Grétar Þorsteinsson verður for-
seti, Halldór fyrsti varaforseti
og Ingibjörg annar varaforseti.
Þorsteinn Ingvarsson
verkamaður: Það verður
Hervar.
Björn Guðmundsson tré-
smiður: Hervar Gunnarsson
verður kosinn forseti.
Agnes Gamalíesdóttir
varaformaður verka-
kvennafélagsins Fram:
Hervar Gunnarsson.
Munntóbakið þverpólitískt.
Fyrirsögn á forsíðu Tímans í gær.
Það vantar bara að ráðherra
opnibudduna.
Helgi Hallvarðsson, ofurbjartsýnn skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, um nauðsyn þess
að kaupa nýtt varðskip. DV í gær.
Giovanni Brusca, eftirlýstasti
mafiuforingi Ítalíu, handtek-
inn: Þrýsti á hnappinn þegar
Falcone dómari var sprengdur
í tætlur.
DV í gær.
Annarhver maður er með síma
uppá vasann og það hringdi
orðið stöðugt. Gangarnir voru
einsog á símstöð.
Aðstoðarbókavörður háskólans Cambrigde
sem nú hefur bannað notkun farsíma í
bókasafninu. Mogginn í gær.
Svo gerast þau undur, að allir
þessir pólitísku garpar sýna
ótrúlegan áhuga á hinu valda-
lausa embætti forseta Islands.
Árni Bergmann að velta fyrir sér Jóni Bald-
vin, Ólafi Ragnari, Davíð Oddssyni og flótt-
anum til Bessastaða.
Svo getur líka vel verið að
Norðmenn hafi hreinlega fals-
að niðurstöðuna úr keppninni,
að minnsta kosti ef miðað er
við hvað lítið er að marka
samninga sem gerðir hafa ver-
ið við þá, samanber veiðileyfa-
vitieysuna á Jan Mayen-svæð-
inu.
Garri Tímans að velta fyrir sér bágu gengi
Önnu Mjallar.
Helga Ósk Hannesdóttir skor-
aði skemmtilegt mark fyrir
Breiðablik á móti Val á sunnu-
daginn og var það að hennar
sögn alveg óvart.
íþróttafrétt í Mogganum.
fréttaskot úr fortíð
14 sinnum
kvæntur
75 ára gamall sjarmör, sem hafði
fjórtán sinnum kvænst, var nýlega
tekinn fastur í Toledo í Ohio. Hann
heitir William Currier. Eftir sögusögn
lögreglunnar dvaldi hann hæfilega
lengi í hveijum bæ til þess, að kvæn-
ast og tileinka sér meginhluta eigna
konunnar. Nr. 14 kærði hann. Hann
hafði svikið út úr henni 60.000 kr., og
það fanst henni fullmikið.
Sunnudagsblað Alþýðublaðsins,
24. febrúar 1935