Alþýðublaðið - 29.05.1996, Blaðsíða 1
■ Sigurður G. Guðjónsson fulltrúi Ólafs Ragnars Grímssonar gagnvart yfirkjörstjórn segir Jón Steinar
misnota aðstöðu sína á mjög ósmekklegan hátt
Menn geta bara lagtsaman tvo og tvo
- segir Sigurður um hugsanleg áhrif stuðningsmanna Péturs Kr. Hafsteins á ákvörðun Jóns Steinars.
„Ég er mjög undrandi yfir þess-
ari greinargerð Jóns Steinars
Gunnlaugssonar. Honum hefur
væntanlega verið Ijóst í tvo mán-
uði að Ólafur Ragnar gæfi kost á
sér. Ég hef margoft rætt við Jón
Steinar og hitt hann að undan-
förnu, og það hefur aldrei komið
fram minnsti efi um að hann væri
hæfur til að gegna starfi formanns
yfirkjörstjórnar,“ sagði Sigurður
G. Guðjónsson hæstaréttarlög-
maður og fulltrúi Ólafs Ragnars
Grímssonar gagnvart yfirkjör-
stjórn um greinargerð Jóns Stein-
ars Gunnlaugssonar. Jón Steinar
sendi fjölmiðlum í gær tilkynningu
um að hann hefði óskað eftir að
víkja sæti sem formaður yfirkjör-
stjórnar í Reykjavík. Jafnframt
sendi hann frá sér þriggja síðna
greinargerð, þarsem hann gagn-
rýnir Ólaf mjög harkalega, og seg-
ir það „hneisu“ fyrir íslendinga,
kjósi þeir hann sem forseta. Ólaf-
ur mun ekki ætla að tjá sig um
málið opinberlega, en hann er nú á
fundaferð norðanlands.
„Ég lít á þetta sem tilraun Jóns
Steinars til þess að ganga í lið með
einhverjum öðrum frambjóðend-
um. Það sem er rifjað upp í þessu
bréfi eru í stórum dráttum sömu
mál og Einar Sveinn Hálfdanarson
héraðsdómslögmaður og löggiltur
endurskoðandi rakti í Morgun-
blaðsgrein fyrir tveimur vikum.
Þarna er Jón á mjög ósmekklegan
hátt að misnota aðstöðu sína til að
kasta rýrð á einn frambjóðanda,“
sagði Sigurður. Hann sagði að
þessi mál hefðu verið rifjuð upp í
greinum sem stuðningsmenn Pét-
urs Kr. Hafsteins hafa birt í blöð-
um að undanförnu. „Menn geta
bara lagt saman tvo og tvo,“ sagði
Sigurður G. Guðjónsson.
Sjá frétt um greinargerð Jóns
Steinars á baksíðu.
■ Rannveig Guðmundsdóttir með fyrirspurn á Alþingi um málefni íbúa Kópavogshælis
Mun fylgja málinu fast eftir
- segir Rannveig. 37 íbúar á Kópavogshælis áttu að vera komnir á sambýli, samkvæmt samningi félagsmála-
ráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Aðeins 13 fluttir á sambýli. Ráðherra lofar efndum í byrjun næsta árs.
„Þessu máli verður fylgt fast eftir
og ég mun kalla eftir því fyrir lok árs-
ins, hvað líður úrræðum fyrir þann
þögula hóp sem hefur beðið svo lengi
eftir að fá þau mannréttindi sem okkur
hinum finnast svo sjálfsögð," sagði
Rannveig Guðmundsdóttir formaður
þingflokks Alþýðuflokksins, en hún
spurði Pál Pétursson félagsmálaráð-
herra á Alþingi í gær um málefni
Kópavogshælis.
I kjölfar setningar laga um málefni
fatlaðra var skipaður starfshópur á
vegum félagsmálaráðuneytis og heil-
brigðisráðuneytis uni Kópavogshæli.
Starfshópurinn skilaði samkomulagi
um að byggð yrðu þrjú sambýli á
þessu ári gagngert fyrir íbúa frá Kópa-
vogshæli. 37 einstaklingar áttu að
flytjast út af Kópavogshæli, sem yrði
endurhæfingarstöð ríkisspítalanna í
framtíðinni. Jafnframt yrðu 37 stöðu-
gildi flutt yfir til félags-
málaráðuneytisins. Rann-
veig benti á að þessi
stöðubreyting átti að
verða um síðustu áramót,
en þegar komið er fram á
mitt ár hafa aðeins 13 ein-
staklingar útskrifast á
sambýli af Kópavogs-
hæli. „Það var mikilvægt
að fá svar ráðherrans við
hvað líður þessum mál-
um. Ráðherrann fullviss-
aði þingheim um að í síð-
asta lagi í byrjun næsta
árs, yrðu þessir 37 ein-
staklingar komnir í nýja
aðstöðu þar sem þeim
stendur til boða þessi al-
menna félagslega þjón-
usta,“ sagði Rannveig.
Rannveig segir forsögu
að þegar lögin um
málefni faltaðra voru
sett hafi verið alveg
ljóst að þeir sem
byggju á heilbrigðis-
stofnun, myndu ekki
njóta ýmissa þjón-
ustuákvæða í lögun-
um. Lögin hafi verið
mjög nútfmaleg og til
þess hugsuð að fatlað-
ir gætu lifað í þjóðfé-
laginu einsog aðrir
þegnar þess.
Þá sagði Rannveig
. , . , , ... , . að sérstaklega hafi
hopur hefur beðið lengi að tak/. mál.
eft.r mannrett.ndum sem efnum þeirra sem
okkur h.num finnast sjálf- bJuggu á heilbrigðis-
stofnunum og gátu
ekki fengið þessa félagslegu þjónustu,
einsog reyndin var með íbúa Kópa-
Hinn
Rannveig:
þögli
málsins þá,
vogshælis.
„Á þetta var bent strax og lögin
voru lögð fram. Félagsmálanefnd Al-
þingis lagði til að félagsmálaráðuneyti
og heilbrigðisráðuneyti semdu um
hvemig íbúar á Kópavogshæli flyttu
sig út í þjóðfélagið til okkar hinna
með stuðningi þessara laga. Það dróst
mjög að þessi mál kæmust í farveg, og
það var í raun ekki fyrren ég varð fé-
lagsmálaráðherra í skamman tíma að
samstarf var sett í gang milli félags-
málaráðuneytis og heilbrigðisráðu-
neytis og starfshópur fenginn til að
vinna að málinu," sagði Rannveig.
Hún sagði umhugsunarefni að loksins
þegar rofar til hjá íbúum Kópavogs-
hælis í þessum efnum, þá er komið að
endurskoðun laga um málefni fatlaðra,
en þau fólu í sér ákvæði um að þau
yrðu endurskoðuð fimm árum frá
setningu þeirra.
Stefán Hrafn: Af Helgarpóstinum til
Tölvuheima.
■ Fjölmiðlar
Ritstjóraskipti
á Helgar-
póstinum
Stefán Hrafn Hagalín ritstjóri Helg-
arpóstsins lætur af starfi nú í vikunni,
samkvæmt heimildum Alþýðublaðs-
ins, og tekur við ritstjóm tímaritsins
Tölvuheimur. Þá mun nánast frá-
gengið að Sæmundur Guðvinsson, nú-
verandi fréttastjóri HP, taki við rit-
stjóm blaðsins í stað Stefáns. Tölvu-
heimur er tiltölulega nýlegt tímarit, en
hefur gengið afar vel undir ritstjórn
Styrmis Guðlaugssonar. Útgefandi
hefur verið fyrirtæki Haraldar Ham-
ars, Iceland Review, en Styrmir hefur
nú keypt það og mun því ætla að færa
sig úr ritstjórastólnum.
Þess má geta að báðir nýju ritstjór-
arnir, Stefán Hrafn og Sæmundur,
störfuðu til skamms tíma á Alþýðu-
blaðinu.
Brosmildir forsetar
A-mynd: E.ÓI.
Mary Robinson forseti írlands kom .' gær ásamt eiginmanni s.'num, Nic-
holas Robinson, og fylgdarliði í þriggja daga heimsókn til íslands. Hún er með þessu að endurgjalda heimsókn
frú Vigd.'sar Finnbogadóttur til írlands, en Vigd.'s var fyrsti þjóðhöfðinginn sem heimsótti Robinson eftir hinn
sögulega sigur hennar. Vigd.'s tók á móti forsetahjónunum á Reykjav.'kurflugvelli þarsem Irlandsforseta voru
færð blóm.
Skítkast
- forystugrein um
forsetakosningar
Jakob Bjarnar fór á
sinfóníutónleika í
fyrsta sinn á ævinni
- og skemmti sér
konunglega.
Sjá bls. 2
■ Kristinn H. Gunnarsson
segir málatilbúnað
stjórnarandstöðunnar
misheppnaðan
Eigum
að nota
sumarið í
umræðu
„Það er þó einhver stefna sem þeir
hafa en við höfum setið eftir. Við höf-
um engin skýr svör og þar með fá
kjósendur engin svör. Því töpum við
fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn vinnur
fylgi. Við ættum að nota sumarið til að
fara í pólitíska umræðu um rikið og
velferðarkerfið. Okkur hefur að mörgu
leyti mistekist málatilbúnaðurinn í vet-
ur,“ segir Kristinn H. Gunnarsson,
þingmaður Alþýðubandalagsins, um
stjómarandstöðuna. Kristinn segir að
helst hafi örlað fyrir einhverri stefnu-
mörkun hjá Alþýðuflokknum og þá
þegar Jón Baldvin var frískur eins og
hann orðar það. „En að öðm leyti hef-
ur mér fundist hinir flokkamir setið á
rassinum meðan Sjálfstæðismenn hafa
klárlega pólitískt frumkvæði."
Kristinn var einn nokkurra þing-
manna sem Alþýðublaðið ræddi við
um störf þingsins í vetur. Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Alþýðu-
flokksins segir að ríkisstjórnin hafi
verið sein fram með sín mál, en það
hafi leitt til þess að tíminn hafi ekki
nýst vel.
Þegar Lúðvík var spurður hvað hon-
um þætti merkasta málið á dagskrá
þingsins svaraði hann: „Það hlýtur að
teljast mjög merkilegt að feta í sömu
slóð og áður í landbúnaðarmálum.
Þama á ég við búvörusamninginn sem
samþykktur var hér fyrir áramót, þrátt
fyrir að allflestir geri sér grein fyrir að
sú stefna sem þar er fylgt sé vita von-
laus.“ Sjá niiðopnu.