Alþýðublaðið - 29.05.1996, Síða 2
acer íam .es íh'J0agu>í!VCH?a
2
qiGAJaUQY !A
ALÞÝÐUBLAÐÍÐ
s k o ð a n
MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996
r
tmeiiDiD
21117. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Ábyrgð fréttastofu
Sjónvarpsins
Forsetaframbjóðendumir fimm komu í fyrsta sinn saman opin-
berlega á föstudagskvöldið á fundi Félags stjómmálafræðinga.
Fundurinn þótti heldur dauflegur í heild, en einna mesta athygli
vakti ákveðin gagnrýni Guðrúnar Agnarsdóttur á Sjónvarpið.
Fréttastofa Sjónvarpsins hefur lítinn viðbúnað vegna forsetakosn-
inganna, og munu aðeins áform um einn sameiginlegan þátt með
frambjóðendunum skömmu fyrir kosningar. Þá hefur umíjöllun
fréttastofu Sjónvarps um kosningamar verið bæði lítil og tepruleg
hingað til. Svo virðist sem ekki megi minnast á einn frambjóð-
anda án þess að geta allra hinna líka. Nú ber fréttastofu Sjón-
varpsins vitanlega að gæta fyllsta hlutleysis, en það þýðir ekki að
umíjöllun um forsetakosningamar þurfi að vera í skötulíki.
Á það hefúr verið bent, að fréttastofa Sjónvarpsins sýnir for-
setakosningunum í Rússlandi miklu meiri áhuga en bardaganum
um Bessastaði. Kosningamar eystra kunna að hafa meiri áhrif á
gang heimsmála, en það afsakar ekki áhugaleysi sjónvarps-
manna. Þeir gætu reyndar tekið sér til íyrirmyndar kollega sína á
fféttastofúm útvarpsins og Stöðvar 2. Þar hefur verið fjallað ítar-
ipga og af vandvirkni um kosningamar, forsetaembættið og fram-
Sðenduma. Á laugardag var til dæmis umræðuþáttur í útvarp-
j með öllum frambjóðendum, og fram að kjördegi verður viða-
ikil umfjöllun um kosningamar á vegum útvarpsmanna.
Á fundinum á föstudagskvöldið tóku allir frambjóðendur -
:ma Ólafur Ragnar Grímsson - undir gagnrýni Guðrúnar Agn-
sdóttur á Sjónvarpið. Vonandi taka sjónvarpsmenn á sig rögg í
:ssum efnum, ella bregðast þeir algerlega upplýsingaskyldu
ignvart almenningi. Og við höfum ekkert með opinbera frétta-
ofu að gera sem ekki þorir að fjalla um stórviðburði líðandi
siundar.
Skítkast
Sú ákvörðun Jóns Steinars Gunnlaugssonar að víkja úr sæti
sem formaður yfirkjörstjómar Reykjavíkur vegna framboðs Ólafs
Ragnars Grímssonar er til marks um að aukin harka er að færast í
kosningabaráttuna. Ekki er vitað til þess að nokkur teldi Jón
Steinar óhæfan til að gegna starfi formanns yfirkjörstjómar, alltj-
ent höfðu hvorki Ólafur Ragnar né fulltrúi hans gagnvart yfir-
kjörstjóm, Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður, gert
neina athugasemd. Af hinni harðorðu greinargerð Jóns Steinars
má líka ljóst vera, að fýrst og fremst er verið að reyna að koma
höggi á Ölaf Ragnar.
Sú spuming hlýtur að vakna hversvegna Jón Steinar tilkynnir
um ákvörðun sína núna - þegar fyrir hefur legið í tvo mánuði að
Ólafur Ragnar gæfi kost á sér. Eins hljómar það vitaskuld einsog
ósvífinn brandari þegar hinn kunni lögmaður kveðst ekki vilja
gera Ólafi þann „órétt“ að starfa sem formaður yfirkjörstjómar,
þar sem hann hafi á undanfömum árnrn svo oft fjallað opinber-
lega og fyrir dómi um ávirðingar Ólafs Ragnars í opinberum
störfum. Þessi óvænta tillitssemi kemur í lok langrar greinargerð-
ar þarsem Ólafi er fundið allt til foráttu, og gengið svo langt að
segja að það væri „hneisa fyrir þjóðina" að kjósa Ólaf á Bessa-
staði.
Það er Ijóst að ýmsir af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins
em mjög með böggum hildar vegna fylgis Ólafs Ragnars Gríms-
sonar í skoðanakönnunum. Búið er að virkja skítverkadeild
íhaldsins, og varla líður dagur án þess að Morgunblaðið birti
ósvífnar ærameiðingar um Ólaf í lesendadálki sínum. Enn er
langt til kosninga, en ef þetta er forsmekkurinn að því sem koma
skal er full ástæða til að kvíða ódrengilegri kosningabaráttu. Það
er siðferðileg skylda frambjóðendanna að hafa taumhald á fylgis-
mönnum sínum, og þeir ættu að gera opinbert samkomulag um
að haga baráttunni af sæmd og heiðarleika. Reyndar ættu þeir að
sveija þess eið - eða leggja drengskap sinn að veði.
Rolling Stones hvað?
Ég vil gera orð Áskels Mássonar að
mínum: poppið var bemskubrek. Ég
fór á Sinfóníuna síðastliðið fimm-
tudagskvöld, mínir fyrstu sinfóníutón-
leikar og - þetta er málið. Ekki spillti
það ánægjunni að á bekknum fyrir ffa-
man mig sat sjálfur Valdemar úr
Kontrapunkti. RJkharður Öm Pálsson
var einnig í salnum en hún þama sem
var rekin sást hvergi. Ætli hún megi
ekki mæta á sinfóníutónleika?
Orðin tóm
Jæja, ég kom mér notalega fyrir í
sæti mínu í Háskólabíói. Af gömum
vana var ég næstum því búinn að fá
mér popp í andyrinu en sá að mér á
síðustu stundu. Þessi sérstæða
hljómkviða þegar fiðlumar em stilltar
komu mér í hárrétta stellingu. Svo
kom Guðný 1. fiðla og allir klöppuðu.
Þá steig hinn pólskættaði Nowak
hljómsveitarstjóri á stokk, ansi hreint
flottur og tónleikarnir byrjuðu og
þvflík byrjun. Camival - forleikurinn
eftir Dvorák er glæsilegt verk, sem
hefst með, sama ómótstæðilega kraft-
inum og annað sýningarverk, for-
leikurinn að Russlan og Ljudmila eftir
Glinka. Að öðm leiti einkenna for-
leikinn grípandi og frísklegar laglínur,
smitandi danstaktur og á stundum
ljóðrænar náttúmstemmningar - eins
og segir í sýningarskrá. Pottþétt.
Nowak var flottur og það upplýsist hér
með að mig hefur alltaf dreymt um að
verða hljómsveitarstjóri sjálfur.
Þegar Dovrák var búinn fóm allir af
sviðinu nema strengjaleikararnir og
eftir dágóða stund mættu ein-
leikaramir og settust fremst á sviðið.
Ruijsenaars er hollenskur sellóleikari,
ansi gæjalegur og hefur komið víða
við sem einleikari, án vafa við mikinn
fögnuð allra sinfóníukvennana á
staðnum. Hinn einleikarinn er þrátt
fyrir nafnið lfklega ekki eins mikið
kvennagull. Lips er ættaður frá
Uralfjöllum, stuttur og fyndinn útlits,
og þegar hann framkallaði hin og þessi
búkhljóð á harmónikkuna sína þá hris-
tust kinnar hans í takt. Verkið Sjö orð
eftir Sofiu Gubaidulinu frá Rússlandi
var satt best að segja langdregið,
mikið af endurteknum stefum og að
saklausu hefði mátt bæta einu trom-
musólói inní. En ég varð svosem ekki
var við mikla óþreyju í salnum.
Milli verka fékk ég tækifæri til að
litast um og sá að tónleikagestir vom
flestir í eldri kantinum. Það sannfærði
mig enn frekar um réttmæti kenningar
sem ég sá viðraða í einhverjum nát-
túmh'fsþætti tyrir margt löngu. Tíminn
er ekki eins íifstæður og flestir halda.
Tímaskyn er í beinu samhengi við
hjartsláttinn. Eftir því sem hjartað slær
hraðar þeim mun lengur er tíminn að
líða. Góðhjartaðar sálir vorkenna
flugum því þær lifa aðeins í einn dag.
En það er algjör óþarfi. Hjartað á þeim
gengur eins og hríðskotabyssa og því
finnst flugum þessi eini dagur sem
hundrað ár. Allir muna óralönga bið
Mér varð um og ó þegar ég sá Njörð P. Njarðvík
með kók í pappaglasi sér við hönd. Þar hefði
kaffibolli eða freyðivínsglas farið betur. Arnór
Hannibalsson og Kristján Árnason voru og hálf
vandræðalegir. Gott ef þeir földu sig ekki með
því að lumma sér í tíkallakassana.
eftir jólum og afmæli þegar þeir vom
börn. Hjartað hægir á sér með
aldrinum og samkvæmt því lfður
tíminn hraðar. Þess vegna eru sin-
fóníugestir gjaman eldri og sakna ein-
skis þó ekki séu trommusóló milli
erinda. Þegar lokatónamir í Sjö orðum
eftir Gubaidulinu vom slegnir kom
dramatísk þögn eins og áhorfendur
væm ekki alveg vissir um hvort verkið
væri búið eða hvað. Sjálfum fannst
mér það fremur óþægilegt því ég legg
mig í framkróka um að vera fýrirmyn-
daráhorfandi sem veit hvenær á að
klappa og hvenær ekki. Þá fékk ein-
hver í salnum hóstakast sem var
bagalegt því tónleikamir vom hljóðri-
taðir og áhorfendur beðnir um að
forðast að hósta. Því var ekki um.
annað að ræða en að kæfa þetta hós-
takjöltur með glymjandi fagnaðarlá-
tum.
I hléi kom hin knýjandi þörf fyrir
tónlistarhús berlega í ljós. Það var sor-
glegt að sjá hina prúðbúnu tónleik-
agesti neyðast til að blanda geði við
bíólýðinn. Það er alls ekki æskilegt að
blanda hámenningu og lágmenningu
saman um of. Mér varð um og ó þegar
ég sá Njörð P. Njarðvík með kók í
pappaglasi sér við hönd. Þar hefði kaf-
fibolli eða freyðivínsglas farið betur.
Amór Hannibalsson og Kristján Áma-
son vom og hálf vandræðalegir. Gott
ef þeir földu sig ekki með því að
lumma sér í tíkallakassana. Þá var
Þórhildur Þorleifsdóttir heldur ekki á
heimavelli í maíslyktandi andrúmsloft-
inu og þannig mætti lengi telja. Af
þessum ágæta hópi menningarfólks þá
var helst að maður væri í vafa með
Sverri últratenór, það er hvort hann
væri á bíó eða á tónleikum. Ekki var
frítt við að áhorfendur vörpuðu öndin-
ni léttar þegar inní salinn var komið á
ný. Og vel á minnist. Hvemig er með
Samtök um tónlistarhús? Eru þau
alveg dottin uppfyrir?
Seinni hálfleikurinn var ekki lengi
að líða. Snilldarlegt verk eftir
Shostakovich í frábærum flutningi
íslensku sinfómuhljómsveitarinnar og
nóg að gera hjá hljóðfæraleikumnum.
Það var helst að það væri rólegt hjá
Bjama á túbunni. Níunda sinfóman er
samin undir pressu frá sjálfum Stalín
sem ætlaðist til að Shostakovich skri-
faði dýrðaróð til sín í lok seinni heim-
sfyijaldarinnar. Hann lofaði öllu fögm
en þegar til kom reyndist verkið engin
lofgjörð sem lýsir ótrúlegri ófyrirleitni
snillingsins. I níundu sinfóníunni er
allt það að finna sem prýða má eitt
verk. Það er púður í því, jafnvel fyndni
og auðvitað alvara einnig. Það er alveg
á hreinu að þetta er ekki í síðasta skipti
sem ég læt sjá mig á sinfóníutón-
leikum. Rolling Stones hvað?
2 9. m a í
Atburðir dagsins
1453 Tyrkir ná Konstantínópel
á sitt vald eftir árs umsátur.
1888 Gísli Brynjúlfsson skáld
og fræðimaður deyr í Kaup-
mannahöfn. 1947 Dakotavél
frá Flugfélagi fslands rakst á
Hestfjall við Héðinsfjörð og 25
manns fórust. Þetta er mesta
flugslys sem orðið hefur á Is-
landi. Vélin var á leið frá
Reykjavík til Akureyrar. 1971
Minnisvarði um Bjama Bene-
diktsson forsætisráðherra, konu
hans og dótturson var afhjúp-
aður á Þingvöllum þar sem þau
fórust í eldsvoða 10. júlr 1970.
1979 Bandaríska leikkonan
Mary Pickford deyr. 1985 41
áhorfandi lætur lífið í óeirðum
á Heysel- leikvanginum í Belg-
íu, þarsem leikur Liverpool og
Juventus fór ífam.
Afmælisbörn dagsins
G.K. Chesterton 1874, enskur
rithöfundur. Joseph von
Sternberg 1894, austurrískur
kvikmyndaleikstjóri og leikari.
Bob Hope 1903, skemmti-
kraftur og leikari. John JF.
Kennedy 1917, forseti Banda-
ríkjanna.
Annálsbrot dagsins
Einninn á þessu sumri skaut sig
óvarlega í hel kongsins fálka-
meistari á Bessastöðum, Jón
Falkener, sem hingað sendur
var fálka að meðtaka, hver eð
kom við lás á steyttri byssu, er
í skipinu lá, er í land fara ætl-
aði, er þá hljóp í hans búk eður
lær, hvar af hann dó nokkmm
dögum síðar.
Eyrarannáll 1700.
Sigur dagsins
Hræðstu ekki ósigurinn. Þú ert
aldrei jafnnærri sigrinum og
þegar þú bíður ósigur í barátt-
unni fyrirgóðu málefni.
H.W. Beecher.
Málsháttur dagsins
Oft blekkir orðslægur einfald-
an.
Launung dagsins
Til þess talar maður að leyna
hugsun sinni.
Halldór Laxness; Atómstööin.
Orð dagsins
Súlarskip mittfer Itallt á Itlið
hrekur til skaðsemdanna,
af þvíþað gengur illa við
andviðri freistinganna.
Bólu-Hjálmar.
Skák dagsins
Búlgarinn Popov hefur aldrei
náð ffremstu röð, en hefur
samt oft skrámað hina meiri
meistara. Hann er í aðalhlut-
verki í skák dagsins, hefur hvítt
og á leik gegn Novopashin.
Hvrtur hefur tvo hróka gegn
þremur léttum mönnum og allt
leikur á reiðaskjálfi. Popov
hristi hinsvegar glæsilegt mát
framúr erminni.
Hvítur leikur og mátar.
1. Dh6+!1 Svartur gafst upp.
Samanber: 1. ... gxh6 2. Hxb7
og mátar eða 1. ... Kxh6 2.
Hh8 mát.