Alþýðublaðið - 29.05.1996, Page 3
(VllÐVIKUDAGUR 29. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Stórslys á íslenskum
vinnumarkaði
Leiðarahöfundi Vinnunnar blaði
Alþýðusambands Islands er mikið
niðri fyrir og sendir stjórnvöldum
tóninn í aukablaði sem gefið var út í
tengslum við 38. þing ASI:
í stað þess að koma til móts við þá
eðlilegu og sjálfsögðu kröfu íslenskrar
verkalýðshreyfingar að aðilar vinnu-
markaðarins fái svigrúm til að semja í
frjálsum samningum um markvissari
og lýðræðislegri samskiptareglur á
vinnumarkaði ver félagsmálaráðherra
Önnur
sjónarmið
tíma og peningum í að kaupa skoð-
anakönnun sem í reynd er ekkert axm-
að en ósvífinn útúrsnúningur. Verka-
lýðshreyfingin hefur gert sitt ýtrasta til
þess að opna augu stjórnvalda fyrir
því stórslysi á íslenskum vinnumark-
aði sem frumvarpið til breytinga á
vinnulöggjöfinni er.
Stjómvöld setja lög með lokuð aug-
un sjái þau ekki hættumerkin á ís-
lenskum vinnumarkaði. Halldór
Bjömsson, formaður Dagsbrúnar, seg-
ir í viðtali við Vinnuna að verkalýðs-
félög eigi ekki annan kost til að bregð-
ast við en að breyta skipulagi sínu sem
mun leiða af sér mun fleiri og smærri
samningsbærar einingar. Það er þvert
á þá þróun í átt til færri og stærri
verkalýðsfélaga sem víðtæk sátt hefur
verið um. Ljóst er að barátta fyrir því
að fá þessum lögum hnekkt mun hefj-
ast þegar kjarasamningar losna og
samtök launafólks geta beitt styrk sín-
um. Þetta hlýtur forsætisráðherra að
sjá þótt hann segi í góðra vina fagnaði
á aðalfundi atvinnurekendasambands-
ins að hann trúi ekki að launafólk
muni grípa til aðgerða.
Á þessum fundi atvinnurekenda
sem forsætisráðherra sat var lögum
Vinnuveitendasambandsins breytt
þannig að atvinnurekendum er bannað
að setja ákvæði í kjarasamninga þess
efnis að af aðgerðum í aðdraganda
þeirra verði engin eftirmál ef vafi gæti
leikið á um lögmæti aðgerða í vinnu-
deilum. Rík hefð er fyrir slíkum
ákvæðum til að tryggja eðlileg sam-
skipti aðila í framhaldinu. Til að ítreka
þá hótun sem í þessu felst hringlar for-
ysta VSI með vinnudeilubaukinn sinn
en í honum eru litlar 800 milljónir
handhægar til að lögsækja íslenskt
launafólk. Heyrir forsætisráðherra
ekki þann tón sem með þessu er sleg-
inn í samskiptum aðila vinnumarkað-
arins í framtíðinni?
Stjómvöld em eindregið hvött til að
leggja eymn við þau skilaboð sem 38.
þing ASÍ hefur fram að færa undir
yfirskriftinni „Til framtíðar". Þar er
mótaður gmnnur til að byggja á auk-
inn kaupmátt og hagsæld og ítarlega
útfærðar hugmyndir um samskipta-
reglur á vinnumarkaði. Kjósi stjóm-
völd að skella skollaeymm við öllum
aðvörunum og hugmyndum sem leitt
gætu til farsælla samskipta á vinnu-
markaði í framtíðinni, launafólki sem
og þjóðfélaginu öllu til hagsbóta, bera
þau fulla ábyrgð á afleiðingunum.
Frambærilegir
frambjóðendur
Jóhannes Sigurjónsson ritstjóri
Víkurblaðsins á Húsavík lýsir
ánægju sinni með forsetafram-
bjóendur í leiðara blaðsins 23. maí
síðastliðinn:
„Fjórir af þeim sem em í framboði
til embættis forseta Islands hafa að
undanfömu litið við á húsavik í lengri
eða skemmri tíma, heimsótt vinnu-
staði, haldið fundi með helstu stuðn-
ingsmönnum eða kjósendum almennt.
Þrátt fyrir að auðvitað sé vonlaust
að leggja mat á menn eftir að hafa
horft á þá og hlýtt eina kvöldstund eða
skemur, þá fer ekki hjá því að eftir
yfirreið frambjóðenda, sitji það hel'st
eftir hversu mikið mannval er hér á
ferð. Ekki verður annað séð en allir
þeir fjórir frambjóðendur sem hér hafa
komið, virðist fullfærir um að gegna
embætti forseta Islands svo sómi sé
að. Þeir hafa allir til að bera þann per-
sónuleika, greind og framkomu sem
hæfir þessu embætti. Með öðmm orð-
um, hver sem úrslitin í forsetakosning-
unum verða, þá þurfa íslendingar ekki
að kvíða niðurstöðunum.
Auðvitað má gera því skóna að
margir kjósendur geti ekki hugsað sér
að einhver tiltekinn ífambjóðandi nái
kjöri, og ráði þar einhveiju persónuleg
andúð vegna sameiginlegrar grásilfur-
seldamennsku í gamla daga, ellegar
hreinlega fordómar. En enginn af
þessum fjómm frambjóðendum sem
hér um ræðir er líklegur til þess að
skandalisera vemlega í embætti eða
gera þjóð sinni skömm til, og fer því
raunar víðs fjarri.
Það má e.t.v. segja að það sé rós í
hnappagat íslensku þjóðarinnar að hún
skuli eiga kost á því að velja á milli
svo ágætra einstaklinga, sem virðast,
a.m.k. við fyrstu sýn, vammi firrtir.
Það segir vonandi eitthvað um þjóðina
sem elur af sér slíkt fólk.
Og vonandi hefur þjóðin manndóm
í sér til þess að taka úrslitum forseta-
kosninganna og sameinast að baki
þeim einstaklingi sem valinn verður til
embættis. Auðvitað skiptist fólk í
hópa og margvíslegar ástæður ráða
því hvern menn kjósa að styðja og
hverjum að hafna. En ef forsetaemb-
ættið sjálft á skilið virðingu okkar og
viðurkenningu sem sameiningartákn
þjóðarinnar, þá á sú virðing að standa
óhögguð þó að í embætti veljist ein-
hver annar einstaklingur en við hefð-
um persónulega kosið og kusum.“
Hefjum hrefnuveiðar
Leiðarahöfundur Dags á Akur-
eyri 22. maí, er vígreifur og vill að
við hefjum hrefnuveiðar næsta
sumar:
„Sjávarútvegsráðherra hefur látið
þau orð falla á Alþingi að ekki sé
spuming hvort, heldur hvenær hrefnu-
veiðar verða hafnar hér við land. Und-
ir þessi orð ráðherrans ber að taka og
full ástæða er til að hvetja yfirvöld að
draga ekki um of að taka ákvörðun
um hrefnuveiðar. Að svo stöddu er
ekki rétt að hefja hvalveiðar hér við
land, en hins vegar á tvímælalaust að
stíga það skref sumarið 1997 að hefja
hrefnuveiðar til innanlandsneyslu. Það
er rökrétt fyrsta skref. Norðmenn hafa
ekki beðið þann skaða af þeim skref-
um sem þeir hafa stigið í hvalveiðum
á undanförnum árum að þeir sjái
ástæðu til að pakka saman. Þvert á
móti hafa Norðmenn aukið veiðamar
jafnt og þétt.
Hrefnuveiðar skipta ekki sköpum
efnahagslega fyrir Islendinga, en þær
em táknrænar á þann hátt að við vilj-
um nýta auðlindir hafsins á skynsam-
legan hátt.“
Ritstjóri Vikubladsins, Páll
Vilhjálmsson, gerir það
ekki endasleppt. Við sögðum
frá því í síðustu viku að for-
ystugrein sem hann skrifaði í
málgagn Alþýðubandalagsins
vakti litla lukku hjá flestum for-
ystumönnum flokksins. Þar
var Alþýðuflokknum spáð
sömu örlögum og sértrúar-
hópi sem framdi hópsjálfs-
morð, og sagt að í framtíðinni
yrði talað um Alþýðuhúsið,
Waco og Jonestown í sömu
andrá. Einar Karl Haralds-
son framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins fordæmdi
skrif Páls í fréttaviðtali við Al-
þýðubladid í síðustu viku, og
þingliðar allaballa sóru inni-
hald leiðarans af sér. En Páll er
semsagt ekki alveg búinn. I
síðasta tölublaði leggur hann
aðra forystugrein undir Al-
þýðuflokkinn og er mjög á
sömu nótum. Meiri athygli
vakti hinsvegar nokkurskonar
„auglýsing" í Vikublaðinu. Þar
voru úrklippuraf annarsvegar
„Waco-leiðara" Páls og hins-
vegar fréttaviðtal Alþýðu-
blaðsins við Einar Karl Har-
aldsson. Eini textinn sem birt-
ist með þessari „auglýsingu"
var svohljóðandi: „Fram-
kvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins leiðir hópefli krata".
Einar Karl var til skamms tíma
helsti stuðningsmaður Margr-
étar Frímannsdóttur og átti
mestan þátt í sigri hennar í for-
mannskjörinu. Hún sneri hins-
vegar við honum baki, flæmdi
hann úrframkvæmdastjóra-
stólnum og gaf Páli grænt Ijós
á árásir á hann. Svo virðist
sem Margrét ætli ekki að linna
látum fyrren henni hefurtekist
að losna við Einar Karl úr
flokknum...
Forsetaframbjóðandinn Pét-
ur Kr. Hafstein hélt fund í
íslensku óperunni á laugar-
daginn. Húsfyllirvarog þótti
fundurinn lukkast vel í hví-
vetna. Góð stemmning er í
herbúðum Péturs, enda þykj-
ast stuðningsmenn hans vissir
um að þeirra maður sé á hrað-
siglingu framúr Guðrúnu Pét-
ursdóttur, en þau standa ein-
mitt í miklu auglýsingastríði
þessa dagana. Þegar búið er
að festa Pétur Kr. í sessi sem
„númertvö" ætla hans menn
að leggja til atlögu við Ólaf
Ragnar Grímsson. Mikið er
lagt í kosningabaráttu Péturs,
og er nú búið að opna kosn-
ingaskrifstofur á tólf stöðum
hringinn í kringum landið...
Félag stjórnmálafræðinga
hélt opinn fund á Hótel
Sögu á föstudagskvöldið þar
sem allir forsetaframbjóðend-
urnir fimm mættu. Á föstudag-
inn var einmitt birt ný skoð-
anakönnun Frjálsrar verslunar
þar sem fram kom að fylgi Ól-
afs Ragnars Grímssonar er
nú 51 prósent, Pétur Kr. Haf-
stein hefur 17, Guðrún Pót-
ursdóttir 16 og Guðrún Agn-
arsdóttir 13. Pétur og Guðrún
Agnarsdóttir höfðu tekið um-
talsvert stökk uppávið en Ólaf-
ur dalaði og Guðrún Péturs-
dóttir stóð í stað. Á fundinum
á Sögu var mál manna að
Guðrún Agnarsdóttir hefði
staðið sig best. Hún lætur
greinilega ekkert á sig fá, þótt
á brattann sé að sækja og þótti
málefnaleg, yfirveguð og skýr
í framsetningu. Þeir sem mest
spá í spilin fyrir forsetakosn-
ingar eru á því, að Guðrún
Agnarsdóttir muni halda
áfram að sækja i sig veðrið...
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Sóley Kristjánsdóttir
nemi: Það veit ég ekki.
Hildur Margrétardóttir
myndlistarnemi: Ég veit að
Sigurlín ívarsdóttir nemi:
Eg hef ekki hugmynd um það.
Richardo Cabrera með-
ferðarfulltrúi: Ég veit ekki
Pétur Kjartansson verka-
maður: Það er Mary Robin-
það er kona og hún er sennilega
hvað hann heitir.
son.
írsk.
m e n n
Vinstrimenn verja RÚV meira
af gömlum vana en ríkri sann-
færingu og taki stofnunin sig
ekki saman í andlitinu fyrnist
vanaskuldbindingin fyrr en
margur hyggur.
Fjölmiðlapistill Páls Vilhjálmssonar f'Viku-
blaöinu, málgagni Alþýðubandalagsins(l)
Átján hjóla trukkur slítur veg-
um á við 6.500 heimilisbíla.
Fyrirsögn í DV í gær.
Mér finnst til dæmis athyglis-
vert að sjá í gögnum þingsins
að áhersla er lögð á samruna
og samvinnu fyrirtækja, ný-
sköpun í atvinnulífinu og full-
vinnslu afurða, auk stefnu í
kjara- og réttindamálum.
Margrét Frímannsdóttir að tala um þing ASÍ
í Vikublaðinu. Mjög athyglisvert að ASÍ skuli
hafa stefnu í kjaramálum?!
Alþýðusambandsþing minna
mjög á landsþing bandarísku
stjórnmálaflokkanna, áður en
prófkjör og forkosningar ein-
stakra ríkja urðu meginað-
ferðin við að safna liði um for-
setaframbjóðendur. Þá var
forsetaframboðum vestra ráð-
ið til lykta í vindlareykmettuð-
um bakherbergjum. Á íslandi
árið 1996 er forsetamálum Al-
þýðusambandsins ráðið á
heimili eins hliðarkóngsins.
Jónas Kristjánsson í forystugrein DV í gær.
í litlu samfélagi á borð við
Færeyjar kaupa nær engir
fasteignir á nauðungarupp-
boði. Fólk vill ekki koma öðr-
um á götuna.
Eyðunn Á. Johannessen þjóðfélagsfræðing-
ur viö Fróöskaparsetur Færeyja í viðtali við
Lesbók Morgunblaðsins.
Ólafur er einstaklega víðsýnn
maður og hinn mesti dugnað-
arforkur. Hann er bráðgreind-
ur, vel menntaður og skemmti-
legur.
Lesendabréf Ólafs Sverrissonar í Morgun-
blaðinu á laugardag - já, um Ólaf Ragnar
Grímsson.
fréttaskot úr fortíð
Anna May Wong
Anna May Wong, hin fræga jap-
ansk-ameríska leikkona, sem allir
kvikmyndavinir kannast við, er nú í
Kaupmannahöfn, og var tekið á móti
henni með kostum og kynjum.
Alþýðublaðiö,
sunnudaginn 10. febrúar 1935