Alþýðublaðið - 05.06.1996, Blaðsíða 6
6
S
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
á
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ1996
■ Helgi Ólafsson sigraði glæsilega á nýafstöðnu Skákþingi ís-
lands. Þó íslandsmeistarinn væri þreyttur eftir mótið gaf hann
kost á viðtali enda skákin í hávegum höfð á Alþýðublaðinu.
Jakob Bjarnar Grétarsson velti því meðal annars fyrir sér
hvort skákmenn væru ekki nördar upptil hópa en
það þarftöffaratil
- segir Helgi, því skákin
virkjar karlmennskuna í
hverjum og einum.
Þetta er í 6. skipti sem Helgi Ólafs-
son verður Islandsmeistari í skák. Hann
vann þijú ár í röð ffá 1991 og þar áður
1981 og 1978. Helgi segir mótið ekki
hafa verið erfitt. Hann er nýlega kom-
inn ffá taflmennsku í Lichtenstein þar
sem honum gekk mjög vel og er ímjög
góðu formi núna - augljóslega. „Ég fór
nokkuð létt í gegnum þetta. Það er allt-
af stress að klára þegar maður er efstur.
Ég heldur hægði ferðina en hitt. Það er
vandi hvemig á að beita sér í forystu-
hlutverkinu: Hvort eigi að setja allt á
fullt eða taka öryggið. Ég held að ég
hafi farið nokkuð skynsamlega í þetta.“
Skákstfll lýsandi
fyrir skapgerð
Almennt er talað um að Helgi hafi
verið í lægð að undanfömu. Helgi gef-
ur ekki mikið út á það, segir að skákin
gangi í bylgjum, en segir rétt að hann
sé sterkari núna en oft áður.
En hvemig skilgreinir Islandsmeist-
arinn sig sem skákmann?
„Ætli ég sé ekki nokkuð alhliða. Það
var alltaf verið að tala um að ég hefði
góða tækni, að svíða stöður, en ég veit
það ekki. Ég er með mikinn slagkraft
og það skiptir miklu máh í skák. Ef þú
hefúr ekki slagkraft þegar færi gefst þá
áttu langt í land. Vandinn er hins vegar
sá að maður þarf alltaf að vera í góðu
formi til þess að kostimir fái að njóta
stn.“
Nú er verið að tala um jajhtefliströll,
sóknarskákmenn og svo framvegis?
„Það er nú lítið að marka sh'kt. Ég
tefli traust en líka mjög villt þegar sá
gállinn er á mér. I þessu móti liggur
það fyrir að ég var nánast að gefa jafht-
efli í lokaumferðunum. Ég hefði getað
fengið fleiri vinninga en gerði það sem
þurfti til að vinna mótið. Þetta var í
raun mjög öruggt. Þegar ég vann
Margeir í 1. umferð þá hvarflaði það að
mér að ég myndi sennilega vinna mótið
því ég sá ekki fram á að menn tefldu
mikið betur en það. Náttúrlega skiptir
miklu máli að vinna helstu keppinaut-
ana í bytjun. Það varð til þess tefldi ég
af meiri varfæmi bæði gegn Hannesi
Hlífari og Jóhanni Hjartarsyni. Ég
hefði hugsanlega getað fengið meira á
móti þeim undir öðmm kringumstæð-
um.“
Nú þekkja margir smásöguna Mann-
tafl eftir Stefán Zweig og menn setja
skákina í samhengi við það að menn
séu innhverfir?
„Ég held að það sé ekki rétt. Skák er
mjög erfið. Það er lýsingin á þessu. Þú
ert alltaf að fást við sjálfan þig.“
En þurfa menn ekki að búa yfir
ákveðnu drápseðli?
„Ég veit það ekki. Ef við til dæmis
skoðum heimsmeistarana þá eru þeir
allir mjög flóknir karakterar og ekki
auðskilgreindir. Meira að segja Fischer.
Menn em aUtaf að reyna að lýsa hon-
um á ákveðinn hátt en það er ekki svo
einfalt að segja úr hvaða jarðvegi hann
sprettur. Það er ekki til nein formúla.
Til þess að verða góður skákmaður
þarf að virkja það góða sem er tU stað-
ar. Það er athygUsvert að skákstíll er oft
í nánum tengslum við skapgerð. Sem
dæmi má nefna Ulf Anderson sem tefl-
ir mjög þurrt og... sænskt. Það er hægt
að sjá ákveðin eðliseinkenni. Ef við
tökum mig þá er ekkert eitt umfram
annað.“
Skák of erfið fyrir konur
Helgi talar um að menn þurfi að
virkja einhverja jákvæðni en nú er
myndmál íþróttarinnar er ekki tíl sam-
ræmis við það. Þetta er stríð?
, Jú. Það er náttúrlega búið að mark-
aðsetja skákina sem mikla baráttu og
hún er það. Heimsmeistaraeinvígið
1972 var sett upp sem barátta milli
heimsveldanna. Það var að sumu leyti
aðferð til að auglýsa skákina. Hún var
ekkert svona áður. Þegar Kortchnoj
kom þá setti hann þetta af stað. Ka-
Skákþing íslands 1996 - Landsliðsflokkur cat. vi (2386)
EL0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 0 1 2 VIN Perf.
1. Helgi Ólafsson sm 2485 * % 1 % % 1 % % 1 1 1 1 8,5 2587
2. Jðhann Hjartarson .... sm 2570 h * h h 0 1 1 1 % 1 1 1 8,0 2544
3. Margeir Pétursson .... sm 2585 0 h * h 1 1 0 1 1 1 1 1 8,0 2542
4. Hannes H. Stefansson . sm 2540 % % h * 1 1 0 0 1 % % 1 6,5 2436
5. Helgi Áss Grétarsson . sm 2450 h 1 0 0 * h 1 % h % 1 1 6,5 2445
6. Þröstur Þðrhallsson .. am 2445 0 0 0 0 h * h 1 1 1 1 1 6,0 2416
7. Sævar Bjarnason am 2305 h 0 l 1 0 h ■k 1 0 h 0 1 5,5 2393
8. MagnOs Örn Úlfarsson . 2290 h 0 0 1 h 0 0 * % 1 h h 4,5 2329
9. Jðn G. Viðarsson f 2340 0 % 0 0 h 0 1 % * 1 1 0 4.5 2325
10. Benedikt Jðnasson .... f 2280 0 0 0 h h 0 h 0 0 * 1 1 3,5 2262
11. Jðn Viktor Gunnarsson 2180 0 0 0 h 0 0 1 h 0 0 * 1 3,0 2229
12. Torfi Leösson 2160 0 0 0 0 0 0 0 h 1 0 0 * 1,5 2097
Seinasti dálkurinn sýnir útreikning á frammistöðu skákmannanna (performance). Þetta eru þau ELO stig
sem viðkomandi skákmaður þurfti að hafa í upphafi móts til að halda sínum ELO stigum miðað við
árangurinn í mótinu. Athugið að þetta er ekki haekkun eða lækkun á raunverulegum ELO stigum.
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf Jóns
Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg rit
og annars kostar til þess að styrkja útgáfu merkilegra
heimildarrita." Heimilt er að „veita fé til viðurkenningar
á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem hafa vísinda-
rit í smíðum." Öll skulu rit þessi „lúta að sögu íslands,
bókmenntum þess, lögum, stjórn og framförum."
Þeir sem óska að rit þeirra verði tekin til álita um verð-
launaveitingu skulu senda nefndinni eitt til þrjú eintök.
Æskilegt er að umsögn viðurkenndra fræðimanna, sér-
fróðra um efni ritsins, fylgi.
Framangreind gögn skulu send forsætisráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykjavík, en stíluð til verð-
launanefndarinnar, fyrir 1. september næstkomandi.
Reykjavík 30. maí 1996.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Sigurður Líndal prófessor.
Sigþrúður Gunnarsdóttir háskólanemi.
Magdalena Sigurðardóttir skólafulltrúi.
Ungir jafnaðarmenn
Vikuna 22.- 28. júlí 1996 verður IUSY World Festival
haldið í Rheinaue Park í Bonn, Þýskalandi. Þátttakendur
verða um 4000 alls staðar að úr heiminum. SUJ hefur
hug á að senda fulltrúa á þessa hátíð, einn eða fleiri og
er möguleiki á að Sambandið greiði hluta ferðakostnað-
ar og þátttökugjalds, sem er 150.- DM. Áhugasamir geta
leitað frekari upplýsinga á skrifstofu SUJ, eftir hádegi
virka daga.
Framkvæmdastjóri
sparov tók upp þráðinn með því að
stilla skákinni upp sem baráttu milli
nýrra tíma og gamalla í Sovétríkjunum.
En skákin er mjög erfið. Það er best
að lýsa henni þannig. Ég hef til dæmis
hugleitt það mikið og hef komist að
þeirri niðurstöðu að skákin sé of erfið
fyrir konur. Þetta er spuming um karl-
mennsku sem konur hafa einfaldlega
ekki. Það er hægt að komast ákveðið
langt eins og Judith Polgar en sú mýkt
sem konur hafa umfram karla vinnur
gegn þeim. Þetta er kannski karlrembu-
leg skoðun en ég held að þetta sé lýs-
ingin.“
Það er líklegt að ef hér vœri grenj-
andi femínistaljón fengirðu það yfir
þig?
„Af hverju? Konur eru bara ekki
eins og karlar. Það er talsverður munur
þar á. Ég er ekkert að segja þeim þetta
til hnjóðs. Þetta er bara svona. Menn
vilja ekkert vera að flíka þessu nú á
tímum þegar allir vilja vera svo ,Jíbó“
en ég held að konur verði að ganga of
mikið á sig sjálfar til að virkja þessa
karlmennsku sem er í skákinni. Maður
er kannski að tefla í sjö tíma dag eftir
dag alveg dauðþreyttur. Það er mjög
erfitt. Það er mikil spenna í skákinni og
það fer mikil taugaorka í hana. Ég held
að konur séu bara það skynsamar að
þær sjá að þeirra tíma er betur varið í
aðra hluti “
Þaðþarfsem sagt töffara ískákina?
, Já, það þarf töffara til í skákina. Og
ég held að menn séu ekkert fæddir ein-
hveijir töffarar sem eru í skákinni. En
skákin virkjar þann þátt.“
Þannig menn sem eru að tala um
skáknörda eru á villigötum?
,Jájá. Menn þurfa að leggja óheyri-
lega vinnu í skákina til að ná árangri.
Til þess að verða stórmeistari þarf rosa-
legt púst og menn að vera tilbúnir að
fóma öllu. Ég reyndar lít ekki svo á
hvað mig varðar. Þessi ofstopi gagn-
vart skákinni tilheyrir öðmm aldri og er
að baki.“
Helgi Ólafsson: Azmaparazvili, aðstoðarmaður Karpovs, vann mót um
daginn með 16 vinningum af 18 mögulegum sem er mjög glæsilegur ár-
angur. Gallinn er bara sá að mótið fór aldrei fram.
Blikur á lofti í skákinni
Helgi segir að skákmenn verði oft
betri með aldrinum „Það er mjög at-
hyglisvert að mjög sterkir skákmenn
sem hafa að einhverju að keppa, til
dæmis að þeir hafi aldrei orðið heims-
meistarar, verða oft betri heldur en
skákmenn sem hafa unnið titilinn.
Korsnoj vann aldrei titilinn en hann var
betri en Spasski, Petrosjan og Tal
vegna þess að hann hafði alltaf að ein-
hverju að keppa. Hann var alltaf að
ströggla við þetta og markmiðið herti
hann. Skák er að því leytinu til athygl-
isverð að menn geta stöðugt bætt sig.“
Áttþú eftir að toppa ?
„Ég veit það ekki. Ég er nú einu
sinni þannig gerður að ég veit ekki ná-
kvæmlega hvað ég vil eða hvert ég
stefni. Svo eru ýmsar blikur á lofti í
skákinni, bæði alþjóðlega sem og hér á
landi. Skákin varð fyrir ákveðnu áfalli
við opnun Sovétríkjanna. Þjóðaríþrótt
var færð niður. Þessi stóri hópur sem
fyllir heilu og hálfu mótin gerir alla
samkeppni mjög erfiða. Gamli bolsa-
frasixm virðist lifa góðu lífi: Við vitum
ekkert hvert við erum að fara en við
munum ná þangað. Þeir reyna að ná
markmiðum sínum með öllu móti.
Engu skiptir hvort þeir svindli eða ekki
og dæmin eru með ólfkindum. Menn
standa frammi fyrir þessum vanda
núna.“
Er staða skákarinnar slœm nú um
stundir?
„Markaðslega stendur hún betur en
oft áður. Kasparov hefur markaðssett
hana að sumu leyti skemmtilega með
þessum tölvukeppnum. IBM og önnur
stór fyrirtæki em að borga mjög stórar
upphæðir. Skákinni hefur verið stillt
upp sem hinum eina sanna andstæðingi
tölvunnar. Hún hefúr þá stöðu og það
er algjörlega óumdeilt. Það vinnur með
skákinni."
Rússarnir svindla
gengdarlaust
„Hins vegar er kaótískt ástand á
stjórnuninni," segir Helgi. „Það er
vandinn. Til dæmis er mjög furðulegt
að allar siðareglur vanti í skákina sem
hefði mátt setja fyrir löngu. Þessir sov-
ésku skákmenn em að svindla svo mik-
ið að það er með ólíkindum. Vinningar
ganga kaupum og sölum. Eitt nýjasta
dæmið er mótatafla sem var send án
þess að mótið færi fram. Azmaparaz-
vili, aðstoðarmaður Karpovs, vann mót
um daginn með 16 vinningum af 18
mögulegum sem er mjög glæsilegur ár-
angur. Gallinn er bara sá að mótið fór
aldrei fram. Þá var Azmaparazvili að
kaupa sér ELO stig. Svona var þetta
raunar meira og minna í gömlu Sovét-
ríkjunum. Mót voru fixuð meira og
minna. Þegar Karpov var heimsmeist-
ari þá tapaði hann ekki einni einustu
skák gegn landa sínum á erlendum
vettvangi í tíu ár. Ég get ekki sagt það
hafi allt verið fyrirfram ákveðið en
menn voru ekki að taka áhættur gagn-
vart horium."
Er engin endastöð ískákinni?
„Ef það er endastöð þá þarf algjör
ofurmenni til. Kasparov hefur komist
næst því. Hann færði skákina á annað
plan. Ef þú ætlar að standa þig vel í
mótum þarftu að kunna teoríuna og all-
an fjandann nánast utanbókar. Skákin
er svo erfið og innan strangra tímatak-
marka að það er ekki á mannlegu valdi
að ná fullkomnum tökum á þessu. Ekki
tölvur heldur. Það kom fram í einvíg-
inu við Kasparov."
Hyað tekur nú við hjáþér?
„Ég verð að kenna skák næsta vetur
hjá Skákskólanum. Svo er þetta ólymp-
íska mót í haust í Armem'u. Það verður
erfitt að tefla á þeim vettvangi. Þama
verða fimmtán fyrrum Sovétlið. Sú
hætta að þeir hagræði úrslitum er alltaf
fyrir hendi. Það er alveg á hreinu að
þeir gerðu það á síðusta Ólympíumóti.
Við Islendingar náðum 6. sæti í Manila
og liðin sem voru fyrir ofan okkur voru
algjörlega rússnesk, meira að segja
bandaríska liðið. Islenskir skákmenn
eru stigalágir miðað við getu. Það er
óumdeilt. Til dæmis eru Israelsmenn
að tapa fyrir okkur en em miklu stig-
hærri. Staðreyndin er sú að íslenskir
skákmenn em mjög öflugir.“
Eri getum við ekki bara möndlað
eitthvað með stigin líka?
„Ég lít svo á að viðmiðunin sé af-
stæð því kerfið er í rúst þó svo að þeir
sem skipuleggja alþjóðleg mót horfi
eingöngu á stigatöfluna. En, nei. Hinn
siðmenntaði maður telur sér það til
tekna að vera heiðarlegur.“
Besta skákin í mótinu
Flestir eru sammála um að skák
þeirra Helga Ólafssonar og Margeirs
Péturssonar í 1. umferð hafi verið besta
skák mótsins og jafnframt megi Kta á
hana sem úrslitaskák. Alþýðublaðið
bað Helga um skákskýringu en hann
sagði það erfitt fyrir sig. „Það má
kannski benda á 20. leikinn. Þegar
biskup drepur c6,“ segir hann. ,JÞá fer
þetta af stað. Eftir þann leik á Margeir
sér í raun ekki viðreisnarvon. Þetta er
tvöföld peðsfóm sem hrindir atburða-
rásinni af stað. Þá koma tíu leikir í röð
sem em allir mjög sterkir en em jafn-
framt einu leikimir í stöðunni hveiju
sinni til að halda þessu gangandi," segir
hinn tiltölulega hógværi nýkrýndi Is-
landsmeistari en samsinnir því þó að
skákin sé útígegn vel tefld.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Margeir Pétursson
1. e4 cS 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6
5. Rf3 e6 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. Be3
cxd4 9. cxd4 0-0 10. Rc3 Dd6 11. a3 b6
12. De2 Bb7 13. Hadl Hfd8 14. Bg5 g6
15. Hfel He8 16. Bxf6 Bxf6 17. Re4 De7
18. Rxf6+ Dxf6 19. Be4 He7 20. Bxc6
Bxc6 21. d5 Bb7 22. Re5 Bxd5 23. Rg4
Dg5
24. f4! Dxf4 25. g3 Dc4 26. Rf6+ Kf8 27.
De3 Dc5 28. Hd4 Kg7 29. De5 Be4 30.
Re8+ Kh6 31. Dg7+ Kg5 32. Df6+ Kh6
33. Hxe4 og svartur gaf.