Alþýðublaðið - 21.06.1996, Page 1
■ Margrét Frímannsdóttir formaður Alþýðubandalagsins sendir forystumönnum
Alþýðuflokks, Kvennalista og Þjóðvaka bréf með beiðni um viðræður um samstarf
Utspil Margrétar - ekki
Alþýðubandalagsins
- segir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Alþýðu-
bandalagsins. Vill fá framsóknarmenn til viðræðna um
samstarf félagshyggjuflokkanna, en hafnar fullyrðing-
um um að hann sé á leið í Framsóknarflokkinn.
„Þetta er auðvitað hennar útspil,
ekki flokksins að öðru leyti. I sjálfu
sér er ekkert athugavert við að hún
sendi bréf, en ég hefði talið eðlilegra
að fá Framsókn inn í þessar viðræður.
Með því að sniðganga þá erum við að
ýta þeim yfir á hinn vænginn," sagði
Kristinn H. Gunnarsson þingmaður
Alþýðubandalagsins um bréf sem
Margrét Frímannsdóttur hefur sent
forystumönnum Alþýðuflokks, Þjóð-
vaka og Kvennalista með beiðni um
viðræður í sumar um samstarf flokk-
anna.
Kristinn sagði að hann vildi viðræð-
ur á öðrum nótum en verið hefði,
menn ættu að fjalla um póiitík og
stefnumál en ekki fyrst og fremst
tæknilega útfærslu mögulegs sam-
starfs, einsog kosningabandalög og
þessháttar.
„Við verðum að koma okkur niður
á pólitfkina. Hvaða stefhu viljum við
reka í velferðarmálum, ríkiskerfi og
öðru slíku. Við getum ekki beitt pólit-
ísku áherslunum ífá 1975. Við gemm
ekki lengur þanið út ríkiskerfið, og við
getum ekki gert betur við alla hópa af
því við eigum ekki fýrir loforðunum.
Við þurfum að geta rekið velferðar-
kerfið fyrir minni peninga, en eigum
að hafa það eins gott og mögulegt er.
Þessi umræða kallar á svör við erfið-
um spumingum, en ef menn tala ekki
um þessa hluti, þá verður engin sam-
eining."
f nýju Þjóðvakablaði er birt ffétta-
skýring þarsem getum er að því leitt
að Kristinn H. Gunnarsson sé á leið
yfir í Framsóknarflokkinn, enda hafi
hann gagnrýnt stjórnarandstöðuna
harðlega en staðið með ríkisstjóminni
í sumum málum. Aðspurður um þess-
ar fullyrðingar sagði Kristinn: „Þeir
em fijóir, blessaðir. Það er nú ekkert í
þessa veru á döfinni og ég kannast
ekki við að hafa gefið tilefni til þessar-
ar umræðu. Trúlega væri nær að
spyrja þingmenn Þjóðvaka: Hvar
verðið þið í haust?“
Kristinn ítrekaði hinsvegar að hann
sæi ekki hvernig sameining vinstri-
manna gengi án Framsóknar: „Ég hef
enga trú á árangri ef ekki verður leitað
samstarfs við þann stóra hóp félags-
hyggjumanna sem er í Framsókn. Ætli
menn að hugsa stórt á auðvitað að ná í
alla félagshyggjumenn."
■ Sögusagnir um að fjársterkir
aðilar hafi fengið Guðrúnu Pét-
ursdótturtil að hætta við fram-
boð, gegn því að greiða kosn-
ingaskuldirnar
Því fer víösfiarri
„Því fer víðs fjarri," sagoi Guðrún
Pémrsdóttir fyrrverandi forsetaframbjóð-
andi úm sögusagnir um að fjársterkir að-
ilar hafi fengið hana til að hætta við
framboð gegn því að greiða kosninga-
skuldir hennar. Hún sagðist „aldrei
nokkumtíma" hafa fengið nein tilboð í
þessa vem.
Guðrún, sem vildi nánast ekkert láta
eftir sér hafa í gær, og Pétur Kr. Hafstein
em gamlir leikfélagar, frændsystkini og
vinir og margir lásu óbeina stuðningsyf-
irlýsingu við framboð Péturs úr orðum
hennar þegar hún tilkynnti að hún drægi
framboð sitt til baka. Hún sagði að þau
hefðu ekki talað saman síðan í október,
þegar hann var að velta því fyrir sér að
fara í framboð, ef undan em skilin orða-
skipti þeirra á framboðsfundi þess efnis
að slæmur hljómburður væri í Perlunni.
Hún sagði jafnframt að það hefði komið
Pétri algerlega á óvart þegar hún hætti
við framboð. Hann hefði ekki haft hug-
mynd um það fyrirffam.
Guðrún sagði að engrar stuðningsyfir-
lýsingar væri að vænta frá henni á næstu
dögum, og vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér þegar hún var spurð hvort hún væri
andvíg framboði Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Guðrún hefur jafnan lagt áherslu á
að ekki eigi að kjósa stjómmálamann
sem forseta, og ítrekaði það í fyrradag
þegar hún hélt blaðamannafund til að til-
kynna að hún væri hætt í slagnum. „Þó
honum takist að ná helmingi þjóðarinnar
er hættan á því að hinn helmingurinn sé
miklu óánægðari en ef þetta er ekki um-
deildur maður. Þeir sem em á móti hon-
um, em það af öllum lífs og sálarkröft-
um,“ sagði Guðrún Pétursdóttir.
• „Ég ætla að sleppa því að benda
lesendum á þá augljósu staðreynd að
ég er með þessu að sparka í liggjandi
mann. Og það sem verra er, liggjandi
konu," segir Gunnar Smári Egilsson
í grein um Guðrúnu Pétursdóttur
• „Þjóðir fá útrás. Allar nema við.
Aldrei hafa íslendingar átt lið á stór-
mótum sem þessu, og munu aldrei
eiga. Þess vegna verður maður alltaf
að finna sér einhvern til að halda
með," segir Hallgrimur Helgason -
fótboltabulla í Paris
• „Því skora ég hérmeð á Hannes
Hólmstein Gissurarson að lyfta loka-
spretti kosningabaráttunnar á mun
hærra og málefnalegra plan - með að
hætta að taka þátt í henni," segir
Davíð Þór Jónsson í bréfi til penna-
vinarins Hannesar Hólmsteins
fyrir alla fjölskylduna
Á 70 ára afmælisári 66°N hefur úrvalið af sport- og
útivistarfatnaði aldrei verið meira. Stöðug þróun hefur
átt sér stað í framleiðsluaðferðum og unnið er úr bestu
fáanlegum efnum á hverjum tíma.
SIX-TEX öndunarfatnaðurinn, sem unninn er úr
hágæðaefninu ENTRANT Gll, er einn sá vin-
sælasti í dag enda mætir hann kröfum hörðustu
neytenda landsins.
POLARTEC FLEECE, EÐALFLÍS er mjúkur
og hlýr fatnaður með mikið einangrunargildi,
framleiddur í þremur mismunandi þykktum.
66°N erujoeir fyrstu á íslandi sem framleiða
EÐALFLÍS úr vindheldu- og vatnsfráhrindandi efni
í verslunum 66°N er einnig mikið úrval af regn-
og hlífðarfatnaði, úlpum og kuldagöllum á börn
og fullorðna.
nlflÐUR
SJOKlÆÐAGERÐtN HF.
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 552 7425,
FAXAFENI 12 SÍMI 588 6600,
ÚTILÍF GLÆSIBÆ SÍMI 581 2922