Alþýðublaðið - 21.06.1996, Síða 2

Alþýðublaðið - 21.06.1996, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ1996 s k o d a n ummuD 21130. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Ritstjóri Auglýsingastjóri Umbrot Prentun Alprent Hrafn Jökulsson Ámundi Ámundason Gagarín hf. ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Símboði auglýsinga 846 3332 Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Æsispennandi endasprettur Sú ákvörðun Guðrúnar Pétursdóttur að draga forsetaframboð sitt til baka lýsir í senn kjarki og raunsæi. Aldrei áður hefur það gerst að ffambjóðandi hætti við á síðustu stundu; þegar jafnvel er búið að prenta kjörseðlana. En Guðrún las skriftina á veggnum: fylgi hennar hefur dalað stöðugt síðustu vikur og var komið niður fyrir 10 prósent. Þrátt fyrir að miklum ljármunum væri eytt í aug- lýsingar náði Guðrún ekki að bijótast úr herkvínni, og sívaxandi umfjöllun flestra fjölmiðla um forsetakosningamar kom fyrir ekki. Það fór heldur tæpast ffamhjá mönnum að Guðrún Péturs- dóttir, sem var ákaflega kraftmikil í byijun, var fyrir allnokkru orðin viðskila við sigurvon og baráttugleði. Þegar Guðrún Pétursdóttir kynnti fféttamönnum ákvörðun sína í fyrradag lét hún svo um mælt að þjóðin hafi þegar skipað sér í tvær meginfylkingar. Þá sagði Guðrún að fjölmargir hefðu haft samband við hana, lýst yfír samstöðu en jafuframt haft áhyggjur af því að atkvæði greitt henni myndi ekki hafa bein áhrif á hver verður næsti forseti íslands. Guðrún Agnarsdóttir hefur verið í svipaðri stöðu, þótt fylgi hennar virðist nú á uppleið, og margoft mátt svara því hvort atkvæði henni greidd falli ekki dauð. Hún hefur á móti lagt mikla áherslu á að fólk eigi að greiða atkvæði eftir sannfæringu sinni, en ekki taka mið af því einvörðungu hvaða frambjóðendur eigi mesta möguleika. Óvíst er að þessar röksemdir Guðrúnar Agnarsdóttur dugi, enda sýna kannanir að stór hluti kjósenda er reiðubúinn að yfirgefa sinn frambjóðenda ef sýnt þykir að sigurmöguleikar séu litlir eða engir. Kannanir á viðhorfum stuðningsmanna Guðrúnar Pétursdóttur benda eindregið til að Pétur Kr. Hafstein hagnist mest á því að hún dregur sig í hlé. Munurinn á honum og Ólafi Ragnari Gríms- syni - sem nú er kringum 10 prósentustig - ætti því enn að minnka. Þá ættu menn að hafa í huga að enn eru mjög margir óákveðnir. I skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar, sem Morg- unblaðið birti í fyrradag, var þriðjungur kjósenda ekki búinn að gera upp hug sinn, þótt þeim fækkaði reyndar til muna þegar spumingunni var fylgt eftir. Þá viku sem í hönd fer verður æsi- spennandi keppni Ólafs Ragnars og Péturs; um þá hefur þjóðin skipað sér í tvær fylkingar. Árangur Péturs í kosningabaráttunni er mjög eftirtektarverður. Fyrir örfáum vikum mældist Ólafur Ragnar með allt að sex sinnum meira fylgi, en nú er ljóst að Pétur á raunhæfa möguleika á sigri. Guðrún Pétursdóttir sagði við fféttamenn í fyrradag að kosn- ingabaráttan sé póhtískari en hún hafi búist við. Þótt hún svaraði ekki beint hvaða frambjóðanda hún ætlar sjálf að styðja mátti lesajþað milli tínanna; Að hennar mati stendur valið milli Péturs og Ólafs, og hún ítrekaði að „óheppilegt“ væri að velja stjóm- málamann í embætti forseta. Skýrara gæti það varla verið. Júró '96 Það er snargeðveikur maður á hom- inu á Avenue Daumesmil og Boule- vard Poniatowski. Hann er í bláum buxum og hvítum hlýrabol og situr á bekk. Hitinn er 30 gráður. Hann starir út í loftið útstæðum augum. Hvítan í þeim er leðurhúðuð (glampar á hana) og boltamunstur í stað steina. Upp eft- ir handleggjum hans eru tattóeraðar adídas-rendur. Takkaför í lófum: Hann heldur á fjarstýringu. Portrett af einstæðum manni í miðri Evrópukeppni. Það er sjónvarp á hveijum bar í Par- ís. Búið að draga fram einhvem lit- ónýtan garm sem skröltir á barborð- inu, knúinn áfram af skotum Króata og tæklingum Spánveija. Fótbolti! Ó! Fótbolti! Fullkomnasta listform sam- tímans. Og það sem kemur næst kyn- hvötinni í eðli mannsins. Karlmanns- ins. Og þó. Kannski er fótboltinn æðri kynhvötinni. Allavega fagna menn meira þegar þeir fá það með boltan- um. Þjóðir fá útrás. Allar nema við. Aldrei hafa íslendingar átt lið á stór- mótum sem þessu, og munu aldrei eiga. Þess vegna verður maður alltaf að finna sér einhvem til að halda með. Landlaus og liðlaus gengur maður um bæinn og h'ður eins og íslenskri sendi- nefnd á stórveldaráðstefnu; maður heldur með þeim sem maður er með í það og það skiptið. Tækifæri fyrir tækifærissinnann í manni og forvitn- ina: þegar Englendingar spila fer mað- ur á enskan bar hér í París. Þegar Portúgalar eiga leik horfir maður á hann á portúgölskum stað. Á Spán- veija horfir maður á „spænska bam- um“. Frakka getur maður séð á hvaða bar sem er. En alltaf er maður réttu megin, heldur með réttu liði, alltaf fagnar maður sigri, ásamt vinum sín- um við bjórglasið, í það og það skipt- ið. Itar | Hallgrímur Helgason skrifar Að vísu verð ég að viðurkenna að ég klikkaði aðeins á þessari annars fínu reglu í fyrsta leiknum: Ég hélt með Dönum á móti Portúgölum (á „portúgalska veitingastaðnum") svona rétt á meðan þeir vom yfir. Aðlögun- arhæfnin kom jafnvel sjálfum mér á óvart þegar „Zeliginn" í manni braust fram og ég horfið á hendur mínar klappa fyrir jöfnunarmarki Portúgala sem göluðu á öllum borðum í kring- um mig. Portúgalar horfa á sína leiki eins og íslendingar. Steinþegja alvar- legir í bragði þar til markið kemur. Þá sleppa þeir sér. Frakkar sleppa sér hins vegar aldrei, segja bara létt „vei“ þegar Djorkaeff skorar; mestan há- vaða gera þeir yfir glötuðum færum; þá fara þeir að analýsera, hvað hann hefði átt að gera við boltann, „gef- ann!“, „hinn var frír“. „Eins og í hænsnakofa," sagði Siggi. Spánverj- arnir voru hinsvegar ekki mættir á „spænska barinn". Leikurinn var of snemma (17:30) og þeir ekki vaknað- ir. Við íslendingamir sátum þama ein- Vikupi IÞjóðir fá útrás. Allar nema við. Aldrei hafa ís- lendingar átt lið á stórmótum sem þessu, og munu aldrei eiga. Þess vegna verður maður alltaf að finna sér einhvern til að halda með. ir og ákváðum þá í staðinn að halda bara með Búlgömm fyrst okkur var það í ftjálst vald sett. Skemmtilegast er þó auðvitað á „enska bamum". Tjallinn kann að tjúl- last. 200 manns inná reykmettum pöbb og söngurinn magnaðri en hjá þessum 65.000 á Wembley. „You are shit, you know ýou are!“ sungu Eng- lendingamir og Skotamir 20 pilsuðu sig saman í hominu lengst ffá bamum, jafn nískir á glösin og landar þeirra inni á vellinum vom nískir á sending- amar fram. Skotar em svo nískir að þeir tíma ekki að sækja, af því að þeir gætu tapað á því. Þess vegna hafa þeir bara skorað 2 mörk í þessum tíu Évr- ópu- og heimsmeistaramótum sem þeir hafa tekið þátt í. Enska knattspyman er reyndar ekki mikið fyrir augað. Hún er meira fyrir eyrað. Það era áhorfendumir sem allt- af standa sig best. Kannski vegna þess að þeir fá svo oft boltann. Eða eru leikmennirnir að þakka þeim stuðn- inginn með því að senda boltann alltaf upp í stúku? Eftir fyrri hálfleikinn í England- Skotland er maður allur og Guinness á því að það eigi að banna liðum frá Bretlandseyjum að taka þátt í Evrópu- keppninni. Bara halda þessu við meg- inlandið. Engar eyjar með. Að vísu dyttum við íslendingar út þar með, en það skiptir ekki máli. fslensk knatt- spymusaga er enn að ná sér niður úr hjólhestinum hans Búbba. Þar var há- punktinum náð. Það er erfitt að leika knattspymu á móti Skotum. Það er eins og að leika á móti tómum skotum. („Kick-and- Rush“ er þetta kallað af enskumælsk- ustu blaðamönnum Frakka (eitthvað mgl með Ian gamla Rush)). Og öll munum við eftir írska landsliðinu sem gerði svo fúl-grænan blett á síðustu heimsmeistarakeppni með sínum þremur 0-0-leikjum. Svo ekki sé talað um Norður-írland og Wales og hvað þau heita öll þessi hémð á Bretlands- eyjum sem fyrir foman misskilning fá að stilla upp landsliðum. Englendingar virðast þó vera í einhveiju smði þessa dagana, en mest fyrir þökk hins nýja og fullkomna loftræstikerfis á Wem- bley sem er svo öflugt að það nær að feykja burt vítaspyrnum og öðrum hættulegum fæmm andstæðinganna. Þó er breski boltinn hátíð miðað við þann tyrkneska. Ekki skil ég hvað Tyrkir eru að gera í Evrópukeppni. Eða síðan hvenær er Tyrkland í Evr- ópu? Þegar maður horfir á , Jeik“ tyrk- neska liðsins fer maður að skilja betur þetta Sophiu Hansen-mál. Það er eng- in leið að eiga við þessa menn. Hvað þá spila við þá. „Tynknesk.auka- spyma“ feíst í því að þmsa í vamar- vegginn af öllu afli, í punghæð, í þeirri von að einhver forði sér og sínum líf- færum. „Tyrkneskt innkast" felst í því að reyna að dúndra boltanum það fast í andstæðinginn að hann hrökkvi útaf við endamörk og þeir fái hom. „Tyrk- neskt hom“ felst í því að þmma knett- inum - enn í punghæð - inn í þvöguna við markið í þeirri von að hann hrökkvi inn. „Tyrknesk vítaspyma" felst í því að miða beint á milli augn- anna á markverðinum og skjóta svo eins fast og hægt er.“ Þó þeir séu 7000, tyrknesku barimir í París, gekk maður aldrei svo langt að halda með þeim, þrátt fyrir allan sinn „Zelig“. Hins vegar er enginn þýskur bar hér í borg (hvemig stendur á því?) enda þýska liðið nógu óþolandi fyrir, svo maður fari nú ekki að halda með þeim. Þýskaland er eina liðið sem get- ur verið lúsheppið og lélegt en samt unnið 3-0, og það sem verst er: verð- skuldað. (Þýskaland-Rússland, 3-0) Nei, þá er betra að halda með Frökkum, - sem eru góðir, og eiga skilið að vinna, - og Hollendingum, og Portúgölum, og Króötum, og Tékkum, og Spánveijum, já og Eng- lendingum... ef maður er á enska barnum. ■ Það er ekki alveg ljóst hvað Guðrún Pétursdóttir á við, þegar hún segir að kosningabaráttan sé of pólitísk. Flokkspólitísk er hún aðeins að því leyti að foringjar Sjálfstæðisflokksins hamast einsog naut í flagi gegn Ólafi Ragnari. Hann nýtur eigi að síður mikils fylgis kjósenda Sjálfstæðisflokksins, og er sá frambjóð- andi sem hefur breiðastan stuðning. Ólafur Ragnar hefur yfir- burðastöðu meðal kjósenda Alþýðubandalags og Framsóknar- flokks, og hefur umtalsvert forskot hjá stuðningsmönnum Al- þýðuflokksins. Pétur Kr. Hafstein er á hinn bóginn kominn með fylgi um 60 prósent sjálfstæðismanna, hefur sótt í sig veðrið meðal alþýðuflokksmanna en hefur átt erfitt uppdráttar meðal framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna. Þótt vitanlega megi lesa úr þessum tölum skiptingu í hægri og vinstri er þorri kjósenda að velja þá persónu sem þeim þykir tík- legust til að gegna embætti forseta íslands með sóma og reisn. ■ Atburðir dagsins 1527 Italski nthöfundurinn og klækjarefurinn Niccolo Mac- hiavelli deyr, 58 ára. 1908 Rússneska tónskáldið Nikolai Rimsky-Korsakov deyr. 1942 Sveitir þýska hershöfðingjans Rommels taka 25 þúsund manna herlið bandamanna til fanga í Tobruk á Líbýuströnd. 1959 Herra Sigurbjöm Einars- son vígður biskup yfir íslandi. Hann gegndi embættinu til 1981. 1980 Kvikmyndin Óðal feðranna eftir Hrafn Gunn- laugsson frumsýnd. 1990 25 þúsund farast í jarðskjálftum f Iran. Afmælisbörn dagsins Jón Helgason 1866, biskup. Jean-Paul Sartre 1905, franskur heimspekingur og rit- höfundur. Mary McCarthy 1912, bandarískur rithöfundur. Annálsbrot dagsins Það sumar rigndi maðki úr lopti víða fyrir norðan land, helzt til afdala, gerði mikinn skaða engjum og úthögum. Varð þar öll jörð hvít, sem hann lá, sem gömul sina, þótt áður væri grænt gras fullsprott- ið. Seiluannáll 1653. Val dagsins Við verðum að trúa á frjálsan vilja - við höfum ekkert val. Isaac Bashevis Singer. Þjófar dagsins Ef maður vill stela í þjófafé- lagi, þá verður að stela sam- kvæmt lögum; og helst að hafa tekið þátt í að setja lögin sjálf- ur. Organistinn í Atómstöb Halldórs Laxness. Málsháttur dagsins Ást og ofsakláði er óleynandi. Orð dagsins Orður og litlar, úrelt þing, - einsog dœmin sanna, - notast oft sem uppfylling ( eyður verðleilcanna. Steingrímur Thorsteinsson. Skák dagsins Hinn sterki Adams leikur listir sínar með hvítu mönnunum gegn Conquest. Svarta staðan er brothætt og Adams molar hana í sundur með snjöllum leikjum. Hvítur leikur og vinnur. 1. Hxe4! Dxe4 2. Dxf6+! Bxf6 3. f8=D Skák og mát!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.