Alþýðublaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 ALÞÝÐUBLAÐK) 3 s k o d a n Forsetakosningar og unga fólkið í upphafi aldarinnar fordæmdi þýski félagsffæðingurinn Max Weber eltíngaleik ungs fólks við lífsskynjanir og ífumleika. í fyrirlestri sínum „Starf fræðimannsins" taldi hann ungt fólk veigra sér við því að horfast undan- bragðalaust í augu við örlög samtíðar- innar. I Islandsheimsókn sinni skýrði fráfarandi forsætisráðherra Israels, Shimon Peres, hver örlög samtíma okkar séu. Annars vegar er óendan- lega mikið af tækifærum til að upp- götva heiminn og margbreytileika hans. Tölvu-, upplýsinga-, fjölmiðla- og samgöngubylting setur allt líf okk- ar í nýtt samhengi. Hins vegar er næsta óyfirstíganlegur þröskuldur at- vinnuleysis eða menntunarskorts. Gjá- in milli menntaðra og ómenntaðra lik- ist því helst rígbundnu stéttaskipulagi miðalda. Pallborð Kjartan Emil Sigurðsson skrifar í tíð fyrrverandi Bandaríkjaforseta, George Bush, varð fyrir hendingu til hinn örstutti fréttabiti New World Or- der eða ný heimsskipan. Hann var lát- inn þýða breytta heimsskipan, kröft- uga forystu og jafnvel bjartsýni. Allt átti þetta að stemma stigu við upp- lausn og óöryggi sem virtist blasa við. Fyrir skömmu var önnur atlaga gerð að því sama með hinum svokallaða „Samningi við Bandaríki, N-Amer- fku“. Samningurinn er hraksmíð og fer vonandi í hundana þó ekki nema fyrir tilstilli neitunarvalds Clintons Bandaríkjaforseta. Á Bretlandi reyndi ríkisstjómin að hverfa aftur til fortíðar, „Back to the Basics“, - en allt kom fyrir ekki. Á íslandi hefur verið talað um bölsýni. Atvinnuleysi, fíkniefna- neysla, glæpir, almenn vantrú og hrein > á INýr forseti þarf að hafa siðferðilegan boðskap í farteskinu og í emb- ættinu. Hann þarf að vera stjórnmálamaður í upphöfnum skilningi og heimspekingur nýrrar stefnu og markmiða fyrir íslenskt samfélag. og bein svartsýni virðist ríkjandi. Upplagt er að hafa þetta í huga nú þegar dregur að forsetakjöri. Kristján Eldjám og Vigdís Finnbogadóttir vom boðberar nýrra tíma. Kjör Kristjáns, og jafnvel Ásgeirs Ásgeirssonar á undan honum, staðfesti að flokkamir ættu ekki embættið. Vigdís var og er tákngervingur jafnréttisbaráttunnar. Sem slík boðaði kjör hennar líklega þáttaskil í íslensku samfélagi. Nýr for- setí þarf að hafa siðferðilegan boðskap í farteskinu og í embættinu. Hann þarf að vera stjómmálamaður í upphöfnum skilningi og heimspekingur nýrrar stefnu og markmiða fyrir íslenskt samfélag. Höfundur er háskólastúdent. hinumegin “FarSlde" eftir Gary Larson Einn af öðrum lýsa þing- menn yfir stuðningi við forsetaframbjóðendur. Sighvatur Björgvinsson og Svanfríður Jónas- dóttir hafa lýst yfir stuðn- ingi við Ólaf Ragnar og Össur Skarphéðinsson liggur undir grun um að gera slíkt hið sama. Geir H. Haarde, Guðmundur Hallvarðsson, Árni Mat- hiesen, Árni Johnsen, Einar K. Guðfinnsson og Einar Oddur Krist- jánsson styðja Pétur Kr. Hafstein. Rannveig Guðmundsdóttir mun kjósa Guðrúnu Agnars- dóttur og hið sama á að sjálfsögðu við um þing- konur Kvennalistans... Stúdentablaðið hef- ur fengið nýjan ritstjóra sem er Magnea Hrönn Örvarsdóttir. Magnea hefur um skeið starfað sem blaðamaður á Al- þýðublaðinu en hverfur nú frá því starfi til að sinna ritstjórnar- störfum í þágu stúdenta... Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri hefur ekki tekið opinbera af- stöðu í forsetakosningun- um. Sagan segir að hún hafi í upphafi ætlað að styðja Guðrúnu Péturs- dóttur en skyndilegt framboð Guðrúnar Agn- arsdóttur hafi orðið til þess að Ingibjörg Sólrún hafi ákveðið að halda sig til hlés. Kristín Árna- dóttir, aðstoðarmaður borgarstjórans, styður Guðrúnu Agnarsdóttur dyggilega og skrifaði fyrir skömmu grein í Morgun- blaðið henni til stuðnings. Skrifin eru ekki talin vera borgarstjóranum á móti skapi... fimm á förnum vegi Hvað finnst þér um ákvörðun biskups að segja af sér? Lísa Kjartansdóttir, sölu- maður: Þetta er klókt. Hann sleppur vel. Hildur Hafstein, vegfar- andi: Ég skil ekki af hverju þetta þurfti að taka svona lang- an tíma. Petra Björk Arnardóttir, aðstoðarmaður tannlækn- is: Ég styð þessa ákvörðun hans en hún hefði mátt korna fyrr. Héðinn Viggósson, banka- maður: Þetta er hárrétt ákvörðun hjá honum. María Lovísa Ragnarsdótt- ir, fatahönnuður: Mér finnst að hann hefði mátt gera þetta fyrr. Hann setur sína persónu ofar kirkjunnar. m e n n Mykjudreifarar allra landa, sameinist. Fyrirsögn á lesendabréfi Grétars Þórs Ey- þórssonar í Morgunblaðinu en þar hvetur hann landsmenn til að kjósa Ólaf Ragnar í embætti forseta íslands. Því langar mig til að lyfta höndunum í átt til sól- arinnar og garga: „Jibbí, ég er loksins til! Páll Óskar Hjálmtýsson fagnar lagasetningu sem heimildar giftingu samkynhneigðra. DV. Er til of mikiis mælst að forseti vor tali betra mál en Bibba á Brávallagötu? Ingibjörg Elín Sigurbjörnsdóttir spyr í lesendabréfi í Morgunblaöinu. Það að gefa kost á sér til forsetaembættisins er ekki eins og að skipta um nærbuxur. Hreggviöur Jónsson íTímanum. Þegar við ætlum að velja okkur annan eins leiðtoga og forseta íslands ber okkur ekki að fara jafn hyggilega að, eins og við til dæmis ætluðum að velja okkur nýjan bíl? Helgi Ormsson í Morgunblaðinu. Við höfnum því að taka við notuðum jeppagarmi sem að auki hefur reynst illa. Sá sami. Ég las aftur og aftur. Það var ekki um að villast. Guðrún Agnarsdóttir - á heilli síðu - í útlendu dagblaði. Sigrún Helgadóttir í Morgunblaöinu þar sem hún rifjar upp eftirminnilega reynslu sína í útlöndum. fréttaskot úr fortíð Giftur 52 sinnum Þó að ótrúlegt megi virðast er það ekki kvikmyndaleikari, sem á met í giftingum, það er Kínveiji. Kínveiji þessi er ekki fjölkvænismaðui í orðs- ins venjulega skilningi, því að hann hefir skilið lögum samkvæmt við all- ar konumar sínar. Þessi merkilegi maður heitir Mamhu og hefir gifzt 52 sinnum. Sunnudagsblað Alþýðublaðsins, 28. apríl 1935.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.