Alþýðublaðið - 04.07.1996, Side 4

Alþýðublaðið - 04.07.1996, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996 ■ Hann var einn besti og dáðasti rithöfundur þessarar aldar og hafði umtalsverð áhrif á yngri rithöfunda. Hann var bardagamaður sem hleypti af síðasta skotinu fyrir þrjátíu og fimm árum. Alþýðublaðið minnist Ernest Hemingway Stundum er ég heppinn og skrifa betur en ég get „Papa" Hemingway við drykkju. Ritstörf, veiðar, nautaat, konur og vín voru helstu áhugamál hans og hann sinnti þeim svo eftir var tekið. Örfáum árum fyrir dauða Hem- ingway tók George Plimpton langt og ítarlegt viðtal við rithöfundinn. Brot úr því viðtali birtist hér. Áttu áruegjulegar stundir þegar þú ert við skriftir? ,JMjög.“ Gœtirðu sagt mér eitthvað um það ferli? Á hvaða tímum vinnurðu? Kem- urðu þér upp strangri áœtlun? „Þegar ég vinn að bók eða sögu byrja ég að skrifa á morgnanna um leið og birtir. Þá er enginn til að trufla þig og það er svalt og kalt og þú kemur þér að verki og þér hitnar meðan þú skrif- ■ Eftirmæli Indriða G. Þorsteinssonar Og þá er enginn Hemingway til að skrifa Árið 1961 var Indriði G. Þor- steinsson rithöfundur ritstjómarjull- trúi Alþýðublaðsins. Hann hafði sterkar taugar til Hemingway og skrifaði allnokkrar skáldsögur þar sem greina má djúpstœðum áhriffrá verkum bandaríska rithöfundarins. Indriði skrifaði eftirmæli um skáldið ( Alþýðublaðið undir heitinu Stríð- unum lokið. Þar sagði hann meðal annars: Bandaríski rithöfundurinn Emest Hemingway lést að heimili sínu í Idaho nú á sunnudaginn. Er þar með lokið einstæðum og áhrifaríkum rit- höfundarferli manns, sem virtist margt frekar í hug um dagana en skrifa bækur, en mun þó ótvírætt í röð allra fremstu höfunda þessarar aldar, einn í hópi þeirra Ameríku- manna sem fengu hópheitið hinir harðsoðnu þótt harkan væri í raun og veru ekki annað en furðulegt, trútt og langdregið návígi við eigin per- sónu þar sem allt var í opinni kviku og eldslogunt tilfinninganæmis er krafðist uppmnaiegrar karlmennsku og drenglyndis í hugsun og verki, og nær því að svo naktir menn ættu ekki annað haldreipi en þá heiðni sem áður gaf mönnum hugarró til að ganga á spjótin... Líf hans sjálfs fór oft og tíðum út fyrir æsilegustu kaflana í bókum hans og þegar svo við bætist að hann og höfundar sem áttu með honum sálufélag lögðu alla áherslu á að segja satt, má geta nærri hve nálægt hann hefur farið dýpstu mannlegum kenndum í verkum sínum. Og hann hafði lifað það oft í nálægð dauðans að hann gat skrifað um hann í tón- tegund þess manns sem vissi - nokkum veginn. En nú hefur slegið í síðustu brýn- una með þeim - og þá er enginn Hemingway til að skrifa. ar. Við skulum segja að þú hafir byijað klukkan sex að morgni og þú heldur áfram fram að hádegi, hugsanlega hættirðu tyrr. Þegar þú hættir finnst þér þú vera tæmdur, eins og þú hafir notið ásta með þeim sem þú elskar. Ekkert fær skaðað þig, ekkert getur gerst, ekk- ert hefur þýðingu ffam að næsta degi þegar þú hefst handa að nýju. Það er biðin eftir næsta degi sem er erfiðust." Þegar þú ert fjarri ritvélinni geturðu þá vikið burt úr huga þínum því verki sem þú hefur verið að vinna að? „Auðvitað. En til þess þarf ögun og þessa ögun tileinkar maður sér. Þannig verður það að vera.“ Hversu mikið endurskrifar þú? „Það er misjafnt. Ég endurskrifaði endinn að Vopnin kvödd, síðustu blað- síðuna, þijátíu og níu sinnum áður en ég varð ánægður." Voru einhver tœknileg vandkvœði þar? Hvað var það sem vafðist fyrir þér? ,,Að fá orðin til að hljóma rétt.“ Er nauðsynlegt að búa við tilfinn- ingalegt jafnvœgi til að geta skrifað vel? Þú sagðir mér eitt sinn að þú gœt- ir einungis skrifað vel þegar þú vœrir ástfanginn. Gœtirðu útskýrt þetta örlít- ið nánar? „Þvílfk spuming! En þú færð fullt hús stiga fýrir að reyna. Þú getur skrif- að hvenær sem er svo lengi sem fólk lætur þig í friði. Eða réttara sagt, þú getur það ef þú ert vægðarlaus í þeirri ætlun þinni. Én það besta sem þú skrif- ar skrifar þú þegar þú ert ástfanginn. Ef þér er sama þá vil ég ekki útskýra það nánar.“ Hvað um fjárhagslegt öryggi? Getur það heft menn íþvíað skrifa vel? „Ef þér veitist það snemma og þú annt lífinu jafh heitt og vinnu þinni þá þarf mikla karakterfestu til að standast freistingamar. Um leið og skriftir em orðnar að megin áráttu þinni og em jafnframt þín mesta ánægja þá fær dauðinn einn stöðvað þig. Þá er mikil hjálp í fjárhagslegu öryggi því það hamlar áhyggjum. Ahyggjur eyða hæfdeikanum til að skrifa.“ Manstu hvenœr þú ákvaðst að verða rithöfundur? , ,Nei, ég vildi alltaf verða rithöfund- ur.“ Hver er heppilegasta andlega þjálf- unin fyrir þann sem vill verða rithöf- undur? „Segjum sem svo að hann gangi út og hengi sig vegna þess að hann hefur komist að því að það er nærri ógjöm- ingur að skrifa vel. Þá á að sýna honum fullkomið miskunnarleysi og skera hann niður úr snömnni og gera honum skylt að beita öllum viljastyrk sínum í þá átt að skrifa eins vel og honum er mögulegt eins lengi og hann á eftir ólif- að. Hann mun alla vega getað leitað til h'fsreynslunnar um henginguna.“ Mœlirðu með því að ungur rithöf- undur sinnti blaðamennsku? Að hversu miklu liði var þjálfunin sem þúfékkst á Kansas City Star. „Á Star var þér gert skylt að skrifa einfaldar, skýrar setningar. Það kemur öllum að gagni. Blaðamennska mun ekki skaða ungan rithöfund og gæti komið honum að gagni svo ffamarlega sem hann kemur sér út úr henni á rétt- um tíma. Þetta er ein rykfallnasta klisja sem til er og ég bið forláts á henni. Én ef menn spyija gamalla þreyttra spum- inga þá eru allar líkur á að þeir fái Heimurinn syrgði Hemingway Þann 4. júlí 1961 skýrði Alpýðu- blaðið frá láti Hemingway með fyr- irsögninni Hentingway lést af voða- skoti. í upphafi fréttarinnar sagði: „Emest Hemingway lést af völdum voðaskots að heimili sínu nálægt Sun Valley í Idaho, Bandaríkjunum á sunnudaginn. Hann hafði verið að hreinsa byssu sína fyrir fyrirhugaða veiðiför og var einn þegar dauða hans bar að höndurn. Kona hans kom að honum helsærðum.skömmu síðar. Hemingway var 62 ára þegar hann lést og var nýkominn af sjúkra- húsi. í blaðinu var ævilerill rithöfund- arins rekinn í stuttu máli. Vitnað var í eftirmæli heimsþekktra manna um rithöfundinn. Þar á rneðal var John F. Kennedy Bandaríkjaforseta sem hafði látið svo urn mælt að fáir þegnar Bandaríkjanna hefðu haft eins víðtæk áhrif á tilfinningar og viðhorf bandarísku þjóðarinnar og Ernest Hemingway. „Svo til einn síns liðs hefur hann gerbreytt bók- menntum og hugsanagangi fólks um allan hinn siðmenntaða heim,“ sagði Kennedy. Blaðið skýrði einnig frá við- brögðum nokkurra heimsþekktra bókmenntamanna við dauða rithöf- undarins. Nóbelsverðlaunahafinn Carl Sandburg kvaðst hafa íylgst með rit- ferli Hemingway og séð hve djúp- tæk áhrif hann hafði haft á skáld- sagnagerð og stfl. Nóbelsverðlauna- hafinn William Faulkner sagði: „Einn hinn hugaðasti og besti, alvar- legur listamaður, sem lifði sig inn í gleði og sorg þess að vera til. En nafti hans deyr aldrei." Breski bókmenntagagnrýnandinn Cyril Conno sagði: „Einn af risum nútímabókmennta er fallinn frá. Einn þeirra sem lögðu grundvöllinn að nútímabókmenntum eins og við þekkjum þær. Breski rithöfundurinn Sir Charles Snow sagði: „Enginn rit- höfundur í heiminum hefur haft eins mikil áhrif á aðra rithöfunda.“ John O’Hara tók í sama streng og sagði að enginn annar hefði haft eins bein áhrif á jafn marga rithöfunda, eink- um þá yngri. gömul þreytt svör.“ Er hœgt að lœra eitthvað um ritstörf frá öðrum rithöfúruium? Þú sagðirmér til dæmis í gær að Joyce hefði ekki þol- að að tala um ritstörf. „I félagsskap kollega talar þú venju- lega um bækur annarra rithöfiinda. Því betri rithöfundar sem menn eru því minna tala þeir um eigin verk. Joyce var mikill rithöfundur og hann útskýrði einungis íyrir aulum hvað það var sem hann var að gera. Hann gerði ráð fyrir að rithöfundar sem hann virti gætu gert

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.