Alþýðublaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
m i i n n i i n gj
Hemingway við atvinnutæki sitt, ritvélina. Honum leiddist að sitja og stóð því iðulega við skrif-
borð sitt meðan hann sinnti ritstörfum.
Hinn ungi Hemingway. Hann átti
eftir að færa heiminum meistara-
verk á borð við Vopnin kvödd,
Hverjum klukkan glymur og Gamli
maðurinn og hafið. Hann hlaut
Nóbelsverðlauninn árið 1954
sér grein fyrir því hvað hann var að
gera með því að lesa verkin."
Á síðari ánun virðist þú hafaforðast
félagsskap rithöfunda. Hvers vegna?
„Það er flóknara mál. Þegar þú sekk-
ur þér djúpt í ritstörf þá ertu orðinn
mjög einn. Bestu og elstu vinir þínir
deyja. Aðrir flytja burt. Þú sérð þá ekki
Hemingway ásamt þriðju eigin-
konu sinni, blaðakonunni Mörthu
Gellhorn á góðri stund. Það var líf
og fjör í einkalífi Hemingway sem
kvæntist alls fjórum sinnum.
Ástæðuna sagði hann vera þá að
hann sæi sér ekki annað skylt en
að giftast þeim konum sem hann
yrði ástfanginn af.
nema endrum og eins, en þú skrifar
þeim og hefur að mörgu leyti svipað
samband við þá eins og þegar þið sátuð
saman á kaffihúsunum í gamla daga.
Þið skiptist á skoplegum, stundum kát-
lega ruddalegum og ábyrgðarlausum
bréfum og það gerir næstum því sama
gagn og samtöl. En þú ert meira einn
vegna þess að þannig verður þú að
vinna og tíminn til að vinna verður sí-
fellt styttri og ef þú sóar honum finnst
þér þú hafa drýgt synd - og það er ekki
hægt að fá syndaaflausn."
Ertu sammála því að symbólismifyr-
irfinnist í verkumþínum?
„Eg býst við að svo sé, gagnrýnend-
ur em sífellt að koma auga á hann. En
ef jjér er sama þá vil ég helst ekki tala
um hann og ekki vera spurður um
hann. Það er nógu erfitt að skrifa bækur
og sögur án þess að vera beðinn um að
útskýra þær líka. Auk þess tekur það
erfiðið frá þeim sem hafa atvinnu af að
túlka verkin. Ef fimm eða sex ágætir
túlkendur hafa nóg að starfa af hveiju
ætti ég þá að blanda mér í iðju þeirra.“
Finnst þér auðvelt að skipta frá einu
verki til annars eða lýkurðu alltaf einu
verki áður enþú byrjar á öðm?
„Sú staðreynd að ég geri hlé á mikil-
vægri vinnu til að svara þessum spum-
ingum sannar að ég er svo heimskur að
ég ætti að fá alvarlega refsingu. Það
mun gerast. Hafðu ekki áhyggjur."
Sérðu sjálfan þig í samkeppni við
aðra rithöfunda?
„Aldrei. Eg reyndi að skrifa betur en
nokkrir látnir rithöfundar sem ég var
viss um að byggju yfir miklum verð-
leikum. Um langt skeið hef ég einfald-
lega reynt að skrifa eins vel og mér er
unnt. Stundum er ég heppinn og skrifa
betur en ég get.“
Heldurðu að kraftur rithöfunda
þverri með aldrinum?
„Ég veit það ekki. Fólk sem veit
hvað það er að gera ætti að endast eins
lengi og hausinn á því.“
Hvaða persónur þínar þykir sér sér-
staklega vœnt um?
„Það yrði of langur listi.“
Hefurðu þá ánœgju afað endurlesa
bœkur þínar án þess að festa hugann
við þær breytingarnar sem þú vildir
gera?
„Ég les þær stundum til að hug-
hreysta sjálfan mig þegar ég á erfitt
með að skrifa og þá man ég að hversu
erfitt það var alltaf og stundum næstum
ómögulegt."
Hvernig gefurðu persónum þínum
nöfn?
,JEftir bestu getu.“
Fœrðu hugmynd að titlum meðan þú
ert að vinna að sögunni?
„Nei. Ég bý til lista með titlum efdr
að ég hef lokið við söguna eða bókina
- stundum eru þeir allt að hundrað.
Síðan nota ég útilokunaraðferðina,
stundum útiloka ég þá alla.“
Þvt' hefur verið haldið fram að rit-
höfundur fáist einungis við eina eða
tvœr hugmyndir á rithöfundarferli sín-
um. Finnst þér að verk þín endurspegli
eina eða tvœr hugmyndir.
„Hver sagði þetta? Þetta hljómar of
einfalt. Sá sem sagði þetta hefur líklega
einungis fengið eina eða tvær hug-
myndir."
Jœja, kannski vœri nær að orða
þetta svo: Graham Greene sagði að
flokka mœtti skáldsögur eftir þeirri
ríkjandi ástríðu höfundarins sem þar
birtist. Þú hefur sjálfur sagt, held ég,
að mikilsverð skrif verði til vegna rétt-
lætistilfinningar þess sem skrifar.
Finnst þér mikilvægt að rithöfundur sé
rekinn áfram á þennan hátt - af knýj-
andi tilfinningu?
„Herra Greene býr yfir ótvíræðum
hæfileikum í yfirlýsingargleði sem ég
■ Ólafur Gunnars-
son rithöfundur
minnist Hemingway
Hef aldrei
sagt skilið við
Hemingway
Gabriel Garcia Marques sagði í
blaðagrein að hann hefði heimsótt
heimili Hemingway á Kúbu, sem
núna er safn. Og görnlu skómir hans
þeir voru svo fallegir bara af því
hann hafði gengið í þeim. Við sem
unnum Hemingway skiljum þetta.
Allt sem tengt er minningu skáldsins
er okkur kært. Ég var um tvítugt
þegar ég byrjaði að lesa bækumar
hans og þótt önnur skáld hafi átt
huga minn og hjarta í gegnum tíðina
þá hef ég aldrei sagt skilið við Hem-
ingway. Til þess er stíll hans of fag-
ur, skáldskapurinn of dýrmætur. Hin
seinni árin hefur það þótt fínt að
gefa frat í skáldið en um slflct hafði
Hemingway þetta að segja. „The
yellow bastard who swings left in
the spring, will swing right when
autumn comes.“
Veisla í farangrinum. Þessi bók
sendi mig til Parísar. Gamli maður-
inn og hafið. Sú undursamlega saga
vex með hvetju árinu sem líður. Þar
talar Hemingway um bardagahan-
ann sem heldur áfram að berjast
jafnvel þótt augun séu farin. Ég hef
lesið að Hemingway hafi skotið sig
vegna þess að hann missti kjarkinn.
Vissulega varð hann gamall fyrir
aldur fram og þjáður en hann hafði
sagt ungur: „Ég vil ráða lífi nu'nu til
fulls og binda endi á það þegar mér
sjálfum sýnist." I smásagnasafni
sem var gefið út fyrir tíu árum var
tfnd til áður óbirt saga sem heitir No
cure for it. I henni segir Hemingway
ffá aldurhnignum höfundi sem held-
ur áfram að skrifa jafnvel þótt svo
hann sé búinn að skemma í sér hug-
ann, sjálfa mistöð skáldskaparins.
Nei, við skulum minnast Hem-
ingway með virðingu nú þegar 35 ár
eru liðin frá láti hans og vera þakklát
fyrir það mikla sem hann gaf okkur.
bý ekki yfir. Ég skal samt reyna að al-
hæfa. Rithöfundur án réttlætiskenndar
væri betur settur við að ritstýra árbók-
um menntaskóla en að skrifa skáldsög-
ur. Önnur alhæfing. Sjáðu til, þær eru
ekki svo erfiðar meðan þær eru nægi-
lega augljósar. Mikilvægasta gáfa góðs
rithöfundar er innbyggður, traustur,
delluvari. Hann er ratsjá rithöfundarins
og allir miklir rithöfundar hafa hann.“
Að lokum mikilvœg spuming, þú ert
skapandi rithöfundur, hvert finnst þér
vera hlutverk listar þinnar?
„Þú skapar eitthvað nýtt úr því sem
hefur gerst og því sem er, því sem þú
veist og því sem þú getur ekki vitað. Þú
skapar eitthvað og það er eitthvað al-
veg nýtt sem er sannara en allt sem satt
er og til er, og þú gæðir það lífi, og ef
þú vinnur nægilega vel gefur þú því
ódauðlegt líf. Þess vegna skrifarðu og
af engri annarri ástæðu. En hvað um
allar ástæðumar sem enginn veit af?“ *
Fjölmargar skáldsögur Hemingway
hafa verið kvikmyndaðar. Ein
þeirra var Hverjum klukkan glymur
og þar fóru Gary Cooper og Ingrid
Bergman með aðalhlutverkin.
Bergman var, ásamt Marlene Diet-
rich, nánasta vinkona Hemingway.