Alþýðublaðið - 04.07.1996, Page 6

Alþýðublaðið - 04.07.1996, Page 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996 ‘Jafnaðarmenn alls staðar athugið! Hversu lengi eða oft hefur ekki verið rætt um nauðsyn þess að sameina jafnaðarmenn án þess að mikið hafi í raun gerst í þeim málum? Látum nú verkin tala og skellum okkur í sameiginlega sumarferð. Það er þó ágætis byrjun! ✓ Farið verður í rútum laugardags- morguninn 13. júlí kl. 10.00 frá Hverfisgötu 8-10 og ekið til Hreðavatns. ✓ Krati í einn dag: Jón Sigurðsson fyrrum rektor við Samvinnuháskólann að Bifröst, tekur á móti gestum og gengur með þeim um markverðustu staðina í nágrenni vatnsins, svo sem skóginn, Paradísarlaut, Glanna og Grábrók. ✓ Hallgrímur Helgason les mönnum pistilinn með sínum hætti. ✓ Mörður Árnason, varaþingmaður Þjóðvaka ávarpar samkomuna. ✓ Biyndís Hlöðversdóttir þingmaður Alþýðubandalagsins flytur ávarp. Á næstu dögum verður hér í blaðinu gerð grein fyrir frekari trompum í dagskránni, svo sem hver stjórni fjöldasöng, hver fari með gamanmál og fleira og fleira. Ef til vill mun fleira mektarfólk heiðra samkomuna. ✓ Grillað verður á staðnum og verður allt skaffað nema kjötið, þ.e.a.s. grill, grillkol, mataráhöld, bakaðar kartöflur og salat. Ferðalangar koma sjálfir með eigið ket. ✓ Munið að þeir sem eiga gítar og kunna á hann eru beðnir að taka hann með í ferðina. Og svo náttúrulega söngbókina! Jafnaðarmenn nær og fjær tzu ■ l_ ISJUUÍ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.