Alþýðublaðið - 04.07.1996, Qupperneq 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996
‘Jafnaðarmenn
alls staðar
athugið!
Hversu lengi eða oft hefur ekki verið rætt um nauðsyn þess að sameina jafnaðarmenn án
þess að mikið hafi í raun gerst í þeim málum? Látum nú verkin tala og skellum okkur í
sameiginlega sumarferð. Það er þó ágætis byrjun!
✓ Farið verður í rútum laugardags-
morguninn 13. júlí kl. 10.00 frá Hverfisgötu 8-10 og ekið til Hreðavatns.
✓ Krati í einn dag: Jón Sigurðsson fyrrum
rektor við Samvinnuháskólann að Bifröst, tekur á móti gestum og gengur með þeim um
markverðustu staðina í nágrenni vatnsins, svo sem skóginn, Paradísarlaut, Glanna og
Grábrók.
✓ Hallgrímur Helgason les mönnum
pistilinn með sínum hætti.
✓ Mörður Árnason, varaþingmaður
Þjóðvaka ávarpar samkomuna.
✓ Biyndís Hlöðversdóttir þingmaður
Alþýðubandalagsins flytur ávarp.
Á næstu dögum verður hér í blaðinu gerð
grein fyrir frekari trompum í dagskránni, svo sem hver stjórni fjöldasöng, hver fari með
gamanmál og fleira og fleira. Ef til vill mun
fleira mektarfólk heiðra samkomuna.
✓ Grillað verður á staðnum og verður
allt skaffað nema kjötið, þ.e.a.s. grill, grillkol,
mataráhöld, bakaðar kartöflur og salat.
Ferðalangar koma sjálfir með eigið ket.
✓ Munið að þeir sem eiga gítar og kunna
á hann eru beðnir að taka hann með í ferðina. Og svo náttúrulega söngbókina!
Jafnaðarmenn nær og fjær
tzu ■ l_
ISJUUÍ