Alþýðublaðið - 04.07.1996, Síða 8
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Bókiö bíla meö
fyrirvara í síma
438 1120 og
456 2020
Fimmtudagur 4. júlí 1996
MHBUBUBIB
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Bókiö bfla meö
97. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasöiu kr. 100 m/vsk
■ Samruni á fjölmiðlamarkaði
Viðskiptablað-
ið og Aðalstöð-
in sameinast
Nýir og öflugir hluthafar verða með í fyrirtækinu.
Viðskiptablaðið og Aðalstöðin
hafa á undanförnum vikum ver-
ið í samningaviðræðum og sam-
kvæmt heimildum Alþýðublaðs-
ins getur fátt eitt komið í veg
fyrir að þessir tveir fjöimiðlar
sameinist. Nú er verið að leita að
húsnæði til að hýsa fjölmiðlana
en það er talin forsenda fyrir því
að sú samnýting sem leitað er
eftir takist. Aðalstöðin hefur
lengi verið með það á borðinu að
leita eftir samstarfi við prent-
miðil, einkum í því augnamiði að
fréttatengja útvarpsstöðina með
einum eða öðrum hætti. Ætlunin
er að fréttamenn Viðskiptablaðs-
ins annist fréttatengda magasín-
þætti og fréttaskýringar sem
sendar verða út á öldum ljósvak-
ans.
Nýtt hlutafé og nýir, öflugir
hluthafar koma inn í myndina og
mun enginn eiga meira en 10
prósent í fyrirtækinu. Stærstu
hluthafar Aðalstöðvarinnar eru
bræðurnir Baldvin og Þormóður
Jónssynir. Stjórnarformaður
Viðskiptablaðsins og stór hlut-
hafí er Þorkell Sigurlaugsson hjá
Eimskip. Þeir sem eiga hlutafé í
Framtíðarsýn, fyrirtækinu sem á
Viðskiptablaðið, eru yfir tuttugu
og þeirra á meðal eru fyrirtækin
Frjáls fjölmiðlun og Miðlun. Óli
Björn Kárason, ritstjóri er stór
hluthafi sem og Jón Ólafsson í
Skífunni sem á um 18-19 pró-
sent, sem er athyglisvert í Ijósi
þess að hann er stór hluthafi í ís-
íenska útvarpsfélaginu og er
þannig kominn í samkeppni við
sjálfan sig. Hugmyndin að baki
samrunanum mun einmitt sú að
sporna við yfirburðum fjölmiðla-
blokka sem myndast hafa á und-
anförnum árum.
■ Úthlutanir úr Norræna menningarsjóðnum
íslendingar duglegir
að sækja um styrki
- segir Bjarni Daníelsson yfirmaður sjóðsins.
Jslendingar eru duglegir að
sækja um og tengjast fjölda
verkefna sem hafa önnur for-
merki en íslensk," sagði Bjami
Daníelsson, yfirmaður Nor-
ræna menningarsjóðsins, en
skrifstofa hans er í Kaup-
mannahöfn.
A dögunum hélt stjórn
sjóðsins sinn annan úthlutunar-
fund á árinu og úthlutaði 5,4
milljónum danskra króna.
..Mikilvægt er að um norræna
samvinnu sé að ræða, að þijú ;
lönd komi að verkefninu og að
líkur séu til þess að samvinnan skili ein-
hveiju meiru en ef hver og einn væri að
vinna að því uppá eigin spýtur," segir
Bjami. Hann segir jafnframt að eftir-
spurnin sé mikil. „Við úthlutum 22
milljónum danskra króna á ári og deil-
um fénu út ársfjórðungslega. Fyrir
þennan fund lágu fyrir 320 umsóknir
þar sem farið var fram á 67 milljónir
danskra króna. Þannig áð þetta er dropi í
hafið."
Hæsta styrkinn, eina milljón danskra
króna, hlaut farandsýningin „Manniskor
och batar í Norden" en það er Sjóminja-
Bjarni Daníels-
son: Við úthlut-
safnið í Stokkhólmi sem hefur
séð um framkvæmdina. Þau
verkefni „íslensk" sem hlutu
styrk í þetta skiptið voru
Byggðasafn Hafnarfjarðar, 30
þúsund dkr. (320.000 íslensk-
ar), til farandsýningarinnar ís-
land í 1200 ár. Tónskáldafélag
íslands fékk 25 þúsund dkr. til
að halda norræna tónlistarhátíð
í Reykjavík í september. Óskar
um 22 milljónum Ingólfsson sem er í forsvari
danskra króna á styrkþega. Háskóli íslands
ári. hlaut 30 þúsund dkr. til að
halda seminar um jafnréttis-
mál. Sigrún Valgarðsdóttir stendur íyrir
þeirri framkvæmd og að endingu:
Handritadeild Landsbókasafnsins fékk
45 þúsund dkr. til að halda ráðstefnu um
íslenskan tónlistararf frá 11. öld. Fmm-
kvæði af því á Kári Bjamason.
Bjami Daníelsson segir sjóðinn fá fé
af norrænum fjárlögum og að hann
heyri undir Norrænu ráðherranefndina
og Norðurlandaráð. Bjami segir einnig
rétt að Islendingar fái í peningum talið
meira úr sjóðnum en þeir leggi til hans
en hann hafði ekki haldbærar tölur þar
að lútandi.
■ Fordæming ungra alþýðubandalagsmanna á Kristni H. Gunnarssyni einkaframtak eins af helstu
stuðningsmönnum Margrétar Frímannsdóttur. Jakob Bjarnar Grétarsson rannsakaði málið
Alyktun Verðandi óskynsamleg
- segir Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður. „Til bölvunar í flokksmálum að bera mál á torg eða rjúka með þau í fjölmiðla."
Helgi Hjörvar fyrrverandi formaður Verðandi: „Sjálfsagt að menn velti fyrir sér grundvallar atriðum í pólitík vinstri manna."
„Ég hef ekki fylgst náið með störf-
um Kristins. H. Gunnarssonar á þingi
og veit því ekki til hvers er verið að
vísa þegar sagt er að hann hafi verið
að grafa undan flokksforystunni," seg-
ir Helgi Hjörvar flokksmaður í AI-
þýðubandalaginu. Alþýðublaðið
spurði Helga sem fyrrverandi formann
Verðandi, samtaka ungs alþýðubanda-
Iagsfólks og óháðra, hvað honum
þætti um sérlega harðorða yfirlýsingu
Verðandi þar sem Kristinn H. Gunn-
arsson er fordæmdur. „Hitt er hins
vegar rétt hjá Verðandi að Margrét
Frímannsdóttir hefur umboð hjá Al-
þýðubandalaginu að ganga til samein-
ingarviðræðna. Þó ég sé efnislega
ósammála afstöðu Kristins í málum
eins og þeim er varða réttindi opin-
berra starfsmanna þá finnst mér sjálf-
sagt að menn velti fyrir sér grundvall-
aratriðum í pólitík vinstri manna og
það er að mörgu leyti virðingarverð
viðleitni."
Steingrímur J. Sigfússon sagði í
samtali við Alþýðublaðið að óskyn-
samlegt væri að gera samþykktir sem
beindust gegn einstökum flokksmönn-
um. „Það á að ræða innan flokksins og
útkljá en ekki með opinberum álykt-
unum og í fjölmiðlum. Venjan er sú,
að það er til bölvunar í flokksmálum
að bera mál á torg eða ijúka með þau í
fjölmiðla."
Þingmenn bundnir af sam-
visku sinni
Það hefur komið fram að Róbert
Marshall formaður Verðandi, sem
skipar 5. sæti á lista Alþýðubandalags-
ins á Suðurlandi þar sem Margrét Frí-
mannsdóttir skipar 1. sæti, hafi samið
ályktunina. Hún var ekki tekin fyrir á
stjómarfundi Verðandi, en Róbert hef-
ur sagt að hann hafi símleiðis borið
ályktunina undir aðra stjómarmenn. I
ályktuninni segir meðal annars: „Hjá
því verður þó ekki komist að áminna
þingmanninn harkalega fyrir tilraunir
Margrét Frímannsdóttir. „Aörir forystumenn en
formaöurinn hafa veriö mjög áberandi sem tals-
menn flokksins og óskandi er að þessi útspil
hennar á síðustu vikum séu marks um að það
sé að breytast," segir Helgi Hjörvar.
hans til að veikja og grafa undan for-
ystu flokksins á opinberum vettvangi.
Það er gert í óþökk þúsunda stuðn-
ingsmanna Alþýðubandalagsins þar á
meðal hinna 648 Vestfirðinga sem
kusu Kristin H. Gunnarsson til setu á
Alþingi."
Steingrímur kvaðst vona að það sé
misskilningur að þetta sé einstaklings-
framtak. Hann setur jafnframt stórt
spurningarmerki við það að hlutverk
Verðandi sé að vera valdastofnun í
flokknum sem hefur það hlutverk að
áminna einstaka flokksmenn „sem
fara út af línunni." Steingrímur segir:
„Ég satt best að segja kann ekkert sér-
staklega vel við þetta orðalag. Það er
rétt að muna eftir því að samkvæmt
stjómarskránni em þingmenn bundnir
Helgi Hjörvar: Ég hygg að þeir sem unnið hafa
náið með Ólafi Ragnari muni sakna þeirrar for-
ystu sem hann hafði í flokknum.
Steingrímur J. Sigfússon: Menn verða að at-
huga sinn gang áður en þeir fara að fordæma
menn þó að þeir hafi haft sérstöðu í einhverju
máli.
af samvisku sinni og henni einni.
Menn verða að athuga sinn gang áður
en þeir fara að fordæma menn, þó þeir
hafi haft sérstöðu í einhverju máli ef
verið er að vísa til þess.
Menn verða að ræðast við í öðmm
tóni heldur en er þama á ferðinni og
ég kannast ekki við nein vandamál
sem gefa tilefni til svona yfirlýsinga."
Steingrímur efast um að Róbert hafi
umboð til þess að koma fram sem alls-
herjar talsmaður Alþýðubandalagsins
og kjósenda þess. „Það má vel vera að
þeir séu óánægðir með Kristin. Það er
bara allt annað mál.“
Hýrnar yfir stuðningsmönn-
um Margrétar
Helgi Hjörvar telur stöðu Margrétar
innan flokksins hafa lagast nokkuð að
undanförnu í kjölfar „sameiningar-
bréfsins" sem hún sendi forystumönn-
um stjómarandstöðuflokkanna.
„Ég held að það hafi hýmað nokk-
uð yfir okkur, stuðningsmönnum
Margrétar í formannskjörinu, nú á
allra síðustu vikum. Annars vegar
vegna þess að sameiningarmálin em
að komast á dagskrá og hins vegar
vegna þess stuðnings sem hún, ólíkt
öðrum forystumönnum flokksins,
veitti nýkjömum forseta lýðveldisins,
Ólafi Ragnari Grímssyni."
Helgi segir að mörgum alþýðu-
bandalagsmönnum hafi þótt fara full-
lítið fyrir Margréti framanaf. „Aðrir
forystumenn en formaðurinn hafa ver-
ið mjög áberandi sem talsmenn
flokksins og óskandi er að þessi útspil
hennar á síðustu vikum séu marks um
að það sé að breytast," segir Helgi og
fer ekki í felur með að hann sakni Ól-
afs Ragnars úr flokknum. „Ég hygg að
þeir sem unnið hafa náið með Ölafi,
eins og ég hef gert, muni sakna þeirrar
forystu sem hann hafði í flokknum en
við hljótum auðvitað að taka upp
merkin og reyna að vinna innan
flokksi'ns að sameiningu jafnaðar-
manna í eina breiðfylkingu."
Borið hefur á orðrómi þess efnis að
Helgi Hjörvar sé á leið úr Alþýðu-
bandalaginu. Helgi svaraði þeirri
spumingu með orðunúm: „Ég er alltaf
á leiðinni úr Alþýðubandalaginu að
fönkast í stóra jafnaðamiannaflokkn-
um.“