Alþýðublaðið - 12.07.1996, Side 1
■ Ársskýrsla Félagsmálastofnunnar væntanleg
Gífurleg aukning þeirra
sem le'rta aðstoðar
- segir Guðrún Ögmundsdóttir formaður félagsmálaráðs.
„Það hefur orðið gífurleg aukning
þeirra sem leita sér aðstoðar hjá Fé-
lagsmálastofnun milli ára,“ sagði
Guðrún Ögmundsdóttir formaður
félagsmálaráðs í samtali við Al-
þýðublaðið.
Árskýrsla Félagsmálastofnunnar
er væntanleg á næstu dögum. Ellý
A. Þorsteinsdóttir, yfirmaður fjöl-
skyldudeildar, segir 64 prósent
þeirra sem leita eftir fjárhagsaðstoð
atvinnulausa. „Málafjöldi var 4110.
Það er 17 prósenta aukning frá ár-
unum 1994 og 1995. 10 prósent
aukning var á árunum 1993-1994,
þannig að aukningin heldur áfram.
Stærstur hluti þeirra sem leita að-
stoðar eru einhleypir karlmenn. Þeir
■ Ríkisstjómin stefnir að hallalausum fjárlögum.
Umfangsmikill niðurskurðurfyrirhugaður í
menntamálaráðuneytinu
Eigum að hætta
að sinna ákveðn-
um verkefnum
-segir Bjorn Bjarnason menntamálaráðherra. „Eigum að hætta
að veita ákveðna þjónustu í staðinn fyrir að draga saman seglin."
„Ég hef sagt það áður að æskileg-
ast sé við aðstæður eins og þessar að
skilgreina einhver verkefni þannig að
ríkið hætti alveg að sinna þeim, veiti
ekki ákveðna þjónustu í stað þess að
draga saman seglin og veita þjónustu
sem er ekki fullnægjandi. Það getur
verið að við verðum að gera það,“
sagði Bjöm Bjamason menntamála-
ráðherra í samtali við Alþýðublaðið
um fyrirhugaðan niðurskurð í
menntamálum.
Áform ríkisstjómarinnar um að ná
fram hallalausum fjárlögum þýða
niðurskurð í ríkisútgjöldum upp á
rúma fjóra milljarða. Líkt og önnur
ráðuneyti mun menntamálaráðuneyt-
ið þurfa að draga úr útgjöldum. Bjöm
sagðist ekkert vilja fullyrða um hvar
niðurskurðurinn kæmi harðast niður.
„Vafalaust mun öllum sem verða fyr-
ir honum þykja hann koma harðast
niður hjá sér,“ sagði Bjöm.
„Það er allra manna ráð að skyn-
samlegast sé að reka hallalausan rík-
issjóð, sérstaklega á tímum eins og
nú þegar vel árar. Til að ná því mark-
miði þarf að grípa til niðurskurðar.
Við erum með menningarmálin,
framhaldsskólana og háskólana á
okkar könnu. Síðan geta menn velt
fyrir sér hvar helst er hægt að spara
og vandamálið er síðan að takast á
við það,“ sagði Bjöm.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins er umfangsmikill niður-
skurður fyrirhugaður í menntamál-
um, sem mun bitna harðast á fram-
haldsskólunum. Bjöm Bjamason var
ekki reiðubúinn að segja á hvaða hátt
hann muni skera niður útgjöld ráðu-
neytisins.
eru 34 prósent og 16 prósent eru ör-
yrkjar.“
Ellý segir Félagsmálastofnun
finna verulega fyrir fjölguninni.
„Atvinnuleysið skiptir auðvitað
mjög miklu máli. Einnig koma til
breyttar reglur. Þar má til dæmis
nefna að við flokkum ekki lengur
meðlag og barnabætur til einstæðra
mæðra sem tekjur. Áður áttu margar
einstæðar mæður ekki rétt á aðstoð.
Nú eiga þær rétt svo framarlega sem
þær uppfylla skilyrði að öðm leyti."
Starfi Félagsmálastofnunnar er
skipt í móttökuteymi og meðferðar-
teymi. „Við finnum verulega fyrir
auknum þunga í meðferðarmálum.
Þá erum við að styðja fjölskyldur
sem eiga í ýmsum vanda vegna
bama. Fólk er ófeimnara en áður að
tilkynna ef það hefur áhyggjur af
aðbúnaði barna," sagði Ellý.
Brettafélag Reykjavíkur uppi á þaki Brettafélag Reykja-
víkur - hagsmunasamtök hjólabrettalýðs - verða formlega sett á stofn á
morgun. Uppi á þaki Faxaskála verður opnaður hjólabrettagarður sem sam-
anstendur af allskyns stökkpöllum og þrautum sem vanir brettamenn geta
spreytt sig á... takmarkið er að koma standandi niður. Konunglegi flugpall-
urinn á myndinni kostaði hálfa milljón í uppsetningu, og vonandi njóta
brettamenn vel. í tilefni dagsins verða meiriháttar hátíðarhöld á þaki Faxa-
skála: grillveisla og tónleikahald hefjast klukkan tvö. Hér sést einn snjallasti
hjólabrettatöffarinn, Ragnar Þórisson, leika listir sínar í gær.
■ Þungiyndi á íslandi
Tvöfalt meiri
neysla,geð-
lyfja á íslandi
- en í Danmörku og Finnlandi.
Á sjö ára tímabili hefur kostnaður
Islendinga af tauga- og geðlyfjum
aukist úr 640 milljónum í 1.460 millj-
ónir. Samkvæmt upplýsingum frá
Heilbrigðisráðuneytinu má rekja
kostnaðaraukningu að mestu til stór-
aukinnar notkunnar á tískulyfmu Pró-
sak sem selt er hérlendis undir nöfit-
unum: Fontex, Flúoxín, Tingus eða
Seról. Á þessu tímabili hefur neytend-
um geðlyfja fjölgað úr þrjú þúsund í
tíu þúsund. Neyslan hefur einnig auk-
ist í nálægum löndum eftir tilkomu
Prósaks en fslendingar eru engu að
síður öflugastir. Miðað við höfðatölu
þyrftu til dæmis Danir og Finnar að
tvöfalda neyslu sína til að standa jafn-
fætis íslendingum í þessum efnum.
Sjá grein Gunnars Smára Egilssonar á
blaðsíðu sex.
■ Helgardagskrá
á Þingvöllum
Konur vísa veginn
„Þetta er hluti af því að upplýsa fs-
lendinga um það hvers virði þessi
helgistaður þjóðarinnar er og gera al-
menningi kleift að kynnast Þingvöll-
um á annan hátt en eingöngu með því
að ganga niður Almannagjá," segir El-
ínborg Sturludóttir guðfræðingur en
hún er ein þeirra sem stendur fyrir -
fræðsludagskrá á Þingvöllum um
helgina. Á laugardag kl. 13.30 verður
farið í gönguferð er hefst við vestur-
hlið þjóðgarðsins. Steinunn Ásmunds-
dóttir skáldkona, sem á sumrum gegn-
ir starfi landvarðar á Þingvöllum,
verður þar leiðsögumaður og fjallar
um upp náttúrufar og sögu þjóðarinn-
ar. Á sunnudag kl. 11 verður bömum
boðið upp á helgistund úti í náttúrinni
sem Elínborg hefur umsjón með og
felst í söng, helgihaldi, náttúruskoðun
og leikjum. „Þarna reynum við að
koma til skila ákveðinni afstöðu til
náttúrunnar sem segja má að hafi í sér
guðfræðileg tengsl við sköpunina,"
segir Elínborg. Guðsþjónusta verður
í Þingvallakirkju kl. 14 og þar messar
séra Hanna María Pétursdóttir. Að
messu lokinni verður gönguferð um
hinn foma þingstað.
Við leysum landfestar 14. nóvember og fram undan er ógleymanlegt frí
Siglt er með einu nýjasta og glæsilegasta skemmtiferðaskipi NCL-flotans MS WINDWARD.
Ferðatilhögun
14. nóv. Síðdegisflug til Fort Lauderdale þar sem gist er í tvær nætur.
16. nóv. Flogið til San Juan á Puerto Rico þar sem MS WINDWARD
bíður. Siglt um Karíbahafið í eina ógleymanlega viku.
24. nóv. Flogið til Orlando og gist þar í þrjár nætur.
27. nóv. Heimflug síðdegis.
Nákvæm leiðarlýsing liggurframmi á söluskrifstofum Úrvals-Útsýnar.
Verð frá 148.900 á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, akstur á milli staða erlendis,
gisting án fæðis í Flórída, skemmtisigling í eina viku með fullu
fæði og allri afþreyingu um borð, hafnargjöld og íslensk fararstjórn.
Famrstjómhjónin vinsælu
Ingvar og Svanborg
leiða hópinn.
URVAL'ÚTSÝN
lágmúla 4: simi 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: simi 462 5000
- og hjá umboðsmönuum um land allt.