Alþýðublaðið - 24.07.1996, Side 1
■ Embættistaka
Ólafs Ragnars
Nand Khemka
sérstakur
gestur Olafs
Nand Khemka, ræðismaður Islands
á Indlandi sem blandaðist með
óvæntum hætti inní kosningabar-
áttuna í vor, verður einn af 23 sér-
stökum gestum Ólafs Ragnars
Grímssonar við embættistöku hans
eftir viku. Forsætisráðuneytið sendi
í gær frá sér gestalista vegna emb-
ættistökunnar, og er hann birtur í
heild á baksíðu í dag.
Kirkjan í kvik-
myndagerð
„Við féllum fyrir þessari hug-
mynd,“ sagði Baldur Kristjánsson
biskupsritari í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær um örstutta kynningar-
mynd sem Þjóðkirkjan hefur látið
gera fyrir ferðamenn. Baldur segir
að myndin sé aðeins tvær til þrjár
mínútur að lengd, og að þar sé ís-
lenska þjóðkirkjan kynnt auk þess
sem vikið er að sögu og menningu
íslands. Myndbær annaðist fram-
kvæmdina fyrir biskupsstofu og
nemur kostnaður um 180 þúsund
krónum, að sögn Baldurs. Hann
sagði að myndin yrði sýnd á hótel-
um og væru sýningar að hefjast
þessa daga.
■ Fullvíst að nýr meirihluti verður myndaður í Hafnarfirði
eftir að dómur féll í máli Jóhanns G. Bergþórssonar
Líklegast að A-f lokkamir
myndi meiríhluta
máli, og hljótum því að skoða
myndun meirihluta með öðrum.“
Alþýðubandalagsmenn eru mjög
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi: Höfum átt prýðilegt
samstarf við Jóhann en bjuggumst ekki við því að
menn fengju á sig dóma.
„Það er svakalega erfitt að halda
áfram samstarfinu eftir þetta. Menn
geta ekki stungið höfðinu í sandinn
og látið einsog ekkert sé,“ sagði
áhrifamaður í Alþýðuflokknum í
samtali við Alþýðublaðið í gær eftir
að dómur gekk í máli Jóhanns G.
Bergþórssonar í Héraðsdómi
Reykjaness. Jóhann var dæmdur í
12 mánaða skilorðsbundið fangelsi
og í fjögurra milljón króna sekt fyr-
ir fjárdrátt og skattalagabrot.
Þeir alþýðuflokksmenn sem blað-
ið ræddi við í gær töldu fullvíst að
dómurinn hefði í för með sér að Al-
þýðuflokkurinn í Hafnarfirði fyndi
sig knúinn til að slíta samstarfi við
Jóhann G. Bergþórsson og Eggert
Borgar Þorvaldsson í meirihluta
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.
I samtali við blaðið vildi Tryggvi
Harðarson bæjarfulltrúi ekki ganga
svo langt að segja að meirihlutinn
væri úr sögunni, en sagði: „Málið
er þannig vaxið að eðiilegt er að
flokkurinn fundi um málið, fari yfir
stöðuna og meti hvort þetta kallar á
einhverjar breytingar. Við höfum
að vísu átt prýðilegt samstarf við
sjálfstæðismenn en við áttum ekki
von á að menn fengju á sig dóma.
Þessi dómur hefur vissulega veikt
pólitíska stöðu samstarfsmanna
okkar í Sjálfstæðisflokknum.“
Annar alþýðuflokksmaður sem
blaðið ræddi við sagði: „Þetta verð-
ur mjög erfitt mál. Við getum ekki
staðið í því að verja Jóhann í þessu
áhugasamir um að fylla skarð sjálf-
stæðismannanna tveggja í meiri-
hluta Hafnarfjarðar. Einn alþýðu-
bandalagsmaður sem Alþýðublaðið
ræddi við sagði að krafa yrði gerð
um ópólitískan bæjarstjóra, en Ing-
var Viktorsson oddviti Alþýðu-
flokksins er núverandi bæjarstjóri.
Um þessa kröfu sagði heimilda-
maður í Alþýðuflokknum: „Ef Al-
þýðubandalagið setur sig á háan
hest munum við einfaldlega snið-
ganga það, og mynda meirihiuta
með Sjálfstæðisflokknum."
Hann kvaðst hinsvegar telja að
meirihluti alþýðuflokksmanna vildi
helst starfa með Alþýðubandalag-
inu.
Stóll Jóhanns G. Bergþórssonar var auður í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en lögmaður hans, Bjarni Þór Óskars-
son, mætti fyrir hans hönd. Allt bendir til að nýr meirihluti verði myndaður í Hafnarfirði í kjölfar dómsins.
A-mynd: E.ÓI.
Hrafn Jökulsson skrifar um gúrku
og sameiningarmál, Gunnar Smári
Egilsson um menningarvita og geðlyf,
Guðrún Vilmundardóttir um hinn
sigursæla O-flokk...
■ Stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur kynnir sér
tillögur um aðhaldsaðgerðir
Málið er ekki auð-
velt viðfangs
- segir Jóhannes Pálmason
forstjóri sjúkrahússins.
Sjúkrahús Reykjavíkur er í miklum
fjárhagsvanda og vantar um það bil
250 milljónir til að geta haldið
óbreyttri starfsemi út árið. Á sínum
tíma fól stjórn sjúkrahússins fram-
kvæmdastjórn að móta tillögur um
sparnaðaraðgerðir. Stjórn spítalans
fékk tillögumar til umfjöllunar í gær,
en mun ekki taka afstöðu til þeirra fyrr
en á fimmtudag.
Kristín Á. Ólafsdóttir stjómarfor-
maður Sjúkrahúss Reykjavíkur verst
allra frétta af tillögunum og segir ekki
tímabært að greina frá þeim fyrr en
eftir stjómarfundinn á fimmtudag. Jó-
hannes Pálmason forstjóri sjúkrahúss-
ins vildi heldur ekki tjá sig um hugs-
anlegar aðgerðir að svo stöddu.
„Við höfum verið í aðhaldsaðgerð-
um og munum halda áfram á sömu
braut. Það er ennþá gat í dæminu sem
erfitt er að fylla upp í. Málið er ekki
auðvelt viðfangs," sagði Jóhannes í
samtali við Alþýðublaðið. Jóhannes
sagði að sjúkrahús víða um land ættu
við rekstrarvanda að stríða og sæju illa
fram úr þeim vanda. „Það er ekki
verra ástand hér en víða utan Reykja-
víkur,“ sagði Jóhannes.
Einsog Alþýðublaðið hefur greint
frá blasir við stórfelldur niðurskurður,
uppsagnir starfsfólks og lokanir
deilda.
■ Óhefðbundnar lækningar í Kjós
í sambandi við gamlan
kunningja úrfyrri jarðvist
- segir Guðmundur Skarphéð-
insson hjá Dulheimum
Um næstu helgi verður haldin úti-
hátíð um óhefðbundnar lækningar og
heilun við Meðalfellsvatn í Kjós. Dul-
heimar, ný fræðslumiðstöð andlegrar
vitundar, skipuleggja hátíðina sem
hefst á föstudag. I stóru samkomu-
tjaldi verða haldnir fyrirlestrar, um-
ræðufundir og skyggnilýsingar en
einnig verður boðið uppá einkafundi á
afviknum stöðum. Fjöldinn allur af
fyrirlesurum verður á hátíðinni og
margt er á efnisskránni, til dæmis
kristalheilun, áruteikningar, skyggni-
lýsingar og ljóslíkamavinna. Alþýðu-
blaðið hafði samband við Guðmund
Skarphéðinsson, sem fæst meðal ann-
ars við kristalheilun, djúpárujöfnun og
áruteikningar hjá Dulheimum, og bað
hann að útskýra nokkur atriði.
„Grundvallarteóría fræðanna er að
það sé töluvert meira við manninn en
þessi efnislíkami sem skröltir hér á
jörðunni. Maðurinn er andi sem bygg-
ir upp efnislegan líkama, en er annars
samsettur af ljósvaka, sem við köllum
tilfinningalíkama, og huglíkama.
Kroppurinn sjálfur, efnislíkaminn, er
einsog rótin á blóminu. Hann tekur
næringu úr umhverfinu, skilar úrgangi
og getur geislað vellíðan eða vanlíðan.
Áran er orkuhjúpur líkamans. Rússar
fundu fyrir mörgum árum upp hátíðni-
tæki til þess að taka myndir af orku-
hjúpnum sem er í kringum hvem ein-
stakling, og hafa verið að þróa þessa
tækni og nota hana við ýmsar rann-
sóknir. Rússar eru mjög framarlega í
fræðigreininni, hafa til dæmis þjálfað
fólk í hugsanaflutningi í framhaldi af
þessum uppfinningum. Bandaríkja-
menn tóku vísindin upp eftir þeim og
hafa náð mjög langt í að skilja upp-
byggingu mannsins."
Hvað eru kríslalheilun og djúpáru-
jöfnun?
„Kristallar eru verkfærin sem ég
nota til heilunar, en kristallar eru
næmir fyrir orku og mikið notaðir í
ýmisskonar rafeindaiðnaði. Djúpáru-
jöfnun byggist á því að vinna með
orkustöðvamar í líkamanum, að jafna
orkunni út, þannig að áran nái þeirri
þenslu og því heilbrigði sem henni er
eðlileg. Árujöfnunin virkar bæði á
andlegu og líkamlegu hliðina, því ef
andinn er vel á sig kominn er líkaminn
það líka. Áran og orkulíkamarnir
halda kerfinu í efnislíkamanum gang-
andi ef við leyfum því ferli að eiga sér
stað.
En áruteikning?
„Ég teikna ámna sem einstaklingur
Guðmundur Skarphéðinsson: Mað-
urinn er annað og meira en skröit-
andi efnislíkami.
sendir írá sér, þá liti sem koma fram.
Hver litur ámnnar er á sérstakri orku-
tíðni og táknar ákveðna tilfinninga-
sveiflu. Svona finnur maður út hvað
angrar fólk, hvort sem það eru sjúk-
dómar, tilfinningasveiflur eða eitthvað
sem fólk er að kryfja til mergjar. Til
þess að sjá liti ámnnar þarf skyggni-
gáfu. Ég er í sambandi við leiðbein-
anda, gamlan kunningja úr fyrri jarð-
yist.“