Alþýðublaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996
s k o ð a n i r
MMOUBLMIHI
21147. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Simi 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Tíminn líður
Á forsíðu í gær tilkynnti Tíminn með stríðsletri að þriðja stóra
dagblaðið líti senn dagsins ljós. Og reyndar verður spennandi að
fylgjast með sameiningu Tímans og Dags, þótt útbreiðsla nýja
blaðsins verði langtum minni en Morgunblaðsins og töluvert
minni en DV. Bæði blöð koma með nokkuð drjúgan heiman-
mund: Dagur hefur mikla útbreiðslu á Norðurlandi, og skákar
jafnvel Morgunblaðinu, og Tíminn er öflugur víða á landsbyggð-
inni þótt sala blaðsins hafi farið minnkandi hin síðari ár.
Sameining Dags og Tímans hlýtur hinsvegar að vekja áleitnar
spurningar um hringamyndun á fjölmiðlamarkaðinum. Frjáls
fjölmiðlun hf., útgefandi DV, verður meirihlutaeigandi en eigend-
ur íslenska útvarpsfélagsins hf. eru hinsvegar áhrifamestir í
Fijálsri fjölmiðlun. Stöð 2, Bylgjan, DV og Dagur-Tíminn lúta
því stjóm örfárra manna. Morgunblaðið og Stöð 3 mynda síðan
aðra meginblokk á markaðinum. Þeir sem hafa amast við því að
stjómmálaflokkar vasist í útgáfu sjá eflaust ástæðu til að kætast,
enda er Alþýðublaðið nú eina dagblaðið sem gefíð er út af stjóm-
málaflokki. Á hinn bóginn er firra ef menn halda að fjölmiðill sé
þá fyrst „frjáls og óháður“ þegar tryggt er að pólitíkusar komi
hvergi nærri. Þeir kaupsýslumenn sem á undanfömum ámm hafa
tekið þátt í stríði um forræði yfir fjölmiðlunum gera það vitanlega
vegna þess að fjölmiðlum fylgja völd og áhrif.
Tíminn og Dagur em nánast jafnaldrar, blöðin vom stofnuð
1916 og 1917 en vom ekki gefin út daglega fyrren síðar. Bæði
blöð fylgdu Framsóknarflokknum að málum, þótt nokkuð hafi
dregið úr þeim tengslum allra síðustu ár. Það á sérstaklega við
um Dag sem hefur náð að skapa sér sérstöðu sem málgagn Norð-
lendinga fyrst og ffemst. Tíminn hefur hinsvegar til þessa dags
verið málgagn Framsóknar, enda ritstjórinn fenginn úr þing-
flokknum einsog glöggt kemur fram í ritstjómargreinum blaðs-
ins. Á ýmsu hefur oltið með rekstur Tímans og Dags síðustu ár,
sér í lagi hefur útgáfa Tímans verið ævintýraleg á köflum. Blöðin
eiga hinsvegar hugmyndalega samleið og eflaust er markaður
fyrir dagblað sem einbeitir sér að málefnum landsbyggðar.
Eyjólfur Sveinsson framkvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlunar
sagði í DV í gær að nýja blaðið myndi einkum verða í samkeppni
við Morgunblaðið. Gert er ráð fyrir að það verði prentað í 14 þús-
und eintökum fyrsta kastið, sem er reyndar meira en samanlögð
útbreiðsla Tímans og Dags nú. Höfuðstöðvar' verða á Akureyri
og þar verður blaðið prentað, en auk þess verður ritstjómarskrif-
stofa í Reykjavík og fréttaritarar vítt og breitt um landið.
Óneitanlega er nokkuð broslegt að framsóknarkálfamir tveir
skuli leiddir saman á einn bás á vegum DV - þess blaðs sem ár-
um saman hefur barist fyrir því að uppræta framsóknarsukkið í
landbúnaðarkerfinu. Alltjent verður fróðlegt að sjá hvaða stefnu
nýja blaðið tekur í þjóðmálum, en ekki er ástæða til annars en
óska starfsmönnum Dags-Tímans velfamaðar á tímamótunum. ■
Gúrkur
Ætli það sé mælikvarði á hversu
sameiningarmál á vinstri væng
eru mönnum hugleikin að umræða um
þau hefst allajafna í vorbyrjun ár
hvert, nær hámarki kringum sumarsól-
stöður en smáfjarar síðan út og er að
engu orðin um það leyti sem fé er rek-
iðaffjalli?
Þessi árstími er í blaðamennsku
kenndur við gúrkur: en þá þurfa frétta-
haukar að hafa úti allar klær að afla
frétta - eða búa þær til.
Einsog gengur |
i Hrafn
Jökulsson
skrifar
Misskiljið mig ekki: ég er ekki að
draga úr nauðsyn þess að vinstrimenn
tali saman. Vinstrimenn hafa reyndar
lítið annað gert síðan þeir byrjuðu
fyrst að kljúfa flokka sfna fyrir sjö
tugum ára. Þeir hafa talað og talað.
Og klofnað og klofnað.
Nýjar kynslóðir hafa komið fram,
ein af annarri, og sagt: Við ætlum ekki
að láta urða okkur í skotgröfum fortíð-
arinnar, við ætlum ekki að láta óskilj-
anlega þvælu úr fortíðinni fjötra okkur
í smáflokkatilverunni.
Síðan hafa nýju kynslóðimar, ein af
annarri, komið sér fyrir í skotgröfun-
um og haldið áfram stríði sem enginn
man lengur hvenær byijaði eða veit til
hvers er verið að beijast.
Svo kemur gúrkutíð með vopnahlé
og samningaviðræður í fjölmiðlum.
Svo er féð rekið af fjalli og stríðið
heldur áfram.
Björn Arnórsson hagfræðingur
skrifaði grein í Alþýðublaðið í síðustu
viku og bað menn að hætta þessu
bulli. Hann benti á að ekki sé einsýnt
að klastra saman litlu stjórnarand-
stöðuflokkunum, enda séu ágreinings-
línur í íslenskum stjómmálum dregnar
þvers og kruss á núverandi flokka-
skipan. Hann nefndi nokkur grund-
vallarmál þar sem þessir flokkar eiga
enga samleið, og klykkti reyndar út
með því að segja að sameining Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks,
Kvennalista og Þjóðvaka myndi
skerða lýðræðislegan rétt hans til
kosninga.
Hákon Gunnarsson viðskiptafræð-
ingur svaraði Bimi fullum hálsi hér í
blaðinu í gær. Hann viðurkennir fús-
lega að það sé „bullandi ágreiningur"
innan vinstrihreyfingarinnar „um
hvemig taka beri á ýmsum þjóðfélags-
málum“, en fmnst það ekki mikið til-
tökumál: „Það er gott og gilt að gera
meiri kröfur til sjálfs sín en annarra,
en benda má á að það hefur verið
gæfa Sjálfstæðisflokksins að hann er
nokkurskonar regnhlífarsamtök ger-
ólíkra hagsmunaafla. Fjórir af hverj-
um tíu íslenskum kjósendum geta vel
fellt sig við þetta fyrirkomulag og
enginn spyr hvað til dæmis Hannes
Hólmsteinn Gissurarson og Egill
Jónsson eigi sameiginlegt í stjórn-
málaskoðunum, sem er nánast ekki
neitt.“
Lítum nú aðeins á þetta vers.
ISvo kemur gúrkutíð með vopnahlé og samn
ingaviðræður í fjölmiðlum. Svo er féð rekið
af fjalli og stríðið heldur áfram.
Sjálfstæðisflokkurinn er hagsmuna-
bandalag en ekki hefðbundinn stjóm-
málaflokkur. Sjálfstæðisflokkurinn er
einsog guðsríki að því leyti að þar em
margar vistarvemr: þar er pláss fyrir
allar skoðanir. Fyrir vikið er flokkur-
inn hinsvegar stelhulaust flykki. I síð-
ustu kosningastefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins var sama hvar borið var nið-
ur, flokkurinn reyndist ekki hafa
stefnu í neinu máli. Ekki í sjávarút-
vegsmálum, landbúnaðarmálum, Evr-
ópumálum, velferðarmálum, mennta-
málum - hvergi. Minnast menn þess
að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi
sett fram eitt einasta pólitískt stefnu-
mál sem einhverju skiptir? Fyrir hvað
stendur Davíð Oddsson í pólitík?
Hvað hefur hann fram að færa - ann-
að en fækka beri þingmönnum?
Er eftirsóknarvert að stofna á vinstri
væng „regnhlífarsamtök gerólíkra
hagsmunaafla"? Segjum svo, að þegar
við vöknum í fyrramálið hafi Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur, Kvennalisti
og Þjóðvaki - og jafnvel Framsókn
einsog sumir virðast vilja - sameinast
í eina fylkingu. Hvemig stjómmála-
flokkur væri það? Myndi hann fylgja
fiskveiðistefnu Halldórs Ásgrímssonar
eða Ágústs Einarssonar? Landbúnað-
arstefnu Steingríms J. Sigfússonar eða
Lúðvíks Bergvinssonar? Evrópustefnu
Hjörleifs eða Jóns Baldvins? Og svo
framvegis.
Þeir sem vilja stofna stóra nýja
flokkinn strax í fyrramálið ansa svona
spumingum af yfirlæti mannkynsfrels-
arans: Þetta er karp um dægurmál sem
við eigum að hefja okkur yfrr í þágu
málstaðafins.
Hvaða málstaðar? Þess málstaðar
að stofna regnhlífarsamtök gerólíkra
hagsmunaafla, stimpla þau sem
„vinstriflpkk" og ná völdum í næstu
kosningum?
Hákon Gunnarsson segir í grein
sinni: „Auðvitað þarf íslensk vinstri-
hreyfmg að taka afstöðu til afgerandi
mála sem snerta íslenska framtíð. Með
nokkur skýr almenn markmið að leið-
arljósi um hagkvæmni og réttlæti í ís-
lensku þjóðfélagi og áherslur um ný-
sköpun í atvinnulífi, menntun og betri
ráðstöfun framleiðsluþátta er kominn
nægjanlegur rammi fyrir sameiningu
vinstrimanna í þessu smáríki sem við
búum í.“
Jæja? Hver getur ekki skrifað Undir
þessi ákaflega almennu marfcmið?
Hagkvæmni, réttlæti, nýsköpun,
menntun - bæði Egill á Seljavöllum
og Hannes Hólmsteinn myndu skrifa
undir þetta án þess að hugsa sig um.
Það er leiðigjamt til lengdar þegar
stórpólitísk mál eru afgreidd sem
smotterí; og það sé tóm smámunasemi
að velta fyrir sér eignarhaldi á auð-
lindum íslands, aðild að Evrópusam-
bandinu, helsjúku og rándýru land-
búnaðarkerfi og svo framvegis og svo
framvegis.
Af grein Hákons mátti ráða að hon-
um þótti Björn Arnórsson hafa í
frammi stórfelld veisluspjöll. En þó
undirbúningur hafi staðið í sjö tugi ára
er veislan bara ekki byrjuð - og þess-
vegna ekki skrýtið þótt sumir standist
ekki mátið og næli sér í gúrku. ■
Ú I í
Atburðir dagsins
1567 María Skotadrottning af-
salar sér krúnunni eftir að mót-
mælendur sigruðu lið hennar
við Carberry Hill. 1704 Bretar
ná Gíbraltar af Spánverjum.
1896 Nunnur komu til lands-
ins, þær fyrstu eftir siðaskipti.
1956 Vinstristjórn Hermanns
Jónassonar tók við völd-
um.1967 Heilsíðuauglýsing í
stórblaðinu Tlte Times þarsem
þess er krafist að neysla kanna-
bis-efna verði leyfð. Bítlamir
eru meðal þeirra sem skrifa
undir. 1980 Breski leikarinn
Peter Sellers deyr úr hjarta-
áfalli. 1987 Breska rithöfundin-
um og milljónamæringnum
Jeffrey Archer dæmd 500 þús-
und pund í miskabætur frá dag-
blaðinu Star sem hafði fullyrt
að hann ætti í sambandi við
vændiskonu.
Afmælisbörn dagsins
Simon Bolívar 1783, suður-
amerískur stjómmálamaður og
herforingi sem frelsaði Kólom-
bíu, Venezúela og Ekvador
undan yfirráðum Spánverja.
Alexendre Dumas 1802,
franskur rithöfundur. Amelia
Eahart 1898, fyrsta konan sem
flaug ein síns liðs yfir Atlants-
hafið. Peter Yates 1928,
breskur kvikmyndaleikstjóri.
Annáisbrot dagsins
Kom skrímsli á land undir
Snæfellsjökli að stærð sem
hestur með tveimur homum á
höfði og þremur upp úr bakinu.
Mælifellsannáll 1700.
Gróði dagsins
Ég hef ekki efni á því að sóa
tíma mínum í það að græða
peninga.
Jean L.R. Agassiz.
Málsháttur dagsins
Fjandans mikið er eftir enn,
sagði presturinn.
Launung dagsins
Til þess talar maður að leyna
hugsun sinni.
Halldór Kiljan Laxness;
Atómstödin.
Orð dagsins
Sdlar minnar sorg ei herð,
seka Drottinn ndðar,
afþví Jesús eitt fyrir verð
okkur keypti báðar.
Agnes Magnúsdóttir,
kveöið til Skáld-Rósu.
Skák dagsins
Italski skákmeistarinn Tatai
hefur marga fjömna sopið, en
aldrei hefur hann náð í fremstu
röð. Hann er í aðalhlutverki í
skák dagsins, sem tefld var í
Dubai árið 1984. Tatai hefur
svart og á leik á borði gegn Ca-
talan.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Hel+! Hvítur gafst upp
enda tapar hann nú liði.