Alþýðublaðið - 24.07.1996, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 24.07.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996 ALÞÝÐUBLAÐHD 5 1971. kosningadagskrám Ríkisútvarps og sjónvarps. Bréfið var tekið fyrir á íúndi útvarpsráðs og vakti miklar um- ræður. Einhverjir í útvarpsráði höfðu heyrt ávæning af því að fulltrúar Framboðsflokksins hygðust tjá sig með gítarspili og söng og ætluðu jafn- vel að flytja mál sitt á ensku. Fundur- inn samþykkti einróma að aðeins ís- lenskt mál yrði talað í dagskránni, en ekki var einhugur um hvort sönglist ætti erindi á framboðsfundum. Var hún þó bönnuð. Þá mun hafa verið skjalfest að ekki væri leyfilegt að koma nakinn fram í kosningadagskrá sjónvarps. Framboðsflokkurinn fékk að taka þátt í allri kosningadagskrá nema hringborðsumræðu í sjónvarps- sal fimm dögum fyrir kosningar. Eng- ar hringborðsumræður, en þess í stað hélt O-flokkurinn hringborðsdansleik í Glaumbæ. f auglýsingu fyrir dansleik- inn er því lofað að Asta R. Jóhannes- dóttir spili „sömu gömlu plötumar í diskótekinu." Lokkandi boð, enda var dansleikurinn mjög fjölsóttur og ríkti þar glaðvær baráttuandi og sóknarhug- ur. Merkingarsnauð skrúðmælgi Framboðsflokkurinn tók þátt í flokkakynningu í sjónvarpi og fram- boðsfundi í beinni útsendingu 1. júní. Ýmist voru ræður frambjóðendanna algjörlega frumsamdar eða soðnar Útvarpsráð samþykkti einróma að aðeins ís- lenskt mál yrði talað í kosningadagskránni, en ekki var einhugur um hvort sönglist ætti erindi á framboðsfund- um. Var hún þó bönn- uð. Þá mun hafa verið skjalfest að ekki væri leyfilegt að koma nak- inn fram í kosninga- dagskrá sjónvarps. uppúr stjórmálaskrifum héðan og það- an. Til dæmis var mjög stuðst við ræð- ur formanna stjórnmálaflokkanna á landsfundum þeirra á liðnum vetri og oft vom heilu kaflamir notaðir svo að segja óbreyttir. A framboðsfundinum 1. júní hafði Vilhjálmur H. Vilhjálms- son - sem skipaði „sjöunda baráttu- sætið“ á listanum í Reykjavík - meðal annars þetta að segja: „Frumskógur stjómmálanna krefst gaumgæfilegrar ígrundunar er þræða þarf öngstigið milli róttækni og íhaldssemi. llialds er þörf því eigi má afneita glæstum arfi forfeðranna sem skapast hefur á harð- drægum lífdögum liðinna kynslóða. Nútíðin er skilgetið afkvæmi þess sem var, hvítvoðungur sem þarf hlýju og ástúð á norðurhjara veraldar. Róttœkni er þörf, því að án hennar á sér ekki stað heilbrigt endurmat á arfi feðranna, en samband fortíðar og framtíðar má ekki rofna í nútíðinni. Skylda vor er að varðveita tunguna, bókmenntir vorar, sögu og hina kristilegu lífsskoðun sem sjáöldur augna vorra, þannig að þjóðin Gunnlaugur Ástgeirsson: Okkar vegna bjó útvarpsráð til þá reglu, sem enn er gild, að í lokaumræð- um fyrir kosningar taki þeir einir þátt sem eiga fulltrúa á þingi. ■ Gunnlaugur Ástgeirsson kennari var stýrimaður Framboðsflokksins og fjórði maður á framboðslista í Suðurlandskjördæmi: Minkar í Hugmyndin á bak við Framboðs- flokkinn var tvíþætt; að gera grín að stjórnmálamönnum með þeim al- varlega undirtón að sýna framá hve margt af því sem þeir segja er inni- haldslaust. Og að prófa hversu langt „kerfið" hleypti okkuref við gerðum allt rétt, samkvæmt reglum og lög- um. í tólf ár, þegar þessi hópur er að komast til vits og ára, hafa sömu mennirnir verið vlð völd í þjóðfélag- inu. Og þó mörgum þyki nóg um núna, voru stjórnunarstofnanir mun lokaðri fyrir 25 árum. Við vildum at- huga hvað svona hópur kæmist langt - og við komumst raunar alla leið. Okkar vegna bjó útvarpsráð til þá reglu, sem enn er gild, að í loka- umræðum fyrir kosningar taki þeir einir þátt sem eiga fulltrúa á þingi. Mikilvægt var að þetta voru aðrar sjónvarpskosningarnar, og sjónvarp- ið er geysilega áhrifamikið og fram- boðið vakti óhemju athygli. Við- brögð sem við fengum á framboðs- fundum í Suðurlands og Reykjanes- kjördæmi voru með ólíkindum. Það var nánast sama hvað við sögðum - stundum var fyndnin ekki sérlega djúphugsuð - salurinn veltist um af hlátri. Frá þessu var ein undantekn- ing; Hvolsvöllur. Rangárvallarsýslan var svo harðsvírað Framsóknar- og Sjálfstæðisbæli að það að verið væri að gera grín að þeirra mönnum var nánast Guðlast. Við komum þarna einsog minkar í hænsnabú... smám saman verður fjölmiðlabylting og los kemst á flokkakerfið. Hvort sem framboðið var orsakavaldur eða vitnisburður þessara breytinga." verði áfram í frumtengslum við sinn þjóðlega umhverfisveruleika, en fljóti ekki sofandi að feigðarósi eftiröpunar erlendra atferlishátta.“ Jörgen Ingi Hansen, annar maður í Reykjaneskjördæmi, útskýrði nokkur lykilorð stjómmálanna, og byrjaði á svonefndri byggðastefnu: „Hún vamar því að kjósendur séu fluttir á milli kjördæma og atkvæði á milli kjör- kassa. Þetta á að sjálfsögðu jafnt við um þéttbyggð, dreifbyggð og óbyggð landssvæði. Þetta hugtak er annars ná- tengt jafnvæginu í byggð landsins, öðra slagorði, en svo nefnist stefna sú sem er ætlað að koma í veg fyrir að ójafnvægi sé á milli jafnvægisins í hin- um ýmsu byggðum landsins. Þessari stefnu er ætlaða að skapa aukið af- komuöryggi, það er að segja að öllum landsmönnum verði örugglega tryggð- ir afkomendur." Gunnlaugur Astgeirsson gerði grein fyrir stefnu flokksins í helstu dægur- málum: „Stefna Framboðsflokksins í landhelgismálinu er ótvíræð. Stefna Framboðsflokksins í menntamálum er að auka menntun. Stefna Framboðs- flokksins í tryggingamálum er að bæta tryggingar. Stefna Framboðsflokksins í landhelgismálinu er skýlaus. Stefna Framboðsflokks- ins f húsbygginga- málum er að stækka fbúðir með því að minnka her- bergi. Stefna Framboðsflokks- ins í samgöngu- málum er að auka samgöngur. Stefna Framboðsflokks- ins í brúarmálum er að breikka brýr. Stefna Framboðs- flokksins í land- helgismálinu er markviss. Stefna flokksins í vega- gerðarmálum er að lagður verði liring- vegur umhverfis landið, hringvegur í hverju kjördæmi, í hverri sýslu og í hverri sveit, þann- ig að landið verði allt markað stórum o-um. Stefna flokksins í hafnarmálum er að dýpka hafnir. Stefnan í siglinga- málunt er norð-norð-austur. Stefnan í landhelgismálinu er fastmótuð.“ Þingmannadraumur Að kvöldi 3. júní fóru ffam stjóm- málaumræður í útvarpssal, í beinni út- sendingu. Samhæfður undirbúningur fyrir fundinn var lítill, nema hvað sam- eiginleg ákvörðun hafði verið tekin um það hverjir yrðu talsmenn Framboðs- flokksins. Það voru Sigurður Jóhanns- son, efsti maður á lista flokksins í Reykjavtk, Rúnar Ármann Arthúrsson, efsti maður í Suðurlandskjördæmi og Einar Örn Stefánsson, háseti. Þetta kvöld gerðist það að efsti maður í Reykjavík brást framboðshugsjóninni í grundvallaratriðum; hann flutti alvar- lega ræðu. Sigurður hóf mál sitt á að tala um þá alvöru og gagnrýni sem í rauninni fælist að baki framboði flokksins og minntist á að íslensk stjómmál væru úr tengslum við raun- veruleikann. „Eg hef sýnt að ég hugsa lítið um mín atkvæði; ég bý yfir hug- myndaflugi og miklum upplýsingum. Og ef ég kemst á þing skal ég lofa að taka að mér óvinsæl málefni. Ég skal ná til þjóðarinnar. Og þjóðin skal ná til mín þegar hún vill... Landsmenn góð- ir. Kjósið Framboðsflokkinn - þjóðin þarfnast hans.“ Rúnar Ármann, sem átti að tala í næstu umferð, gat ómögu- lega flutt sína undirbúnu ræðu eftir þennan málflutning, en spann uppúr sér ræðu, þar sem hann reyndi að draga úr áhrifum sem Sigurður kynni að hafa haft á hlustendur. Brúaði hann þannig bilið, svo þriðji og síðasti ræðumaður flokksins þetta kvöld flutti undirbúna ræðu sem var í einu og öllu í anda Framboðsflokksins. Eftir þessar umræður var Sigurður sniðgenginn í starfi flokksins og varpaði þetta nokkr- um skugga á flokksstarfið. Framboðsflokkurinn tók þátt í fram- boðsfundum á Selfossi, Hvolsvelli og í Vestmannaeyjum. Gunnlaugur Ást- geirsson, Einar Öm Stefánsson, Rúnar Ármann Arthúrsson og Sigríður Magnúsdóttir tóku til máls á þessum fundum og var málflutningur þar offast mun staðbundnari en verið hafði í rík- isfjölmiðlum og blaðaviðtölum. Á Sel- fossi tók Rúnar Ármann svo til máls: „Ingólfur Jónsson, núverandi og til- vonandi fyrrverandi ráðherra, hefur haft allan veg og vanda af landbúnað- armálum. Hafi hann þökk fyrir. En við núllistar höfum á takteinum lausn allra vandamálanna, það er að segja kal, uppblástur, offramleiðsla og allt þetta. Við erum á þeirri skoðun að steypa eigi saman Se- mentsverksmiðju ríkisins og Áburð- arverksmiðju ríkis- ins. Það verði gert til þess að kleift verði að framleiða varanlegan áburð sem ekki þarf að bera á nema einu sinni.“ Ýmis bar- áttumál kjördæ- manna voru tekin fyrir og ráðherr- um, ríkisstjórn og stjórnarandstöðu var hrósað fyrir vel unnin störf á liðn- um árum og mis- tök þökkuð þús- undfalt. Yfirleitt var gerður góður rómur að málflutn- ingi Framboðs- flokksins og var oft talsvert fleira fólk í salnum á meðan O-frambjóðendur fluttu sínar ræður en endranær. Hvolsvöllur var reyndar sérkennileg undantekning, þar sem svo virtist sem aðeins sjálfstæðis- menn og framsóknarmenn væru í saln- um - sátu hvorir sínum megin, brúna- þungir. Kosningadagurinn 13. júní rann upp bjartur og fagur. Þann daginn voru framboðsmenn nokkuð á ferli, dreifðu plakötum og blésu sápukúlur, en þar sem þetta hvort tveggja flokkast að sjálfsögðu undir áróður á kjörstað var lögregla ekki lengi að stöðva jafnólög- legt athæfi. Framboðsflokkurinn hafði tekið á leigu sal í Bolholti - sem kall- aðist kosningaskrifstofa þann daginn - og þangað tóku ntenn að streyma um kvöldið. I salnum í Bolholti fylgdist næstum allur flokkurinn með úrslitum kosninganna langt fram eftir nóttu. Strax og fyrstu tölur birtust úr Reykja- vík var ljóst að útilokað var að Fram- boðsflokkurinn fengi mann kjörinn á þing - og létti flestum flokksmönnum stórum. O-flokkurinn fékk 3 prósent atkvæða í Reykjavík, 3,2 prósent í Reykjaneskjördæmi og 1,9 prósent at- kvæða í Suðurlandskjördæmi. Þetta kvöld, semog næstu nótt, fór fram erfi- drykkja Framboðsflokksins, því þetta var í síðasta sinn sem flokksmenn komu saman vegna beinna aðgerða í þágu flokksins. ■ &iJ~t Hringborðsdansleikur Framboðsflokksins R«ykJ»vlk, 10. Jdní 1971. Un lelS og «g þakka boð 4 ð«n*lelk 1 Glaunbc 8. Júní. icx 4g þáðl ekkl, er.ður- sendl <g l.ér eieð boðekortlð tll þess ao ekkl furfl »6 grelðe skeseitsnsskktt sf ■ðc&ngunlðe, len ekkl er noteður. Framboðsflokkurinn fékk ekki að taka þátt i hringborðsumræðum í sjónvarpi 5 dögum fyrir kosningar en hélt þess í stað hringborðsdans- leik og bauð ölium frambjóöendum „litlu flokkanna". Þáverandi menntamálaráðherra endursendi boðið með þeim ummælum að óþarfi væri að greiða skemmtana- skatt af ónotuðum aðgöngumiða. Asta Ragnheiður: A Selfossi kröfð- umst við þess að Ingólfsfjal! yrði flutt, þarsem það væri greinilegur áróður á kjörstað að hafa fjallið í kjördæminu, með Ingólf á Hellu í framboði. ■ Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Þjóðvaka, var plötusnúður í Glaumbæ og skipaði þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavík: Þriðja sætið var kvennasæti „Eftir 1968 varð ákveðin gerjun meðal háskólastúdenta. Ungtfólk var í uppreisn gegn hefðbundnum gildum, gegn „kerfinu" og gegn hægriöflunum. Við vildum andæfa hægristjórninni, Viðreisnarstjórn- inni, sem hafði verið óralengi við völd, og notuðum þá aðferð að gera stólpagrín að öllu saman - með gagnrýnum undirtón. Ég var í þriðja sæti í Reykjavík - sem var ekki útí bláinn, því fyrir 25 árum voru konur aldrei ofar á framboðslistum, en prýddu gjarnan 3. sætið. Kosninga- baráttan var bráðskemmtileg; til að byrja með voru menn mjög tvístíg- andi, vissu hreint ekki hvort þeir áttu að taka okkur alvarlega. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra átt- aði sig fljótt á því hvað við vorum að fara - og bauð okkur öllum að ganga í Alþýðuflokkinn! Málflutning- ur Framboðsflokksins kom gömlum kerfisköllum oft úr jafnvægi; á Sel- fossi kröfðumst við þess að Ingólfs- fjall yrði flutt, þarsem það væri greinilegur áróður á kjörstað að hafa fjallið í kjördæminu, með Ingólf á Hellu í framboði. Ég hef verið að vasast í stjórnmál- um alla tíð síðan... furðulegt nokk. Og ég kynntist manninum mínum í kosningabaráttunni... en þú meinar líklega hvort O-flokkurinn hafi skilið eitthvað eftir sig utan veggja heimil- isins? Málflutningur okkar kynnti ákveðna gagnrýna hugsun sem náði til fólks og ég er sannfærð um að sú vinstristjórn sem tók við eftir kosn- ingarnar, hafi að hluta til verið af- rakstur þessa framboðs." Framboðsflokkurinn fékk O 0 Ei.ns og sikýnt hefur vierið frá 1 blöðum, hieíur nýr stjórnmáila- flokkur, Framboðstilokkjurinn, vcv ið stofnaður. Mun hann bjóða fram í þremur kjördaamum tid vænlan'legra aiþingiskosninga í sumar. Nú eru þrjú fioklksfélög starf- Bndi ívþremur kjördæmum, þ. e. Reykjavik, Rieykjanes- og Suður- Jandskjördæmi og bjóða þau öll fram ' til komandi kosninga. í fréttatHikynningu frá félaginu Alþýðublaðið 15. maí 1971 segir, að „tóldrög að stoifnun hans | var hár meðalaildur frambjóðendai; annarra flokka og ósamkomuilag: þeirra um. h'elztu vieiferðarmáil! þjóðcirinnar“. Á kj örs t j órrtarí undum á' fimm'tudag var samiþykiktur lista- bókstafurinn O fyrir flokkinn. ) Framboðsflokkurinn hýggur á| einhverja kosningastarifs'emi, en' enn er elkkii ljóst hvaða stefnoi verður tekin upp í baráttunni. að þvi er annar maður á lista | flokiksins í Rieykjaniesk.iör.dæmi, ' Jöngen Ingi Hanáen, aðalifram- kvamd't'tjóri sagðá í viðtali við bdaðið i gæ.r. „í>ar sem viið erum wo nýir í pólitákimni viljum við e|aki loifa neinu, sem við getum ekld eiEnt“, sagði Jörgen. Það *«• :bó ljós't, að ftökkwánn mun steitna að kosningahapp- drae'tti, þar siem meðal vinninga verður ..horafótur með ilsig, noldk- ur neiðSijól og al|þingissæli“, sem fólki vérður ja-tnframt cefinn kostur á að setjast í gegn vægu gjaildi. Þá munu fuliltrúar Framboðs- flcikiks'ns t'fta ,þátt í sjónivarps- umræðum og flokkakynningu sjónvarpsir.s. Þrír efstu menn ftökksins i Rieykjaivík eru; Sigurður Jóhan"' son, þjóðlagasöngvari, Fir" Brynjólfsson, kennari og Ásta Jó. hannsdóttir. nlötusnúður.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.