Alþýðublaðið - 24.07.1996, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
n
7
m e n n
■ Listræn leiðrétting
Var álitinn kjáni
og fáráðlingur
- segir Hákon Hertervig
um listmálarann Lars
Hertervig afabróður sinn.
Atli Heimir Sveinsson tónskáld er
að leggja síðustu hönd á óperu um
norska listmálarann Lars Hertervig. I
viðtali við Atla Heimi í Alþýðublað-
inu síðastliðinn þriðjudag, var rangt
farið með nafn listmálarans. Hákon
Hertervig arkitekt hafði samband við
Alþýðublaðið tilþess að benda á vit-
leysuna, en Lars Hertervig var afa-
bróðir hans og bera þeir sama nafnið.
„Lars Hertervig listmálari fæddist
árið 1830 á Vesturströnd Noregs og
dó 1902,“ segir Hákon Hertervig.
„Hann var einn níu systkina, en Knút-
ur, sjö árum yngri bróðir hans kom til
íslands nokkru fyrir aldamótin til að
kenna Austfirðingum síldveiðar.
Knútur hafði með sér ungan son sinn,
Casper, sem er afi minn. Árið 1906
drukknar Knútur við vinnu sína, en
sonur hans flengdist hér í nokkur ár.
Ég vissi alltaf af listmálaranum afa-
bróður mínum; fyrst í gegnum pabba,
og þegar ég er sjö ára strákur eignast
ég bók um hann eftir listfræðinginn
Aslaug Blytt. Óli Tynes kunningi
pabba og sfldarspekúlant á Siglufrrði,
þar sem ég er fæddur og uppalinn,
færði mér bókina.
Lars Hertervig komst til náms fyrir
tilstilli kaupmanns nokkurs sem tók
hann undir sinn vemdarvæng. Þegar
hann lauk námi, hálfþrítugur, voru
menn famir að álíta hann sinnisveikan
og var hann nánast læstur inni á spít-
ala. Hann dó náttúrlega úr fátækt og
örbirgð einsog allir sem stunduðu
svona lagað á þessum tíma, sérstak-
lega vegna þess að hann var álitinn
dálítill kjáni og fáráðlingur. Enginn
hafði trú á því sem hann var að gera.
Það er um 1939 þegar Aslaug Blytt
listfræðingur ríkislistasafnsins í Osló
gefur út veglegt rit um Hertervig að
hann er hafinn til vegs og virðingar.
Hákon Hertervig: Listfræðingur listasafnsins í Osló hóf að grennslast fyrir
um ættina í þeim tilgangi að finna myndir eftir Hertervig.
Holger Koefoed, sem gegnir því sama
embætti núna, hefur gefið út nokkrar
bækur um Hertervig og hóf að
grennslast fyrir um ættina í þeim til-
gangi að reyna að finna myndir eftir
Hertervig. Koefoed komst að því að
Knútur bróðir Lars hefði farið til fs-
lands, og komst í samband við mig.
Fleiri bræður Lars fóru til fjarlægra
landa, og listfræðinga gmnaði að þess-
ir menn, sem höfðu bein í nefinu til að
ferðast langar leiðir, hefðu kannski
haft með sér einhver verk eftir bróður
sinn. En fyrir utan okkur fimm syst-
kinin hér, hafa engir ættingjar komið í
leitimar - og við eigum engar myndir
í fómm okkar.
En það varð uppi fótur og fit þegar
ég sagði Norðmönnunum að ég ætti
þessa bók eftir Blytt, sem Óli Tynes
gaf mér sem bami, vegna þess að þeir
vissu ekki betur en aðeins eitt eintak
væri til af bókinni, í ríkisbókasafninu í
Osló. Þetta er ansi stór og mikil bók,
gefrn út í Osló árið 1939, en upplagið
eyðilagðist við innrás Þjóðveija í Nor-
eg. Á þeirra tíma mælikvarða hefur
þetta verið mikið ritverk, meira að
segja prýtt litmyndum. Óli Tynes hef-
ur líklega pantað bókina sérstaklega
frá Noregi, til þess að gefa mér hana
1939.
Ég hef haldið sambandi við norsku
listfræðingana og þegar Listasafnið í
Osló hélt uppá 150 ára afmæli Lars
Hertervig árið 1980, var mér boðið út
og kom þar fram á opnun sýningarinn-
ar. Sjálfur er ég hrifinn af myndum
Hertervig - það eru rómantískar
landslagsmyndir, oft mjög dramatísk-
ar. Það er skiljanlegt að mönnum hafi
fundist hann undarlegur - svona eins-
og þegar menn skoðuðu fyrst drauma-
myndir Kjíirvals."
EJS óskar eftir
sölufulltrúum og
tæknimönnum
EJS er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsinga-
tækni. Þjónusta EJS nær til flestra hliða nútíma upplýs-
inga- og samskiptatækni, allt frá sölu og þjónustu á
heimsþekktum vél- og hugbúnaði, til nýsmíða og þróunar
á hugbúnaði og lausnum fyrir atvinnulífið, hérlendis sem
erlendis.
EJS leggur metnað sinn í að bjóða starfsöryggi, jafnrétti,
sanngjörn laun og jákvætt, gefandi starfsumhverfi.
Áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfsfólks, sjálfstæði
og hópvinnu.
Vegna stóraukinna verkefna óskar EJS eftir að ráða öfl-
uga og áhugasama einstaklinga sem fyrst, til starfa í
verslun, söludeild og netþjónustu.
EJS versiun
Starfið felst í almennri sölu á tölvubúnaði til einstaklinga
og smærri fyrirtækja. Leitað er að einstaklingum með
góða grunnmenntun, góða framkomu og þjónustulund.
Reynsla af tölvunotkun nauðsynleg.
Umsóknir berist Guðjóni Kr. Guðjónssyni verslunarstjóra
fyrir 7. ágúst merktar:
„Starfsumsókn - Verslun".
EJS söludeild
Söludeild annast dagleg samskipti við fyrirtæki og stofn-
anir, veitir ráðgjöf varðandi kaup á tölvubúnaði og upp-
byggingu upplýsingarkerfa og annast samskipti við er-
lenda birgja. Leitað er að einstaklingum með framhalds-
menntun t.d. í töælvunar-, viðskipta- eða verkfræði. Við-
komandi þurfa að eiga auðvelt með hópvinnu, hafa gott
vald á mæltu og rituðu máli og hafa góða framkomu.
Þekking og reynsla í upplýsingataekni er æskileg.
Umsóknir berist Skúla Valberg Ólafssyni sölustjora fyrir
7. ágúst merktar: „Starfsumsókn - Söludeild".
EJS Netþjónusta
Netþjónusta annast þjónustu og uppsetningu á tölvunet-
um, vélbúnaði og hugbúnaði.
Leitað er að einstaklingum með framhaldsmenntun t.d. í
tölvunarfræði, kerfisfræði, verkfræði eða tæknifræði.
Þekking á Microsoft hugbúnaði og uppbyggingu netkerfa
æskileg.
Umsóknir berist Helga Þór Guðmundssyni framkvæmda-
stjóra þjónustusviðs fyrir 7. ágúst merktar „Starfsum-
sókn - IMetþjónusta".
■ Norræna húsið
Staður
konunnar
Þórey Sigþórsdóttir leikkona kynnir
skáldskap nokkurra efnilegra skáld-
kvenna Islands í Norræna húsinu á
fimmtudagskvöld. Dagskráin hefst
með einleiknum Skilaboð til Dimmu
eða „Meddelande till Dimma“ eftir El-
ísabetu Jökulsdóttur í sænskri þýðingu
Ylvu Hellerud. Þórey hefur flutt verk-
ið áður, til dæmis á Nordisk Forum í
Finnlandi í fyrrasumar. Þá mun Þórey
kynna skáldskap Elísabetar, Gerðar
Kristnýjar, Kristínar Ómarsdóttur og
Lindu Vilhjálmsdóttur á afar óhefð-
bundinn hátt, en hún hefur tekið sér í
not ólíka listmiðla til að koma ljóðum
á framfæri. Umgjörð ljóðanna er
„staður konunnar", það er að segja
heimilið, þar sem hugmyndimar fæð-
ast í daglegu amstri. Ljóðin verða flutt
á íslensku og sænsku. Dagskráin hefst
klukkan átta og er aðgangur ókeypis.
Þórey Sigþórsdóttir leikkona kynn-
ir skáldkonur íslands í Norræna
húsinu á fimmtudagskvöid.
■ Reinhold Richter skrifar
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 105 REYKJAVÍK
SÍMI 563 2340 MYNDSENDIR 562 3219
Hugmyndasamkeppni um
skipulag á Grafarholti
Reykjavíkurborg efnir til hugmyndasamkeppni um skipulag
íbúðabyggðar á Grafarholti í samstarfi við Árkitektafélag ís-
lands.
Rétt til þátttöku hafa allir íslenskir ríkisborgarar.
Veitt verða verðlaun að fjárhæð kr. 3,25 millj. og til innkaupa
kr. 500 þús.
Fremstir meðal jafningja
Vissulega getur forsetinn skipað sér í hóp
sinna jafningja en þar eru ekki Jón og Gunna
og börnin þeirra þrjú með sinn sjötíu prósent
jaðarskatt.
að fer að líða að því að blessaður
álagningarseðillinn birtist inn um
bréfalúguna. Ég verð að viðurkenna
að ég fyllist alltaf óskiljanlegum kvíða
í þann mund sem ég opna seðilinn.
Getur verið að skattstjórinn hafi fund-
ið einhverjar yfirsjónir hjá mér og
bætt á mig álögum, eða á ég einhveija
aura inni hjá skattinum?
Oftar en ekki verð ég fyrir von-
brigðum, vaxtabætumar rýma, bama-
bætumar sömuleiðis og strætómiðinn
frá atvinnurekandanum er skattlagður
og ekki má gleyma grautnum í mötu-
neytinu. Allt er þetta skattlagt eftir
settum reglum og tekjutengingum.
Svo koma dagblöðin. Þar les ég um
forstöðumann í ofsatrúarsöfnuði, sem
nánast tekjulaus, á og rekur margmillj-
ón króna jeppa og glæsilegt einbýlis-
hús og hóteleiganda með fimmtíu þús-
und króna mánaðarlaun. Ég les um
tekjuskattlausar fjölskyldur sem eiga
eða hafa afnot af mörg hundmð fer-
meta sumarvillum við Þingvallavatn,
hafa afnot af bifreiðum eftir þörfum,
utanlandsferðum eftir þörfum, hús-
búnaði og matvælum eftir þörfum,
vélsleðum og laxveiðiám eftir þörfum.
Öfundsjúkur spyr maður, hvemig geta
aumir bamabótaþegar lifað við slíkar
allsnægtir, fólk sem borgar ekki eina
einustu krónu til samfélagsins í formi
skatta?
Skattrannsóknarstjóri fræddi okkur
á því í sjónvarpsþættinum hans Stef-
áns í vetur að skattareglurnar bjóði
upp á þetta og allt sé þetta eðlilegt,
eftir settum reglum og löglegt.
í kosningabaráttunni til forseta kom
einhvers staðar fram að forsetinn geti
varla talið sig fremstan meðal jafn-
ingja meðan hann þarf ekki að borga
til samneyslunnar. Vissulega getur
forsetinn skipað sér í hóp sinna jafn-
ingja en þar em ekki Jón og Gunna og
bömin þeirra þrjú með sinn sjötíu pró-
sent jaðarskatt. Það em þau og þeirra
jafningjar sem halda forseta vomm og
hans jafningjum uppi. ■
Gert er ráð fyrir því, að höfundar tillagna, sem dómnefnd vel-
ur í 1. 2. og 3. sæti, eigi þess kost að útfæra nánar afmarkað-
an hluta samkeppnissvæðisins á þeim forsendum og hug-
myndum, sem höfundar verðlaunatillögunnar í 1. sæti byggir
á. Ennfremur getur Borgarskipulag/skipulagsnefnd falið ein-
stökum öðrum keppendum lokaútfærslu minni afmarkaðra
reita á samkeppnissvæðinu. Borgarskipulag hefur heildarum-
sjón með áframhaldandi skipulagsvinnu í hverfinu öllu í sam-
ráði við höfund þeirrartiliögu, sem hlýtur 1. verðlaun.
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust á skrifstofu
Arkitektafélags íslands á milli kl. 8.00 og 12.00 virka daga frá
og með miðvikudegi 12. júlí 1996. Önnur gögn verða afhent á
sama stað gegn skilatryggingu að upphæð kr. 5.000,-
@Meginmál = Skiladagur er föstudagur 15. nóvember
1996.
Fyrirspurnartími þátttakenda hefur verið framlengdur
til 2. september. Svör við fyrirspurnum munu liggja
fyrir 16. september.
Áætlað er að dómnefnd Ijúki störfum í desember 1996.