Alþýðublaðið - 25.07.1996, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1996
s k o d a n i r
MWOVBIMB
21148. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Isafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Réttmætur
arður þjóðarinnar
Eiga réttlæti og hagkvæmni enn að bíða? spyr dr. Gylfi Þ.
Gíslason fyrrverandi ráðherra í mjög athyglisverðri grein í Morg-
unblaðinu í gær um veiðileyfagjald. Gylfi segir að megingalli
fiskveiðistjómunar sé í því fólginn að markaðslögmálunum er
ekki ætlað til fulls það hlutverk sem þeim ber í nútímaþjóðfélagi,
og reynsla hefur sýnt að leiðir til hámarkshagkvæmni. Þá segir
Gylfi: „Skömmtun er aldrei hagkvæm. Allur atvinnurekstur,
einnig sjávarútvegur, á að vera í höndum þeirra, sem hagnýta
framleiðsluöflin best. Það verður ekki tryggt nema á það sé látið
reyna, hverjir séu reiðubúnir til þess að greiða hæst verð fyrir
framleiðsluöflin í sjávarútvegi, meðal annars íyrir afnot af fiski-
miðunum."
Kvótakerfið í núverandi mynd leiðir vitanlega til þess að arður-
inn af hagnýtingu fiskimiðanna kemur einvörðungu í hlut þeirra
sem heimilaðar eru veiðar. Gylfi segir að vegna þeirra stjómunar-
aðferða við fiskveiðar sem í fyrstu var beitt á íslandi hafi mátt
búast við að arður af fiskveiðum rynni einkum til aukningar fiski-
skipaflotans. Sú var enda raunin, einsog tölur sýna: „Á ámnum
1960-70 jókst aflaverðmætið um 26 prósent en verðmæti flotans
um 32 prósent. En frá ámnum 1970- 1987 jókst aflaverðmætið
um 106 prósent, en verðmæti flotans um 180 prósent. Um það
leyti, sem heildarstjóm var komið á veiðamar 1984, var flotinn
orðinn alltof stór og rekstur hans þjóðinni alltof dýr. Jafnframt
hélt ofveiði áfram, og framtíðargrundvöllur hagkvæms sjávarút-
vegs var þannig skertur.“
Harðar deilur um veiðileyfagjald hafa staðið allar götur síðan
núverandi fiskveiðistjómunarkerfi var sett á laggimar. Þá höfðu
Gylfi Þ. Gíslason, og margir fleiri, lengi bent á hlutverk veiði-
gjalds í fiskveiðistjómun, „bæði til þess að tryggja aukna hag-
kvæmni hennar, en þó einkum til þess að gæta þess réttlætissjón-
armiðs, að fiskveiðiarðurinn renni til þjóðarheildarinnar, en ekki
fýrst og fremst til ákveðinna útgerðarfyrirtækja.“ Gylfi segir að á
þeim ámm sem liðin em síðan núverandi kerfi var lögfest, sé
óhætt að fúllyrða að arður þjóðarinnar af fiski hefði numið ótöld-
um milljörðum króna. Það séu heldur engar ýkjur að íslendingar
hefðu að miklu leyti getað losnað við að greiða tekjuskatt ef
veiðigjald hefði verið innheimt frá upphafi.
Afsjúklingum og vinstri hreyf-
ingu félagshyggjumanna
sem snerta íslenska framtíð. Með
nokkur skýr almenn markmið að
leiðarljósi um hagkvœmni og rétt-
lœti í íslensku þjóðfélagi og áhersl-
ur um nýsköpun í íslensku atvinnu-
lífi, ménntun og betri ráðstöfun
framleiðsluþátta er kominn nœgjan-
legur rammi fyrir sameiningu
vinstri manna í þessu smáríki sem
við búum
Síðan segir: „Ef hugsjónir fé-
lagshyggjufólks um jafnan rétt ein-
staklinganna til tœkifœra og há-
marksnýtingu hœfileika sinna til að
byggja upp réttlátt þjóðfélag eiga
að ná fram að ganga þarf hér
breytt pólitískt umhverfi á vinstri
vœngnum.“
Þetta er það sem ég get fundið út
úr grein Hákonar um jákvœða skil-
greiningu auk nokkurra neikvæðra
vísbendinga eins og að setja NATO
og ESB í fyrsta lagi undir sama hatt
og í öðru lagi á bás með hunda-
haldi. Afstaða til þessara mála á að
„vera prívatmál hvers og eins, líkt
og gildir um hundahald." I fram-
haldi af þessu væri kannski rétt að
fá lista hjá Hákoni yfir flokkun
mála, það er annars vegar einka-
málin og hins vegar þau mál sem
eru sameiningar verðug. Ég er
nokkuð sannfærður um að einkamál
á borð við ESB munu fljótlega
verða viðurkennt dagskrárefni
stjórnmálaflokka og hreyfinga,
þrátt fyrir allt. Skiptir þá litlu hvort
menn eru með eða á móti.
og gildir um hundahald."
Mér sýnist -og má þar vel vera
að ég hafi Hákon fyrir rangri sök -
að hugmynd hans sé að búa til sam-
nefnara þeirra mála sem þessir
flokkar (Er Hákon að tala um
stjórnarandstöðuflokkana og Fram-
sókn?) geti sameinast um. hin verði
einfaldlega lögð til hliðar.
Vísbending í þessa átt er skýr-
skotun Hákonar til Sjálfstæðis-
flokksins. Fyrst hann getur samein-
að Hannes Hólmstein og Egil Jóns-
son - af hverju ekki við? Krufning
á Sjálfstæðisflokknum er athyglis-
verð og vafalaust má mikið af hon-
um læra, jafnvel í vissum tilvikum
til eftirbreytni. Athyglisverðast er
þá að stoppa ekki við öfgadæmin í
flokknum heldur ræða hvernig
flokknum hefur heppnast að höfða
til jafnaðarmanna (í skandinavískri
merkingu).
En er ekki unnt að
sameinast um málefni
Ég vil einnig vekja athygli á að
ef til vill er unnt að sameinast um
ákveðin málefni, sem ákveðin
stjórnmálaöfl setji á oddinn í kosn-
ingabaráttu og lofi að standa og
falla með - jafnvel í stjórnarmynd-
unarviðræðum við Sjálfstæðis-
flokkinn. Ef til vill mætti meira að
segja fá flokkinn þann til að sam-
þykkja eitthvað af slíku góðgæti
fyrir kosningar sem torveldaði að
hlaupa burt frá loforðunum á eftir
Á að túlka þetta þannig að Hákon vilji
vinstri framboð sem ekki hafi neina stefnu
í utanríkismálum?
Grein Hákonar Gunnarssonar í
Alþýðublaðinu 23. júlí, sem að
nafninu til fjallar um grein undirrit-
aðs, sem birtist í blaðinu 17. júlí er
athyglisverð varðandi allt of al-'
genga nálgun manna að viðfangs-
efnum sínum. Málið snýst um að
gera sér viðfangsefnið auðveldara
viðfangs með því einfaldlega að
skapa sjálfur viðfangsefnið og ein-
beita sér síðan að því að fjalla um
galla sköpunarverks síns. Þetta get-
ur leitt til hinna skemmtilegustu
stílæfinga, en er lítt fallið til að
þróa áfram umræðu um það við-
fangsefni sem eftir stendur, það er
raunverulegar en ekki tilbúnar
skoðanir, er maður þykist vera að
fjalla um.
Pallborðið |
■ Björn
skrifar
f stuttu máli má semsagt einfalda
málið með því að lýsa yfir að ég tel
þennan Björn Arnórsson, hagfræð-
ing BSRB, sem Hákon Gunnarsson
er að vekja upp með pistli sínum,
lítt áhugaverðan pjakk inn í þessa
umræðu. Gildir þá einu um þá
skoðun þessa Björns að sveitar-
stjórnarmál hafi lítið inn í pólitík
að gera, að hann telur þjóðfélags-
lega umræðu dagsins snúast að
meira eða minna leyti um þau mál
er takmarkaður hópur þjóðfélags-
þegna eyddi töluverðu þreki í fyrir
aldarfjórðungi eða svo, auk þess að
ég viðurkenni þann veikleika að
verða ansi þreyttur í framan þegar
talið berst að hinni svonefndu 68-
kynslóð. Þetta síðast nefnda er
veikleiki, því þó ég sé fæddur 1945
og hafi aldrei haft minnsta snefil af
hippatilhneigingum þá er ekki þar
með sagt að þetta fólk hafi ekki
haft ýmislegt til síns máls. Alltént
er engin ástæða til að láta fordóm-
ana alveg loka hlustunum. Að þessi
Björn skuli síðan liggja undir grun
um að setja ESB í staðinn fyrir
Fjórða Alþjóðasambandið hlýtur að
vekja upp spurningar um af hverju
Hákon er yfirleitt að eyða púðri í
þennan mann, þó ég telji mig skilja
hárfín blæbrigði háðsins er Hákon
flokkar hann með skynsömustu
þjóðfélagsrýnum. Ýmislegt fleira
mætti tína til.
Þó lestur Hákonar á pistli mínum
bendi til áhugaleysis af hans hálfu
ætla ég þó einkum að velta vöngum
yfir tveimur fullyrðingum í grein
hans, þó ég hafi engan áhuga á að
fjalla frekar um þennan Björn Há-
konarson.
Vinstri hreyfing
í pistli sínum segir Hákon: „Auð-
vitað þarf íslensk vinstri hreyfing
að taka afstöðu til afgerandi mála
En áfram veginn
Þá nálgumst við viðfangsefnið.
Hver eru þessi afgerandi mál sem
Hákon vill fá fram í grundvöll
vinstri hreyfingar?
Er kosningaframboð, sem ekki
gefur upp afstöðu til NATO og
ESB trúverðugt til lengri tíma litið?
Á að túlka þetta þannig að Hákon
vilji vinstri framboð sem ekki hafi
neina stefnu í utanríkismálum?
Hvaða skýr almenn markmið
(sic!) um hagkvæmni og réttlæti í
íslensku þjóðfélagi og áherslur um
nýsköpun í atvinnulífi, menntun og
betri ráðstöfun framleiðsluþátta
mynda vatnaskil á milli hægri og
vinstri manna í þessari umræðu?
Þarna lendum við strax í vanda.
Ég benti á í grein minni að einmitt í
þessum efnum skiptist meint vinstri
hreyfing heldur betur í tvö horn. Á
ég þar til dæmis við (um hag-
kvæmni) afstöðu um þróun land-
búnaðarmála en þar virðist tiltölu-
lega auðvelt að sameina Framsókn-
arflokk, Alþýðubandalag og hluta
Sjálfstæðisflokks annars vegar og
Alþýðuflokk, Þjóðvaka, Kvenna-
lista (?) og hluta Sjálfstæðisflokks
hins vegar.
Sjávarútvegur, kjördæmismál og
svo franívegis. Ég trúi ekki að það
eigi að afgreiða þessi mál einnig
sem „prívatmál hvers og eins, Iíkt
(við útilokum aldrei kosningalof-
orðasvik!).
Ef til vill mætti slíkt verða þeim
málum meira til framdráttar en
nokkuð annað. í kjölfarið á slíku,
eða jafnvel samtímis umræðu um
slík mál, gæti opnast umræða fyrir
aukið samstarf og jafnvel samruna
sumra þessara afla.
Hinsvegar getum við ekki litið
fram hjá því að hætta er á að slíkur
samnefnari, sem hefði að markmiði
að sameina alla þessa flokka, yrði
svo þröngur og innihaldsrýr eða al-
mennur og þá jafnvel enn inni-
haldsrýrari, að hann yrði ekki trú-
verðugur til að standa undir fram-
boði. En mikilvægt er að fara að
setja fram efnisatriði þessa sam-
nefnara til að þátttakendur geti fót-
að sig í umræðunni.
En munum umfram allt. Flokk-
arnir eiga að vera tæki til að berjast
fyrir ákveðnum málum. Flokkarnir
eru umræða um form. Við þurfum
að snúa þessu í umræðu um inni-
hald.
Og meinar Hákon í alvöru að
hann óski eftir flokki sem rúmi
stjórnarandstöðuflokkana og Fram-
sókn, og sem að formi og efnistök-
um líkist Sjálfstæðisflokknum ís-
lenska?
Höfundur er hagfræöingur hjá BSRB.
Lögum samkvæmt eru fiskimiðin sameign þjóðarinnar. Það er
hinsvegar dauður bókstafur. Kvótakerfið hefur þvert á móti leitt
til þess að helsta auðlind íslendinga er að verða séreign örfárra
sægreifa. Alþýðublaðið hefur áður bent á það, að vegna aflaaukn-
ingar á næsta fiskveiðiári er verið að færa eigendum kvóta marga
milljarða á silfurfati. Leiguverðmæti aukins þorskkvóta er að
minnsta kosti hálfur þriðji milljarður króna og söluverðmæti
kvótans er ekki undir fimmtán milljörðum. Þetta er ranglátt og
siðlaust kerfi sem þjónar hinum fáu og stóru. Ályktunarorð dr.
Gylfa Þ. Gíslasonar eru þessi: „Meginspumingin varðandi veiði-
gjald er ekki, hvort hagkvæmara sé, að útgerðarfyrirtæki ráðstafi
fiskiarðinum eða hann renni til almannaþarfa, heldur hitt, hvort
réttlátt sé, að arðurinn, sem fylgir fiskistofnunum, falli allur í
skaut útgerðarfyrirtækja, án þess að eigandi fiskistofnanna, þjóð-
arheildin, fái réttmætan arð af eign sinni.“ ■
Atburðir dagsins
1510 Heklugos hófst. Steinn úr
Heklu varð manni að bana í
Skálholti og nokkrir létu lífið í
Rangárvallasýslu. 1554 Blóð-
María, drottning Englands,
giftist Filip II Spánarkóngi.
1587 Kristin trú bönnuð í Jap-
an og jesúítar reknir út landi.
1835 Enska skáldið Samuel
Taylor Coleridge deyr. 1909
Frakkinn Louis Blériot flýgur
flugvél sinn yfir Ermarsund.
fyrstur manna. 1912 Hannes
Hafstein varð ráðherra fslands
öðru sinni. 1917 Hollenska
dansmærin Mata Hari dæmd til
dauða af frönskum herdómstól
fyrir njósnir í þágu Þjóðverja,
þrátt fyrir afar ótrúverðug
sönnunargögn. 1943 Italski fas-
istaleiðtoginn Benito Mussolini
knúinn til afsagnar eftir innrás
Bandamanna á Sikiley. 1985
Kvikmyndastjaman Rock Hud-
son lagður á sjúkrahús vegna
alnæmi.
Afmælisbörn dagsins
Arthur James Balfour 1848,
breskur íhaldsmaður, forsætis-
ráðherra 1916-1919. Walter
Brennan 1894, bandarískur
leikari og Óskarsverðlaunahaft.
Steve Goodman 1948, banda-
rískur lagahöfundur, samdi
meðal annars The City of New
Orleans fyrir Arlo Guthrie.
Kolbrún Bergþórsdóttir
1957, blaðamaður.
Skepnur dagsins
Það er sorglegt til þess að vita,
hversu mállausar skepnur eru
fremri mörgum guðlausum.
Jón Vídalín.
Annálsbrot dagsins
Föstudag næstan eptir páska
þingaði Páll vicelögmaður að
Skriðu í Hörgárdal, og dæmdi
þar til dauða Sigríði Vigfús-
dóttur úr Reykjadal fyrir bams-
morð; henni drekkt daginn ept-
ir í kílnum út og niður undan
Möðruvöllum, og gerði góða
iðran.
Vallaannáll 170S.
Söknuður dagsins
Karlar sakna þess sem þeir
hafa misst; konur þess sem þær
aldrei fengu.
Josh Billings.
Málsháttur dagsins
Oft verður gamall göltur
af gríslingi.
Orð dagsins
Athuga þú hvað ellin sé
ungdóms týndum fjöðrum
falls er von aðfonm tré,
fara mun þér sem öðrum.
Páll Vldalín.
Skák dagsins
Kumaran hefur hvítt og á leik í
skák dagsins gegn Kennedy.
Hvítur er peði yfir en það ræð-
ur þó ekki úrslitum, heldur
álappaleg staða svarta kóngs-
ins. Kumaran gerir útum taflið
í einni svipan.
Hvítur leikur og vinnur.
1. Hxh7+! Svartur gafst upp.
Drepi hann hrókinn fellur
svarta drottningin.