Alþýðublaðið - 25.07.1996, Síða 8
Alla daga
MMMELMB
Alla daga
Fimmtudagur 25. júlí 1996
109. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Ófullir mótorhjólatöffarar standa fyrir
útihátíðinni Járnfákurinn
Hells Angels festa
aldrei rætur hér
— segir Atli Bergmann fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar.
„Auðvitað hafa Hells Angels leitað
hér hófanna eins og andskotinn sjálfur
líkt og annars staðar. En þeir festa
aldrei rætur hér - Islenskir mótorhjóla-
menn munu standa í vegi fyrir því.
Flestir erum við meðlimir í regnhlífar-
samtökum Sniglanna og þar ráða allt
önnur gildi ferðinni og önnur mál til
umfjöllunar svo sem öryggismál," seg-
ir Atli Bergmann.
Hann er fram-
kvæmdastjóri útihá-
tíðarinnar Járnfák-
urinn sem mótor-
hjólasamtökin Vær-
ingjar standa fyrir.
Fjölmörg minni
samtök mótorhjóla-
samtaka eru á Is-
landi og Væringjar
eru eitt þeirra. Þetta
er í annað skiptið
sem þeir standa fyr-
ir útihátíð og að
sögn Atla tókst
mjög vel til síðast.
Járnfákurinn er með
undirtitlinum sum-
armót Væringja,
haldið helgina 26.-
Atli Bergmann: Menn eru
almennt hræddir um að tjá sig
um Hells Angels.
28. júlí í Aratungu. Ýmsir skemmti-
kraftar munu koma fram með gaman-
mál og söng. Götuleikhús verður fyrir
yngri kynslóðina og hjólaleikir svo fátt
eitt sé nefnt. Hljómsveitimar Virdian
Green og K.F.U.M. and the andskotans
leika fyrir dansi. Auk þess verða fundir
að hætti AA, NA (Narcotic Anomyn-
us) og ALAnon (aðstandendur alkóhól-
ista).
Atli segir Væringja búa við rokkandi
félagatal og til dæmis eru engar konur í
félaginu núna þó að svo hafi verið í
upphafi. „Þá var þetta hálfgerður
hjónaklúbbur en sá mórall fjaraði út.
Auðvitað væri gaman að fá konur í
klúbbinn.“
Væringjar hafa markað sér þá sér-
stöðu að vera vímulaus samtök með
öllu. „Okkur finnst einfaldlega ekki
passa að vera fullir á mótorhjólum,“
segir Atli og samsinnir því að vissulega
sé edrúmennska og mótorhjól ekki eitt-
hvað sem fólk tengir almennt saman.
„Klúbburinn byggist í kringum okkar
edrúmennsku og lífsstíl en við kjósum
að ferðast á vélfákum.“ Væringar hafa
tekið að sér gæslu fyrir tónleikahaldara.
Hin alræmdu Hells Angels’samtök hafa
einnig fengist við það í gegnum tíðina.
, Já, það er rétt. En Væringjar eru algjör
andstæða Hells Angels og slíkra
klúbba sem þrífast á ofbeldi, meintri
fíkniefnasölu og yfirgangi við önnur
mótorhjólasamtök," segir Atli. „Hér
geta allir verið með sín merki eða
„Color“ án þess að nokkur finni að því.
Hér eru sem betur fer allir vinir og eng-
in klúbbastríð eins og tíðkast víða er-
lendis.“
Atli Bergmann
segir alla hafa mik-
inn áhuga á Hells
Angels en honum er
ekkert vel við að
vera að opinbera
vitneskju sína um
þann félagskap né
segja álit sitt á hon-
um. „Menn eru al-
mennt hræddir um
að tjá sig um Hells
Angels. Ég vil til
dæmis gjaman geta
farið óhultur um
Kaupmannahöfn án
þess að einhver þar
geti haft eitthvað
misjafnt eftir mér
um þá.‘
Hann segist ekki vita um neinn ís-
lending sem er meðlimur í Hells Ang-
els þó að þeir séu með undirdeildir út
um allan heim.
, J>að voru nokkrir Islendingar í Bull
Shits samtökunum í Danmörku. Hells
Angels þurrkuðu þau samtök út út,“
segir Atli.
Eins og áður sagði eru flestir íslensk-
ir mótorhjólamenn í Sniglunum en auk
þess eru ýmsar minni deildir til. „Óska-
böm Óðins er einn klúbburinn en þeir
em aðalega í því að smíða hjól. Þetta er
virkur og góður klúbbur og þeir eru
með mót eins og við um Verslunar-
mannahelgina. Saxar em uppmnalega
frá Akureyri en þar er Siggi pönk lykil-
maður. Hrafnar er mótorhjólaklúbbur
innan mannræktarfélags sem kallast
ættbálkurinn. Þeir ætla að fjölmenna á
Jámfákinn. Vættir er nýr félagsskapur
sem á eftir að marka sér sérstöðu. Þá
má nefna Hvítabirni sem eru gamlir
mótorhjólamenn sem voru meðal
stofnenda Sniglanna. Þeir eiga stór
Harley Davidson mótorhjól og em allir
miklir og traustir náungar," segir Atli
Bergmann.
Geimverur og forsetaframbjóðandi / gær þokadi Pétur Kr. Hafstein loks
af stóru flettiskilti við Miklubraut, mánuði eftir forsetakosningar. Meðan mynd Péturs smámáðist út
skýrðist uggvænlegt geimfar morðóðra geimvera úr myndinni Independence Day... A-mynd: e.ói.
■ Hagyrðingar, ritstjórar og listamenn að sunnan í Vopnaskaki á Vopnafirði
Aðkomumönnum ekki boðið
aftur verði þeir ekki til friðs
- segir Sigríður Sverris-
dóttir menningarforkólfur
á Vopnafirði.
„Vopnaskak á Vopnafirði er sam-
bland af Verslunarmannahelgi og
menningarhátíð; djamm og menning
fara nefnilega afskaplega vel saman,“
segir Sigríður Sverrisdóttir, formaður
menningarmálanefndar á Vopnafirði.
„Hátíðin hefst sunnudaginn þegar við
opnum málverkasýningu í íþróttahús-
inu, þar sem efnilegar heimakonur sýna
verk sín. f næstu viku verður boðið
uppá skemmtilega dagskrá öll kvöld,
sem fólk getur tekið þátt í eftir vinnu.
Á fimmtudagskvöldið hefst „mín dag-
skrá“, einsog ég segi - sem formaður
menningamálanefndar er ég alltaf með
dálítinn egóisma í gangi. Ég hef sér-
staklega gaman af dagskránni á
fimmtudag, sem við köllum: „Með ís-
lenskuna að vopni“, og er sambland af
sagnameistara- og hagyrðingakvöldi.
Fimm sagnamenn verða á staðnum;
Mörður Árnason íslenskufræðingur,
Jón Kristjánsson þingmaður og ritstjóri
Tímans, Hrafn Jökulsson ritstjóri Al-
þýðublaðsins, Einar Njálsson bæjar-
stjóri á Húsavík og Vilhjálmur Hjálm-
arsson frá Brekku. Hagyrðingar verða
Kristján frá Gilhaga, Osk Þorkelsdóttir
frá Húsavík og Hákon Aðalsteinsson.
Allt verður þetta undir styrkri stjórn
Hallgríms Helgasonar rithöfundar. f
fyrra fylgdust 440 manns með sams-
konar dagskrá - í 800 manna byggðar-
lagi.
Á föstudag hefst hið eiginlega
Vopnaskak, sem stendur með sleitu-
lausum hátíðahöldum alla helgina.
Brandarakeppni bama, útigrill, veiði-
mót, fjársjóðsleit, fjölskyldutónleikar
og dansleikir. Á laugardag er Bursta-
fellsdagur; en Vopnafjörður á eitt
merkasta minjasafn á landinu, Bursta-
fellið. í lynra renndu um það bil 1.500
manns í gegnum bæinn, en 3-400 að-
komumenn hafa verið hér allan tím-
ann.“
Þið treystið ú gott veður?
„Hér er alltaf gott veður.“
Og áttu von á því að allt fari vel
fram?
„Á Vopnafirði eru allir prúðir og
stilltir! Hátíðin verður ekki eyðilögð
með neinni vitleysu. Aðkomumennim-
ir vita að þeim verður ekki boðið aftur
ef þeir em ekki til friðs - og hingað
vilja allir koma aftur! Þeir fá ekki
dropa af víni fyrren skemmtuninni er
lokið - og þá ekki á okkar vegum held-
ur geta þeir farið á barinn. Hér em eng-
ir blaðamenn að fylgjast með því sem
þeir gera, svo þeir geta hagað sér ein-
sog þeir vilja - mín vegna mega þeir
sleppa ffam af sér beislinu. Það er bara
skemmtilegra."
Er öflug menningarstarfsemi á
Vopnafirði?
„Menningarmálanefndin er mjög ak-
tív, ekki bara þessa tíu daga á ári. Þó
menningarlíf heimamanna sé öflugt, þá
gildir þó máltækið heimskt er heimaa-
lið bam; við verðum að fá listamenn í
heimsókn til okkar. Og ég held að það
sé mjög gott fyrir listamenn úr Reykja-
vík að líta hér við. I byrjun desember er
hér haldin bókmenntahátíð, sem er orð-
in fræg meðal rithöfunda í Reykjavík,
þó ég segi sjálf frá. Nú er áhugafólk að
safna fyrir flygli og þá skapast enn
fleiri möguleikar. Við höfum fengið
margar leiksýningar fyrir böm í heim-
sókn - en mér finnst mjög mikilvægt
að ala upp leikhúsunnendur. Og af
hveiju á allt að fara fram í Reykjavík?
Markaðurinn hlýtur að fara að mett-
ast.“
Afhverju er hollt fyrir listamennfrá
Reykjavík að líta við á Vopmfirði?
„Listamenn em margir í svo lokuð-
um klíkum, hitta ekki nema hver ann-
an; það þarf ekki nema líta inná kaffi-
húsin í Reykjavík til að skilja hvað ég
meina. Hér hitta þeir almúgann. Smnd-
um frekar illa upplýstan einsog maður
segir - við sitjum ekki hér og ræðum
bókmenntir ffarn og aftur, þó við séum
vel fær um það. Hér em þeir innan um
flóruna, hitta breiðán hóp fólks og
kynnast öðmm hugsunarhætti.
Vopnafjörður er paradís í mínum
augum. Það er ágætt að koma til
Reykjavíkur tilað komast í leikhúsin -
en helst vildi ég að leikhúsin væru
hér.“