Alþýðublaðið - 01.08.1996, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 01.08.1996, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 Brynja Benediktsdóttir eigandi Skemmtihússins, og leikararnir Benedikt Erlingsson og Halldóra Geirharðsdóttir: Ormstunga verður leikin við snarkandi langeld, gærur og skálastemmningu. A-mynd E.ÓI. ■ Skemmtihús við Laufásveg Til þess að spara stássstofuna - segir Brynja Benediktsdóttir leikstjóri og eigandi Skemmtihúss- ins, þar sem leikritið Ormstunga verður frumsýnt í kvöld. ■ Nýlistasafnið Leikföng og heima- tilbúnar sprengjur - segir Katrín Sigurðardóttir, sem opnar sýningu í Nýlista- safninu á laugardaginn. „Ég vinn mína sýningu í myrkvuðu rými... ætli það sé ekki nokkurskonar stórmennskubrjálæði. Þessi árstími er ekki sá hentugasti tilþess að ráðast í að myrkva hluta Nýlistasafnsins... en maður er einhvem veginn ekki fyrir það að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstursegir Katrín Sigurðardótt- ir í samtali við Alþýðublaðið. Sýning- in sem opnar á laugardag er fimmta einkasýning Katrínar, en auk hennar opna Lind Völundardóttir og Pietertje van Splunter sýningar í Nýlistasafninu við Vatnsstíg klukkan fjögur á laugar- daginn. í setustofunni stendur yfir sýning á verkum kúbönsku myndlis- takonunnar Ana Mendieta. Katrín Sigurðardóttir: Nokkurskon- ar stórmennskubrjálæði. Maður er einhvern veginn ekki fyrir það að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. A-mynd E.ÓI. „Hg leik mér með ljós og myrkur, og nota það sem abstrakt myndhverf- ingar. Hlutir eru oft gerðir ógreinileg- ir; sýningargestir þurfa stundum að líta í gegnum linsur og göt til að sjá það sem er til sýnis... Eftir að hafa búið hlutina til finnst mér þeir helst líkjast leikföngum, skringilegum tækj- um og heimatilbúnum sprengjum. Annars er erfitt að útskýra þetta... ef ég gæti tjáð mig fullkomlega í orðum, myndi ég líklega hætta að búa þessa hluti til og helga mig ritstörfum.“ Katrín hefur verið við nám og störf í Bandaríkjunum í átta ár... „Ég kom fyrir nokkrum vikum - og það er afskaplega notalegt. Reykjavík og New York bæta hver aðra upp. Borgimar eru gerólíkar, en á þessum tveimur stöðum er allt sem þaif. Best væri líklega að búa á báðum stöðun- um, og kannski er það hægt því það er orðið svo stutt á milli... nema það hafi lengst aftur vegna sprengjuhótana - sjóleiðin fer að vera freistandi. Mig hefur raunar alltaf langað til að sigla - en óttast að verða sjóhrædd. Er nefni- lega hræðilega flughrædd, og má ekki til þess hugsa að ganga í gegnum hræðsluþjáningu í marga daga. En ég er komin til að vera... alla- vega í bili.“ Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gíslason hafa reist Skemmtihús í garði sínum við Laufásveg 22. Þar verður frumsýndur nýr íslenskur gleðileikur í kvöld; Ormstunga, unnin uppúr Gunnlaugs sögu Ormstungu. Leikritið er fjörugur dúett þeirra Benedikts Erlingssonar og Halldóru Geirharðsdóttur, og fjallar um bar- daga, ástir og örlög á Þjóðveldisöld. Svíinn Peter Engkvist leikstýrir verk- inu. „Mig hefur alltaf dreymt um að leika leikrit í stofunni heima hjá mér,“ segir Brynja Benediktsdóttir leikstjóri í samtali við Alþýðublaðið. „En svo Snæfellsásmótið Mannrækt undir jökli verður haldið á Brekkubæ, Hellnum um Verslunarmannahelgina. Þetta er í tíunda sinn sem Snæfellsás- mót er haldið, og þó breytingar hafi orðið nokkrar í áranna rás, er megin- inntakið alltaf að kynna fólki allar mögulegar leiðir í sjálfsrækt og per- sónulegri leit að meiri þroska. „Meg- inþemað í ár er vináttan, gleðin og friðurinn og þessa þætti á að rækta í gegnum fræðslu, leik og söng,“ segir Guðlaugur Bergmann í samtali við Alþýðublaðið. „Helsta inntak mótsins er, einsog nafnið gefur til kynna, mannrækt und- ir jökli. Snæfellsásssamfélagið stendur fyrir mótinu, en það er vísir að fyrsta samfélagi á fslandi sem ætlar að verða lífrænt, andlegt og sjálfbært. Hér á samfélagið 130 hektara lands innan guggnaði ég á því, og ákvað að betur færi á að reisa vinnustofur fyrir leikara svona til hliðar. Til þess að spara stássstofuna. Garðurinn hér við húsið er gríðarstór og var okkur eiginlega ofviða. Við höfðum leyfi fyrir bygg- ingu á lóðinni; fórum í rauninni eftir hvatningu yfirvalda um að þétta byggð í miðbænum, til vamar glæp- um. Þétt byggð og aukin menningar- starfsemi ættu að laða til sín fólk í miðbæinn, og umferðin fælir bófa frá. Húsið er ekki alveg tilbúið, en leik- sýningin er tilbúin og því ekki eftir neinu að bíða. Það er við hæfi að Benedikt sonur okkar opni nýja húsið með leiksýningu, því áður var hér girðingar." Guðlaugur Bergmann og Guðrún kona hans fluttu að Brekkubæ í fyrra, og sjö aðilar úr rúmlega tutt- ugu manna samfélaginu ætla að flytja til þeirra næsta ár. „Við erum að byija að koma landinu í stand, þurfum til dæmis að setja upp girðingar svo að kindumar vaði ekki yfir allt. Það er ekki við þær að sakast, blessaðar roll- umar, heldur okkur, sem ekki höfum girt. Hér ætlar samfélagið að koma upp litlu þorpi, þar sem við munum fást við lífræna ræktun, minjagripa- sölu og lifa í sátt og samlyndi. Með þessu viljum við sýna ákveðið for- dæmi. Alltí kringum okkur verðum við vitni að því að fólk getur ekki ver- ið með sjálfu sér, hvað þá öðmm. Hér ætlum við að lifa í nánu samfélagi hvert við annað. Á Brekkubæ er í einu orði sagt dásamlegt að vera; náttúran gamalt garðhús, þar sem bamaafmæli hans vom haldin. Ellefta ágúst verður hér reisugilli, meðal annars fyrir ná- grannana sem ólust upp með Benna hér í götunni. Hér í garðinum skopp- uðu þessir krakkar, sem em nú orðnir fullorðnir menn.“ Hvemig li'st þér á leikritið sem þau eru að setja upp? „Mér líst afskaplega vel á leikritið, það er bráðskemmtilegt, fyndið og hugmyndaríkt. Leikritið er til þess að fá ungt fólk til að fá áhuga á Islendingasögunum. Ástarsaga Gunnlaugs Ormstungu, er tengd nútímanum; þráin til að verða stjama í útlöndum hefur nefnilega allt- af verið til. Gunnlaugur Ormstunga fer utan til að verða frægur, hann vill verða stjama, segja þau í þessari sýn- dans er stórbrotin, og við í þessum hóp skiljum orkuna sem kemur frá jöklin- um. Jökullinn er eldfjall, orkan kemur frá eldsumbrotasvæðinu undir ísnum. Orka er alltaf orka, og hana er hægt að nota til góðs og ills. Frægasti íjölda- morðingi Islands, Axlar-Bjöm, er jú einmitt héðan af Snæfellsnesinu." Á mótinu verður boðið upp á ýmis námskeið, meðal annars í umbreyt- ingadansi: „Umbreytingadans er dans- aðferð til þess að umbreyta ákveðnum hlutum í okkur sjálfum. Við vitum öll að ífiður er mikilvægt mál, og tölum gjaman um hann. Sumir fá útrás fyrir friðartilfinningar sínar með því að dreifa leikföngum til stríðshrjáðra bama í Bosníu, aðrir með því að gefa nokkrar krónur í safnanir. Fólk gleym- ir því að ófriðurinn á rót sína inní hverjum manni. Ef maður er ekki í friði við sjálfan sig þarf hann að um- breytast tilað ná friði og sátt. Öll and- leg vinna er umbreytingar, við þurfum að nálgast guðlegan þátt okkar, þurf- um að komast í gegnum allskonar ■ Umbreytingadansar á Snæfellsnesi Ólýsan legur - segir Guðlaugur Bergmann, sveitamaður á Brekkubæ, en þar verður mannamótið Mannrækt undir jökli haldið um Verslunar- mannahelgina Um helgina heldur danski fiðlu- leikarinn Elisabeth Zeuthen Schneidertvenna tónleika á Norður- landi. Á laugardaginn verða tónleik- ar í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn, og í Akureyrarkirkju á sunnudaginn. Elisabeth héltfyrstu einleikstónleika sína fyrir fimmtán árum, og hefur síðan leikið einleik með mörgum helstu hljómsveitum Danmerkur og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn. Hún hefur áður haldið tónleika á íslandi, og hefur meðal annars leikið með Tríói Reykjavíkur. Á efnis- skrá tónleikanna um helgina verða verk eftir Prokofiev, Áskel Másson, Anders Nordentoft og Bach... Vesturfararsetrið á Hofsósi var opnað 7. júlí. Þar stendur yfir sýningin Annað líf, annað land, sem lýsir lífi og kjörum íslendinga á síð- ustu áratugum 19. aldar og fyrstu ár- um þessarar aldar. Fjöldi muna, Ijós- mynda og korta eru til sýnis, og í bókasafni og upplýsingamiðstöð Vesturfarasetursins er hægt að fletta skrám um vesturfarana og grafast fyrir um ættir þeirra. Sýningin hefur vakið mikla lukku, og hafa rúmlega þrjú þúsund gestir sótt hana heim... Kulturmix er norskur sönghópur sem hefur verið starfræktur í tíu ár. Kulturmix hefur haldið tónleika víða um lönd, og er nú kominn til ís- lands tilað þenja raddböndin. Á laugardaginn klukkan sex stjórnar Per Oddvar Hildre kórnum á tónleik- um í Norræna húsinu, en á efnis- skránni verða meðal annars norsk þjóðlög og negrasálmar... Inga Sólveig sýnir á þriðja tug handlitaðra Ijósmynda af steinum í íslenskri náttúru í Gallerí Horninu, Hafnarstræti 15. Inga Sólveig stund- aði listnám í San Fransisco, og hefur haldið fjórtán einkasýningar. Versl- unarmannahelgin er síðasta sýning- arhelgin, því Inga Sólveig ætlar að pakka saman þegar galleríið lokar klukkan hálftólf á miðvikudagskvöld- ið... ingu.“ Skemmtihús til varnar glœpum og leikrit til að ala upp ungdóminn... er- uð þið svona meðvituð þama á Lauf- ásveginum? „Við erum ekkert að predika - leið- inlegt leikhús er ekkert leikhús. Leik- hús er skemmtilegt og áhugavert, Skemmtihús er því viðeigandi nafn á vinnustofum leikara. Nafnið er raunar gamalt; árið 1910 var hér reist garðhús, sem er komið á Árbæjarsafn. Garðhúsið var kallað Skemmtihús og var í eigu Odds Gísla- sonar háyflrdómara. Leikkonur, sem bjuggu við Laufásveginn, minntust þess að boðið var uppá piparkökur og límonaði í garðhúsinu, þegar bömin á heimilinu áttu afmæli. Nýja Skemmtihúsið verður notað undir vinnustofur leikara. Hér verður skapað, og ný verk og nýstárlegar sýn- ingar kynnt. Þetta verður einskonar út- ungunarvél. Salimir em tveir, á þriðja hundrað fermetra allt í allt, og hér er upplagt að vinna verk sem verða síðar sett upp í stærri sölum innanbæjar og jafnvel úti á landi.“ Haflð þið ekki áhyggjur af ónæði af Skemmtihúsi ígarðinum hjá ykkur? „Ekki nokkrar áhyggjur, húsið er svo vel staðsett; fyrir ofan gömlu hestaréttina hans Thors Jensen. Með- fram húsinu em því gamlar traðir, og þar er enn örtröð. Fyrst þrömmuðu kýr og hestar hér um, nú nemendur Kvennaskólans í Reykjavík. Skólinn hefur nokkrar stofur í gamla Verslun- arskólahúsinu og nemendurnir eiga því leið hér um daglega. Ameríska sendiráðið er hér beint á móti, og á næsta homi vom Bretar og Þjóðvetjar að reisa sér saman sendiráð í fyrsta skipti í sögunni.. svo ekki vantar sam- kvæmislífið í hverfið. Við Erlingur emm bæði að fara að vinna; ég við Borgarleikhús, og hann við Þjóðleikhús þannig að væntanlega verður hlé á starfsemi Skemmtihúss- ins. Nú verður húsið vígt, svo verður að bíða og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Eg er núna að æfa sýningu með leikkonunni Völu Þórsdóttur, undir vinnuheitinu Eða þannig. Við æfum verkið á ensku, ítölsku og norsku, svo fer hún utan. Vala er nefnilega einsog Gunnlaugur Orm- stunga... ætlar að leita á erlendar lendur.“ Guðlaugur Bergmann: Orka er allt- af orka, og hana er hægt að nota til góðs og ills. Frægasti fjöldamorð- ingi íslands, Axlar-Björn, er jú ein- mitt héðan af Snæfellsnesinu. hindranir, til þess að skilja okkur sjálf. Til að breyta heiminum þarf hver að byija á sjálfum sér. Hver og einn ber mikla ábyrgð. Umbreytingadansinn er sérstök tjáning, sem nýtist til þess að ná jafnvægi við sjálfan sig. Dansinn sjálfur er ólýsanlegur. Dansar koma oft að gagni, til dæm- is hefjum við og ljúkum öllum hátíð- uin með Sufi-dansi. Það er hringdans við textann: „Allt sem ég bið þig er að alla tíð þú munir að ég elski þig, búlei- lama, búleila-a, ljósið þér í augum skín, ljósið sem er gleði mín.“ Þetta syngjum þetta hvert fyrir annað, horf- umst í augu og höldumst í hendur, ná- um góðu sambandi og eigum gott með að vinna sarnan," segir Guðlaugur Bergmann, sveitmaður á Brekkubæ, Hellnum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.