Alþýðublaðið - 07.08.1996, Síða 8

Alþýðublaðið - 07.08.1996, Síða 8
Miðvikudagur 7. ágúst 1996 115. tölublað - 77. árgangur Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Hljómsveitin Norðanpiltar æfir grimmt fyrir árlega sumartónleika í Deiglunni Krossfestir -einu sinni á ári - segir Guðbrandur Siglaugsson Norðanpiltur, sem er staddur í æf- ingabúðum á Akureyri „Hljómsveitin Norðanpiltar kom fyrst fram í júní 1990. Þá vorum við tilbúnir með pottþétt tveggja tíma prógramm, því við höfðum æft strangt í gamla bamaskólanum á Akureyri. Allir erum við frá Akureyri - Kristján Pétur Sig- urðsson og Jón Laxdal þekkjast reyndar írá Reykjavík og eru þessvegna alltaf að drekka te. Fljótt vom örlög okkar ráðin, því æfingarnar í bamaskólanum vom þvílíkt sældarlíf. Við vomm alltaf hálf- fullir - og það hélt okkur við efhið. Við æfðum mikið á meðan við bjugg- um allir fyrir norðan, vorum afskaplega iðnir verð ég að segja, en síðan ég flutti útá land fyrir þremur árum hafa æfmg- amar ekki verið margar. En fyrir hvert gigg fömm við í einskonar æfmgabúðir; rennum prógramminu einu sinni eða tvisvar á dag. Sumartónleikamir í Deigl- unni verða næsta laugardag og þess- vegna hef ég verið héma á Akureyri í fjóra daga. Æfmgabúðimar em strangar; þolfimi og allt þetta, hvað það nú heitir. Engir ljósabekkir, því einsog allir vita er alltaf gott veður á Norðurlandi. Þegar við komum fyrst ffam var heil- mikið að gerast í tónlistarlífi á Akureyri, menn flykktust útúr skúranum. Við vor- um ansi duglegir að koma fram; svo vom haldnir í Dynheimum stórir minn- ingartónleikar um Steinþór í Fræbblun- um. Enginn átti von á margmenni, kannski velviljuðum vinum, en við troð- fylltum húsið. Uppúr því varð Hring- leikahús Akureyrar til; fjöldi hljóm- sveita frá Akureyri og ein frá Húsavík héldu tónleika vítt og breitt um Norður- land... það var heilmikill sirkús. Sem yfirleitt vakti lukku, en það var nú mis- jafnt hversu margir sýndu þann áhuga á okkur að drffa sig á konsert. Til dæmis mættu örfáar hræður í Skagafirði. Sem þótti nokkuð gott; ég hef verið á böllum í Miðgarði, þar sem enginn kom. Ekki einn einasti maður.“ En þið hafið vakið lukku víðar en í Skagafirði... „Norðanpiltar em heilmikið forffam- aðir; árið 1994 fómm við í tónleikaferð til Englands og spiluðum vítt og breitt um London og í Colchester. Það er stór- skemmtilegur bær, sem geymir leifar frá Normannatímabilinu, svo okkur fannst mjög við hæfi að spila á þvílíku menn- ingarsetri. Þó hljómsveitin sé bráð- skemmtileg verður að viðurkenna þá sorglegu staðreynd að þetta er dálítil menning sem við emm að fást við. Jak- ob Frímann og Ragnhildur Gísladóttir drógu einhvem mann inní æftngahús- næðið okkar, og sá var víst fram- kvæmdastjóri listahátíðar í Colchester. Hann heillaðist og feijaði okkur til Eng- lands með pompi og prakt. Við spiluð- um í kirkju í þessum fallega bæ, á loka- kvöldi listahátíðarinnar, og fyrst við vomm komnir á þetta land tróðum við upp víðsvegar í London.“ Og vegur Norðanpilta hefur vaxið stöðugt síðan þá? „Já, auðvitað var haldið áfram, og síðan höfum við spilað í Deiglunni á Akureyri í ágúst á hverju ári. Alltaf sama prógrammið. Og sama fólkið kemur að hlusta á okkur. En tónleikamir vekja talsverða lukku, svo eitthvað stækkar hlustendahópurinn; fólk kemur utanað landi núorðið til þess að heyra í okkur. Og við laumum sosum að einu o'g einu nýju lagi. Hljómsveitin er mjög sjónræn. Við emm þrír, þaraf tveir með gítara ffama- ná sér. Jón er ekki með gítar en dansar mikið, það er rétt að við hinir getum stigið einföldustu spor með hljóðfærin í fanginu. Fyrir framan okkur höfum við grind með textunum - þó við séum bún- ir að troða upp hundrað sinnum kunnum við ekki textana og þurfum að hafa þá fyrir framan nefið á okkur, í stórri möppu. Mappan er reyndar týnd, þannig að það er aldrei að vita nema hljóm- sveitin sé hætt. Eg hef verið sveittur heima síðustu þtjár vikumar, að róta í drasli og reyna að finna uppköst að text- unum. Síðast vomm við með möppuna á tónleikum á Listahátíð í júní, en hún hefur ekki sést síðan. Það er sosum kominn tími á að semja nýja texta og ætli við neyðumst ekki til þess ef mapp- an finnst ekki. Ég held ég sé ekkert að ljúga, þegar ég segi að textamir okkar séu - eða hafi verið, finnist mappan ekki - prýðilegir. Þegar fólk hefur hlustað á okkur í mörg ár syngja sömu lögin, lærir það að meta kveðskapinn. Annars erum við ansi skýrmæltir; eitthvað annað en þessi tyrkneska söngkona sem þeir dubbuðu uppí Næturdrottningu hjá Islensku óper- unni í vetur, og létu syngja á íslensku. Ég skildi ekki orð af þvf sem hún sagði." Ykkur hefur ekki dottið í hug að taka eitthvað uppá band, svona ef textamir skyldu allir týnast? „Við tölum um það í hvert einasta skipti sem við hittumst að taka upp - bara á venjulegt segulband. Það hefur ekki orðið, svo aðeins er til ein upptaka sem er sérstaklega vond, tekin upp í steinhúsi í Vesturbænum fyrir margt löngu. Svo á jú Ríkissjónvarpið aðra upptöku, sem er off spiluð þegar það er stutt hlé í dagskránni. Ein mínúta tutt- uguogfjórar sekúndur skilst mér. Allir semjum við ljóð og texta, en lagasmiðimir em tveir, ég og Stjáni Pét- ur. Jón er ekki mjög mikill tónsmiður. Hver semur í rauninni fyrir sig, þó hinir taki undir - þetta er jú samæfð hljóm- sveit. Einu sinni vom Norðanpiltar fjór- ir; við vomm með bassaleikara, sem hefur lent í ýmsu og síðast lenti hann á sjó, og við höfum lítið séð af honum síðan.“ Og þú hefúrgefið út sjö Ijóðabœkur? , Já, þær hef ég skrifað, vélritað, sett upp, stundum ljósritað, annars fjölritað SOtSDANMl.TAR I KORÐAWlUAílj SVXiJANPIiT*'-'. j NORaA.NTlLTASl sohdaSpí ltar .SVWiWA/t Guðbrandur, Jón Laxdal og Krist- ján Pétur, Norðanpiltar: Þó hljóm- sveitin sé bráðskemmtileg verður að viðurkenna þá sorglegu stað- reynd að þetta er dálítil menning sem við erum að fást við. j ■ Verslunarmannahelgin | 89 óhöpp í i umferðinni eða silkiprentað. Svo hef ég límt þetta ! og pakkað... og á mikið til á lager. Ég I er afskaplega lélegur sölumaður. Einu I sinni reyndi ég að selja - og þá rauk j jtetta auðvitað út, en það var svo leiðin- j leg vinna, að ég ákvað að varðveita : bækumar heldur á lager. Þarað auki er ég að vinna að endur- ! minningum manns, sem ólst upp í inn- j bænum á Akureyri og fluttist síðan upp- j að Barnaskóla íslands. Hefur komið j víða við. Maðurinn er golfleikari og j fyrrverandi bikarmeistari í billjarð, og : hefur troðfyllt Miðgarð. Við höfum enn ' ekki haft tíma til þess að setjast al- ! mennilega við, en þetta er í bígerð. Þess j á milli vinn ég í skiltagerð. Ég flutti útá I land [til Reykjavíkur] fyrir þremur ámm j síðan; það er sosum huggulegra heldur- j en í höfuðborginni fyrir norðan. Það j liggur fyrst og fremst í fjöldanum. í • Reykjavík em fleiri, því er ekki hægt að ! neita.“ j Ertu geysilega spenntur fyrir tónleik- j unum á laugardaginn? j „Ég viðurkenni að ég hef ansi gaman j af þessu, en það er ekki bara gaman. j Það getur ekki verið gaman að láta • krossfesta sig einu sinni á ári... við ! höngum þama þrír, einsog þeir héngu á j Golgata, og svo kemur skríllinn að I glápa á. Og þessi í miðjunni, hann dans- j ar mest. Ég held varla að það geti verið ein- j hver boðskapur sem við flytjum, einsog • sá sem dansaði mest á Golgata. Kannski . helst sá að það geri þetta enginn fyrir ! mann. Þetta spilar sig ekki sjálft.“ I i Fjórir hlutu alvarleg meiðsl í um- ferðarslysum um verslunarmanna- helgina í ár. Fjórtán urðu fyrir minni háttar meiðslum, þar af voru meiðsl óveruleg hjá nokkrum. Alls skráði lögregla 89 umferðaróhöpp um helg- ina, þaraf voru 29 í Reykjavík og tengjast því tæpast umferð ferða- manna. Aðeins færri voru teknir grunaðir um ölvun við akstur í ár en á síðasta ári eða 66, en voru 73 um versiunarmannahelgina í fyrra. Um verslunarmannahelgina 1992 voru 107 teknir grunaðir um ölvun við akstur. Það var mat lögreglumanna að eftirlit með ölvunarakstri hefði verið með mesta móti í ár. Þá bar töluvert á hraðakstri, meðal annars í Árnessýslu og í Húnavatnssýslum. Umferð var talsvert dreifð um landið um helgina og var til dæmis áberandi meiri á Norðurlandsvegi en í fyrra. Þá dreifðist umferðin meira en oft áður vegna rysjótts veðurs. ■ Landslag Úrelt myndefni? í dag opnar Ingimar Ólafsson Waage sýningu á landslagsmálverkum i Gallerí Greip, Hverfisgötu 82. Ingi- mar lauk námi við Myndlista- og handíðarskólann og stundaði fram- haldsnám í Frakklandi. í Gallerí Greip sýnir hann málverk unnin á þessu ári. Viðfangsefni Ingimars er landslag og veltir hann fyrir sér þeirri klassísku spurningu hvort hið dæmigerða ís- lenska myndefni, landslagið, sé með öllu úrelt, eða hvort það á erindi við nútímamanninn. Sýningin, sem er önnur einkasýning Ingimars, opnar formlega í dag og verður opin ffá tí- unda til 25. ágúst. ■ Tónleikar á Akureyri Hindermith, Shostakovisj, Atli og Hafliði Annað kvöld halda Jónas Sen pí- anóleikari og Stefán Örn Arnarson sellóleikari tón- leika í Deiglunni á Akureyri. A efnisskránni era verk eftir Hind- ermith, Sho- stakovitsj, Atla Heimi Sveinsson og Hafliða Hall- grímsson. Jónas Sen er tónleika- gestum að góðu kunnur en hann þótti strax í æsku sýna afburða hæfileika og hef- ur síðan komið víða fram sem einleik- ari og jafnan vakið hrifningu áhorf- enda. Stefán Örn er nýkominn heim frá námi í Bandaríkjunum og er ný- ráðinn sellókennari við Tónlistarskóla Akureyrar. Þá má geta þess að Stefán Öm komst nýverið í úrslit Tónvakans, tónlistarkeppni ungra einleikara, þar sem efnilegustu hljóðfæraleikarar landsins leiða saman hesta sína. Jónas Sen verður ásamt Stefáni Erni með tónleika í Deiglunni. ■ Seðlabanki Gjaldeyrisstað- an styrkist Gjaldeyrisforði og gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó styrktust um 5,6 milljarða króna í júlí. Batinn skýrist af erlendri lántöku ríkissjóðs. Að henni slepptri nam gjaldeyrissala bankans tæpum 0,8 milljörðum króna nettó í mánuðinum. Heildareign Seðlabankans í mark- aðsskráðum verðbréfum lækkaði í júlí um rúma 4,7 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð í upphafi og lok mánaðarins. Eign bankans í spari- skírteinum ríkissjóðs lækkaði um 1,9 milljarða króna, einkum vegna inn- lausnar, ríkisbréfaeignin jókst um 0,3 milljarða króna en ríkisvíxlaeignin lækkaði um rúma 3 milljarða króna. Samtals lækkuðu kröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir um rúma 6.4 milljarða króna í mánuðinum og vom 10,7 milljörðum króna lægri en í árslok 1995. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,5 milljarða króna og höfðu lækkað um 3.4 milljarða króna frá áramótum. Gmnnfé bankans lækkaði um tæpan 0,1 milljarð króna í júlí og var í lok mánaðarins tæpum 1 milljarði króna lægri en í ársbytjun. heimilin og konur í atvinnulífið ■ Jafnréttismál Karlar inná - segir Hildur Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi. ,Eæðingarréttur karla er allstaðar til umfjöllunar og verið að tengja jafn- réttisumræðuna inná karla meira en verið hefur,“ segir Hildur Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar. Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar hefur sótt um styrk til Evópusam- bandsins uppá 8,4 milljónir til jafnrétt- isverkefnisins Karlar og fæðingaror- lof. Kostnaðaráætlun hljóðar uppá 14,4 milljónir og er gert ráð fyrir því að borgin greiði mismuninn eða 40 prósent. Verkefnið felur í sér gerð heimildarmyndar og rannsókna í kringum það hvaða áhrif fæðingaror- lof hefur á sjálfsmynd föðurins, tengsl við barn sitt, verkaskiptingu inná heimilinu og þar með á jafnrétti kynj- anna. Hildur er mjög bjartsýn á að styrkur fáist til verkefnisins en úr því fæst skorið um miðjan septembermán- uð. „Ef við fáum ekki styrkinn verð- um við að endurskoða allar okkar hugmyndir því jafnréttisnefndin hefur ekki úr neinum peningum að moða,“ segir Hildur. „Það er allstaðar verið að leita lausna á því að samræma betur fjöl- skylduábyrgð og atvinnulíf. Ekki bara þannig að konumar standi uppi með ábyrgðina á hvorutveggja heldur að karlamir komi meira inná heimilin til að konurnar geti verið virkar í at- vinnulífinu," segir Hildur. Hildur segir að það sé almennur vilji fyrir því að gefa körlum einhvem sjálfstæðan rétt til töku fæðingaror- lofs. Það breyti þó ekki þeirri stað- reynd að fæðingarorlofsmálin eru í það heila tekið í miklum ólestri. „Það er mikill réttindamunur milli kvenna sem vinna hjá hinu opinbera annars vegar og kvenna sem vinna á almenna vinnumarkaðinum hins vegar - og síðan milli karla og kvenna. Sá réttur sem karlar hugsanlega geta haft er alltaf afleiddur af rétti móðurinnar og stundum fellur hann alveg niður, Það em gloppur í kerfinu og sumir hafa engin tök fæðingaror- lofi,“ segir Hildur en kæmnefnd jafri- réttismála hefur oft bent á að þama sé verið að brjóta jafnréttislög á feðmm. Hildur segir það vera verkefni jafn- réttisnefndarinnar að fæðingarorlofs- réttinn sé einn og hinn sami yfir alla línuna. „Fæðingarorlofsréttur opin- berra starfsmanna er einn af þessum réttum sem þeir vilja ekki gefa eftir. Konur þar hafa haft meiri rétt en kon- ur úti á hinum almenna vinnumarkaði og vilja ekki gefa það eftir og standa gegn öllum hugmyndum um að jafna niður á við: Að jafna réttinn með því að minnka hann hjá þeim sem hafa eitthvað meira. A því hefur alltaf strandað hingað til. Stjórnvöld hafa ekki verið reiðubúin til að laga þetta ástand öðmvísi en að skerða réttindi þeirra hópa sem mestan hafa réttinn og þannig hefur þetta mál verið í hnút,“ segir Hildur Jónsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.