Alþýðublaðið - 09.08.1996, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 09.08.1996, Blaðsíða 8
Iljf fgSgiyM: INTERNETÞJONU STA PÓSTS OG SÍMA POSTUR OG SIMI Póstur og sími býður nú upp á þjónustu þar sem almenningi og fyrirtækjum gefst kostur á að tengjast Internetinu. Póstur og sími hefur samið við aðila í Bandaríkjunum um fast samband við Internetið. Boðið er upp á innhringiþjónustu, sem getur hentað vel fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki eða fasta tengingu fyrir þá sem þurfa meiri flutningshraða eða þurfa stöðugt að vera í sambandi. Einnig geta þeir sem þegar eru tengdir háhraða- neti Pósts og síma, fengið tengingu við Internetið. Innhringiþjónusta Með innhringiþjónustu getur notandi með lágmarks- búnað náð tengingu um almenna símanetið með allt að 28,8kb/s hraða, eða 64 kb/s um Samnetið (ISDN). ( þessari þjónustu er m.a. innifalið: Ef tengst er um almenna símanetið er skráningar- gjald fyrir innhringiþjónustu kr. 623,-, fast mánaðar- gjald er kr. 374,- og mínútugjald kr. 1,12 auk talsímaskrefa á lágmarkstaxta (staðarsímtöl). Föst tenging Föst tenging gefur möguleika á meiri hraða en innhringiþjónustan, eða á bilinu 14,4 kb/s - 512 kb/s, og veitir fyrirtækjum einnig betri aðgang að Inter- netinu. Tengipunktar fyrir fastar tengingar eru 20 talsins um allt land. Fyrirtæki með þessa tengingu sér sjálft um alla almenna Internetþjónustu innan sinna vébanda. Upplýsingar • Aðgangur að Internetinu (og Veraldarvefnum) Netfang fyrir tölvupóst ® 5MB geymslurými fyrir tölvupóst Flægt er að afla sér nánari upplýsinga í síma 550 6330, hjá Gagnaflutningsdeild Pósts og síma.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.