Alþýðublaðið - 09.08.1996, Síða 8
Iljf
fgSgiyM:
INTERNETÞJONU STA
PÓSTS OG SÍMA
POSTUR OG SIMI
Póstur og sími býður nú upp á þjónustu þar sem
almenningi og fyrirtækjum gefst kostur á að tengjast
Internetinu. Póstur og sími hefur samið við aðila í
Bandaríkjunum um fast samband við Internetið.
Boðið er upp á innhringiþjónustu, sem getur hentað
vel fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki eða fasta
tengingu fyrir þá sem þurfa meiri flutningshraða eða
þurfa stöðugt að vera í sambandi.
Einnig geta þeir sem þegar eru tengdir háhraða-
neti Pósts og síma, fengið tengingu við Internetið.
Innhringiþjónusta
Með innhringiþjónustu getur notandi með lágmarks-
búnað náð tengingu um almenna símanetið með allt
að 28,8kb/s hraða, eða 64 kb/s um Samnetið (ISDN).
( þessari þjónustu er m.a. innifalið:
Ef tengst er um almenna símanetið er skráningar-
gjald fyrir innhringiþjónustu kr. 623,-, fast mánaðar-
gjald er kr. 374,- og mínútugjald kr. 1,12 auk
talsímaskrefa á lágmarkstaxta (staðarsímtöl).
Föst tenging
Föst tenging gefur möguleika á meiri hraða en
innhringiþjónustan, eða á bilinu 14,4 kb/s - 512 kb/s,
og veitir fyrirtækjum einnig betri aðgang að Inter-
netinu. Tengipunktar fyrir fastar tengingar eru 20
talsins um allt land. Fyrirtæki með þessa tengingu sér
sjálft um alla almenna Internetþjónustu innan sinna
vébanda.
Upplýsingar
• Aðgangur að Internetinu (og Veraldarvefnum)
Netfang fyrir tölvupóst
® 5MB geymslurými fyrir tölvupóst
Flægt er að afla sér nánari upplýsinga í síma
550 6330, hjá Gagnaflutningsdeild Pósts og síma.