Alþýðublaðið - 16.08.1996, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
s k o ð a n
MHBUBLOID
21160. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Menning og pólitík
Einsog fram kom í Alþýðublaðinu í gær munu sjö listamenn
hljóta starfslaun Reykjavíkurborgar í ár. Listamennimir fá starfs-
laun í þijá til níu mánuði, og nema þau ríflega 90 þúsund krónum
á mánuði. Launin verða afhent við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu á
morgun, og er ekki að efa að fyrirmenn muni stíga á stokk og
setja á hefðbundnar tölur um gildi menningar. Hætt er við að
formið beri innihaldið ofurliði, einsog gjaman þegar pólitíkusar
taka að dásama menningu. Staðreyndin er nefnilega sú að sárafáir
stjómmálamenn hafa snefil af áhuga á menningarmálum, nema á
tyllidögum. Fátækleg framlög til menningarmála tala þar ským
máli, sem og slóðaskapur á margvíslegum sviðum. Þannig hefur
árum saman verið íjasað um nauðsyn tónlistarhúss en líklega þarf
að bíða eitthvað fram eftir næstu öld uns það rís. Stjómmála-
mönnum er líka tamt að grípa til orðaleppa um bókaþjóðina, en
vfluðu þó ekki fyrir sér að skattleggja bókaútgáfu um svipað leyti
og hún átti í miklum hremmingum.
Reykjavflcurborg hefur litla ástæðu til að monta sig af ræktar-
semi við menningarmál. Starfslaunin sem úthlutað verður á
morgun em ágætt dæmi um það, enda er rausnarskapurinn mjög
af skomum skammti. Framan af tíðkaðist að veita starfslaun í eitt
til þijú ár, og gefa þannig launþegunum kost á að helga sig list-
inni alfarið og áhyggjulítið í langan tíma. Þriggja mánaða launin
sem nú er úthlutað em marklitlar sporslur, og nýtast tæplega til
mikilla afreka. En það breytir áreiðanlega ekki þeirri staðreynd
að athöfnin í Ráðhúsinu verður hátíðleg og ræðumar uppblásnar
- og innantómar.
Verkmenntasetur í Eyjum
Lúðvík Bergvinsson alþingismaður hefur sett fram hugmynd
um að komið verði á laggimar verkmenntasetri sjávarútvegsins í
Vestmannaeyjum. í viðtali við Alþýðublaðið á þriðjudag segir
Lúðvík að margar en smáar stofnanir séu fyrir í Eyjum sem hægt
væri að samhæfa á þessu sviði: útibú ffá Háskóla íslands, stýri-
mannaskóli, iðnskóli, vélskóli, framhaldsskóli og rannsókna-
stofnun sjávarútvegsins. Um þetta segir þingmaðurinn: ,fliinn og
tveir menn em að garfa í hverri stofnun. Hugmyndin er sú að
tengja þær saman og styrkja og gera þama einhverskonar verk-
menntasetur."
Þingmaðurinn segir réttilega að verkmenntun á sviði sjávarút-
vegs hafí nokkuð setið á hakanum, en það sæmir tæpast jafn mik-
illi fískveiðiþjóð og okkur. Orðrétt segir Lúðvík: „Við íslendingar
emm hvað fremstir á þessu sviði og okkar hugmyndir, ef þetta
gengur eftir, em að þama væri hægt að koma á fót alþjóðlegum
skóla. Við emm að flytja út þekkingu á þessu sviði nú þegar. En
það vantar stofnun sem heldur utan um þessi atriði.“ Þetta em orð
að sönnu. Það færi líka vel á því að byggja upp verkamenntasetur
sjávarútvegsins í Vestmannaeyjum, einum helsta útgerðarbæ
landsins.
Nettir jafnaðarmenn?
Ryðgað jámtjaldið í Evrópu féll ár-
ið 1989. Talnaglöggir menn geta
reiknað út að síðan eru liðin tæp sjö
ár. Engu að síður virðist kommún-
ismaumræðan enn lifa góðu lífi, þó
hún fari dulítið hljóðar en á árum áð-
ur. Margir misstu fótana við þessi
tímamót, í öðrum hlakkaði svo að
undir tók í umhverfinu. Nokkur um-
ræða hefur farið fram hér í þessu
ágæta blaði síðustu vikur eftir að frá-
sagnir af mannáti í menningarbylting-
unni tóku að berast og birtast á prenti.
Á ég þá einkum við viðtal við Ara
Trausta Guðmundsson jarðfræðing og
grein sem faðir minn skrifaði sem við-
brögð við því.
Pallborðið
Æ •■ Þóra
*• Arnórsdóttir
Lé, skrifar
Kommúnismi hefur verið skil-
greindur sem vinstri öfgastefna. Það
kom mér því mjög á óvart þegar einn
blaðamanna blaðs allra landsmanna,
Morgunblaðsins, fór að þrátta við mig
um stjórnmálaástandið í Dóminí-
kanska lýðveldinu en þar hefur hann
komið nokkrum sinnum sem farar-
stjóri. Hann er fyrrum virkur SUS-ari,
en segist nú eiginlega vera „nettur"
jafnaðarmaður. Hans skoðun er á
þessa leið: „Sumu fólki bara þarf að
stjóma. Og kosningar, ég meina, þá er
hver höndin upp á móti annarri og
enginn ánægður. Þetta fólk er svo
glatt og hamingjusamt, ánægt með
sitt, miklu hamingjusamara en við
peningapúkamir sem aldrei emm sátt.
Líttu á Sovétríkin, Þóra, maður leit
upp tiJ þeirra, þeir áttu frábær íþrótta-
lið og svona. Nú er þetta allt skipt,
rústir einar og stríð í Tsjetsjému.“
Þetta er enginn uppdiktaður „kunn-
ingi“, heldur maður sem telur sig
frjálslyndan í skoðunum: „nettan“
jafnaðarmann. Það kemur nú ekki oft
fyrir mig, en þama í bflnum varð ég
alveg orðlaus. Hvernig er hægt að
voga sér að nefna sjálfan sig jafnaðar-
mann og missa svona algerlega sjónar
á öllum grundvallarsjónarmiðum
þeirrar stefnu?
Jú, Sveinn minn Guðjónsson, það
var eflaust hægt að vera hamingju-
samur, una glaður við sitt í Sovétríkj-
unum sálugu - þar til einn daginn að
þú hlærð að vitlausum brandara eftir
að hafa skellt í þig nokkmm vodka-
staupum. Og nágranni þinn, sem
aldrei hefur líkað sérlega vel við þig
(sennilega öfundað þig af allri þessari
hamingju) segir frá flissinu á réttum
stöðum. Bingó. Einn morguninn
skömmu síðar finnst hvorki tangur né
tetur af Guðjónsonovits- fjölskyldunni
og síðan hefur ekkert spurst til þín og
þinnar fjölskyldu. Ef til vill munu ætt-
ingjar grafa einhver skjöl upp úr köss-
um áratugum síðar, ef þau em þá til.
Lestu bókina „Veröld ný og góð“
(e. Brave new world) eftir Aldous
Huxley og spurðu sjálfan þig hvort
fólkið þar sé hamingjusamt. Ef þú
segir já, þá hefurðu ekkert skilið af því
sem ég er að segja. Það er hægt að
reyna að gera gott úr öllu, maður á
víst bara eitt líf íyrir víst og það þýðir
lítið að leggja árar í bát og gefast upp
þó þjóðfélagið sé ekki eins og maður
vildi. En án gmndvallarmannréttinda
verður þjóð ekki hamingjusöm, á því
stend ég fastar en fótunum. Nema þá
miðað við aðstæður. Erum við þá
komin að þeirri fleygu setningu að
mannréttindi séu afstæð?
Ymsum fannst viðbrögð föður míns
við viðtalinu við Ara Trausta heiftar-
leg og bera vott um ofstæki í hina átt-
ina, hann sæi bara rautt þegar minnst
væri á kommúnisma og menn verði
nú að gera sér grein fyrir að Marx var
bara hugmyndafræðingur og tilraunin
með kommúnismann mistókst og...
Þessi rök gilda bara ekki hjá þeim
sem kynnst hafa framkvæmd hans af
eigin raun. Þegar þú hefur horft upp á
fjölskyldur vina þinna og skólabræðra
leystar upp og sundraðar, þegar þú
hefur fylgst með fólki hverfa f Gúlag-
ið í þvflíku magni að það er yfirþyrm-
andi, þegar þú hefur upplifað óttann
sem bjó í hjarta sérhvers borgara um
að hann væri næstur, þá finnst mér
ekkert skrítið að viðbrögðin verði
hörð. Ég skil ósköp vel þá sem sáu
kommúnískt þjóðfélag fyrir sér í hill-
ingum og studdu málstaðinn til þess
að byrja með, einkum þá verkamenn
sem lifðu í örbirgð á smánarlaunum.
Jöfnuður var orðið sem klingdi bjöll-
um, markmiðið sem glitti í við gullin-
rauðan sjóndeildarfiringinn í austri. En
þeir sem héldu því áfram eftir að þeir
vissu betur, þeir verðskulda vissulega
fyrirlitningu, þar erum við feðginin
sammála.
Ofurtrú á kapítalismann er raunar
síst skárri, það sést greinilega nú þegar
þessi fyrrum kommúnistalönd eru að
byggja upp efnahagslífið. Öll þau
mannlegu gildi sem voru í hávegum
höfð, eru að rjúka út í veður og vind
víðast hvar. „Money talks“, eins og
einn ágætur kínverskur kaupsýslu-
maður sagði. Þetta er vissulega sorg-
leg þróun og það er von mín að pen-
dúllinn nái jafnvægi þama mitt á milli
þegar hann sveiflast til baka. En þetta
er ekki eitthvað sem þú neyðir fólk til
að trúa á og lifa eftir, samhygð og
bróðurkærleikur er tilfinning sem
verður að vera sjálfsprottin. Það er nú
munurinn á jafnaðarmanni og „nett-
um“ jafnaðarmanni.
Höfundur er háskólanemi og framkvæmda-
stjóri Sambands ungra jafnaöarmanna.
IJú, Sveinn minn Guðjónsson, það var eflaust hægt að vera hamingjusamur,
una glaður við sitt í Sovétríkjunum sálugu - þar til einn daginn að þú hlærð
að vitlausum brandara eftir að hafa skellt í þig nokkrum vodkastaupum.
Atburðir dagsins
1920 Sveinn Bjömsson skipað-
ur fyrsti sendiherra Islands; í
Kaupmannahöfn. 1941 Win-
ston Churchill forsætisráðherra
Breta kemur til Reykjavfkur.
1949 Rithöfundurinn Margaret
Mitchell deyr, höfundur Gone
with the Wind. 1956 Leikarinn
Bela Lugosi deyr, frægastur
fyrir leik í hryllingsmyndum.
1960 Kýpur verður lýðveldi.
1977 Konungur rokksins, Elvis
Presley, deyr.
Afmælisbörn dagsins
Georgctte Heyer 1902, enskur
rithöfundur. Charles
Bukowski 1920, bandarískur
rithöfundur. Menachem Begin
1913, forsætisráðherra Israels
1977-83. Shimon Peres 1923.
ísraelskur stjórnmálamaður
sem veginn var fyrr á árinu.
Ted Hughes 1930, lárviðar-
skáld Breta. Madonna 1958,
bandarísk poppstjama.
Annálsbrot dagsins
Byrjaðist ósamþykki með
Frönskum og Enskum. Spansk-
ir og Póllenzkir gerðu hvor
öðmm stóran skaða, og var þá
að heyra um allan heiminn, svo
langt til spurðist, sUíð og styij-
öld, og einn herra öðrum móti.
Enginn pótentáti sat með friði,
utan kjörfurstinn af Saxen.
Gott komár í útlöndum.
Skarösárannáll 1626.
Líf dagsins
Var þetta kanski lífið: að hafa
elskað citt sumar f æsku, og
ekki hafa gerl sér það ljóst fyr-
en það var liðið, nokkur sjóvot
spor á gólfinu og sandur í spor-
unum, ángan af konu, mjúkar
elskandi varir í rökkri sumar-
næturinnar, sjófugl; og sfðan
ekki meir; liðið.
Halldór Kiljan Laxness, Heimsljós.
Málsháttur dagsins
Enginn er sæll fyrir sitt enda-
dægur.
Orð dagsins
Ljáið byrði lífs mér alla,
létt skal bera meir en það,
megi eg þreyttur liöfði halla
hálsi björtum meyjar að.
Grímur Thomsen.
Skák dagsins
Hollendingurinn Jan Timman
og Bretinn Nigel Short eru
meðal sterkustu skákmanna
heims, og eiga aukþess sameig-
inlegt að vera frumlegir og
mistækir. Þeir tefldu skák
dagsins í Tilburg 1990; Tim-
man hafði hvítt og átti leik og
lauk skákinni með sígildu og
bráðfallegu stefi.
Hvítur nuitur í fjórum leikj-
um.
1. RI7+ Kg8 2. Rh6++ Kh8 3.
Dg8+1! Hxg8 4. Rf7 Skák og
mát! Þetta heitir svæfmgarmát
og kemur afar sjaldan upp, og
næstum aldrci hjá mjög sterk-
um skákmönnum. Góða helgi.