Alþýðublaðið - 27.08.1996, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 1996
p ó I i 1 í k
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra er nú einhver umdeildasti stjórnmála-
maður landsins. Guðrún Vilmundardóttir fór í saumana á störfum ráðherrans og
veltir því meðal annars fyrir sér hvort hún hafi óhæfa ráðgjafa og hvort sjálfstæðis-
menn styðji ekki heilshugar við bakið á henni
n
ræður
# 5C m m rr
ferðmni
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra hefur verið í eldlínunni síðan hún tók við embætti í fyrra. Mjög er um-
deilt hvernig hún hefur tekið á viðkvæmum málum, en þess er skemmst að minnast að í nýlegri könnun Gall-
ups lýsti aðeins þriðjungur kjósenda Framsóknar ánægju með störf ráðherrans. Alþýðublaðið ræddi við ýmsa
sem til þekkja og bað þá að meta störf Ingibjargar frá ýmsum sjónarhólum.
Flokkssystur Ingibjargar í Fram-
sóknarflokknum eru sammála um að
Ingibjörg hafi staðið sig vel. „Auðvit-
að hefur þetta verið erfitt, því hún hef-
ur haft þröng fjárráð. En það er náttúr-
lega ríkisstjórnin sem ber ábyrgð á
því,“ segir Valgerður Sverrisdóttir og
Siv Friðleifsdóttir tekur í sama streng:
„Ríkisstjórnin tók þá ákvörðun að
draga úr halla fjárlaga, til þess að
senda komandi kynslóðum ekki him-
inháan reikning. Heilbrigðisráðuneyt-
ið er umfangsmesta ráðuneytið, þar
liggja um 40 prósent fjárlaga, þannig
að aðhald sem veitt hefur verið í fjár-
lögum kemur þar verulega fram. Ekki
er verið að lækka útgjöld, heldur
hemja þenslu og mér fmnst Ingibjörgu
hafa tekist vel upp við þetta verkefni."
Lára Margrét Ragnarsdóttir þing-
maður Sjálfstæðisflokks og fulltrúi í
heilbrigðisnefnd Alþingis segir heil-
brigðisráðherra í mjög erfiðri aðstöðu,
vegna þess að nú sé málum svo komið
að ekki sé hægt að skera meira niður.
„Heilbrigðisráðherrar á undanfömum
árum, hversu velviljaðir sem þeir hafa
verið málaflokknum, hafa verið í erf-
iðri aðstöðu."
Sturla Böðvarsson, samþingmaður
Ingibjargar úr Vesturlandskjördæmi,
kvartar yfir því að mótuð og öguð
stefna í heilbrigðismálum hafi ekki
komið nógu vel í ljós „þó þannig
kunni að vera unnið.“ Hann segir enn-
ffemur: „Það er nauðsynlegt að horfa
til lengri tíma en dagsins í dag þegar
ijallað er um heilbrigðismálin."
Guðný Guðbjömsdóttir þingmaður
Kvennalista, segist ekki geta gefið
faglegt mat, þarsem hún sitji ekki í
heilbrigðisnefnd, „en mér virðist þetta
ganga mjög erfiðlega. Maður hélt,
vegna þess að hún er fagmaður, að
hún gæti sinnt starfinu af meira næmi
en forveri hennar. En þetta er erfiður
geiri, og einsog er virðist allt vera í
rúst. Það er ekki hægt að segja ann-
að.“
Margrét Frímannsdóttir formaður
Alþýðubandalagsins segir að það sem
vanti í heilbrigðismálum sé skýr
stefnumörkun: „Öll vandamál sem
koma inn í Heilbrigðisráðuneytið
virðast fara í óleysanlega hnúta, öllum
til tjóns. Þegar ráðuneytið gefst upp í
ráðleysi sínu, er skipaður „tijsjónar-
maður", og það er svar ráðuneytisins
við öllum vanda. Og ekki virðist gerð
krafa til þess að tilsjónarmaðurinn hafi
nokkurt vit á þeim verkefnum sem
hann er að fást við.“
Guðmundur J. Guðmundsson fyrr-
verandi alþingismaður og formaður
Dagsbrúnar segir að Ingibjörg hafi
aukið allan niðurskurð og skerðingar,
en að nú taki steininn úr; „Grensás
lokað, geðdeild Borgarspítalans að
mestu lokað og eitthvað um 80 sjúkra-
rúm höfð auð. Hvemig á að ráðstafa
þessum eignum; á kannski að leigja
þær út éða seljá'þær? fofanálag ér!hún
búin að skerða og snuða sjúklinga og
ellilífeyrisþega samfellt í miðjum kær-
leikanum. Þetta fólk hefur borgað skil-
víslega sína skatta síðan það var 16
ára, og átti von á að heilbrigðisþjón-
usta yrði í sem bestu lagi. En þá er
einhver kona ofanaf Akranesi búin að
rústa allt þetta niður. Ingibjörg Pálma-
dóttir er stærsta vandamálið í heil-
brigðisþjónustunni."
Ingólfur H. Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Geðhjálpar, segir það
eiga eftir að koma í ljós hvemig Ingi-
björg leysi vanda Sjúkrahúss Reykja-
víkur, og þá sérstaklega geðdeildanna,
„því einsog tillögur stjómar Sjúkra-
hússins segja til um er gert ráð fyrir
talsverðum niðurskurði." Og Ingólfur
segir frammistöðu Ingibjargar ekki
góða, hvað varðar sumarlokanir á geð-
deildum Ríkisspítala. „Þar hafa deildir
verið lokaðar í sumar og líka bama og
unglingageðdeild. Það er tiltölulega
nýtt að lokanir á geðdeildum hafi ver-
ið svona miklar. Þetta var reynt í fyrra
og aftur núna og fjárhagslega virðist
ekki vera neinn spamaður af þessu,
einsog fram kemur í skýrslu ríkisend-
urskoðunar. Ástandið, sem af þessu
skapast, er gersamlega óviðunandi."
Sumir ráðherrar eru vanda-
mál
Sturla Þórðarson nefndi plúsa og
mínusa í starfi Ingibjargar: „Mér
fannst ágætt hjá Ingibjörgu að ná nið-
urstöðu með heilsugæslulæknum um
breytt skipulag í heilsugæsluþjónustu,
en á sama hátt fannst mér jafnslæmt
að ekki skyldi fylgja því tenging við
kjaramál læknanna."
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
þingmaður Þjóðvaka og fulltrúi í heil-
brigðisnefnd er sama sinnis: „Mér
fannst hún standa sig ágætlega þegar
hún náði samkomulagi um ffamtíðar-
skipan heilsugæslunnar - það var áður
en allt klúðraðist. Auðvitað hefðu
samningar við lækna um kjör þeirra
átt að fylgja með. Það hefði forðað
okkur frá því óheillaástandi sem við
.stöndum ffamnii fyrir í.dag.? Ðg húa:;,
er ósátt við önnur vinnubrögð, „sér-
staklega gagnvart lífeyrisþegum.
Bótagreiðslur til þeirra sem verst
standa hafa verið skomar niður, stuðn-
ingur við fatlaða hefur minnkað, og
þjónustugjöld hafa verið aukin. Ég
hefði haldið að hún sem hjúkrunar-
fræðingur hefði skilning á því að þetta
fólk er ekki aflögufært. Og það er
skelfilegt hvernig hefur verið farið
með sjúkrahúsin hér á Reykjavíkur-
svæðinu. Það er alvarleg atlaga að
heilbrigðiskerfinu, sem Ingibjörg hef-
ur ekki spymt fótum við.“
Margrét Frímannsdóttir segir að það
eina sem henni finnist þó lofsvert í
störfum heilbrigðisráðherra sé að hafa
fallist á tillögur sem heilsugæslulækn-
ar bám fram um uppbyggingu og efl-
ingu heilsugæslusviðsins. „Það skiptir
máli, en það er hinsvegar slæmt að
læknar skyldu þurfa að segja störfum
sínum lausum til að sýna ffamá alvöru
málsms."
Guðmundur J. Guðmundsson sér
ekki nokkum jákvæðan hlut í starfi
Ingibjargar Pálmadóttur: „Hún er
táknrænt dæmi um að sumir ráðherrar
eru vandamál. Ingibjörg samþykkti
íjárlögin, en svo kemur uppúr kafinu
að 250 milljónir vantar í sjúkrahús
Reykjavíkur, fyrir utan annað. Það
hafði hún ekki hugmynd um. Fyrir
liggur að þurfi að hætta að borga
starfsfólki laun. Ingibjörg hafði ekki
hugmynd um það að 250 milljónir
myndi vanta í sjúkrahúsið, þó hún hafi
farið ítarlega yfir íjárlögin. Hvers kon-
ar ráðherra er þetta eiginlega? Það er
slíkt níðmgsverk að loka Grensásdeild
að ef það væri annar en ráðherra, sem
að gerði slíkt, myndi hann hiklaust
vera dæmdur til refsmgar í langt tugt-
hús. En Ingibjörg bara blómstrar og
kemur glansandi kát í sjónvarpið og
útvarpið og segir að þetta sé aMt Ijár-
málaráðuneytinu að kenna.“
Ein f erfiðum málum?
Stjómarliðar þvertóku fyrir að Ingi-
björg yæri látin standa ein í erfiðum
niðurskurðis ;;Hún er svri; sáilnaftegaa
ekki einangmð, hún Ingibjörg Pálma-
dóttir. Hún er þannig persóna að það
verður hún aldrei," segir Valgerður,
og Siv segir að vegna mikillar skulda-
söfnunar standi Framsókn heilshugar
á bakvið þá stefnu að hemja rfkisút-
gjöld. „Við emm að verja velferðar-
kerfið og til þess þarf aðhald. Við höf-
um öll stutt við bakið á Ingibjörgu
einsog við höfum frekast getað. En
hún er ráðherrann og því beinist kast-
ljósið að henni. Þetta hefur verið erfitt,
og verður sjálfsagf áfram, en hún hef-
ur alla burði til að takast á við þétta
verkefni."
Sturla tók undir að mikil samstaða
ríkti: „Ég held við stöndum allt um
kring, samstarfsmenn hennar, að
reyna að leysa úr þessum vandamál-
um.“
Ingólfur segir að það verði að kalla
forystu ríkisstjómarinnar til ábyrgðar
„og þá er ég aðallega að tala um fjár-
málaráðherra og forsætisráðherra. Þeir
bera vitanlega ábyrgð á því sem er að
gerast hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur,
enda er 1. þingmaður Reykvíkinga
jafnframt forsætisráðherra. Ábyrgð
þessara manna er mikil og mér finnst
að þeir eigi að standa með heilbrigðis-
ráðherra í því að kippa þessum málum
í liðinn.“
Stuðningur Sjálfstæðis-
flokksins við Ingibjörgu
„Ég hef ekkert sérstaklega undan
því að kvarta,“ segir Valgerður þegar
hún er spurð að því hvort éamstarfs-
flokkurinn styðji nógu vel við bakið á
heilbrigðisráðherra, og bætir því við
að henni finnist spumingamar voða-
lega skrítnar: „Þið eruð alveg með
hana á heilanum þama á Alþýðublað-
inu, hana Ingibjörgu. Mér hefur æði
oft fundist vera eitthvað neikvætt um
hana á forsíðu.“ Valgerði fmnst ágætt
að Alþýðublaðið tah við samstarfsfólk
hennar, sem hrósi henni í hástert, „en
ég gæti ímyndað mér að þið hefðuð
ætlað að hafa það einhvern veginn
öðravísi., Bn ég, hefieíkkert Tiejna já-
kvættaðsegja Qnt'.störfilngibjárgár,’“/
Siv segir Ingibjörgu.háfa-fullan
stuðning, en var ósátt við yfirlýsingar
fjármálaráðherra á síðasta ári, „þess
efnis að 10 fjármálaráðherrar væra í
ríkisstjóminni; hann er að sjálfsögðu
einn. Auðvitað reyna ráðherrar að
halda sig innan fjárlaga og ná þeim
tölum sem þeim var ætlað.“
Aðrir vora ósammála stjómarþing-
mönnunum, og fannst Ingibjörg
standa nokkuð ein í erfiðum málum.
„Svo virðist sem hún eigi undir högg
að sækja í baráttu við fjármálaráðherra
og stefnu for.sætisráðherra áð .keyra
hallalaus fjárlög í gégrf,ú;8egir- for-
maður Geðhjálpar, „burtséð frá afleið-
ingum. Það er spuming hvort hún hef-
ur styrk til að standa á móti niður-
skurðarkröfum fjármálaráðherra og
stefhu forsætisráðherra í þeim efnum.
Ég held að það skipti máli fyrir heil-
brigðiskerfið að ráðherra standi vel á
sínu gagnvart fjármálaráðherra. Það er
ekki búið að afgreiða aukafjárveiting-
ar til sjúkrahúsanna og það er heldur
ekki búið að afgreiða fjárlög næsta
árs.“
Guðnýju Guðbjörnsdóttur virðist
Ingibjörg standa ein, en segist ekki
vita hvemig staða Ingibjargar sé innan
Framsóknarflokksins, en „innan
þingsins var hún oft í mjög erfiðri
Guðmundur: Ingibjörg Pálma-
dóttir er stærsta vandamálið í
heilbrigðisþjónustunni.
Guðný Guðbjörnsdóttir: Ég
vek athygli á því að þeir heil-
brigðisráðherrar sem verið
hafa, virðast hafa staðið í
ströngu. Þetta er ekki einka-
mál Ingibjargar.
Siv Friðleifsdóttir: Þetta hefur
verið erfitt, og verður sjálf-
sagt áfram, en Ingibjörg hefur
alla burði til að takast á við
þetta verkefni.
Sturla Böðvarsson: Það getur
ekki verið að Framsóknar-
flokkurinn tefli fram öðru en
hæfu fólki til að gegna ráð-
herraembætti.
Margrét Frímannsdóttir: Öll
vandamál sem koma inn í
Heilbrigðisráðuneytið virðast
fara í óleysanlega hnúta, öll-
um til tjóns.
Ásta Ragnheiður: Heilbrigðis-
ráðuneytið hefur verið mjög
slappt undir stjórn Ingibjarg-
ar.