Alþýðublaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 1
■ Þungur fangelsisdómur yfir ungri stúlku vekur umræðu lögmanna um „kjánaleg
ummæli" og „óheppilegt blaður" Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra þegar
hann sagði þyngri refsingar nauðsynlegar til að verja fólkfyrir ofbeldi
Ummæli ráðherrans mjög
óviðeigandi og óábyrg
-segir Haraldur Blöndal hæstaréttarlögmaður. Þórunn Guðmundsdóttirformaður Lögmannafélagsins:
Dómstólar dansa ekki eftir pípu Þorsteins.
„Þó dómsmálaráðherra sé eitthvað að blaðra um þessi mál fara dómstól-
ar ekkert eftir því," segir Sigurður Georgsson hæstaréttarlögmaður.
„Auðvitað á dómsvaldið að vera
óháð og vissulega var þetta klaufalega
orðað hjá Þorsteini Pálssyni en ég held
ekki að dómstólar taki ummæli hans
alvarlega," segir Þórunn Guðmunds-
dóttir hrl. formaður Lögmannafélags
íslands í samtali við Alþýðublaðið.
Mikil gremja er meðal lögmanna
vegna yfirlýsinga Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra við vígslu hæsta-
réttarhússins í september, en þar
beindi hann máli sínu til dómstóla og
sagði „ljóst að þyngri refsingar eru
nauðsynlegar í í baráttunni fyrir því að
veija einstaklinginn fyrir líkamlegu
ofbeldi.“
Stefán Geir Þórisson veijandi ungr-
ar stúlku sem á dögunum var af Hér-
aðsdómi Vesturlands dæmd í tveggja
ára fangelsi fyrir líkamsárás hefur sagt
opinberlega, að yfirlýsing Þorsteins
haíi valdið því hve þungur dómurinn
var. Aðrir lögmenn sem Alþýðublaðið
hefur rætt við tóku í sama streng. „-
Þetta er fantadómur yfir svo ungri
stúlku," ságði lögfræðingur í samtali
við blaðið, og sagði dóminn í engu
samræmi við aðra dóma yfir ungu
fólki vegna líkamsárásarmála.
„Hef trú á
sjálfstæði dómstóla"
Þórunn Guðmundsdóttir kvaðst
hinsvegar ekki telja að Héraðsdómur
Vesturlands hafi tekið mið af tilmæl-
um dómsmálaráðherrans þegar refsing
ungu stúlkunnar var ákveðin: ,JÉg get
ekki séð að Héraðsdómur Vesturlands
hafi tekið ffumkvæði í því að þyngja
refsidóma, enda væri lítið jafnræði og
réttlæti í því að gera svo í einu vett-
fangi. Það er tilhneiging f þá átt að
dómar eru að þyngjast. En ég hef
meiri trú á sjálfstæði dómstóla en svo
að þeir fari að dansa eftir óheppilegum
ummælum Þorsteins," segir Þórunn.
Þó lögmenn ræði þetta mál mikið
sín á milli er ekki fyrirhugað að taka
það fyrir hjá Lögmannafélagi íslands.
„Kjánaleg ummæli"
Sigurður Georgsson hæstaréttarlög-
maður er ósammála Þórunni um þróun
refsiþyngdar og nefhir dæmi máli sínu
til stuðnings. Hann rak hliðstætt mál
fyrir Hæstarétti fyrir nokkru. „Það er
engin tilhneiging að þyngja dóma og
ekkert hægt að alhæfa um það. Þessi
mál verður að skoða í samhengi," seg-
ir Sigurður. Hann telur ekki ólíklegt
að dómarar tali saman um einhverja
línu en þegar á hólminn kemur verði
þeir að eiga það við sína samvisku
fyrst og fremst hvernig þeir fella
dóma. „Og þó dómsmálaráðherra sé
eitthvað að blaðra um þessi mál fara
dómstólar ekkert eftir því. Hann getur
vissulega haft sínar skoðanir á þessu
eins og hver annar útí bæ. En ummæli
hans sem dómsmálaráðherra við vígsl-
una um þyngingu dóma eru kjánaleg.
Hann á auðvitað ekki að skipta sér af
dómsvaldinu með þeim hætti. En um-
mælin voru reyndar í samræmi við
ffamkvæmdina alla við vígsluna sem
var asnalegri en hægt er að tala um,“
segir Sigurður.
„Á ekki að senda
dómstólum fyrirmæli"
„Mér fundust ummæli ráðherrans
mjög óviðeigandi og óábyrg. Ef ráð-
herra telur refsingar of vægar á hann
að leita til Alþingis um breytingu á
lögum," sagði Haraldur Blöndal
hæstaréttarlögmaður sem telur afar
óheppilegt að rugla með þessum hætti
saman framkvæmda- og dómsvaldi.
Haraldur segir að ræða Þorsteins hafi
vakið mikla athygli og umræður með-
al lögmanna, og að viðhorf þeirra í
málinu séu nánast á einn veg. „Þor-
steinn Pálsson á undir engum kring-
umstæðum að senda dómstólunum
fyrirmæli,“ sagði Haraldur.
■ Gamalreyndur liðsmaður úr forystusveit Sjálfstæðisflokksins
Ólán að fá Davíð sem formann
„Flokkurinn stuðlar að því að sem fæstir komist áfram, og þar með að peningarnir safnist
í hendur örfárra manna."
,JÉg held að það hafi verið ólán fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að fá Davíð Odds-
son sem formann. Davíð hefur verið
sérstaklega ólánsamur með nánustu
samstarfsmenn sína og nefni ég þá
menn eins og Hannes Hólmstein,
Hrafn Gunnlaugsson og Kjartan
Gunnarsson," segir gamalreyndur
sjálfstæðismaður sem í mörg ár var í
forystusveit flokksins, en er nú hættur
afskiptum af stjórnmálum. Hann
ræddi við Alþýðublaðið um málefni
Sjálfstæðisflokksins en vildi ekki að
nafn hans kæmi fram. Þá ræddi blaðið
við nokkra einstaklinga um Sjálfstæð-
isflokkinn og stöðu hans og hans í ís-
lenskum stjómmálum.
Viðmælandi Alþýðublaðsins, sem
vitnað var til í upphafi, segir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi breyst í seinni
tíð: „A síðustu árum með, nýjum
mönnum, hafa áherslur flokksins tekið
miklum breytingum til hins verra.
Flokkurinn virðist vilja stuðla að því
að sem fæstir komist áffam, sérstak-
lega í atvinnulífinu, og þar með að
peningarnir safnist í hendur örfárra
manna eða fjölskyldna. Verið er að
hverfa ffá því góða kerfi og tryggingu
er þeir sem minnst mega sín eiga rétt
á.“
Um stöðu flokksins sagði þessi
gamalreyndi forystumaður: „Staða
Sjálfstæðisflokksins er traust en
hversu lengi hún mun haldast veit ég
ekki. Hokkurinn hefur fyrst og ffemst
trausta stöðu vegna þess hversu hinir
flokkamir em lélegir.“
Sjá blaðsíðu fimm
Ólafur G. Einarsson og Davið
Oddsson koma til landsfundar í
gaer.
FLOKKSÞING
„Mætir þú?"
■ Meirihlutinn í
Kópavogi fellir
tillögu um húsa-
leigubætur
Pólitísk
illgirni
- segir Guðmundur Oddsson.
Kópavogur eina sveitarfélagið
á höfuðborgarsvæðinu sem
ekki greiðir húsaleigubætur.
„Þetta er spuming um pólitíska
stefnu. Meirihlutinn í bæjarstjóm
kærir sig ekki um að Kópavogsbúar
sitji við sama borð og aðrir varð-
andi leiguhúsnæði. Þetta er aðalat-
riði málsins. Það er pólitísk illgimi
sem ræður því að þeir fella tillög-
una,“ segir Guðmundur Oddsson,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokks, sem
ásamt flokksbróður sínum Kristjáni
Guðmundssyni lagði nýlega fram
tillögu um að Kópavogur greiddi
húsaleigubætur. Þetta er þriðja árið
í röð sem þeir félagar flytja tillög-
una og hún hefur verið felld jafnoft.
Kópavogur er því eina sveitarfélag-
ið á höfuðborgarsvæðinu sem ekki
greiðir húsaleigubætur.
Guðmundur segir þá Kristján
ætla að leggja tillöguna fram í
fjórða sinn og þá á næsta ári. ,Mm
reynsla hefur kennt mér að við jafn-
aðarmenn verðum að hafa ákveðið
fmmkvæði og svo koma þeir tölt-
andi á eftir, framsóknar- og sjálf-
stæðismenn, misleiðitamir en skila
sér þó að lokum. Það þarf að sýna
þessum mönnum umburðarlyndi,
það vantar svo mikið upp á þrosk-
ann hjá þeim. Það er ekki fyrr en
hann er orðinn eins og hjá meðal-
krata sem þeir koma til.“
Mundu
að skila
afWfunni
fyrir
fös tudag
Það eru milljónir
á miðanum
09 í þættinum