Alþýðublaðið - 11.10.1996, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996
s k i I a b o ð
Kjördæmisþing
á Vesturlandi
Kjördæmisþing Alþýðuflokksins á Vesturlandi verður hald-
ið í Röst Akranesi laugardaginn 12. október og hefst klukk-
an 10.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Uppgjörfjármála
3. Opinn fundur um samstarf jafnaðarmanna frá kl. 13.00-
15.30
4. Stjórnmálaályktun
5. Málefni Vesturlands
Kvöldverður og skemmtun frá kl. 20 og fram eftir nóttu.
Jafnaðarmenn á Vesturlandi fjölmennið!
Stjórn kjördæmisráðs.
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélagsins í Hafnarfirði verður hald-
inn þriðjudaginn 15. október klukkan 20.30 í Alþýðuhúsinu
Hafnarfirði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Magnús Hafsteinsson,
formaður Aiþýðuflokksfélagsins
í Hafnarfirði.
Fundarboð
Aðalfundur Kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafnarfirði verður
haldinn miðvikudaginn 16. október kl. 20:30 í Alþýðuhúsinu
við Strandgötu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning á flokksþing dagana 8. 9. og 10. nóvember.
Kaffiveitingar.
Fundarstjóri Guðfinna Vigfúsdóttir.
Fjölmennum.
Stjórnin.
UMSOKN UM FRAMLOG
ÚR FRAMKVÆMDA-
SJÓÐI ALDRAÐA 1997
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraða auglýsir eftir umsókn-
um um framlög úr sjóðnum árið 1997. Eldri umsóknir
koma aðeins til greina séu þær endurnýjaðar. Nota skal
sérstök umsóknareyðublöð sem fylla ber samviskusam-
lega út og liggja þau frammi í Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu. Einnig er ætlast til að umsækjendur
lýsi bréflega einingum húsnæðisins, byggingarkostnaði,
verkstöðu, fjármögnun, rekstraráætlun, þjónustu- og vist-
unarþörf ásamt mati þjónustuhóps aldraða (matshóps)
og þar með hvaða þjónustuþætti ætlunin er að efla. Um-
sókn skal fylgja ársreikningur 1995 endurskoðaður af lög-
giltum endurskoðanda og kostnaðaryfirlit yfir fyrstu níu
mánuði ársins 1996.
Sé ofangreindum skilyrðum ekki fullnaégt áskilur sjóð-
stjórnin sér rétt til að vísa umsókn frá.
Umsóknir skulu hafa borist sjóðstjórninni fyrir 1. desem-
ber 1996, Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu,
Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraða.
Fundarboð
Málefnahópur um landbúnaðar- og umhverfismál boðar til
fundar þriðjudaginn 25. október kl. 20.30 í Félagsheimili Al-
þýðuflokksins í Hamraborg Kópavogi. Flutt verða erindi um
lífræn og vistræn samfélög og árangur í fráveitumálum
þéttbýliskjarna. Allir velkomnir.
Málefnahópur um landbúnaðar-
og umhverfismál.
Alþýðuflokkurinn Reykjanesi
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing verður haldið í Garðaholti 12, Garðabæ,
laugardaginn 12. október næstkomandi kl. 10.00 til 16.00.
Dagskrá:
10:00 Þingsetning.
10:15-12:00 Framsöguerindi og umræður.
Magnús Árni Árnason: Sameining jafnaðarmanna -
Staða og horfur.
Valgerður Guðmundsdóttir: Alþýðuflokkurinn og
sveitarstjórnarmál.
Jón Baldvin Hannibalsson: Lénsveldi eða lýðræði?
Kristján Gunnarsson: Verkalýðshreyfingin og
kjaraátökin framundan.
12:00-13:00 Hádegisverður.
13:00-13:30 Ávörp þingmanna:
Rannveig Guðmundsdóttir.
Guðmundur Árni Stefánsson.
13:30-14:00 Almenn þingstörf
Afgreiðsla reikninga.
Kosning formanns, annarra stjórnarmanna og endur-
skoðenda.
Kosning fulltrúa í flokksstjórn.
14:00 - 15:00 Nefndastörf
Nefndir ræða þau málefni sem fjallað var um í fram-
söguerindum og semja drög að ályktun.
15:00 - 16:00 Lokaumræða og afgreiða álykt-
ana.
16:00 Þingslit.
16:00-17:00 Gleðistund.
Stjórn kjördæmisráðs.
Ég þakka öllum þeim sem heidruðu mig
á sextugsafmæli mínu 5. október síðast-
liðinn. Góðar undirtektir og örlæti við
stofnun „Fræðslusjóðs um líf í alheimi"
þennan dag gladdi mig jafnframt mjög.
Þór Jakobsson
veðurfræðingur.
Kópavogsbúar
-jafnaðatmenn
Fundartímar
Alþýðuflokksfélags
Kópavogs verða
í vetur sem
hér segir:
Öll mánudags-
kvöld kl. 20.30
(nema 18. 12. 25.
12. og 2.1. vegna
jóla og áramóta og
31.3. vegna
páskanna).
Einnig verður opið
hús á laugardags-
morgnum kl.
10.00.
Heitt á könnunni,
spjall um stjórn-
málaástandið. Allir
velkomnir.
Fh. stjórnar
Magnús Árni
Magnússon
formaður
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands
48. flokksþing Alþýðuflokksons
- Jafnaðarmannaflokks íslands
verður haldið í Perlunni í Reykjavík,
helgina 8. til 10. nóvember 1996.