Alþýðublaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐHD 3 s k o ð a n i r Ihaldið nýbúið - en svo komum við!!! IMeira að segja formaður Framsóknarflokksins er að verða frjálshyggjugaur í samanburði við formann Sjálfstæðisflokksins. Nú hefur íhaldið í landinu nýlokið sínu landsþingi þar sem stærsta málið var hvetjir selji okkur ótíndum almúgamönnum guðaveigar. Formað- urinn hárprúði gaf tóninn strax í upp- hafi fundar um hvað ætti ekki að fjalla á þinginu, málin sem ekki væru á dag- skrá. Það skyldi helst ekki ræða um sjávarútvegsmál og alls ekki veiði- leyfagjald. Blátt bann var að sjálf- Pallborð I ■ Tryggvi Harðarson sögðu lagt við öllu hjali um að ef til vill væri óvitlaust að skoða mögulega aðilda að EB. Ekki þurfti að taka fram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að allt byltingarkjaftæði um kjarajöfnun eða hærri laun til þeirra sem minnst bera út bítum var stranglega bannað. Allri hjörðinni bar hins vegar að jarma í kór um ágæti landbúnaðarkerfisins og fagna núvernadi fiskveiðistefnu með sporðaköstum. Davíð leggur línurnar Það sem hæst bar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir utan brenn- heita umræðu um brennivínssölu og áskrift að ríkisútvarpinu var jafnréttis- umræðan. Sjálfstæðisflokkurinn var lýstur stærsta kvenfélag landsins og konur og karla skyldu hafa jafnan rétt til að vera jöfn. Svo illa stæði bara á hjá Sjálfstæðisflokknum núna að eng- ar frambærilegar konur væru í flokkn- um til að gegna æðstu embættum í flokki og ríkisstjórn. Formaðurinn lýsti því skorinort yfir að slíkt kynni að breytast á næstu öld. Alltaf sami Matthildingurinn. Nú stendur fyrir dyrum flokksþing Alþýðuflokksins. Ég held að Davíð sé í raun búinn að leggja línurnar um hvað við jafnaðarmenn munum ræða á flokksþingi Alþýðuflokksins. Það liggur í augum uppi að allt það sem hann bannaði umræðu um á sínu þingi verður þungamiðjan í umræðum á flokksþingi Alþýðuflokksins. Ber þar fyrst að nefnda kvótabrask sægreifanna. Svo er komið að öllum almenningi blöskrar hvernig örfáir kvótakóngar maka krókinn með sölu eða leigu veiðiheimilda sem lögum samkvæmt eiga að vera sameiginleg auðlind þjóðarinnar. Þá er ljóst að kjaramálin verða eitt aðalviðfangsefni flokksþings Alþýðu- flokksins með það fyrir augum að rétta hlut hins almenna launamanns. Það er þjóðinni til háborinnar skamm- ar að stór hluti launafólks í fullu starfi geti ekki framfleytt sér og sínum. Nú þegar hagvöxtur hefur aukist mjög á ný hlýtur það að vera skýlaus krafa að launþegar þessa lands, sam hafa borið hitann og þungann af þjóðarsáttar- samningunum, fái sínar fómir endur- greiddar. Út úr korti að sópa málinu útí horn Þrátt fyrir skiptar skoðanir þjóðar- innar um ágæti Évrópusambandsins er út úr korti að sópa málinu útí horn. Það á að vera á dagskrá og í það minnsta að láta á það reyna hvort Is- lendingum tekst að ná viðunandi samningum við EB. Það er engan veg- inn sjálfgefið en aulaháttur formanns Sjálfstæðisflokksins felst í því að þora ekki að láta á það reyna. Það er alveg ljóst að Sjálfstæðis- flokkurinn er helsti varðhundur óbreyttrar stefnu í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum. Meira að segja formaður Framsóknarflokksins er að verða frjálshyggjugaur í samanburði við formann Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar sakna ég þess persónulega að þau Sif og Hjálmar, Framsóknar- þingmenn Reykjaneskjördæmis, fylgi eftir þeirri sjávarútvegsstefhu sem þau lofuðu kjósendum sínum fyrir síðustu kosningar. Þau mál sem ég hef hér drepið á hljóta að verða megin viðfangsefni Alþýðuflokksins á komandi flokks- þingi. Það eru þau mál sem brenna heitast á þjóðinni. Það eru þau mál sem ekki fást rædd í Sjálfstæðis- flokknum. Til þess að geta gert sér raunhæfar vonir um að breyta megi þessum hlut- um til betri vegar er alveg ljóst að til verður að koma víðtæk samvinna þeirra sem telja sig félagshyggjufólk og tilheyra launþegahreyfingum landsins. Þá og því aðeins geta ís- lenskir jafnaðarmenn brotið af sér ægivald íhaldsins og gert sér vonir um réttlátt þjóðfélag jafhaðar og frelsis. Höfundur er bæjarfulltrúi Alþýöuflokksins I Hafnarfirði. Eins og fram kemur á forsíðu blaðs- ins eru í það minnsta þrjár bækur væntanlegar sem fjalla með einum eða öðrum hætti um Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins. Pálmi Jónasson er að vinna bók þar sem pólitískur ferill hans er rakinn, Karl Th. Birgisson er að vinna bók sem fjallar um kosningabaráttu Ólafs Ragnars í máli og myndum og Gunn- ar Smóri Egilsson kemur við sögu nýs forlags, Dægradvöl sem gefur út Bessastaðabækurnar. Pálmi, Karl og Gunnar Smári hafa allir starfað sem blaðamenn á Pressunni sálugu, tveir þeir síðarnefndu reyndar einnig sem ritstjórar. Það er athyglisvert að velta því fyrir sér hvað það er við Ólaf Ragnar sem vekur þennan áhuga fyrr- um rannsóknarblaðamanna Press- unnar... að hefur komið á daginn, eins og Alþýöublaöid sagði reyndar frá fyrir nokkru, að Páll Vilhjálmsson ritstjóri Vikublaösins í félagi viö aöra, hefur st kaup á Helgarpóstinum. Helstu samverkarnenn hans á Viku- blaðinu, þeir Fríðrik Þór Friðriksson og Ólafur Þórðarson munu fylgja honum yfir á blaðið sem kennt hefur veriö við slúður og næturlífiö. Guð- rún Krístjónsdóttir mun víkja úr rit- stjórastóli en Alþýöublaöiö og hverfa til annarra starfa. Friðrik Þór vann áð- ur á Pressunni og Ólafur Þóröarson er í Ríótríóinu auk þess að vera Ijós- myndari. Nú þessa dagana er Páll að leita liðsinnis en hann hefur látið hafa það eftir sér að blaðið muni verða skemmtilegt og vettvangur þjóðlífs- umræðu. Hægt er að fullyrða að Lúö- vík Bergvinsson mun ekki hafa mikla trú á því en hann sagði í síðasta HP að ef hann fengi einhverju að ráða um refsingu fanga þá myndi hann skylda þá til að lesa Vikublaðið reglu- lega... r Ymsum þótti Porsteinn Pálsson meira áberandi á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins en við mátti búast, og ekki síður yljaði það gömlum lands- fundarfulltrúum að sjá Þorsteinn og Davíð Oddsson snúa bökum saman í deilunni um sjávarútvegsmálin. Þar er þó ekki um endurnýjað fóstbræðra- lag þessara fornu fjenda að ræða, heldur illa nauðsyn. Þorsteinn gekk fram af harðfylgi gegn hverskonar breytingum á kvótakerfinu og hlaut stuðning Davíðs, enda vill forsætis- ráðherra ekkert vesen. Talsmönnum breytinga blöskraði framganga Þor- steins eftir að þeir höfðu sitt fram í sjávarútvegsnefnd. Davíð gekk hins- vegar í aö miöla málum bakvið tjöld- in, einsog fram kemur í fréttaviðtali við Markús Möller í DV í gær. Hon- um þykir lítil ástæöa til að tala um sig- ur Þorsteins og segir: „Ef menn vilja túlka það sem sigur fyrir Þorstein Pálsson að tillaga sem hann haföi áö- ur staöið aö því að fella var tekinn inn með fulltingi Davíðs Oddssonar verða þeir að eiga það við sjálfa sig. Við Þor- steinn höfum báðir lesið Skugga- Svein og vitum að það voru ekki að- alkarakterarnir sem sögðu að leikslok- um Sáuö þiö hvernig ég tók hann?„ Skilaboðin til Þorsteins gætu varla verið skýrari... Framsóknarmenn halda flokksþing uppúr miðjum nóvember og inn- anbúðarmenn segja okkur að þar megi vænta líflegri pólitískra um- ræðna en hjá Sjálfstæðisflokknum. Talið er víst að hörö gagnrýni komi fram á ýmislegt í framkvæmd stjórn- arstefnunnar, og að verkin séu lítt í samræmi við fögur orð um „fólk í fyr- irrúmi". Þá er næsta víst að framsókn- armenn munu taka af meiri alvöru á sjávarútvegsmálum, enda engin tilvilj- un að Halldór Ásgrímsson er nú að- eins byrjaður að ýja að því að kvóta- kerfið sé ekki heilagt og óumbreytan- legt. Veiðileyfasinnar finnast í Fram- sókn, og þeir hafa ráöiö ráðum sínum að undanförnu og láta áreiðanlega að sér kveða. Hinsvegar er ekki gert ráð fyrir neinum breytingum á forystunni. Halldór verður auðvitaö kyrr á sínum stað, og sama máli gegnir efalítiö um Guðmund Bjarnason varaformann. Ritari Framsóknar er Ingibjörg Pálmadóttir, og þótt hún sé náttúr- lega umdeild er ekki talið ómaksins vert að hrinda henni úr þeim sessi, sem litlu skiptir... h i n u m e g i n "FarSide" eftir Gary Larson „Já. Samþykkir þú kollekt simtal frá hr. Aaaaaaaaaaa?" Valgeir Magnússon fram- kvæmdastjóri: Já, ég vil fá La Sonnambula úr Master Class. Valdís Arnardóttir þjónn: Nei, alls ekki. Mér finnst hann svo fallegur. Garðar Garðarsson mark- aðsstjóri: Nei, þó að mér fmnist hann svolítið þungur er hann mjög þjóðlegur. Valdís Pálsdóttir spyrill: Það mætti hafa varaþjóðsöng, til dæmis Hver á sér fegra föð- urland, til að nota við minna hátíðleg tækifæri. Ólafur Örn Ingólfsson bankamaður: Nei, það má alls ekki hrófla við honum. Hann er mjög góður eins og hann er. Það sem gerir þetta kvenfélag einkar sérstætt er að í öllum helstu forystuhlutverkum félags- ins eru karlar, en þar er ef til vill komin jafnréttishugsjón þeirra sjálfstæðismanna í reynd. Arni Þór Sigurðsson í DT í gær. En Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki öllu lengur haldið sig til hlés í umræðum um þau stóru mál sem við blasir að þjóðin þarf að taka afstöðu til á næstu árum. Leiðarahöfundur Moggans í gær um landsfundinn. Þegar formaðurinn mannaði sig upp í að hafa þessa skoðun, til að flokkurinn hefði einhverja skoðun, ætlaði fagnaðarlátum flokksmanna aldrei að linna. Dagfari í gær. Skoðanir um veiðileyfagjald eru ekki lengur þvert á flokka. Valið er skýrt. Stefán Jón Hafstein ritstjóri DT í gær. Þessi tvö mál [Evrópumálin og veiðileifagjaldið] sýna að flokkurinn hefur að nokkru leyti málað sig út í horn, stefnufietir hans við aðra stjórnmálaflokka eru minni en var. Össur Skarphéðinsson í DT í gær. Við Þorsteinn höfum báðir lesið Skugga-Svein og vitum að það voru ekki aðal- karakterarnir í þeirri bók sem sögðu að leikslokum: „Sáuð þið hvernig ég tók hann?“ Markús Möller veiðileyfagjaldsmaður Sjálfstæðisflokksins í DV í gær. Að dómi sérfróðra manna er engin nefnd með nefndum nema Jóhannes [Nordal] sé í henni, enda hefur hann setið í fleiri nefndum en nöfnum tjáir _ að nefna og á ekki aðeins íslandsmet heldur sennilega heimsmet í þeim vettvangi og gæti hæglega komist í heimsmetabók þá, sem kennd er við Guiness. Halldór Þorsteinsson skólastjóri Málaskóla Halldórs í Mogganum í gær. Þetta verður blaða- mannablað með pólitík Páls Vilhjálmssonar. Páll Vilhjálmsson ritstjóri Vikublaösins hefur nú fest kaup á Helgarpóstinum. Mogginn í gær. Hæðinni er mjög ábótavant hjá Höllu og það hlýtur að vekja upp spurningar hvort Halia Margrét sé sópran, í þeim skilningi sem hún kynnir sig. Ragnar Björnsson tónlistargagnrýnandi Moggans um tónleika Höllu Margrétar Árnadóttur í gær. fréttaskot úr fortíð Bardagar í París Blóðugir bardagar hafa staðið í París, út af allsherjarverkfallinu. Þó helzt jámbrautarflutningur enn nokkum veginn. Alþýðublaðið, þriðjudaginn 4. maí 1920.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.