Alþýðublaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 16.10.1996, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 16. október 1996 155. tölublað - 77. árgangur________________________________Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk ■ Ágúst Einarsson telur að eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins hafi línurnar í íslenskri pólitík skýrsttil muna Baráttan er á milli Sjálfstæðisflokks og jafnaðarmanna - segir Ágúst. „Alvarlegur ágreiningur í meginmálum." ,J>að kæmi mér mjög á óvart ef allir kjósendur Sjálfstæðisflokksins reynd- ust sammála afstöðu landsfundarins í fiskveiðimálum, bæði hvað varðar óbreytt fyrirkomulag í fiskveiðistjóm- unarmálum og afstöðu til veiðileyfa- gjalds,“ segir Ágúst Einarsson, þing- maður Þjóðvaka. Hann segir aðkomu Davíðs Oddssonar að umræðu lands- fundarins um sjávarútveg hafa verið mjög svo furðulega. „Strax í upphafi gaf hann línuna og drap umræðuna. Þetta er sama aðferðafræði og hann viðhafði í Evrópumálunum," segir Ág- úst. Ágúst segir athyglisvert að þegar Þingflokkur jafnaðarmanna kynnti á Alþingi tillögur sínar um veiðileyfa- gjald hafi Halldór Ásgrímsson tekið undir þau meginsjónarmið tillögunnar að með betri afkomu í sjávarútvegi ætti hluti af arðinum að renna til þjóðfé- lagsins. Hann segir Friðrik Sophusson einnig hafa tekið undir veigamikil rök í málflutningi jafnaðarmanna. Ágúst telur að eftir landsfund Sjálf- stæðisflokksins hafi línumar í íslenskri pólitík skýrst til muna. ,3aráttan stend- ur milli Sjálfstæðisflokksins og jafnað- armanna," segir Ágúst. Hann segir að stórfelldur ágreiningur sé í fjórum meginmálun milli þessara fylkinga: „Við jafnaðarmenn viljum taka upp veiðleyfagjald meðan Sjálfstæðisflokk- urinn ver núverandi kerfi með kjafd og klóm. Við emm með róttækar og fram- farasinnaðar tillögur í landbúnaðar- og neytendamálum en þar tekur Sjálfstæð- isflokkurinn afstöðu með gömlu kerfi og slær hring um hagsmuni fortíðarinn- ar. Flokkamir hafa ólíku afstöðu í Evr- ópumálum þar sem við fylgjumst með nýjum straumum og hleypum þeim inni í pólitíska umræðu okkar meðan Sjálfstæðisflokkurinn skellir í lás, fjandskapast út í EES- samninginn og neitar að fylgjast með þeirri vömþróun sem á sér stað í Evrópu. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur forkastanalega nálgun í jafnréttismálum og viðurkennir ekki hina kerfísbundnu kúgun kvenna sem hefur viðgengist í þjóðfélaginu,“ sagði Ágúst. Hann sagði ennfremur: „í síð- ustu kosningum kusu 60.000 manns Sjálfstæðisflokkinn. Landsfund flokks- ins sátu 1500 manns. Ég á eftir að sjá hina tæplegu sextugu þúsund kjósend- ur skrifa undir allt það sem kom frá þessum landsfundi. Það verður meira spennandi en að lesa sig í gegnum ályktanir landsfundarins." ■ Gallupkönnun 1/4 sá stefnu- ræðu Davíðs Tæplega fjórðungur landsmanna horfði að einhverju leyti á umræður um stefnuræðu forsætisráðherra í Rík- issjónvarpinu annan október síðastlið- inn. Karlar horfa í meira mæli á um- ræðuna en konur og þeir sem hafa ein- göngu aðgang að Ríkissjónvarpinu voru fjölmennari í hópi þeirra sem fVlgdust með umræðunum en þeir sem Hafa aðgang að öllum stöðvum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Gallup lét gera en forsætisnefnd alþingis mun hafa niðurstöður könn- unarinnar til hliðsjónar við umfjöllun um breytt fyrirkomulag á umræðunni. Könnunin fór fram dagana fjórða til ellefta október og var upplýsinga aflað í síma. Valið var tilviljunarúrtak í þjóðskrá, alls 1500 manns, en þegar ffá höfðu verið dregnir, látnir og þeir sem búsettir eru erlendis stóðu eftir 1448 einstaklingar. Svarendur voru 1077 einstaklingar, alls neituðu 154 að svara og ekki náðist í 217 manns. Nettósvörun var því 74,4. ■ Ritstjórn Vikublaðsins kaupir Helgarpóstinn Vikublað- ið gefið út áfram - segir Margrét Frímannsdóttir. Áherslubreytingar á ritstjómar- stefnu verða um áramót. „Vikublaðið verður gefið út áfram. Það verður vitanlega einhver breyting á því með nýrri ritstjóm, en það er ör- uggt að blaðið verður gefið út áfram,“ sagði Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, í samtali við Alþýðublaðið. Páll Vilhjálmsson, ritstjóri Vikublaðsins, hefur ásamt starfsmönnum blaðsins og fjárfestum keypt Helgarpóstinn. Margrét segist ekki vera farin að velta fyrir sér ritstjóraefni, en það verði á dagskrá innan skamms enda sé núverandi ritstjóm að kveðja á allra næstu dögum. Hún sagði að Vikublað- ið yrði rekið áfram í núverandi mynd en áherslubreytinga myndi verða vart um áramót. „I haustbyrjun var ákveð- ið að breyta áherslum á þann veg að blaðið myndi í auknum mæli sinna fréttum af sveitarstjórnarmálum og ungliðapólitík. Þessi breyting mun koma til framkvæmda um áramót,“ sagði Margrét. Odyrustu flugfargjöl innanlands í vetsur! um ísland * Sérkjör á innanlandsflugi, gistingu, bílaleigubílum og nútuferðum fynin félagsmenn stéttanfélaganna llllk flug b- Aðeins selt a 5.830 kr. til allra áfangastaða Flugleiða innanlands, 4.830 kr. til Vestmannaeyja. Farmiðan enu aðeins seldir á laugardögum á sölustöðum Flugleiða um allt land - á höfuðborgansvæðinu aðeins á afgneiðslu Flugleiða á Reykjavíkunflugvelli. Hótel Tveggja manna herbergi á verði eins manns herbergis á 21 hóteli um allt land! Bílaleigubílar Frábænt verð á bílaleigubílum hjá Eunopcan - Bílaleigu Akuneynan! □æmi: Bíll af 1 . flokki með tryggingu, sköttum og km akstri aðeins 20.300 kr. f eina viku. IEftirtalin félög eru aðilar að samningum um stéttarfélagsverð: bílar Skelltu þér með rútunni! 50% afsláttur á flestum áætlunarleiðum sérleyfishafa hjá BSÍ! BSB® Jll Slértorfétog faenskra /n. MJoftœðtnga 'Ó/ rnanna FLUGLEIÐIR INNANLANDS• I Kynnið ykkur sérkjörin! Skrifstofur stéttarfélaganna veita allar nánari upplýsingar um einstök tilboð, gildistíma þeirra og aðra skilmála. Munið félagsskírteinin!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.