Alþýðublaðið - 24.10.1996, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐK) FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996
rMDIIBIÍDID
21199. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Fréttastjóri Jakob Bjarnar Grétarsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Umbrot Gagarín ehf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Tölvupóstur alprent@itn.is
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Karlinn í brúnni
gengur frá borði
Til er fræg teiknimynd úr ensku blaði frá því þegar Bismarck
kanslari Þýskalands dró sig í hlé frá stjómmálum. Myndin sýnir
þegar kanslarinn gengur frá borði á stóm skipi og fer um borð í
lítinn árabát. Þessi mynd þykir enn táknræn um það þegar stjóm-
skömngar eða örlagavaldar draga bát í naust að lokinni langri og
strangri útvist. Þegar Jón Baldvin Hannibalsson lýsti því yfir í
fyrradag að hann myndi ekki gefa kost á sér til formanns áfram,
duldist engum að mikil pólitísk þáttaskil vom framundan. í þessu
samhengi er rétt að benda á að fyrr í sumar hvarf af hinum pólit-
íska vígvelli annar fyrirferðamikill stjómmálamaður, Olafur
Ragnar Grímsson.
Máltækið segir að maður komi í manns stað. Það er rétt svo
langt sem það nær. Skarð Jóns Baldvins verður vandíyllt. Hann
hefur verið afar umdeildur stjómmálamaður og persóna hans hef-
ur verið efhi í mikil veisluhöld hjá Gróu gömlu á Leiti. Póhtísk
ferðalög hans um landið hafa ætíð verið mikið fréttaefni. Boð-
skapur Jóns Baldvins hefur jafnan vakið mikil viðbrögð. Þar var
aldrei nein lognmolla. Skilaboð hans hafa ætíð verið skýr.
Megin afrek Jóns Baldvins var að sveigja íslenska jafnaðar-
mannastefnu úr staðnaðri, lífvana ríkisforræðishyggju til nútíma-
legri viðhorfa og verða þannig á undan öðmm foringjum jafnað-
armanna á Norðurlöndum að benda á þær miklu hættur sem
steðjuðu að jafnaðarstefnunni og velferðarsamfélaginu. Markaðs-
búskapur í opnu alþjóðlegu hagkerfi, barátta gegn sérhagsmunum
og einokun, öguð ríkisijármálstefna samfara traustu öryggisneti
fyrir þá sem em minnimáttar vom skilaboðin. Á fundum nor-
rænna jafhaðarmannaforingja á níunda áratugnum fór ekki á milli
mála að málflutningur Jóns átti ekki alltaf uppá pallborðið.
Mönnum þótti þetta bera keim af galgopaskap og hægri villu.
Tíminn leiddi þó annað í ljós. Viðbrögðin hér heima vom svipuð.
Það er fýrst núna sem þessi sjónarmið em að verða sameiginleg
meðal jafnaðarmanna í öllum flokkum. Að því leyti skilur Jón
Baldvin eftir sig fullsáða akra.
EES-samningurinn og baráttan fyrir sjálfstæði Eystrasaltsríkj-
anna em þó hans stóra bautasteinar. Hann háði þar einhverja
mestu omstu sem íslenskur stjómmálamaður hefur nokkm sinni
háð og hafði sigur. Jón Baldvin hafði í hendi sér myndun þriggja
ríkisstjóma. Sú síðasta - Viðeyjarstjómin - var sú afkastamesta
og jafnframt sú áhrifamesta. Hún var mynduð í þeim tilgangi
fyrst og fremst að tryggja samningnum um evrópskt efnahags-
svæði framgang. í því skyni urðu önnur mál að víkja. Þegar það
mál var í höfn var límið í samstarfi Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokks orðið þurrt og farið að molna. í aðdraganda að
myndun stjómarinnar vom Jón Baldvin færð þau skilaboð að
fyrrverandi samstarfsflokkar Alþýðuflokksins gætu samþykkt
hann sem forsætisráðherra í nýrri vinstristjóm. Svar hans var
skýrt. Hann vildi frekar gulltryggja EES-samninginn en völd og
vegtyllur sjálfum sér til handa.
Nú er það eftirmanna Jóns Baldvins að taka við keflinu. Það
var ekki við því að búast að Jón Baldvin færi frá án þess að láta í
ljós skoðun sína á því hvemig forystusveit flokksins yrði best
skipuð. Það er síðan flokksþingsins eins að ákveða hvernig
mönnum verður skipað til verka. Þeir sem nú munu senn taka við
forystu fyrir Alþýðuflokknum - Jafnaðarmannaflokki Islands
bera mesta ábyrð á sameiningarferlinu. Þeir munu stýra þeim
flokki sem verður burðarás í sameiningunni. Innan hans verður
að vera lífsrými fyrir mismunandi sjónarmið og fólk úr ólíkum
starfsstéttum. Það væri óráð að stofna nýjan flokk án rótarkerfis
og sögusviðs. Slíkt hefur aldrei heppnast. ■
Aflið sem
Tveir pólitískir viðburðir á þessu
hausti standa uppúr. Pólitískir við-
burðir sem geta gjörbreytt íslenskum
stjórnmálum til frambúðar. I fyrsta
lagi er það nýr samstarfsvettvangur
jafnaðarmanna, og stofnun nýs þing-
flokks á Alþingi, - þingflokks jafnað-
armanna. f öðru lagi er það landsfund-
ur sjálfstæðismanna. Hann sýndi
landsmönnum að það eru fyrst og
fremst jafnaðarmenn sem sjálfstæðis-
menn óttast.
Oddsson og ormarnir
I upphafi landsfundarins gaf Davíð
Oddsson tóninn. Jós úr skálum reiði
sinnar. Jafnaðarmenn voru hans höf-
uðandstæðingar. Sjávarútvegsmála,
landbúnaðar, Evrópumál. Sama hvar
var borið niður. Ekki var heil brú í
málflutningi þeirra sem vom á annarri
skoðun en formaðurinn. Sneiðin var
send jafnaðarmönnum, og landsfund-
arfulltrúum. Landsfundarfulltrúum
sem vildu ræða veiðileyfagjald -
landsfundarfulltrúum sem vildu ræða
Evrópumál - landsfundarfulltrúum
sem gagnrýndu forystuna fyrir fram-
kvæmd GATT samningsins. Fram-
kvæmd, sem rýrt hefðu kjör lands-
manna. Þeir fengu strax að vita hvar
Ðavíð keypti ölið, ef þeir gengju gegn
formanninum.
Og Davíð varaði við að hlusta of
mikið á grasrótina. Ormar - ormar
geta fyllt eyrun, sagði formaðurinn.
Landsfundarfulltrúum fannst þetta
slæm tíðindi. Líka þeim, sem vissu að
ormamir umbreyta moldinni og gera
hana frjósamari, en hefðu ekki hlut-.
verki að gegna í eyrum íhaldsmanna.
En landsfundarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins vita að orð formannsins eru
lög. Þeir mega ekki hlusta of mikið á
grasrótina. Þá fá þeir ánamaðka í eyr-
un. Líkt og grýla tekur óþægu bömin
sem ekki borða hafragrautinn sinn.
Gagnsókn vinstri manna
Landsfundurinn innsiglaði síðan
rækilega vemdarstefnu sína og hags-
munagæslu, sem rýrt hefur kjör al-
mennings og gert þá ríku ríkari. Hann
innsiglaði líka hverja íhaldið skil-
greindi sem sína höfuðandstæðinga.
„Búast þarf við gagnsókn vinstri
rnanna," sagði Friðrik Sophusson.
„Við eigum áreiðanlega eftir að sjá
mikla hugmyndafræðilega og pólit-
íska geijun á vinstri væng stjómmála á
næstu árum,“ sagði varaformaðurinn.
Greinilega órólegur. Og í samtölum
við sjálfstæðismenn eftir landsfundinn
hefur komið fram, að þeir óttast sam-
fylkingu jafnaðarmanna. Að hún verði
að veruleika fyrir næstu kosningar.
Stór jafnaðarmannaf lokkur í
burðarliðnum?
Það afl sem íhaldið óttast mest -
einn stór jafhaðarmannaflokkur - gæti
íhaldið óttast
IÞað afl sem íhaldið óttast mest - einn stór jafnaðar-
mannaflokkur - gæti verið f burðarliðnum ef vel til
tekst.
verið í burðarliðnum ef vel til tekst.
Nýr samstarfsvettvangur jafnaðar-
manna er staðreynd. Nýr þingflokkur
á Alþingi, þingflokkur jafnaðarmanna,
undirstrikar alvöm málsins. Þá þróun
og hugmyndafræði sem hér er lagt
upp með. Þetta er ný og trúverðug
nálgun að sameiningu jafnaðarmanna.
Nálgun, sem ekki hefur verið reynd
áður. Innihald þessarar ákvörðunar er
helst hægt að líkja við stofhun Reykj-
avfkurhstans. Þeir sem rýnt hafa í sög-
una finna enga skírskotun þessu líka
innan Alþingis. Nema ef vera skyldi
„árið 1929, þegar .íhaldsflQkkurinn og.
Frjálslyndi flokkurinn stofnuðu til
samstarfs innan þings með sameigin-
legum nýjum þingflokki undir nýju
heiti. Það var upphafið að veldi Sjálf-
stæðisflokksins í íslenskri pólitfk.
Jafnaðarmenn og grasrótin
Ekkert hefur enn verið formfest um
þróun þessa samstarfsvettvangs. Jafn-
aðarmenn vilja hlusta á grasrótina.
Hvemig hún vill móta og sjá þennan
samstarfsvettvang. - Jafnaðarmenn
vita að hjá grasrótinni er að finna frjó-
an jarðveg til ,að umbreyta. Grasrót-
inni, sem fyllii Hótel Borg á degi jafh-
aðarmanna. - Grasrótinni, 'sem sagði
að ekkert fengi stöðvað sameiningar-
ferilinn. Ekki forystan á vinstri
vængnum. Ekki þeir sem drösluðust
með fortíðina í farteskinu. Ekki þeir
sem tefja og bítast bara um frumburð-
arréttinn. Hjá hvorum A-flokkanna
finmkvæði að sameiningu liggi.
Grasrótin spyr núna: Hvar og
hvemig getum við lagt lið einum stór-
um jafnaðarmannaflokki? Þetta er
hinn breiði fjöldi jafnaðarmanna. Jafn-
aðarmenn, sem ekki hafa fundið sér
farveg í gamla flokkakerfinu. Sem
telja að vörumerki A-flokkanna séu
úrelt - selji ekki. Hafi ekki aðdráttar-
afl fyrir allan þann fjölda sem aðhyll-
ist jafnaðarstefnuna. Heldur nýr flokk-
ur jafnaðarmanna, þó á gömlum
gmnni sé. Þeir segja við viljum ekki
ganga inní gömlu flokkana. Við vilj-
um nýtt afl - stóran jafnaðarmanna-
flokk, sem hefur burði til að leiða
þjóðina inní 21. öldina. Burt frá
verndarstefnu og hagsmunagæslu
íhaldsins, - til nýrra tíma þar sem
jafnaðarstefnan er í öndvegi við lands-
stjómin.
Fólkið tekur málið í sínar
. hendur .......
Það ér'frámfíðin áém.skiþfírj.þetta
fólk máli, ekki fórtíðin. Ufigá fólkið á
vinstri vængnum, sefn krefst samein-
ingar. Unga fólkið sem gæti orðið
burðarásinn. Að láta draum jafnaðar-
manna um einn stóran jafnaðarmanna-
flokk verða að vemleika. Unga fólkið
sem sér að íhaldið er að lama mennta-
kerfið í landinu. Öryrkjamir og ellilíf-
eyrisþegarnar sem hafa verið eitt
helsta skotmark framsóknaríhaldsins
við landsstjómina. Yfir þrjátíu þúsund
fátækra á Islandi, sem lifa undir hung-
urmörkum. Heimilin sem eru að sli-
gast undan skuldunum. Launafólkið á
sultarkjörunum, sem sér hvemig bilið
milli ríkra og fátækra vex sífellt. Ung-
ir athafnamenn og konur, sem vilja
samkeppnisfært atvinnulíf. Ekki at-
vinnulíf sem er í helgreipum hafta og
sérhagsmuna íhaldsins. Ekki atvinnu-
líf sem er á framfæri heimilanna og
fyrst og fremst samkeppnisfært vegna
lágra launa í landinu.
Það er skylda okkar, sem nú eram í
forystu á vinstri væng íslenskra stjóm-
mála að svara kalli þessa fólks. Gemm
við það ekki mun fólkið sjálft taka
máhð í sínar hendur. ■
Höfundur er formaður Þjóðvaka.
K3
24. október
Atburðir dagsins
1537 Jane Seymour, þriðja eig-
inkona Hinriks VIII. dó
skömmu eftir að hún ól son.
1931 A1 Capone, 32 ára glæpa-
foringi í Chicago, dæmdur í
ellefu ára fangelsi fyrir skatt-
svik. 1944 Kanadíski tundur-
spillirinn Skeena strandaði við
Viðey: 15 fórust en 198 var
bjargað. Þetta mun vera ein
mesta björgun við strendur Is-
lands. 1945 Norski landráða-
maðurinn Vidkun Quisling tek-
inn af lífi. 1957 Franski tísku-
hönnuðurinn Christian Dior
deyr. 1975 Athafnalíf á íslandi
lamaðist að miklu leyti þegar
konur héldu kvennafrídaginn
hátíðlegan. 1975 Sjónvarpsút-
sendingar í lit hófust hér á
landi. 1987 Sykurmolarnir
prýddu forsíður Melody Maker
og New Musical Express.
Afmælisbörn dagsins
Lafði Sybil Thorndyke 1882,
ensk leikkona. Moss Hart
1904, bandarískur leikritahöf-
undur. Tito Gobbi 1915,
ítalskur barítonsöngvari. Bill
Wyman 1936, breskur bassa-
leikari og einn af stofnendum
The Rolling Stones.
Breyting dagsins
Ef við viljum að allt haldist í
sama horfi, er óhjákvæmilegt
að öllu verði gerbreytt.
Giuseppe di Lampedusa, 1896-
1957, ítalskur rithöfundur.
Annáisbrot dagsins
Mikill stríðsbúningur í Dan-
mörk, dreginn að furðulegur
liðsfjöldi, mælt 100.000 liðs.
Eigi var þá lílið að heyra til
Danskra, hvern framgang þeir
mundu hafa á Svíþjóð. Svíar
vom mestallt ár þetta í Pólen
að brenna og bræla. Voru þó
mjög slegnir af Pólskum og
kóngur þeirra særður mjög í
því slagi. Vom þeir útdrifnir úr
Pólen. Ætluðu nú Danir að sitja
þeim í vegi, þá þeir fæm heim
um.
Seiluannáll 1657.
Málsháttur dagsins
Sjaldan verða kvistir betri en
aðaltré.
Mál dagsins
Engin þjóð verður fyrr til en
hún talar mál út af fyrir sig og
deyi málin deyja líka þjóðimar
eða verða að annarri þjóð.
Tómas Sæmundsson, úr formála
Fjölnis.
Orð dagsins
Þetta Hfsglaða Ijóð
hefur lifafl það eitt,
afl þú, kóngsdóttir, komst,
og þú kysstir mig heitt.
Stefán frá Hvítadal.
Skák dagsins
Hvíti kóngurinn er í hnipri í
hominu og ekkert verður hon-
um til bjargar gegn vel stað-
settu stórskotaliði svarts.
Kreitchik hefur svart og á leik
gegn Polvine. Ilann gerir útum
taflið með einum leik.
Svartur leikur og vinnur.
1. ... Hh3 Hvítur gafst upp,
enda mát óumflýjanlegt.