Alþýðublaðið - 25.10.1996, Page 1

Alþýðublaðið - 25.10.1996, Page 1
■ Óvissa um hverjir sækjast eftir að verða ellefti formaður Alþýðuflokksins Tilkynn og Guð Talið útilokað að Össur Skarphéð- insson gefi kost á sér. Rannveig Guðmundsdóttir og Guð- mundur Ámi Stefánsson ákveða á næstu dögum hvort þau gefa kost á sér til for- mennsku í Alþýðuflokknum. Guðmund- ur Ámi sagði í samtali við blaðið í gær, að hann væri að kanna jarðveginn og myndi væntanlega tilkynna um niður- stöðu sína í byijun næstu viku. Rannveig Guðmundsdóttir, sem nú er á allsheijar- þingi Sameinuðu þjóðanna í New York, ingar frá Rannveigu mundi á næstu dögum hefur sagt að hún ákveði sig í síðasta lagi þegar hún kemur heim 2. nóvember, en útilokar ekki að ákvörðun verði tekin fyrr. Sighvatur Björgvinsson er einn um að hafa tekið af skarið og lýst yfir fram- boði. Jón Baldvin Hannibalsson, fráfar- andi formaður, hvatti Sighvat til að gefa kost á sér og tekur eindregna afstöðu með honum. Jafhframt hefur Jón Bald- vin lagt áherslu á að flokksmenn standi saman um nýja foiystusveit, og forðist uppgjör og sársauka sem fylgi kosning- um á milfi einstaklinga. Hann gerði því að tiifögu sinni að Sighvatur yrði vara- formaður, Guðmundur Árni gegndi áfram varaformennsku, Rannveig yrði formaður þingflokks jafnaðarmanna sem fyrr, og að Össur Skarphéðinsson tæki að sér formennsku í framkvæmdastjóm. Rannveig Guðmundsdóttir hefur lýst óánægju með að Jón Baidvin legði fram þessar tillögur, sem kaflaðar hafa verið „póhtísk erfðaskrá" Jóns Baldvins. í ítar- legri fréttaskýringu Alþýðublaðsins í dag kemur fram að „erfðaskráin" fellur í misgóðan jarðveg meðal flokks- manna.“Mér finnst ekki smekklegt af formanninum að gera póhtíska erfðaskrá og kortieggja hvernig valdastrúktúr fiokksins eigi að vera í framtíðinni," sagði Gísli Hjartarson á fsafirði, sem þó er sammáia Jóni Baldvin um að Sighvat- ur sé vænlegastur sem næsti formaður. GísU Bragi Hjartarson bæjarfúlltrúi á Akureyri er ekki á sama máli: „Það er ekkert nema gott eitt að segja um þessa pólitísku erfðaskrá Jóns Baldvins. Hún er mjög að mínu skapi.“ Sjá fréttaskýringu í miðopnu. FLOKKSÞING ■ Nemendur MH skora á Þjóðkirkjuna að leggja blessun yfir sambúð samkynhneigðra Mikið hitamál meðal ungs fólks ■ Fulltrúar Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á flokksþing valdir um helgina Aukinn áhugi eftiryfirlýsingu Jóns - segir Orri Páll Jóhannsson formaður nemendafélagsins. „Ályktunin var samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta þeirra sem voru á skólafundinum,“ segir Orri Páll Jó- hannsson formaður nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Nemendur MH skora á Allshetjar- nefnd að samþykkja þá tillögu sem liggur fyrir Kirkjuþingi, um að Þjóð- kirkjan leggi blessun sína yfir sambúð samkynhneigðra í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. Orri segir að á fund- inum hafi verið tæplega 300 nemend- ur en ályktunin var tekin fyrir utan dagskrár. „Skólafundur er æðsta ákvörðunarvald í ákvarðanatöku nem- enda og tillagan var borin upp að frumkvæði Amalds Mána Finnssonar. Þetta er mikið hitamál og almennt held ég megi segja að ungt fólk í dag vísar á bug þeim fordómum er snúa að samkynhneigðum," segir Orri sem tel- ur að hér sé um vert málefhi að ræða. „Erum við ekki unga kynslóðin sem kemur til með að sækja kirkjur lands- ins í framtíðinni?" segir hann aðspurð- ur hvers vegna nemendur í MH séu að senda ffá sér ályktun í þessum dúr. í ályktuninni segir meðal annars: „Ekki þýðir fyrir Þjóðkirkjuna að bera það fyrir sig að hugsanlega muni fólk segja sig úr Þjóðkirkjunni ef tillagan verði samþykkt. Líklegra verður að teljast að jafhvel fleiri muni segja sig úr Kirkjunni, þegar litið er til lengri tfrna, verði tillagan ekki samþykkt." „Sjálfur hef ég ekki orðið var við að einstakar blokkir séu að undirbúa smalamennsku, en ég hef heyrt aðeins af því. Fyrst og fremst hef ég fundið meiri áhuga á flokksþinginu eftir yfir- lýsingu Jóns Baldvins," sagði Gunnar Ingi Gunnarsson formaður Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur, í samtali við Alþýðublaðið í gær, en um helgina gefst 950 félagsmönnum kostur á að velja 47 fúlltrúa á flokksþingið í nóv- ember. Uppstillingarnefnd Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur hefur lagt fram lista, sem hefur legið frammi á skrifstofu Alþýðuflokksins, og á þann lista geta menn bætt við nöfhum fram að kjördegi, hafi þeir meðmæli tíu fé- lagsmanna. Á lista uppstillingamefhd- ar verða að minnsta kosti helmingi fleiri en hljóta kjör á þingið. Kosning- in fer fram á skrifstofti Alþýðuflokks- ins, Hverfisgötu 8-10, á laugardag klukkan 13-18, og sunnudag klukkan 13-16. Samkvæmt upplýsingum á skrifstofu Alþýðuflokksins er gert ráð fyrir að alls sitji um 350 fulltrúar 48. flokksþingið, sem fram fer í Perlunni og hefst 8. nóvember. Varst þú á Reykjalundi ? Laugardaginn 26. október klukkan 14.00 verður tekið upp að Reykjalundi lokaatriði sjónvarps- myndarinnar „Ég sigra" eftir Einar Heimisson. Hún fjallar um fólk sem notið hefur endur- hæfingar á Reykjalundi og komist út í þjóðfélagið á ný. Öllum íslendingum sem dvalist hafa á Reykjalundi fyrr eða síðar er boðið að koma á staðinn og taka þátt í þessu atriði og þiggja veitingar á eftir. ...fyrirlífiðsjálft Vinsamlegast látið vita í síma SIBS 552 2150

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.