Alþýðublaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 12. NÓVEMBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ó r n m á I ■ Stjórnmálaályktun 48. flokksþings Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands Sögulegt tækifæri A80 ára afmæli Alþýðuflokks- ins á jafnaðarstefnan ekki síð- ur erindi við samtíð sína en í upphafi aldarinnar, þegar flokkurinn var eina baráttutæki fátæks fólks. Enn eru burðarásar jafhaðarstefhunnar hin- ar sígildu hugsjónir um frelsi, jafn- rétti og bræðralag. Jafnaðarmenn standa vörð um frelsi manna til at- hafna, skoðana og tjáningar þar sem tillit og virðing fyrir öðrum einstak- lingum situr í fyrirrúmi. Þeir styðja jafhrétti, þar sem kynferði, trúarbrögð eða hörundslitur skipta ekki máli, heldur jöfn tækifæri allra til að þroska þá eiginleika sem þeir fengu í vöggu- gjöf. Þeir vilja bræðralag sem miðar að því að skapa þjóðfélag samábyrgð- ar og samhjálpar þar sem aldraðir geta notið áhyggjulauss ævikvöfds, sjúkum er tryggð læknishjálp, fötluðum gefm tækifæri til að lifa eðlilegu og auðugu mannh'fi, og velferð fjölskyldunnar er tryggð eins og kostur er. Engum blandast hugur um að jafn- aðarstefnan á nú góð sóknarfæri. Óvanaleg geijun á sér stað í stjómmál- um landsins. Aflvaki hennar er ekki síst sigursæld Reykjavíkurlistans í síð- ustu borgarstjómarkosningum. Sá sig- ur grundvallaðist á því að ólíkum flokkum, sem allir aðhylltust hugsjón- ir samvinnu og jöfnuðar, tókst að grafa ágreining og stilla saman strengi. Samstarf flokkanna í stjórn höfuðborgarinnar hefur gengið með ágætum og fátt bendir til annars en Reykjavíkurlistinn haldi meirihluta sínum í krafti árangurs sem unnist hef- ur með farsæfli samvinnu ófíkra flokka. Reykjavíkurlistinn felur í sér mikilvægan Jærdóm fyrir samstarf jafnaðarmanna á næstu misserum, og hl|tur að verða okkur leiðarhnoða inn í íramtíðina. Vítt um land hefur far- saéld Reykjavíkurlistans sett kröfuna um samstarf og sameiningu jafnaðar- manna á dagskrá. Þessa gætir eldd síst meðal ungs fólks, sem á erfitt með að sldlja, hvað þá sætta sig við, klofning íslenskra jafnaðarmanna. Innan verka- lýðslireyfmgarinnar er einnig rætt af vaxandi þunga um nauðsyn þess að jafnaðarmenn sameinist í einum flokki, sem með tilstyrk verkalýðs- hreyfingarinnar gæti ráðið úrslitum um þróun íslensJcs samfélags á næstu öld.,Þessum óskum mætir Alþýðu- flokkurinn - Jafnaðarmannaflolckur íslands, fyrir sitt leyti fagnandi. Hann telur það Jilutverk sitt að kanna til Mít- ar aukna samvinnu allra jafnaðar- manna, utan og innan stjórnmála- flokka, sem gæti leitt til gjörbreyttra stjómarhátta að lolcnum næstu þing- kosningum. 48. flokksþingið lýsir ánægju sinni með að fyrsta slcrefið hefur þegar verið tekið með myndun nýs þingflolcks jafnaðarmanna í sam- vinnu við Þjóðvaka. Geijunin í stjóm- málum innanlands hefur sótt eldsneyti í þróun utanríkismála síðustu ára. Hið sögulega slys, sem fólst í klofningi jafhaðarmanna fyrr á öldinni, átti rót sína að rekja til ágreinings um rúss- nesku þjóðfélagstilraunina, sem lauk með hörmulegum afleiðingum. Allar götur síðan hefur afstaðan til utanrík- ismála sundrað jafnaðarmönnum í fýlldngar. Þar hefiir viðhorfið til NA- TÓ borið langhæst. Hrun Berlínar- múrsins árið 1989 og endalok kalda stríðsins leiddu liinsvegar til þess, að hvarvetna hefur dregið úr ágreiningi um NATÓ. Hér á landi er það fráleitt sami ásteytingssteinninn og fyrrnm, heldur hefur það hægt og bítandi þok- ast úr pólitfskri umræðu dagsins. Nýj- ar kynslóðir, sem eru að komast til pólitísks þroska, geta með engu móti skilið að afstaðan til Nató sundraði jafnaðarmönnum áramgum saman, og þær hafha því algerlega að hún komi í veg fyrir eðlilegt samstarf og sam- skipti skyldra flokka. Samhliða er ljósf, að markverðra breytinga gætir nú meðal þeirra, sem harðast andæfðu farsælli aðild íslands að Nató. Til marks um það hafa bæði fýrrverandi formaður Alþýðubandalagsins og oddviti ungra Alþýðubandalagsmanna lýst afstöðu til Nató sem er önnur en hefðbundin afstaða flokksins. Sam- Aldrei fyrr á öldinni hafa skapast jafn miklir möguleikar og nú á því að sameina íslenska jafnaðarmenn í breiða og öfluga hreyfingu. hliða umræðu um breyttar áherslur í utanríkismálum fjölgar þeim jafníramt innan Alþýðubandalagsins sem taka undir ósldr um nánara samstarf jafn- aðarmanna. Meðal yngra fólks hefur frumkvæðið elcki síst komið úr röðum þess. Þetta er mikilvæg þróun sem lík- leg er til að auka möguleikana á sam- vinnu jafnaðarmanna á næstu misser- um. Mat forystu Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflolcks Islands á því hvaða möguleikar em í stöðunni verða ekki síst að taka mið af ffamvindunni innan Alþýðubandalagsins. Uppstolck- un flolckaJcerfisins verður einnig að taka mið af þeim álirifum sem Samtök um kvennalista hafa haft á þróun þess vængs stjómmálanna, sem markast af sjónarmiðum jafnaðarstefnunnar. Samtökin lögðu til leiðtogann sem skipti sköpum um sigursæld Reykjav- flcurlistans, og enginn getur neitað því að þau hafa átt rflcan þátt í að skerpa áhersluna á jafnrétti kynjanna. Hug- myndir og áherslur Kvennalistans á jafnrétti falla að öllu leyti að hug- myndum jafhaðarmanna um samfélag framtíðarinnar. f þessu samhengi er mikilvægt að gera sér grein fyrir, að innan Samtaka um Kvennalista er nú sldpst á skoðunum um, hvort rétt sé að freista framhalds á hinum þingpólit- íska leikvangi þegar kemur að næstu kosningum, eða hvort leitað skuli eftir samvinnu við önnur stjórnmálasam- tök, sem Kvennalistinn telur til skyld- leika við. í ljósi þeirrar stöðu, sem hér hefur verið rakin felur 48. flokksþing- ið nýkjörinni forystu Alþýðuflolclcsins - Jafnaðarmannaflokks íslands að eiga virkan þátt í þeim umræðum og þróun sem nú er hafin um samvinnu og sameiningu jafhaðarmanna. í þjóð- félaginu eru vaxandi kröfur um að þeir sem kenna sig með einhverjum hætti við jafnaðarstefnu, einstaldingar jafnt sem samtök, freisti þess á næstu árum að mynda eina, órofa heild, sem gæti með ábyrgum hætti tekið að sér forystu um stjóm landsins. Flokks- þingið telur því nauðsynlegt, að kann- að verði til hlítar meðal samtaka, flokka og óflokksbundinna einstak- linga sem vilja ljá hugmyndum jafn- aðarstefnunnar lið sitt, hvort mögulegt sé að fýlkja liði sameiginlega til næstu kosninga, með reynslu Reykjavflcurl- istans í fýrirrúmi. Liður í því að skapa breiða samstöðu í þjóðfélaginu um slíkan kost felst í því að örva sam- stöðu og skilning rneðal ungs fólks um nauðsyn þess að stilla saman lcrafta jafhaðarmanna í komandi kosn- ingum. Ungt fólk mun leika Jykillflut- verk í samvinnuferli næstu missera. Flokksþingið fagnar þessvegna sér- staklega því frumkvæði, sem ungliða- hreyfingar stjómmálaflolckanna hafa þegar tekið með því að ákveða að stofna sérstakan vettvang ungs fólks til að vinna að sameiningu jafnaðar- manna. Nýtt og trúverðugt lands- stjómarafl getur því aðeins sprottið af samvinnu jafnaðarmanna, að öflugur og gagnkvæmur stuðningur ríki milli þeirra og samtaka launafólks. Sá stuðningur verður að byggjast á skiln- ingi en ekld skilyrðum. Því er nauð- synlegt að samtök launafóllcs tald þátt í undirbúningi að samvinnu jafhaðar- manna í tengslum við kosningar. Þátt- takan má þó ekld einskorðast við for- ystu Jireyfingarinnar, heldur þarf víð- tæka umræðu meðal grasrótarinnar um þann ávinning sem fælist í nánu samstarfi nýrrar hreyfingar jafnaðar- manna og samtaka launafólks. Þessi þrenning, samtök jafnaðarmanna, samtök launafólks ásamt æsku lands- ins, er lfldeg til þess að geta í samein- ingu ráðið úrslitum um niðurstöðu næstu kosninga.og þarmeð, hvaða stefnu ísland 21. aldarinnar tekur þeg- ar nýtt árþúsund lcveður dyra. Um röskan áratug áttu Alþýðu- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn gifturíka samleið í Viðreisnarstjóm- inni sem sat frá 1959 til 1971. Sú rflc- isstjóm lagði traustan gmnn að bætt- um lífskjörum í kjölfar þess að hvers lcyns viðsldptahöftum var svipt burtu. A þeim tíma naut Sjálfstæðisflokkur- inn leiðtoga sem ekld vom hræddir við útlönd, heldur höfðu skilning á áherslu Alþýðuflokksins á nauðsyn þess að bæta kjör íslenslcra neytenda með auknu frjálsræði í verslun við umheiminn. Allar götur síðan blund- aði draumurinn um endumýjað sam- starf þessara tveggja flokka í bijóstum fijálslyndra manna sem sáu í því aflið er enn á ný gæti ratt brautina fyrir er- lendum fjárfestingum og aulcnu fijáls- ræði í viðskiptum við útlönd. EES- samningurinn, sem aðeins Alþýðu- flokkurinn stóð að óskiptur, var stærsta mál á dagskrá íslenslcra stjóm- mála á árunum 1989-1994. Saming- sumleitanir hófust í ríkisstjóm sem var undir forystu Framsóknarflokksins og með þátttöku Alþýðubandalagsins. Fyrir kosningamar 1991 sveifluðust báðir þeir flokkar á þá sveif að gera málið tortryggilegt. Hvomgur flokk- anna gat tryggt framgang málsins með tilstyrk þingmanna sinna, einsog stað- fest var þegar málinu var endanlega ráðið til lykta í atlcvæðagreiðslu á Al- þingi. Þessi afstaða þýddi, að Alþýðu- flokkurinn átti ekki annarra kosta völ en leita samstarfs við Sjálfstæðis- flolckinn um myndun rfldsstjómar á vordögum 1991 til að tryggja þessu þjóðþrifamáli forgang. Frá sjónarhóli Alþýðuflolcksins vom meginverkefni þeirrar stjómar, líkt og á tímum Við- reisnar, að bæta hag íslenskra neyt- enda með aulcnu frelsi á sviði utanrík- isverslunar. í fyrsta lagi með því að gera ísland að fullgildum þátttakenda innan Evrópska efnahagssvæðisins. Það tókst fýrir atbeina Alþýðufloklcs- ins sem hafði málið á forræði sínu í tíð síðustu ríldsstjómar. Reynslan hefur sýnt, að síðustu áratugi hefur engin önnur ákvörðun af hálfu rfldsstjómar- innar sldlað jafh mfidum sólcnarfæmm fyrir atvinnu og byggð í landinu. í öðra lagi með því að ryðja brautina fyrir nýjan GATT samning, sem í krafti auldns innflutnings á landbún- aðarvömm myndi leiða af sér aukna samkeppni og um síðir verðlæklcun á matvælum. Vonin um kjarabæturí gegnum GATT brást liinsvegar. í stað þess að láta GATT koma til fram- kvæmda með eðlilegum hætti kaus forysta Sjálfstæðisflokksins að af- skræma samninginn til að þóknast sér- hagsmunum sem eiga ekkert skylt viðhagsmuni neytenda. Innfluttur vamingur, sem átti að lælcka í kjölfar GATT, hækkaði þvert á móti. Al- þýðusamband ísland hefur reiknað út að það hefur leitt til hækkunar á vísi- tölu verðlags í þeim mæli að skuldir landsmanna hafa aukist um 1300 milljónir. Afstaðan til GATT reyndist elcki tímabundið frávik, heldur frá- hvarf frá hefðbundnu ftjálslyndi Sjálf- stæðisflokksins í málefhum utanrflds- verslunar. Á landsfundi fyrir skömmu staðfesti SjálfstæðisflokJcurinn breytta stefnu sína gagnvart umheiminum: GATT verður áfram ambaga, þar sem hin upphaflegu markmið hafa' um- breyst í ranghverfu sína, einsog spegl- ast í verðlagi á innfluttu grænmeti sem kostar nú meira en fyrir gildistöku GATT. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar auknum tengslum við Evrópu og um- ræða um hvemig best sé að haga stöðu Islands eftir framvindu samrunaferlis- ins í Evrópu er einfaldlega teldn af dagskrá. Niðurstöðuna í utanríkismál- um kórónaði Sjálfstæðisflokkurinn síðan með afstöðunni sem teldn var að tillögu flokksforystunnar í einu við- lcvæmasta deiluefni seinni ára, kvóta- málinu. Þar var sjálftökuréttur sæ- greifanna varinn, og lýst yfir að veiði- leyfagjald komi ekld til greina. I reynd þýðir þetta, að Sjálfstæðisflolckurinn hefur lagt formlega blessun sína yfir, að örfámennur hópur haldi ókeypis sérleyfi til að raka saman auði á kostn- að fólksins í landinu. Landsfundurinn staðfesti því að Sjálfstæðisflolckurinn hefur kosið sér það Mutverk að veija sérhagsmuni hinna fáu í stað heildar- hagsmuna ijöldans. Þessi þróun hefur skapað nýja stöðu í íslenskum stjóm- málum. Á landsfundinum beindi for- ysta Sjálfstæðisflolcksins spjótum sín- um fyrst og fremst gegn jafnaðar- mönnum og málefnum þeirra. Skila- boðin til þjóðarinnar eru því skýr. Sjálfstæðisflokkurinn telur að sér sé mest hætta búin af hugmyndum nú- tíma jafnaðarstefnu. Þróun síðustu missera hefur því leitt tilþeirrar niður- stöðu að höfuðandstæður íslenskra stjómmála í dag em annars vegar jafn- aðarmenn og hinsvegar Sjálfstæðis- flolckurinn, þar sem ftjálslynd viðhorf nútíma jafnaðarstefnu glíma við vax- andi einangrunarhyggju Sjálfstæðis- manna. Þessar nýju aðstæður gera samstarf jafnaðarmanna enn tíma- bærra og lfldegra til árangurs en áður. Vaxandi misskipting í kjölfar góðæris er ógnvekjandi. Kjör hins almenna launamanns hafa elcki batnað í sam- ræmi við bætt aflabrögð og vaxandi þjóðartekjur. Þess í stað hefur ábatinn hefur í allt of ríkum mæli farið til þeirra sem betur em settir. Alþýðu- flokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur fslands telur nauðsynlegt að þessu verði breytt hið fyrsta. Launafólk á nú siðferðilegan rétt á myndarlegum og raunhæfum kjarabótum. Kjarasamn- ingamir framundan verða því að leiða af sér kjarajöfnun, sem getur ekki gerst með öðrum hætti en þeim að mest komi í Mut þeirra sem lægst hafa launin. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðar- mannaflokkur íslands hefur lagt fram í ítarlegum ályktunum flolcksþings þau mál, sem hann færir með sér til um- ræðunnar um aukið samstarf jafnaðar- manna. Hann gengur til hennar án for- dóma og sldlyrða, meðvitaður um að framundan er mikilvæg þróun, þar sem tekist verður á um það hverjir slculu hafa forystu um að leiða ísland inn í 21. öldina, inn í nýtt árþúsund. Það er mildlvægt að sjónarmið jafnað- arstefnunnar séu þá eins öflug og kost- ur er. Það er hins vegar brýnt að umræðan um samvinnu og samein- ingu jafnaðarmanna loldst aldrei af í stofnunum flolckanna, heldur sé einnig hvatt til hennar utan hinna formlegu hreyfinga. Til hennar á einnig að bjóða þeim, sem hvergi standa í flokki, en fylgja jafnaðarstefnunni að málum, félögum verkafólks, öðmm samtökum og einstaklingum. Með því að leiða saman hugmyndir, atgervi og fólk úr ólflcum áttum og með fjöl- breyttan bakgmnn er hægt að skapa trúverðugan valkost jafnaðarmanna, sem að loknum næstu kosningum getur haft forystu um að stýra þjóðinni inn í nýja öld. Aldrei fyrr á öldinni hafa skapast jafn miklir möguleikar og nú á því að sameina íslenska jafnaðarmenn í breiða og öfluga hreyfingu.H

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.