Alþýðublaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 12.11.1996, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 12. nóvember 1996 Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk MÞYBMIBU) ■ Ásta B. Þorsteinsdóttir varaformaður Alþýðuflokksins Tímamótaþing í málum kvenna „Enginn annar flokkur gerir konum jafn hátt undir höfði." „Ég átti alls ekki von á því að sigurinn yrði svona afgerandi. Mér fannst þetta stórglæsilegt og er óskapiega þakklát,“ sagði Ásta B. Þorsteinsdóttir, nýr varaformaður Alþýðuflokksins, eftir að hafa hlotið örugga kosn- ingu á flokksþinginu um helgina. Um niðurstöðuna í formanns- kjörinu sagði Ásta, að sér einsog fleirum hefði komið á óvart hversu mikiis fylgis Guðmundur Árni naut. Ásta sagði ennfremur að góður hlutur kvenna í kosningum í embætti og stofnanir Alþýðu- fiokksins væri afar ánægjulegur. „Með þessu sker Alþýðuflokkur- inn sig alveg frá öðrum stjórn- málaflokkum. Enginn annar 170. tölublað - 77. árgangur flokkur gerir konum jafn hátt undir höfði í framvarðasveit sinni. Við höfum aðeins haft eina konu í þingflokknum, og því hef- ur mikið mætt á Rannveigu. Nú koma fleiri konur til starfa í for- ystunni, og gegna embættum varaformanns, ritara og gjald- kera. Ungar konur hafa líka komist til metorða og náð áhrif- um í framkvæmdastjórn. I mín- um huga er þetta tímamótaþing hvað þessi mál varðar.“ Ásta var spurð hvaða verkefni hún ætlar að leggja mesta áherslu á: „Brýnasta verkefnið er að byggja upp flokksstarfið, og ég vil leggja mitt af mörkum til að það takist. Við þurfum líka að treysta starfið á landsbyggð- inni og sambandið við félaga okkar þar, og ég sé fyrir mér að við getum gert góða hluti á því sviði,“ sagði Ásta B. Þorsteins- dóttir varaformaður Alþýðu- flokksins. „Mér fannst þetta stórglæsilegt og er óskaplega þakklát," segir Ásta B. Þorsteinsdóttir um niðurstöð- una í varaformannskjörinu. ■ Innrás skemmti- krafta í viðskiptalíf- ið heldur áfram Við erum að taka þetta yfir - segir Þórhallur Sigurðs- son alías Laddi sem hefur fest kaup á Café Oliver við Ingólfsstræti. ,Já, það er víst rétt, ég er að breyt- ast í veitingamann," segir Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, í samtali við Alþýðublaðið. Laddi-Íief- ur nú fest kaup á Café Óliver við Ing- ólfsstræti. Þar með bætist hann í ört vaxandi hóp skemmtikrafta sem eru að hasla sér völl í viðskiptalífinu. Sig- urður Sigurjónsson, Öm Ámason og Jóhann Sigurðarson eiga og reka Hljóðsetningu, Helgi Bjömsson var til skamms tíma hluthafi í Astró, Baldur Brjánsson er eigandi Feita dvergsins svo dæmi séu nefhd. „Við emm bara að taka þetta yftr. Af hvetju eigum við alltaf að vera að vinna íyrir einhveija aðra?“ spyr Laddi. Hann hefur ekki komið nálægt veitingarekstri áður og segir kaupverðið algjört hernaðar- leyndarmál. „Þetta er búið að blunda í mér í mörg mörg ár. Aðalmálið fyrr var að eignast veitingastað en það er svoldið stórt mál þannig að lendingin varð sú að ég festi kaup á litlum bar þar sem ég verð einnig með mat. Ég er mikill matgæðingur, hef gaman að því að búa til mat og gefa fólki mat. Þetta svarar sem sagt báðum kenndum í mér að eiga minn stað,“ segir Laddi sem ætlar meðal annars að bjóða uppá pönnukökur og skonsur sem tengda- móðir hans bakar. Laddi ætlar að sjálfsögðu að troða upp á srnum eigin stað. „Ég ætla nú ekki að þreyta fólkið of mikið með því að vera stöðugt að koma fram en eitthvað verður þó um það. Síðan hyggst ég standa fyrir ýms- um uppákomum, ljóðalestri, lifandi músík og uppistandi svo eitthvað sé nefnt,“ segir Laddi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.