Alþýðublaðið - 21.02.1997, Síða 3
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
skoðanir
Lifi Alþýöublaðið!
Ekki fór það svo að útgáfa Alþýðu-
blaðið legðist af á þessum vetri. Tek-
in var syrpa um málið og það ekki í
fyrsta sinn. Ákveðin tilraun er í gangi
til hausts og þess freistað að tryggja
áframhaldandi útgáfu. Miklu skiptir
að auka fjölda áskrifenda og treysta
þannig undirstöðumar. Nóg um það.
Tilefni þess að ég set þessar línur á
blað eru aðrar. Eg sat í þeirri undir-
nefnd framkvæmdastjómar Alþýðu-
flokksins sem skoðaði rekstur blaðs-
Pallborð i
Magnús M.
Norödahl
skrifar
ins og tók þátt í að kortleggja þá leið
sem nú er fetuð. Nefndin sýslaði með
mikið af skjölum og talnarunum,
deilt upp í debet og kredit, hagnað og
tap. Ekki má heldur gleyma því, að
hún sat undir stöðugri pressu frá
velunnurum blaðsins, sem ýmist
beittu skynsamlegum rökum eða hót-
unum þegar framtíð blaðsins var
rædd. Undir slíkum kringumstæðum
er ekkert betra en að taka sér góða
bók í hönd þegar heim er komið og
láta hugann reika. Ég hafði fyrir
nokkru verið að róta í bókasafni föð-
ur míns. Mitt á milli Réttar og Rauðra
penna rakst ég á bók Hendriks Ottós-
sonar, Vegamót og Vopnagnýr. Þótti
mér það fengur enda minnugur þess,
að sögur hans um Gvend Jóns höfðu
verið mitt uppáhald í æsku. Gvendur
Jóns skipaði raunar sama sess í mínu
lífi og ofurmennin skipa í hugum
bama í dag. Tók ég því bókina til
handargagns og hugði gott til. Að
kvöldi þess dags, sem undirritun
þeirra samninga lauk, sem tryggðu
áframhaldandi útgáfu Alþýðublaðs-
ins var ég akkúrat þar kominn þar
sem Hendrik fjallar um Alþýðusam-
bandsþingið 1926. Þá var Alþýðu-
blaðið 7 ára, fjármál þess komin í
óefni og málið til umfjöllunar á þing-
inu. Jafnframt var til
afgreiðslu, tillaga um
inngöngu Alþýðu-
sambandsins í Al-
þjóðasamband sósí-
aldemókrata, svo-
nefnt 2. intemati-
onale, sem laut stjóm
sossanna á Norður-
löndum og þá sér-
staklega Dana undir forystu Th.
Stauning. Þessi tillaga um samstarf
við norræna sossa féll ekki að hug-
myndum róttækari arms Alþýðusam-
bandsins, sem heldur kaus inngöngu í
3.intemationale, sem stjómað var frá
Moskvu. Hendrik Ottósson heldur
því fram í fyrmefndri bók, að sam-
bandsþingið hafi valið
2.intemationale og hafnað samvinnu
við Moskvu sökum þess, að Th.
Stauning hafi lofað veglegum styrk,
sem tryggja myndi útgáfu Alþýðu-
blaðsins. Þegar hér var komið sögu
hlýtur mér að hafa rannið í brjóst, því
skyndilega fannst mér ég staddur í
hinni fomu borg Póllands, Stettin.
Hana hafði ég nýlega heimsótt og
orðið fyrir miklum áhrifum. Hvað um
það, þá fannst mér ég virða fyrir mér
að nýju, niðumíddar kirkjur þessarar
frægu borgar, sem rísa eins og fom-
aldareðlur upp úr skógi kolareiktra
blokka, sem augljóslega hýsa enn í
dag aragrúa pólskra verkamanna, þó
raunar mér sýndust þær vart heyra til
mannabústaða. Það skrýtna var að
mér fannst ég staddur hér heima en
ekki í Póllandi. Við það hrökk ég upp
og leit út um gluggann og yftr blóm-
legar byggðir Kópavogshálendisins
með sóknarkirkjuna mína í forgrunni.
Mér létti. Þá rann það upp fyrir mér,
að ef til vill hefðu fjárhagsvandræði
gamla góða Al-
þýðublaðsins, sem
rædd vom og út-
kljáð á Alþýðu-
sambandsþinginu
1926 forðað fs-
landi úr bjam-
arfaðmi Moskvu-
valdsins og frá
þeim örlögum sem
síðar urðu Póllands. Svo áður en
svefninn tók mig þetta kvöld vom
glennumar hennar Kollu gleymdar
og sálin sátt. Alþýðublaðið komið í
höfn eina ferðina enn, reiðubúið með
öll sín vandræði, gömul og ný, til að
halda áfram að skapa íslendingum ör-
lög enn um sinn.
Höfundur er formaður
framkvæmdastjórnar Alþýöuflokksins.
Þá rann þaö upp fyrir mér, að ef til vill hefðu
fjárhagsvandræði gamla góða Alþýðublaðs-
ins, sem rædd voru og útkljáð á Alþýðusam-
bandsþinginu 1926 forðað Islandi úr bjarnar-
faðmi Moskvuvaldsins og frá þeim örlögum
sem síðar urðu Póllands.
Því hefur veriö fleygt að á fundi
útvarpsráös í næstu viku veröi
tekinn fyrir Dagsljós þátturinn þar
sem fylgst var meö Hjálmari Árna-
syni og Margréti Frímannsdóttur
sem voru gestir námsmanna í einn
dag. Björn Bjarnason mennta-
málaráöherra afþakkaöi boöiö en
Jóhannes Kristjánsson eftir-
herma fór meö hlutverk ráöherrans.
Björn geröi sem kunnugt er athuga-
semdir viö þetta á heimasiöu sinni
á netinu en þar sem hann er æðsti
yfirmaöur Sjónvarpsins kunna slík-
ar snuprur að sýnast alvarlegar...
Bæjarfulltrúa Alþýöubandalags-
ins i Hafnarfiröi Magnús Jóm
Árnason, eöa Magga svarta eins
og hann er kallaður, dreymir um að
komast aftur í bæjarstjórastólinn,
þó engar líkur séu á því það sem
eftir lifir þessarar aldar. Hann á líka
undir högg að sækja vegna þess aö
Lúövík Geirsson sem einnig er
bæjarfulltrúi allaballa sækir fast til
hærri metoröa og á hauk í horni þar
sem er faðir hans, Geir Gunnars-
son alþingismaður. Margir telja aö
hann myndi skáka Magnúsi Jóni i
prófkjöri. Lúðvík lét þó á dögunum
teyma sig í viðtal þar sem hann lýsti
áhuga sínum á aö veröa þingmaður
Reyknesinga og því ekki útilokað
aö hann reyni aö velta um koll nú-
verandi þingmanni, en það er Sig-
ríöur Jóhannesdóttir sem tók viö
að Ólafi Ragnari þegar hann fluttist
á Bessastaöi. Þinglosti Lúövíks,
sem er bæöi hæfur og metnaöar-
gjarn ungur maöur, gæti því bjargað
Magga svarta í næsta prófkjöri...
Aöstandendur listmunagallerís-
ins Foldar gefa út lítinn og
skemmtilegan Listapóst þar sem oft
má lesa fróðleg viöhorf um list. Þar
er stundum fjallaö um listfræöinga.
Mikiö írafár varö síðastliðið haust í
félagi þeirra yfir grein sem birtist þar
í september. því lyktaöi meö snúö-
ugu bréfi til gallerísins. Þar var þess
vinsamlega óskað að eftirfarandi
listfræðingar yröu teknir út af boðs-
lista gallerísins: Þorgeir Ólafsson,
(Vinnur hjá Bibl frænda.) Aöal-
steinn Ingólfsson, Gunnar Kvar-
an og Óli, stóri bróöir. Halldór B.
Runólfsson, (þetta Ijós okkar á Al-
þýðublaðinu sem aldrei móögast.)
Kristfn Guönadóttir, Júliana Gott-
skálksdóttir, Bera Nordal, Ellsa
B. Þorsteinsdóttir, Hannes Sig-
urðsson, Hrafnhiidur Schram, og
Auöur Ólafsdóttir. Það var ekki
nóg meö að hinir móöguöu listfræö-
ingar viidu afmá sin æruveröugu
nöfn af listanum, heldur kröföust
þeir aö allar þær stofnanir sem þeir
ynnu við, yröu teknar af listanum.
Þarna er um aö ræöa stofnanir á
borð viö Háskóla íslands, Ríkisút-
varpiö, Myndlista og Handíöaskól-
ann, sjálfa Norrænu ráðherranefnd-
ina og meira aö segja Menntamála-
ráðuneytið.. Þegar upp var staöiö
voru þaö þó aðeins Geröuberg,
Listasafn Einars Jónssonar, Lista-
safn Kópavogs og Listasafn ís-
lands, sem héldu því til streitu aö
vera strikuð út af listanum. Sam-
kvæmt þessu virðast viökomandi
listfræðingar álíta að þessar stofn-
anir séu prívatstofnanir viökomandi
fræöinga en ekki menningarstofn-
anir I eigu fólksins. Væntanlega
munu forsvarsmenn þeirra aö sama
skapi krefjast þess hið fyrsta aö
þær verði strikaðar út af fjárlögum
rikisins og viökomandi sveitarfé-
laga. Þá er bara einni lítilli spurn-
ingu ósvarað. Hver kostar styrjald-
arrekstur listfræðingana gegn litlu
galleríi meö óþægilegar skoöanir?
Bréfið sem þeir sendu var stimplað
meö frímerkjavél númer 3001. Það
númer er skráö á opinbera stofnun,
hvort er þaö nú Bibi frændi í ráðu-
neytinu eöa Ráöhúsiö...
hinamegin
"FarSide" eftir Gary Larson
Björn Heiðar Björnsson Guðmundur Björnsson
sölumaður: sölumaður:
“Ég hef ekki hugmynd um “Hann heitir Vaclav Klaus."
það.“
Harpa Karlsdóttir
skrifstof ustjóri:
“Vaclav Klaus.“
Anna Lovísa Þórisdóttir
nemi:
“Hann heitir Vaclav K eitt-
hvað.“
Stephanie Cleveland
hermaður:
“Ég heyrði það í fréttum í
morgun en man ekki nafnið."
m q n n
Samband móður og barns er
ekki eins náið á íslandi og í
Bandaríkjunum og Japan sam-
kvæmt samanburðarrannsókn-
um.
Baksíðufrétt, Mogginn i gær.
“Gítarsóló - My Generaiiom,
heitir þema þessarar sýningar
og mun hún fjaila um hippa-
kynslóðina og það sem hún
hefur lifað og reynt.”
Bjartmar Guðlaugsson er kominn heim, en
hann er aö undirbúa rhyndlistarsýningu í
Óðinsvéum. DT í gær.
“Ekkert jafnast á við að koma
sjálfum sér á framfæri í hinu
skærtendraða Dagsljósi nema
ef vera kynna að hossa sér og
flissa í sófanum hjá Hemma.”
Oddur ( DT I gær.
Hún á líka vinnualka fyrir
mann. Mann sem aldrei hættir
fyrr en hann hefur fengið sínu
fram. “Ég er mjög stolt af
honum, tökum dúkkurnar sem
dæmi. Ef hann hefði ekki
barist fyrir þeim hefði aldrei
orðið af þessu.”
Karen Mulder, feguröardís er vel gift. DT í
gær.
Lík Dengs Xiaopings, æðsta
leiðtoga Kína, sem lést í gær
verður brennt í splunkunýjum
ofni sem var sérstaklega
keyptur fyrir hann til að koma
í veg fyrir að aska hans bland-
ist ösku óæðri manna, að því
er kínverskir heimildarmenn
sögðu í morgun.
Mold varstu og æöri mold muntu aftur
veröa. DV í gær.
“Það er viss mannfyrirlitning í
þeirri launastefnu sem fylgt er
á íslandi. Laun er miðuð við
að hvorki sé hægt af lifa af
þeim né deyja. Aðeins að
hrærast í sífelldum ótta.”
Unnur Jónsdóttir skrifar í Lesendadálk DV
í gær.
Það væri því sskilegra að bar-
dagaseggir nútímans væru
manngleggri en raun ber vitni.
Það setur fjölda saklausra í
mikinn vanda ef trantaralýður
þessi valsar um og lemur fólk
af handahófi.”
Dagfari fjallar um þegar þrír menn réöust
inn á heimili manns og rændu honum og
böröu síðan. Þeir reyndust hinsvegar hafa
gripiö rangan mann. DV (gær.
“Hvort viija yfirvöld að konur
misnoti atvinnuleysisbæturnar
eða fái lengra fæðingarorlof.”
Fríöa Björk Másdóttir í Velvakanda Mogg-
ans í gær.
miLLÆminnm
Núfinnst mér
það allt svo lítið og lágt
sem lifað erfyrir og barist er móti
Þó kasti þeir grjóti og hati og
hóti,
við hverja smásál ég er í sátt.
Brot úr Ijóöinu Norðurljós eftir Einar Bene-
diktsson en Ijóöiö er Ijóö dagsins í bók
Sigurbjarnar Einarssonar biskups en þar
hefur Sigurbjðrn valið Ijóð og orð til íhug-
unar fyrir hvern dag ársins.