Alþýðublaðið - 21.02.1997, Síða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997
stúdenta
Magnús Árni Magnússon hitti Vilhjálm H. Vilhjálmsson formann Stúdentaráðs og ræddi við hann
Menntastefna íslenskra stjórnvalda er ekki til
Vilhjálmur: “Þaö má miklu breyta og eina leiðin sem ég sé til að svo megi
veröa er að þaö verði hér til stór jafnaðarmannaflokkur."
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er
laganemi við Háskóla Islands og hef-
ur gegnt starfi formanns Stúdenta-
ráðs í vetur. Hann hefur auk þess ver-
ið nokkuð virkur í landsmálapólitík-
inni og tók mikinn þátt í stofnun
Grósku, samtaka jafnaðarmanna og
félagshyggjufólks nú á dögunum og
situr í fyrstu stjóm þeirra samtaka.
Einnig hefur Vilhjálmur þótt æði
skeleggur baráttumaður fyrir hags-
munum námsmanna og hefur
ákveðnar skoðanir á því hvað þarf til
að koma menntamálunum í skikk á
íslandi. Kosningum í Háskólanum er
nýlokið og Vilhjálmur mun láta af
störfum fljótlega.
Fyrst um úrslit kosninganna, hver
eru viðbrögð þín?
“Ég er að sjálfsögðu afskaplega
ánægður. Þetta er stærsti sigur
Röskvu á Vöku síðan samtökin buðu
fyrst fram 1988. Raunar er þetta
minnsta fylgi sem Vaka hefur fengið
síðan félagið var stofnað 1935. Það
hljóta að teljast ótvíræð skilaboð um
það að starf Röskvu hefur skilað ár-
angri. Ekki hvað síst í baráttunni um
breytingar á Lánasjóðnum. Stefna
Röskvu í lánamálum er skýr og mik-
il vinna liggur að baki. En baráttan
stendur enn og þess vegna er það
mikill styrkur að vita til þess hversu
afdráttarlaus stuðningur stúdenta er.
Sigurinn er jafnframt gríðarleg
hvatning fyrir það fólk sem nú kem-
ur nýtt inn í starfið, en framboðslisti
Röskvu í ár var geysilega vel mann-
aður. Eins held ég að Vaka þurfi að
draga af þessu ákveðinn lærdóm.
Undir lok kosningabaráttunnar fóru
þeir út af sporinu og fylltu skólann af
ómerkilegum óhróðri sem þeir geta
ekki staðið við núna örfáum dögum
seinna. Úrslit kosninganna sýna að
stúdentar hafna slíkum vinnubrögð-
um.“
Og hver verða helstu áherslumál-
in?
“Starf SHÍ hefur verið blómlegt og
mikið hefur áunnist og mikið af nýj-
um mikilvægum málum sem við vilj-
um hrinda í framkvæmd. Sem dæmi
má nefna atvinnumiðstöð sem væri
eins konar heils árs atvinnumiðlun.
Eins og staðan er í dag er hlutastarfa-
miðlun námsmanna þannig að þeir
sem vantar menn í vinnu hringja í
okkur, en ef þessi hugmynd nær fram
að ganga myndum við leita að laus-
um störfum. Svo er það tilraunasam-
félag í háskólanum þar sem verður
skoðuð sérstaklega staðan í jafnrétt-
ismálum. Það verða gerðar kannanir
og í framhaldi lagt fram aðgerðaplan
til úrbóta.
Eitt í viðbót sem vert er að nefna
er umræðan um aðstöðumun kyn-
slóða. Við höfum nú fengið upp á
borðið yfirlýsingu forsætisráðherra
um að taka beri upp samtímagreiðsl-
ur námslána og lækka skuli endur-
greiðslubyrðina. Það er vel, en það er
ekki nóg. Nú þarf að snúa sér að hús-
næðismálunum og skattkerfinu, útfrá
umræðunni um jaðarskatta og sam-
spili þessara þriggja kerfa, námslána-
kerfisins, húsnæðiskerfisins og skatt-
kerfisins. Auðvelda þarf ungu fólki
að koma undir sig fótunum.”
Hver hafa verið helstu verkefni
formanns SHI í vetur?
“Þau hafa verið mýmörg. Það þarf
að að halda utan um alla þessa starf-
semi, Stúdentaráðið sjálft og starfið í
undimefndum þess. Einnig hefur
mikill tími farið í lánasjóðsumræð-
una og vinnuna í kringum hana. Þeg-
ar nefndin sem átti að endrskoða lög-
in um Lánasjóð íslenskra náms-
manna var sett á laggimar ákváðum
við að fara í mikla heimildaöflun og
vinna umræðuna í nefndinni á rök-
um. Þegar öllu var á botninn hvolft
virtust þau hinsvegar ekki bíta á full-
trúa Sjálfstæðismanna í nefndinni,
þegar við lögðum fram niðurstöðum-
ar sem bentu til að bamafólk hrökkl-
aðist úr námi og sem sýndu mikla
erfiðleika við fjármögnun húsnæðis
fyrir þá sem skulda námslán.
Því breyttum við um taktík og
héldum tjaldþing um menntamál. Við
söfnuðum 15.000 undirskriftum þar
sem skorað var á stjómvöld að breyta
lögunum. Einnig stóðum við fyrir
útifundi þar sem undirskriftimar
Um Björn Bjarnason: “Mér finnst
ákaflega einkennilegt að mennta-
málaráðherra sitji uppi í ráðuneyti
og dúndri tundurskeytum á hina
ýmsu aðila eins og til að mynda
undirmenn sína og þá sem stýra
stofnunum sem heyra undir ráðu-
neytið.”
vora afhentar. Síðan kynntum við
skýrslu sem Dagur B. Eggertsson
vann að beiðni menntamálanefndar
Alþingis um áhrif breyttra laga á
LIN. Við klikktum út með henni og í
kjölfarið kom yfirlýsing frá forsætis-
ráðherra, eins og áður segir. Þessi at-
burðarrás sýnir manni að það gerðist
ekkert í þessum málum fyrr en náms-
menn gripu til sýnilegra aðgerða. Við
getum séð framfaraskrefin með
hverri aðgerð.
Við stóðum einnig fyrir söfnun á
kennslugögnum fyrir stríðshrjáða
stúdenta í Bosníu. Við skrifuðum
undir samning við Dagvist bama um
forgang fyrir böm stúdenta á leik-
skólum borgarinnar og ýmislegt
fleira.”.
Nú átt þú sœti í stjórn Grósku
hinnar nýstofnuðu og hefur þwft að
sitja undir ásökunum um að verafull
pólitískur í starf formanns Stúdenta-
ráðs. Hverju viltþú svara slíku?
“Röskva varð til sem samfylking
vinstri manna í Háskólanum og er
samtök félagshyggjufólks. Þar hefur
maður tekið eftir því að þetta sam-
starf er farsælt. Ég get ekki hugsað
mér að fara að starfa í andstöðu við
þetta fólk, sem ég hef unnið svo náið
með, í framtíðinni. Menntastefna ís-
lenskra stjómvalda er einfaldlega
ekki til. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ráðið þessu undanfarið og mun gera
það fram á næstu öld ef ekki kemur
eitthvað til. Maður hefur haft tæki-
færi til þess að fylgjast með stjóm
þessara mála úr návígi sem formaður
Stúdentaráðs. Það má miklu breyta
og eina leiðin sem ég sé til að svo
megi verða er að það verði hér til stór
jafnaðarmannaflokkur sem “for-
gangsraðar í þágu menntunar”, eins
og segir í landsfundarályktun Sjálf-
stæðisflokksins.”
Hvað sérðu fyrir þér í framtíð
Grósku? Er þetta farvegur sem þeir
sem hafa verið að bíða eftir að eitt-
hvað gerist í uppstokkun á vinstri
vœng geta sœtt sig við?
“Já, maður sér tvímælalaust fram-
tíð í Gróskunni. Þar er nú að fara í
gang öflugt málefnastarf og ég bind
miklar vonir við að það skili miklu.
Auðvitað er Gróskan fyrst og fremst
samræðugrundvöllur vinstri manna
og ég held að þetta eigi eftir að skila
þeim árangri að þessir fjórir flokkar,
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag,
Kvennalisti og Þjóðvaki, bjóði fram
saman við næstu kosningar og þá er
tilgangnum náð. Hinsvegar vildi ég
sjá fólk úr Framsóknarflokknum
koma meira inn í þetta starf því það
er tvímælalaust stór hópur þess sem á
samleið með jafnaðarmönnum. Ég
segi það við unga Framsóknarmenn
að þeir eiga fulla samleið með okk-
ur.”
Það hefur komið þannig út í fjöl-
miðlum að milli ykkar Björns
Bjarnasonar séu ekki miklir kœrleik-
ar. Hvernig hefur samskiptum for-
manns Stúdentaráðs og menntamála-
ráðherra verið háttað í vetur?
“Ég fór á fund hans fljótlega eftir
að ég tók við störfum og reyndi að
ræða efnislega við hann. A þessum
fyrsta og raunar eina, fundi okkar
vora lánamálin til umræðu, fjárveit-
ingar til háskólans og Nýsköpunar-
sjóður og það er skemmst frá því að
segja að það koma ekkert út úr þess-
um fundi og ég skynjaði það mjög
sterkt að hann vildi ekkert við okkur
“kommúnistana í háskólanum” tala.
Við höfðum reynt það árið áður, þeg-
ar forveri minn Guðmundur Stein-
grímsson var í starfi að hafa gott
samstarf við ráðuneytið og ná málum
fram þannig, en það skilaði engu. Því
þurfti að leita nýrra leiða. Við höfum
staðið fyrir áðurgreindum aðgerðum
til að ná okkar fram.
Svo hefur maður fengið ýmsar
glósur á vefsíðu ráðherrans á Inter-
netinu, eins og raunar fleiri. Mér
finnst ákaflega einkennilegt að
menntamálaráðherra sitji uppi í ráðu-
neyti og dúndri tundurskeytum á
hina ýmsu aðila eins og til að mynda
undirmenn sína og þá sem stýra
stofnunum sem heyra undir ráðu-
neytið. Hann virðist ekki geta skilið á
milli samskipta sem hann á sem
menntamálaráðherra og annarra sam-
skipta og tekur allt mjög persónuiega
sem að honum er beint sem stjóm-
mála- og ráðamanni. Það er vondur
eiginleiki stjómmálamanns.”
Nú ert þú laganemi og hefur haft á
orði að það verði kærkomið að geta
snúið sér að náminu á nýjan leik eft-
ir miklar annir sem formaður Stúd-
entaráðs. Ertu að halda því fram að
þér líki lagastaglið betur en pólitík-
in?
“Lögfræði er afskaplega áhugavert
fag. Kannski era þó þær kennsluað-
ferðir sem era viðhafðar við laga-
deildina hálf fomeskjulegar. Ég held
ekki að besta aðferðin til að kenna
lög sé að hrúga fólki í kennslustofur
og messa yfir því. Menn skrifa það
sem kennarinn segir orðrétt upp og
læra það utanbókar og setja síðan
fram með nákvæmlega sama hætti á
prófum. Svo finnst mér að réttarsögu
og réttarheimspeki mætti gera betri
skil. Þegar ég var á fyrsta ári í Heim-
spekilegum forspjallsvísindum hjá
Páli Skúlasyni, þá kom einn nemand-
inn út úr kennslusalnum og sagði:
“Hvaða fjas er þetta um réttlæti, ég
hélt ég væri að læra lögfræði”. Það
háir einnig dálítið faginu að menn
innan þess era fremur lítið sigldir
eins og sjá má á lögfræðingunum í
ríksisstjóminni. Það vantar víðsýni í
fagið.”
Segðu lesendum Alþýðublaðsins
aðeins afþínum persónulegu högum.
Hefurðu einhvern tíma fyrir fjöl-
skyldulíf?
“Þú þyrftir helst að spyrja sambýl-
iskonu mína Þórdísi Guðmundsdótt-
ur að því. Auðvitað hefur verið lítill
tími þetta árið og allra minnstur í
kringum þessar kosningar. En Þórdís
er skilningsrík. Ég var búinn að segja
henni það áður en við byrjuðum að
búa saman að hún myndi ekki sjá
mig mikið þetta árið og hún skrifaði
upp á það, en ég hef lofað bót og
betrun þegar ég læt af störfum um
miðjan mars.”
Viðtalstímar á
flokksskrifstofu
Nú er að mestu lokið við fyrsta áfanga endurbóta, sem unnið
hefur verið að á skrifstofu Alþýðuflokksins á annarri hæð í Al-
þýðuhúsinu við Flverfisgötu í Reykjavík. í framhaldi af því verða
teknir upp fastir viðtalstímar forystumanna á flokksskrifstofunni.
Formaður Alþýðuflokksins, Sighvatur Björgvinsson, verður
með viðtalstíma á flokksskrifstofunni í dag, föstudaginn 21. febr-
úar kl. 10-12 fyrir hádegi.
Síminn á skrifstofunni er 552-9244. Alþýðuflokkurin
Aðalfundarboð
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur heldur aðalfund sinn miðvikudag-
inn 26. febrúar næstkomandi í Kornhlöðunni, Bankastræti.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Niðurstaða uppstillingarnefndar liggur fyrir á skrifstofu Alþýðu-
flokksins.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta. Stjórnin
Félagsfundur Grósku
Fyrsti félagsfundur Grósku verður haldinn næstkomandi laugardag
22. febrúar í Bræðraminni, Kiwanishúsinu við Engjateig 11 og hefst
fundurinn kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Steinunn V. Óskarsdóttir talsmaður Grósku ávarpar fundinn.
2. Hrannar B. Arnarson greinir frá málefnahópum og starfinu
framundan.
3. Umræður um samtökin og framtíðina.
4. Fjöldasöngur.
Fundarstjóri er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Stjórnin
Fundur á Húsavík
Alþýðuflokksfélag Húsavíkur efnir til almenns stjórnmálafundar á
Hótel Húsavík sunnudaginn 23. þessa mánaðar kl. 16:00.
Gestur fundarins verður Sighvatur Björgvinsson, formaður Al-
þýðuflokksins.
Fundurinn er öllum opinn. Stjórn félagsins