Alþýðublaðið - 03.04.1997, Qupperneq 1
Fimmtudagur 3. apríl 1997
Stofnað 1919
42. tölublað - 78. árgangur
Mikið rask hefur verið í miðbænum, þar sem Austurstræti er sundurgrafið, það er frá Lækjar-
götu að Pósthússtræti. Framkvæmdum verður ekki lokið fyrr en 7. júní, það er samkvæmt
áætlun. iiHiiBuiii - bg
■ Ríkisstjórnin
Sammála um
að gera ekkert
Skortir ekki lagaheimildir til
að taka stjórnina af eigend-
um skipsins
“Það má sjálfsagt gagnrýna ýmsa
hluti í framkvæmdinni og hvemig til
hefur tekist. Stjómvöld heima fyrir og
í ráðuneytum hafa lýst óánægju sinni
með framkvæmdina og seinaganginn.
Ég get ekki sagt að ég sé kátur með
hvemig hefur gengið," sagði Guð-
mundur Bjamason umhverfisráð-
herra, þegar hann var spurður um
vandræðaganginn varðandi Vikartind
og framkvæmdir á strandstaað.
“Þau ráðuneyti sem að málinu
koma, það er dómsmálaráðuneyti og
umhverfisráðuneyti, hafa verið sam-
mála um það að það bæri að láta
skipafélagið og tryggingafélag þess
bera ábyrgð á þessu og annast fram-
kvæmdina. A fyrsta fundi, eftir að ég
byrjað að hafa afskipti af þessu máli,
var yfirlýsing frá þeim um þeir tækju
ábyrgð á að hreinsa mslið, losa olíuna
úr skipinu og farminn og að auki að
fjarlægja skipið. Þetta höfum við frá
þeim og þeir hafa, þó okkur hafi þótt
ganga bæði seint og illa, samið við
verktaka um að hreinsa mslið, um að
losa farminn og eins hafa þeir sjálfir
unnið að því að ná olíunni úr skipinu.
Meðan allt þetta hefur verið í gangi,
og ekki orðið meiri áföll en orðið
hafa, höfum við verið sammála um að
grípa ekki inn í.
Skortir ykkur lagaheimildir til að
grípa inn í?
“Nei, það skortir ekki lagaheimild-
ir. Við höfum talið að það sé betra að
láta þá annast þetta og bera kostnað-
inn. Það er ljóst að þegar og ef við
tökum málið yfir, þá segðu þeir gott
og vel hafið af þessu allan veg og
vanda. Það má vel vera að það hafi
verið röng afstaða að gera það ekki
strax og láta íslensk fyrirtæki og fs-
lendinga annast málið. Þetta var nið-
urstaðan og er enn. Ég vona að innan
tveggja daga verði olían áfallalaust
komin úr skipinu og hreinsunarstarf
er í gangi, þó mönnum þyki það
ganga hægt. Mér þykir leitt að heima-
menn hafi lent í innbyrðiskarpi um
eignarhald og fleira, en ég ræð ekki
við það. Ég vona að aðgangur starfs-
manna sé tryggður."
Hefur verið rætt í ríkisstjóminni að
íslensk stjómvöld taki málið yfir?
“Það hefur tvívegis verið rætt í rík-
isstjóminni og í bæði skiptin höfum
við verið sammála um að gera það
ekki. Það hefur verið sameiginleg af-
staða okkar. Við höfum verið sam-
mála um að þeir sem ábyrgðina bera
standi við sínar yfirlýsingar. Reyndar
höfum við ekki rætt þetta allra síðustu
daga.“
Sjómenn til sátta
Sjómannafélag Reykjavíkur og
viðsemjendur þeirra hafa vísað kjara-
viðræðum sín á milli til ríkissátta-
semjara, það er þeim hluta sem lýtur
að farmönnum.
“Við fómm upphaflega fram með
þá kröfu að lægstu laun hækkuðu úr
57 þúsund krónum í 90 þúsund.en nú
fömm við fram á 70 þúsund í lág-
markslaun, en því hefur alfarið verið
hafnað. Það var því ekkert annað að
gera en vísa málinu til sáttasemjara.
Hann hefur ekki boðað til fundar,"
sagði Jónas Garðarsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur.
■ Leikfléttur í lífeyrismálum
Hvorki trúnaðarmál né tilviljanir
Eins og alkunna er, eru flest al-
menningshlutafélög á fslandi meira
og minna í eigu annara almennings-
hlutafélaga, sem oft em bankar, líf-
tryggingafélög og verðbréfafyrir-
tæki, sem aftur em í eigu hlutafélaga,
sem tiltölulega fáir og útvaldir eiga.
A.m.k. eiga þeir nóg til að stjórna
þeim, því alveg er það dæmalaust
hve mikið af eigendum og stjómend-
um síðastnefndu félaganna situr í
stjómum allra hinna félaganna.
Stundum er þetta eignarhald í ís-
lensku atvinnulífi kallað Kolkrabb-
inn. Þetta segir meðat annars í grein
sem Magnús Norðdahl, skrifar um
lífeyrismál og er á bls. 7. Hér á eftir
fer hluti greinarinnar.
Málið er, að tilvist lífeyrissjóðanna
og rekstur þeirra em málefni kjara-
samninga og þeim stjómar Krabbinn
ekki. Að minnsta kosti ekki fyrr en
honum tekst að leysa verkalýðs-
hreyfinguna upp í fmmeindir sínar.
Það var reynt þegar einn heimilis-
kötturinn, ættaður af Höllustöðum,
keyrði í gegn restamar af nýju vinnu-
löggjöfinni. En það má reyna ýmis-
legt annað og sérstaklega ef
fylgispök og hentug ríkisstjóm situr.
Þá er ekki útséð um, að hægt sé að
krækja sér í væna sneið af lífeyris-
spamaði almennings.
Nú undir páska, eða rétt í þann
mund er pennamir fóm á loft til þess
að skrifa undir kjarasamninga láku
þær fréttir út, að fjármálaráðherra
væri að leggja síðustu hönd á nýtt
fmmvarp til laga um lífeyrissjóði.
Þar skyldi einkavæða lífeyriskerfið
að nokkm eða vemlegu leyti. f frum-
varpinu, sem forsætisráðherra dreifði
sem trúnaðarmáli vítt og breytt, er
ráð fyrir því gert að horfið sé af
braut samtryggingar í lífeyrismálum
inn á braut séreignarlífeyrissjóða.
Samtryggingin, sem er skyldubund-
in, fer nú fram í lífeyrissjóðum
verkalýðshreyfingarinnar en sér-
eignasjóðimir, sem eru frjálsir eru
myndaðir í bankakerfinu. Skv. trún-
aðarmálinu munu bankar, sparisjóðir,
líftryggingafélög og verðbréfafyrir-
tæki fá einkarétt á rekstri séreignalíf-
eyrissjóða.
Þessir aðilar fá jafnframt heimild
til þess að hefja rekstur samtrygg-
ingasjóða. Lífeyrissjóðir verkalýðs-
hreyfingarinnar em aftur á móti
vængstífðir.
Loksins! - lyf
sem vinnur
gegn skalla!
Pilla bælir virkni hormóns
sem rýrir hárfrumur. Auka-
verkanir geta leitt til dvínandi
kynhvatar og minni reisnar.
Pilla, sem eykur verulega hárvöxt
á sköllóttum körlum var páskagjöf
bandaríska fyrirtækisins Merck og
Co. til þeirra, sem eiga þá ósk
heitasta að sjá skalla sinn hverfa í
beðju nýrra hára. Um 48-65 prósent
þeirra sem tóku lyfið fengu aukinn
hárvöxt, en aðeins um 7 prósent
þeirra sem fengu gervipillur.
Fyrir þá sem æskja aukins hárvaxt-
ar til að ganga í augum hins kynsins
hefur pillan þó dapurlegar aukaverk-
anir, sem geta birst í rninni kynhvöt
og erfiðleikum við að ná fullri reisn
þegar mest liggur við.
Niðurstöðumar vom kynntar fyrir
skömmu á stórum fundi amerísku
húðfræðisamtakanna af Keith
Kaufman, sem starfar fyrir Merck og
Co. Niðurstöðumar byggja þó ekki
aðeins á mati fyrirtækisins, heldur
staðfesti skoðun vinnuhóps óháðra
vísindamanna ályktanir Kaufmans.
I rannsókninni var tattórveraður
2,5 sentímetra breiður hringur á höf-
uðleður 1,550 karla undir 45 ára
aldri, og að meðaltali spruttu 107 hár
innan hringsins. Þetta er mun betri
árangur en nokkurt fyrri skallalyfja
getur státað af.
Lyfið, sem heitir finasteride, bæl-
ir virkni hormónsins, sem leiðir til
rýmunar frumunnar, sem hárið vex
úr. Það er því einstakt meðal skalla-
lyfja, sem fæst hafa virkað til þessa,
að því leyti að það hamlar framvindu
þeirra líffræðilegu ferla, sem eru
fmmorsök skalla.
MHMBUBIB
■ Margrét Frímannsdóttir um Vikartind
Eitt klúður frá upphafi
“Ég er mjög ósátt með allan frá-
gang og hreinsun á rusli. Þetta er eitt
klúður frá upphafi. Að það skuli ger-
ast, þegar mánuður er frá slysinu, að
menn séu enn vera að velta ábyrgð-
inni á milli sín og benda hver á ann-
an,“ sagði Margrét Frímannsdóttir,
formaður Alþýðubandalagsins og
þingmaður Sunnlendinga, um að-
gerðir eða aðgerðarleysi vegna Vik-
artindsslyssins.
“Það sem við getum lært af þessu
er, að til verður að vera, viðbragðsá-
ætlun fyrir allt landið og öll tvímæli
verði tekin af hver getur tekið af
skarið. Margrét segir þetta mál vera
fjórþætt, ruslið í fjömnni, björgun
farmsins, olían í skipinu og skips-
flakið. Hún segir enga yfirstjóm vera
yfir málinu. „Ég hélt að þetta væri
hlutverk viðbragðsnefndarinnar, sem
Eiður Guðnason skipaði 1991 í fram-
haldi af mengun sem þá varð, að
bregðast við nú. En nefndin var ekki
kölluð saman fyrr seint og um síðir.
Ég hlýt að vera mjög ósátt með allan
ffamgang þessa máls.“
Margrét segir sjávarmengunar-
deild Hollustuvemdar hafa unnið að
málinu, en í deildinni em aðeins þrír
menn. Hún segir yfirstjómina vanta,
en að ábyrgðin sé umhverfisráðherra
og hans ráðuneytis.
“Menn hafa ömgglega haldið nógu
marga fundi og vísað hver á annan.
Niðurstaðan er að engu að síður sú,
að mánuði eftir slysið, er þetta ekki
enn í lagi og það er óviðunandi."