Alþýðublaðið - 16.12.1997, Síða 6
6
ALÞÝPUBLAPIP
Desember 1997
Tökum þátt í
uppbyssinsarstarfi
fatladra
f*:) ;<»i f* : i i ji io frn: i lSMÍffl1 @ m * * 0 0
MSa| I t\\án f) i«l «J í 'M I 11 ; l 11 f l *) «) « I ff?!,).» I fí
i í‘vf if' *;!*i«5 f).«5iii «)‘j » ixitlliii,í;i
Stöðugleiki og framfarir í Reykjavík
Reykjavíkurlistinn hefur lokið
við og lagt fram í borgarstjórn
Qárhagsáætlun fyrir árið 1998.
Með henni er merkum áfanga
náð í því uppbyggingarstarfi sem
Reykjavíkurlistinn hefur staðið
fyrir í borginni á kjörtímabilinu.
Skuldasöfmm stöðvuð
Með Reykjavíkurlistanum hafa
verið teknir upp lýðræðislegir
stjórnarhættir. Stjórnsýsla borg-
arinnar gerð skilvirkari og
opnari. Dagvistunar og skóla-
málum hefur aldrei verið betur
sinnt til hagsbóta fyrir ungt fólk í
borginni. Markviss framtíðar-
stefna í atvinnumálum sem nú
þegar er farin að skila árangri í
stað kostnaðarsamra bráða-
birgðalausna, en skráðum atvin-
nulausum hefur fækkað í
Reykjavík og hafa ekki verið færri
síðan 1992.
Festa í fjármálum
Undir öruggri stjórn Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra hefur tekist að stöðva
skuldasöfnun borgarsjóðs og
samkvæmt útkomuspá fyrir árið
1997 hafa skuldir borgarsjóðs
lækkað að raungildi um 550
milljónir króna milli 1996 og
1997. Reykjavíkurlistinn hefur
staðið við það lóforð að hækka
ekki útsvar og halda álögum á
borgarbúa í lágmarki. Hvergi í
Iandinu greiða íþúar lægra útsvar
og fasteignagjöld eru með því
lægsta sem þekkist í landinu.
Viðmiðunartölur vegna lækkun-
ar fasteignaskatts og holræsa-
gjalds til handa elli -og
örorkulífeyrisþegum hafa verið
hækkaðar um 18,33% fyrir árið
1998
Hreinsun strandlengjunnar
í holræsamálum er nú Iokið
framkvæmdum hreinsistöðvar
við Mýrargötu. Stærsta verkefnið
á næsta ári er 1. áfangi nýrrar
dælu- og hreinsistöðvar við
Laugarnes sem lokið verður við
árið 2000. Að því loknu verður
hreinsun strandlengjunnar
umhverfis Reykjavík að mestu
lokið. Þessar framkvæmdir hafa
verið fjármagnaðar með hol-
ræsagjaldi borgarbúa en ávinn-
ingurinn skilar sér í hreinum
fjörum og heilbrigðu lífríki nát-
túrunnar í borginni. A næsta ári
verða byrjunarframkvæmdir
hafnar við útivistar-og bað-
aðstöðu í Nauthólsvík. Fjár-
framlag til holræsaframkvæmda
á árinu 1998 verða 571 milljón
en á móti koma 440 milljón
króna tekjur af holræsagjaldi.
Samtais hefur þá verið varið
rúmlega 2100 milljónum króna
til framkvæmda á þessu
kjörtímabili. Eg sem
skattgreiðandi er stoltur af þessu
ágæta framtaki borgarstjórnar,
þar hefur fjármunum verið vel
varið.
Nýjungarí íþróttamálum
I íþrótta og tómstundamálum
hafa verið farnar nýjar og árang-
ursríkar leiðir. Gerðir hafa verið
þjónustusamningar við ýmsa
aðila um rekstur íþróttamann-
virkja.
KSI hefur tekið við rekstri
Laugardalsvallar og byggt þar
nýja stúku án hækkunar álaga á
borgarbúa svo nú uppfyllir vöil-
urinn alþjóðastaðla. Iþróttafélög
hafa komið meira inn í rekstur
íþróttamannvirkja. Knattspyrnu-
félagið Þróttur hefur verið flutt í
Laugardal þar með nýtast þau
mannvirki betur sem fyrir hendi
eru Valbjarnarvelli og gervi-
grasið. Framkvæmdir eru hafnar
á yfirbyggingu Skautasvells ein-
sog borgarbúar vita. Það mun
stórbæta aðstöðu fyrir íþróttina,
sem er ein
vinsælasta vetraríþrótt á Islan-
di auk þess sem almenningi gefst
meira tækifæri til að stunda
skauta. Borgin hefur gert samn-
ing við IBR um rekstur
hallarinnar og sjá þeir alfarið um
fjármögnun byggingarinnar og
rekstur hennar.
Framtíöarsýn
Á þéssu kjörtímabili hefur verið
lagður grunnur að því að gera
Reykjavík að gróskumikilli fjöl-
skylduborg þar sem búið er í
haginn fyrir framtíðina.
Framtíðarsýnin er að Reykjavík
verði framúrskarandi borg til
búsetu jafnt fyrir fólk sem
fyrirtæki. I allri starfsemi bor-
garinnar verði fyllsta virðing
borin fyrir íbúum hennar.
Reykjavík verði nútímaleg
höfuðborg í góðum tengslum við
umheiminn í góðri sátt við land
og þjóð.
Rúnar Geirmundsson.