Alþýðublaðið - 10.03.1995, Page 1
Helgin 10.-13. mars 1995 Stofnað 1919 40. tölublað - 76. árgangur
■ Á síðustu stundu tókst að koma f veg fyrir að ekkert yrði úr Smuguveiðum íslendinga
sem hafa skilað þjóðarbúinu milljörðum króna
Þorsteinn ætlaði að
banna veiðamar
-segir Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóri á Þórshöfn sem er
frumkvöðull að veiðum íslenskra skipa í Barentshafi.
„Það for allt upp i loft 1 sjav
arútvegsráðuneytinu sumarið
1993 þegar það spurðist að við
ætluðum til veiða í Barents-
hafi. Ráðuneytið ákvað að
setja reglugerð sem bannaði
okkur þessar veiðar,“ segir Jó-
hann A. Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar hf., í viðtali við Alþýðu-
blaðið.
„Þetta var á föstudegi en við
fórum bæði í Jón Baldvin
Hannibalsson og Davíð Oddsson
með málið. Það bar þann ár-
angur að þeir óskuðu eftir því
að frestað yrði setningu þessar-
ar reglugerðar fram yfir ríkis-
stjórnarfund á þriðjudegi. Við
sáum að þarna mátti engan
tíma missa því þeir í ráðuneyt-
inu voru harðir á að banna
veiðarnar. Fyrstu skipin fóru á
stað í Smuguna strax á föstu-
dagskvöld því við gerðum okk-
ur grein fyrir því að ef við
kæmust á stað yrði málið ekki
stoppað,“ segir Jóhann A.
Jónsson. A síðustu tveimur ár-
um var heildarúthafsafli ís-
lenskra skipa og skipa í eigu Is-
lendinga í Barentshafi og norð-
urhöfum nálægt 50 þúsund
tonn. Aflaverðmæti var um 2,7
milljarðar króna uppúr sjó og
verðmætasköpun hér innan-
iands gæti verið annað eins.
„Það er ekkert smámál ef við
getum haldið áfram að taka 40
til 50 þúsund tonn af þorski í
Smugunni og fengjum það við-
urkennt tii kvótaúthlutunar í
næstu framtíð. Það væri engin
smáræðis búbót fyrir samfé-
lagið,“ segir Jóhann.
- Siá viðtal á blaðsíðu 7.
Þorsteinn Páisson tekur á móti Brian Tobin sjávarútvegsráðherra Kan-
ada, eftir að Tobin hafði formlega viðurkennt yfirráð Noregs í Norður-
höfum. „Það fór allt upp í loft í sjávarútvegsráðuneytinu sumarið 1993
þegar það spurðist að við ætluðum til veiða í Barentshafi," segir Jó-
hann A. Jónsson. A-mynd: E.ÓI.
Binda verður enda á óvissu um eignarrétt
fiskikvótans með ákvæði í stjórnarskrá
Afnotaréttur af
kvótanum er
óbeinn eignar-
réttur
- segir Lúðvík Bergvinsson
og bendir á að dómstólar
hafi staðfest að afnotaréttur
verði ekki tekinn af mönnum
nema fullt verð komi fyrir.
„Stefnuleysi í stjóm fiskveiða hef-
ur leitt til mikillar óvissu um rétt út-
gerðarmanna til kvótans. Þeir sem
hafa farið með þessi mál síðan 1984
hafa aldrei hugsað dæmið til enda, til
dæmis að afnotaréttur getur talist til
óbeinna eignarréttinda," sagði Lúð-
vík Bergvinsson lögfræðingur sem
skipar 1. sæti á lista Alþýðuflokksins
á Suðurlandi við Alþýðublaðið.
Lúðvík hefur bent á að með fram-
kvæmd fiskveiðistjómunarlaganna sé
hætta á að verið sé að festa eignarrétt
útgerðarmanna á fiskikvóta í sessi.
Þar visar Lúðvík til dóms Hæstaréttar
um að eignfæra kvóta, álits Ríkisend-
urskoðunar og úrskurðar sýslumanns-
ins í Reykjavík um að greiða skuli
erfðafjárskatt af kvóta, framsalsheim-
ildir laganna um fiskiveiðistjómun og
hugmyndum Þorsteins Pálssonar um
veðsetningu kvóta. Þeir Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra og
Halldúr Asgrímsson formaður
Framsóknarflokksins halda því hins
vegar fram að afnotaréttur útgerðar-
manna að miðunum konti eignarrétti
ekkert við. „Mcnn virðast ekki hafa
gert sér grein íyrir því í upphafi að
kvóti færi að erfast og farið yrði að
veðsetja hann. Það fer ekki milli mála
að það rikir óvissa um eignanéttarlegt
tilkall útgerðarmanna til kvótans. Það
er nefnilega svo að afnotaréttur telst
til óbeinna eignarréttinda. Gaukur
Lúðvík Bergvinsson: Stefnuleysi í
stjórn fiskveiða hefur leitt til mik-
illar óvissu um rétt útgerðar-
manna til kvótans. A-mynd: E.ÓI.
Jörundsson skrifaði doktorsritgerð
sina um eignamám og þar segir hann
meðal annars: „Afnotaréttindi verða
tvímælalaust talin til eignar í skilningi
67. greinar stjómarskrárinnar." Fleiri
taka í sama streng, svo sem stjóm-
lagafræðingamir Bjarni Benedikts-
son og Ólafur Jóhannesson. Dóm-
stólar hafa staðfest að afnotaréttur
verður ekki tekinn af mönnum nema
fullt verð komi fyrir,“ sagði Lúðvík.
,JEg tel hiklaust að það riki mikil
óvissa um það hvort útgerðarmenn
hafi með ruglingslegri Ifamkvæmd
laga um fiskveiðistjómun eignast
ákveðin réttindi sem ekki verði af
þeim tekin nema tilkomi greiðsla
bóta. Menn hafa áhyggjur af þessari
framkvæmd laganna. Sú hugmynd
Alþýðufiokksins að binda í stjómar-
skrá að auðlindir hafsins skuli vera
sameign þjóðarinnar verður því að ná
fram til að höggva á þessa réttaró-
vissu," sagði Lúðvík Bergvinsson.
T
Eyjamenn unnu frækinn sigur á Gróttu í úrslitakeppni 2. deildar í fyrrakvöld. Þarmed tryggði ÍBV sig í sessi
í efsta sæti, en úrslitakeppnin er nú nákvæmlega hálfnuð. Eyjamenn eru á beinu brautinni: Hafa unnið fimm
fyrstu leiki sína. Hér sjáum við hinn 18 ára Gunnar Berg Viktorsson, stórefnilega skyttu, svífa himinhátt yfir
Gróttuvörnina og senda þrumufleyg í markið. Við birtum myndir frá leiknum og viðtal við Sigurð Gunnars-
son þjálfara á blaðsíðu 15.
Birna Hreiðarsdóttir lögfræðingur
Tryggvi
Skjald-
arson
skrifar
um
Guðna Ágústs-
son og nefið
hans Gosa
4
Rándýr ráðherra
Leiðari 2
Jón Baldvin
skrifar um nátt-
tröll stjórnmál-
anna Paiiborð3
Golf-
meistari
í kosn-
ingabar-
áttu
Spjallað við Þorstein
Hallgrímsson 6
Þessvegna á ís-
land samleið
með EvrÓpu ítarleg
úttekt á ESB 8 & 9
Jafnrétti kynjanna ereinn
af hornsteinum ESB
„Ríki sem eingöngu eru innan EES hafa ekkert að segja með þá stefnumótun sem fram
fer innan Evrópusambandsins. Við erum einungis viðtakendur og stöndum alltaf
frammi fyrir gerðum hlut. Gjörbreyting yrði á stöðu mála hvað varðar aukna möguleika
til að jafna stöðu kynjanna ef ísland myndi ganga í Evrópusambandið. Það er ljóst...Með
því að vera þarna innanborðs munu breytingar verða smámsaman að veruleika vegna
þeirra starfsreglna sem sambandið setur sér og athugum það, að jafnrétti kynjanna á
vinnumarkaði er hornsteinn félagsmálastefnu Evrópusambandsins og á slík grundvall-
armál er lögð gífurleg áhersla," segir Bima Hreiðarsdóttir lögfræðingur í viðtali við
Alþýdublaðid á blaðsíðu 10. A-mynd: E.ÓI.
Afhverju
fá karlar
hærri
laun en
konur?
Katrín Bjarnadóttir
skrifar 13