Alþýðublaðið - 04.10.1995, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
ri.jS ð s ö_g n
■ Buster Keaton, „steinandlitið mikla" hefði orðið hundrað ára í dag. Af því tilefni
kynnti Kolbrún Bergþórsdóttir sér æviferil snillingsins
Snillingurinn
sem gleymdist
en fannst aftur
í dag eru hundrað ár frá fæðingu
Buster Keatons, eins frægasta leikara
þöglu kvikmyndanna. Keaton var ein-
stæður listamaður, og í augum fjöl-
margra aðdáenda sinna ekkert minna
en snillingur.
Það má segja að Buster Keaton hafi
fæðst í fjölleikahúsi, en foreldrar hans
voru á ferðalagi með farandleikhópi,
þar sem Houdini var aðalskemmti-
kraftur, þegar frú Keaton varð léttari.
Þriggja ára gamall var Buster kominn
á svið, samkvæmt eigin kröfu. Hann
varð snemrna afburða fimleikamaður,
gat leikið alls kyns kúnstir og brugðið
sér í öll möguleg gervi. Strax á tán-
ingsaldri var hann orðinn stjórstjama.
Eini skugginn í lífi Busters var faðir
hans, ofbeldisfullur drykkjumaður,
sem lagði hendur á hann og móðir
hans og veittist jafnvel að þeirn í sýn-
ingaratriðum þeirra þannig að þeim
stóð hætta af. Mæðginin sáu loks ekki
annað ráð en að flýja undan ofbeldis-
seggnum. Þau fluttu til New York.
Einn dag átti Buster leið um þar
sem verið var að taka upp kvikmynd
með leikaranum fræga Fatty
Arbucle. Hann staldraði við
og fylgdist með tökum, en þá
vék sér að honum maður og
bauð honum hlutverk í mynd-
inni. Eftirleikurinn var auð-
veldur, ekki hvað sírt vegna
þess að með Buster og Ar-
bucle tókust góð kynni sem
leiddu til náinnar samvinnu.
Þeir léku saman í fjölmörgum
myndum og í einni þeirra hló
Buster í fyrsta og eina skiptið
á kvikmyndatjaldinu.
„Steinandlitið mikia"
Buster skapaði sér sérstaka
ímynd á hvíta tjaldinu. Hann
var maðurinn sem aldrei sýndi
minnstu svipbrigði, og skipti
þá engu hversu miklar raunir
hann rataði í. „Steinandlitið
mikla“ var hann nefndur því
svipbrigðaleysið var ætíð hið
sama. Það varð vörumerki
hans og endurspeglaði sam-
bland af rósemi, fálæti og
áhugaleysi á brjálæði heims-
ins. Tilfmningamar mátti lesa úr aug-
unum. Ef hann deplaði augunum bar
það vott um ráðleysi, ef hann hnyklaði
brýmar merkti það ætlun hans að sýna
staðfestu í baráttu við andstæðing
sinn. Ef hann starði lengi á stúlku
jafngildi augnaráðið ólgandi ástríðu.
Og svo notaði hann kattliðugan lík-
ama til að tjá allar mögulegar kenndir.
Frami Buster Keaton varð fljótlega
slíkur að honum varð kleift að stofna
eigið kvikmyndafyrirtæki. Þegar hann
hóf að leikstýra eigin kvikmyndum
var mál manna að hann væri jafnoki
hvaða Hollywood leikstjóra sem væri.
Hann bjó nú að heimsfrægð, sendi frá
sér hverja myndina á fætur annarri,
var giftur ungri leikkonu, hinn fögm
Nathalie Talmadge, átti tvo syni og
glæsileg híbýli.
Meistaraverkið
Árið 1927 kom Hershöfðingitm
íburðarmesta og dýrasta mynd sem
Buster Keaton leikstýrði og lék í, og
þar var að finna frægt brúaratriði sem
var dýrasta atriði þöglu kvikmynd-
anna samanlagðra. „Gerið myndina
svo raunverulega að fólk finni til,“
í stuttu gestahlutverki í frábærri
mynd Billy Wilders, Sunset Boule-
vard frá árinu 1950. Hann sagði
seinna að hann hefði aldrei séð
myndina.
sagði Keaton við samstarfsfólk sitt og
seinna sagðist hann vera hreyknastur
af þessari mynd af öllum þeim Sfem
hann gerði.
í dag er myndin viðurkennd sem
meistaraverk og með bestu kvikmynd-
um sem gerðar hafa verið. Og þegar
myndin var frumsýnd var Keaton og
samstarfsmenn hans sammála um að
hún væri einmitt ekkert annað en
meistaraverk. Flestir gagnrýnendur
voru ósammála þeim. f New York
Times stóð: „Þetta er alls ekki eins
gott og fyrri verk Keatons“, í Variety
var sagt: „Hershöfðinginn er
óskemmtileg mynd“ og Life sagði „-
Margt spaugið er skelfing smekk-
laust.“
Viðbrögðin voru Keaton vissulega
vonbrigði, en hann sneri sér að næstu
verkefnum. Eitt þeirra var kvikmyndin
Steamboat Bill. Þar er að finna eitt
frægasta og stórkostlegasta áhættuat-
riði sem um getur í kvikmyndasög-
unni. Það er atriðið þar sem Buster
stendur á götu þegar húsgafl hrynur
yfir hann. Keaton lagði sig í lífshættu
vegna þessa atrjðis, því ef gaflinn félli
á hann myndi híínn hreinlega meijast
ofan í jörðina. Opinn gluggi á gaflin-
um varð að falla yfir Keaton þannig
að Keaton stæði í honum miðjum ætl-
aði hann sér að halda lífi. Nokkrir
samstarfsmanna Keatons voru svo
óttaslegnir um líf hans að þeir viku sér
afsíðis og báðu fyrir leikaranum með-
an atriðið var tekið upp. Guð bæn-
heyrði þá.
Listrænu frelsi glatað
Eftir þessa mynd steig Keaton
ógæfuspor þegar hann hætti eigin
kvikmyndarekstri og gekk í þjónustu
MGM kvikmyndaversins. Þessi skipti
áttu eftir að reynast honurn dýrkeypt.
Hann glataði listrænu sjálfstæði sínu
og var nú gert að leika eftir reglurn
annarra. Hann þurfti einnig að takast á
við nokkru öðmvísi miðli en áður, því
talmyndimar vom nú komnar til sögu.
Það olli honum þó ekki tiltakanlegum
áhyggjum. Vandinn fólst ekki í rödd-
inni heldur persónunni sem honum
var nú gert að leika á hvíta tjaldinu.
Kvikmyndaverið reyndi að gera úr
honum dapurlegan trúð sem vekti
samúð áhorfenda. Keaton felldi sig
engan veginn við þessa persónu.
Söguefnið var einnig valið án samráðs
við hann og öll áhættuatriði komu nú í
hlut sérstakra áhættuleikara. Löngu
seinna lýsti hann ástandinu: „Hver
einasti maður frá MGM var kominn í
gríndeildina til mín. Þeir hlógu sig
máttlausa að eigin orðaleikjum. Þeim
var sama um það sem gerðist, ef orða-
lag var bara fyndið. Þegar ég var að
kljást við Thalberg hjá MGM sagði
ég: „Láttu mig fá handrit eins og þau
„Steinandlitið mikla" í meistara-
verki sínu Hershöfðingjanum.
sem ég var vanur að fá. Um leið og at-
burðarásin er ákveðin og allt gengur í
haginn finn ég alltaf stað í sögunni þar
sem ekki þarf samtöl. Þá verða kaflar
upp í myndinni án samtala og allt
verður með gamla laginu.“
En það varð ekkert með gamla lag-
inu, hvorki á starfsferli né í einkalífi.
Eiginkona Keatons yfirgaf hann, tók
synina með sér og breytti eftirnafni
þeirra úr Keaton í Talmadge. Skilnað-
urinn gerði Keaton gjaldþrota.
Óhamingja og ofdrykkja
Ólíkt Harold Lloyd og Chaplin var
Keaton ekki bisness maður. Hann var
einungis listamaður, blíðlyndur og
óframfærinn, og treysti öllum. Hann
var einfeldningur í kvikmyndafrumsk-
óginum sem hafði vaxið í kringum
hann. Hann átti aðeins eina ástríðu, þá
að fá fólk til að hlæja. Það fékk hann
ekki lengur og sviptur listrænu frelsi
og hamingju í einkalífi fann hann ein-
ungis eina undankomuleið. Hún fólst í
stöðugri drykkju. En Keaton var ekki
skapaður til drykkju. Eftir tvö glös
vissi hann hvorki í þennan heim né
annan.
Hann hafði engan áhuga á þeim
myndum sem honum var gert að leika
í og skapaði sér fljótlega óvild annars
forstjóra MGM Louis B. Mayer sem
rak hann eftir að Keaton hafði skrópað
í móttöku og farið að horfa á hafnar-
bolta. Hinn forstjórinn, Irving Thal-
berg, bar mikla virðingu fyrir hæfi-
leikum Keatons og bauð honum að
koma aftur til starfa. Keaton var of
stoltur til að taka því boði. Hann var
37 ára og ferill hans virtist á enda.
Hann var orðinn ofdrykkjumaður
og fór í meðferð á einkennilegt
drykkjuhæli þar sem áfengi var hellt í
menn endalaust í þeirri von að þeir
gæfust upp á drykkjunni. Þessi „lækn-
ingaraðferð“ gekk af nokkrum vist-
mönnum dauðum. I meðferðinni
kynntist Keaton hjúkrunarkonu sem
hann kvæntist í janúar 1933.
Keaton mundi það ekki, hann
hafði verið ofurölvi.
Árið 1935 var Keaton
læknaður af drykkjusýki sinni
og þótt hann ætti eftir að taka
einstaka rispur eftir það var
drykkjuvandamálið að mestu
úr sögunni. Hann giftist í
þriðja sinn árið 1940 og
hjónabandið færði honum
mikla gæfu. Hann hafði við
nóg að iðja í aukahlutverkum
í fjölda mynda, en var ekki
stórstjama sem fyrrum. Hann
lék meðal annars aukahlut-
verk í kvikmynd Chaplins
Sviðsljós. Þar stigu þessir
tveir meistarar þöglu mynd-
anna á svið og léku saman
listir sínar. Keaton stal sen-
unni. Chaplin, sem var meist-
ari egóisins, varð ekki um sel
og lét klippa bestu senur Kea-
tons úr myndinni. Til gamans
má geta þess að í sjálfsævi-
sögu sinni nefnir Chaplin
Keaton ekki á nafn, enda
hafði Chaplin ekki gaman af
samkeppni, nema þeirri sem
hann gat auðveldlega unnið.
Árið 1949 skrifaði kvik-
myndagagnrýnandinn James
Agee fræga grein í tímaritið
Life um helstu stjömur þöglu
myndanna. I kjölfarið fýlgdu
sýningar á myndum Keatons
í kvikmyndaklúbbum víða
um heim og alls kyns viður-
kenningar. Keaton komst að
því að gömlu myndir hans vom ekki
gleymdar og að hann, sem fyrrum
hafði verið talinn afar hæfileikamikill
án þess að vera álitinn snillingur, var
nú sagður ekkert minna en snillingur.
Stundum vissi þessi feimni og hlé-
drægi maður ekki hvemig hann átti að
bregðast við allri athyglinni Á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum 1963 var
honum til dæmis fagnað svo mjög að
hann brast í grát.
Hann lést árið 1966. virtur og dáð-
ur, og hlaut fögur eftirmæli, meðal
annars þessi frá fyrrum samstarfs-
manni sínum: „Við dáðum hann meira
en flesta aðra. Buster skaraði fram úr í
starfi sínu, en það var ltka svo gott að
vera með honum og vinna með hon-
um. Maður sent auðvelt er að vinna
með og er hæfileikaríkur finnst manni
vitaskuld stórkostlegasti maður í
heimi. Og hann var það.“ ■
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafn-
arfirði heldur aðalfund miðviku-
daginn 4. okt, kl. 20.30 í Alþýðu-
húsinu við Strandgötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Steinunn Þorsteinsdóttir, sagnfræðingur, les valda
kafla úr óútkominni sögu kvenfélagsins.
3. Önnur mál.
4. Kaffiveitingar.
Mætum allar, takið með ykkur gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórnin.