Alþýðublaðið - 04.10.1995, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 04.10.1995, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ri.jS ð s ö_g n ■ Buster Keaton, „steinandlitið mikla" hefði orðið hundrað ára í dag. Af því tilefni kynnti Kolbrún Bergþórsdóttir sér æviferil snillingsins Snillingurinn sem gleymdist en fannst aftur í dag eru hundrað ár frá fæðingu Buster Keatons, eins frægasta leikara þöglu kvikmyndanna. Keaton var ein- stæður listamaður, og í augum fjöl- margra aðdáenda sinna ekkert minna en snillingur. Það má segja að Buster Keaton hafi fæðst í fjölleikahúsi, en foreldrar hans voru á ferðalagi með farandleikhópi, þar sem Houdini var aðalskemmti- kraftur, þegar frú Keaton varð léttari. Þriggja ára gamall var Buster kominn á svið, samkvæmt eigin kröfu. Hann varð snemrna afburða fimleikamaður, gat leikið alls kyns kúnstir og brugðið sér í öll möguleg gervi. Strax á tán- ingsaldri var hann orðinn stjórstjama. Eini skugginn í lífi Busters var faðir hans, ofbeldisfullur drykkjumaður, sem lagði hendur á hann og móðir hans og veittist jafnvel að þeirn í sýn- ingaratriðum þeirra þannig að þeim stóð hætta af. Mæðginin sáu loks ekki annað ráð en að flýja undan ofbeldis- seggnum. Þau fluttu til New York. Einn dag átti Buster leið um þar sem verið var að taka upp kvikmynd með leikaranum fræga Fatty Arbucle. Hann staldraði við og fylgdist með tökum, en þá vék sér að honum maður og bauð honum hlutverk í mynd- inni. Eftirleikurinn var auð- veldur, ekki hvað sírt vegna þess að með Buster og Ar- bucle tókust góð kynni sem leiddu til náinnar samvinnu. Þeir léku saman í fjölmörgum myndum og í einni þeirra hló Buster í fyrsta og eina skiptið á kvikmyndatjaldinu. „Steinandlitið mikia" Buster skapaði sér sérstaka ímynd á hvíta tjaldinu. Hann var maðurinn sem aldrei sýndi minnstu svipbrigði, og skipti þá engu hversu miklar raunir hann rataði í. „Steinandlitið mikla“ var hann nefndur því svipbrigðaleysið var ætíð hið sama. Það varð vörumerki hans og endurspeglaði sam- bland af rósemi, fálæti og áhugaleysi á brjálæði heims- ins. Tilfmningamar mátti lesa úr aug- unum. Ef hann deplaði augunum bar það vott um ráðleysi, ef hann hnyklaði brýmar merkti það ætlun hans að sýna staðfestu í baráttu við andstæðing sinn. Ef hann starði lengi á stúlku jafngildi augnaráðið ólgandi ástríðu. Og svo notaði hann kattliðugan lík- ama til að tjá allar mögulegar kenndir. Frami Buster Keaton varð fljótlega slíkur að honum varð kleift að stofna eigið kvikmyndafyrirtæki. Þegar hann hóf að leikstýra eigin kvikmyndum var mál manna að hann væri jafnoki hvaða Hollywood leikstjóra sem væri. Hann bjó nú að heimsfrægð, sendi frá sér hverja myndina á fætur annarri, var giftur ungri leikkonu, hinn fögm Nathalie Talmadge, átti tvo syni og glæsileg híbýli. Meistaraverkið Árið 1927 kom Hershöfðingitm íburðarmesta og dýrasta mynd sem Buster Keaton leikstýrði og lék í, og þar var að finna frægt brúaratriði sem var dýrasta atriði þöglu kvikmynd- anna samanlagðra. „Gerið myndina svo raunverulega að fólk finni til,“ í stuttu gestahlutverki í frábærri mynd Billy Wilders, Sunset Boule- vard frá árinu 1950. Hann sagði seinna að hann hefði aldrei séð myndina. sagði Keaton við samstarfsfólk sitt og seinna sagðist hann vera hreyknastur af þessari mynd af öllum þeim Sfem hann gerði. í dag er myndin viðurkennd sem meistaraverk og með bestu kvikmynd- um sem gerðar hafa verið. Og þegar myndin var frumsýnd var Keaton og samstarfsmenn hans sammála um að hún væri einmitt ekkert annað en meistaraverk. Flestir gagnrýnendur voru ósammála þeim. f New York Times stóð: „Þetta er alls ekki eins gott og fyrri verk Keatons“, í Variety var sagt: „Hershöfðinginn er óskemmtileg mynd“ og Life sagði „- Margt spaugið er skelfing smekk- laust.“ Viðbrögðin voru Keaton vissulega vonbrigði, en hann sneri sér að næstu verkefnum. Eitt þeirra var kvikmyndin Steamboat Bill. Þar er að finna eitt frægasta og stórkostlegasta áhættuat- riði sem um getur í kvikmyndasög- unni. Það er atriðið þar sem Buster stendur á götu þegar húsgafl hrynur yfir hann. Keaton lagði sig í lífshættu vegna þessa atrjðis, því ef gaflinn félli á hann myndi híínn hreinlega meijast ofan í jörðina. Opinn gluggi á gaflin- um varð að falla yfir Keaton þannig að Keaton stæði í honum miðjum ætl- aði hann sér að halda lífi. Nokkrir samstarfsmanna Keatons voru svo óttaslegnir um líf hans að þeir viku sér afsíðis og báðu fyrir leikaranum með- an atriðið var tekið upp. Guð bæn- heyrði þá. Listrænu frelsi glatað Eftir þessa mynd steig Keaton ógæfuspor þegar hann hætti eigin kvikmyndarekstri og gekk í þjónustu MGM kvikmyndaversins. Þessi skipti áttu eftir að reynast honurn dýrkeypt. Hann glataði listrænu sjálfstæði sínu og var nú gert að leika eftir reglurn annarra. Hann þurfti einnig að takast á við nokkru öðmvísi miðli en áður, því talmyndimar vom nú komnar til sögu. Það olli honum þó ekki tiltakanlegum áhyggjum. Vandinn fólst ekki í rödd- inni heldur persónunni sem honum var nú gert að leika á hvíta tjaldinu. Kvikmyndaverið reyndi að gera úr honum dapurlegan trúð sem vekti samúð áhorfenda. Keaton felldi sig engan veginn við þessa persónu. Söguefnið var einnig valið án samráðs við hann og öll áhættuatriði komu nú í hlut sérstakra áhættuleikara. Löngu seinna lýsti hann ástandinu: „Hver einasti maður frá MGM var kominn í gríndeildina til mín. Þeir hlógu sig máttlausa að eigin orðaleikjum. Þeim var sama um það sem gerðist, ef orða- lag var bara fyndið. Þegar ég var að kljást við Thalberg hjá MGM sagði ég: „Láttu mig fá handrit eins og þau „Steinandlitið mikla" í meistara- verki sínu Hershöfðingjanum. sem ég var vanur að fá. Um leið og at- burðarásin er ákveðin og allt gengur í haginn finn ég alltaf stað í sögunni þar sem ekki þarf samtöl. Þá verða kaflar upp í myndinni án samtala og allt verður með gamla laginu.“ En það varð ekkert með gamla lag- inu, hvorki á starfsferli né í einkalífi. Eiginkona Keatons yfirgaf hann, tók synina með sér og breytti eftirnafni þeirra úr Keaton í Talmadge. Skilnað- urinn gerði Keaton gjaldþrota. Óhamingja og ofdrykkja Ólíkt Harold Lloyd og Chaplin var Keaton ekki bisness maður. Hann var einungis listamaður, blíðlyndur og óframfærinn, og treysti öllum. Hann var einfeldningur í kvikmyndafrumsk- óginum sem hafði vaxið í kringum hann. Hann átti aðeins eina ástríðu, þá að fá fólk til að hlæja. Það fékk hann ekki lengur og sviptur listrænu frelsi og hamingju í einkalífi fann hann ein- ungis eina undankomuleið. Hún fólst í stöðugri drykkju. En Keaton var ekki skapaður til drykkju. Eftir tvö glös vissi hann hvorki í þennan heim né annan. Hann hafði engan áhuga á þeim myndum sem honum var gert að leika í og skapaði sér fljótlega óvild annars forstjóra MGM Louis B. Mayer sem rak hann eftir að Keaton hafði skrópað í móttöku og farið að horfa á hafnar- bolta. Hinn forstjórinn, Irving Thal- berg, bar mikla virðingu fyrir hæfi- leikum Keatons og bauð honum að koma aftur til starfa. Keaton var of stoltur til að taka því boði. Hann var 37 ára og ferill hans virtist á enda. Hann var orðinn ofdrykkjumaður og fór í meðferð á einkennilegt drykkjuhæli þar sem áfengi var hellt í menn endalaust í þeirri von að þeir gæfust upp á drykkjunni. Þessi „lækn- ingaraðferð“ gekk af nokkrum vist- mönnum dauðum. I meðferðinni kynntist Keaton hjúkrunarkonu sem hann kvæntist í janúar 1933. Keaton mundi það ekki, hann hafði verið ofurölvi. Árið 1935 var Keaton læknaður af drykkjusýki sinni og þótt hann ætti eftir að taka einstaka rispur eftir það var drykkjuvandamálið að mestu úr sögunni. Hann giftist í þriðja sinn árið 1940 og hjónabandið færði honum mikla gæfu. Hann hafði við nóg að iðja í aukahlutverkum í fjölda mynda, en var ekki stórstjama sem fyrrum. Hann lék meðal annars aukahlut- verk í kvikmynd Chaplins Sviðsljós. Þar stigu þessir tveir meistarar þöglu mynd- anna á svið og léku saman listir sínar. Keaton stal sen- unni. Chaplin, sem var meist- ari egóisins, varð ekki um sel og lét klippa bestu senur Kea- tons úr myndinni. Til gamans má geta þess að í sjálfsævi- sögu sinni nefnir Chaplin Keaton ekki á nafn, enda hafði Chaplin ekki gaman af samkeppni, nema þeirri sem hann gat auðveldlega unnið. Árið 1949 skrifaði kvik- myndagagnrýnandinn James Agee fræga grein í tímaritið Life um helstu stjömur þöglu myndanna. I kjölfarið fýlgdu sýningar á myndum Keatons í kvikmyndaklúbbum víða um heim og alls kyns viður- kenningar. Keaton komst að því að gömlu myndir hans vom ekki gleymdar og að hann, sem fyrrum hafði verið talinn afar hæfileikamikill án þess að vera álitinn snillingur, var nú sagður ekkert minna en snillingur. Stundum vissi þessi feimni og hlé- drægi maður ekki hvemig hann átti að bregðast við allri athyglinni Á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum 1963 var honum til dæmis fagnað svo mjög að hann brast í grát. Hann lést árið 1966. virtur og dáð- ur, og hlaut fögur eftirmæli, meðal annars þessi frá fyrrum samstarfs- manni sínum: „Við dáðum hann meira en flesta aðra. Buster skaraði fram úr í starfi sínu, en það var ltka svo gott að vera með honum og vinna með hon- um. Maður sent auðvelt er að vinna með og er hæfileikaríkur finnst manni vitaskuld stórkostlegasti maður í heimi. Og hann var það.“ ■ Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafn- arfirði heldur aðalfund miðviku- daginn 4. okt, kl. 20.30 í Alþýðu- húsinu við Strandgötu. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Steinunn Þorsteinsdóttir, sagnfræðingur, les valda kafla úr óútkominni sögu kvenfélagsins. 3. Önnur mál. 4. Kaffiveitingar. Mætum allar, takið með ykkur gesti. Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórnin.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.