Vísir - 02.01.1976, Síða 17
Sjónvarp kl. 21.20
MARLENE DIETRICH
OG GARY COOPER
í AÐALHLUTVERKUM
Gamalkunnir leikarar eru i
aðalhlutverkum i kvikmyndinni
Ólgandi blóð í kvöld. Marlene
Pietrich þckkja áreiðanlega all-
ir enda má segja að hún sé enn-
þá i sviðsljósinu þó háöldruð sé.
— Annars var hún vist að fót-
brjóta sig um daginn blessuð
kerlingin —. Mótleikari hennar
er engu siður þekktur enda
sjálfur Cary Cooper. Aðdáendur
hans fá þarna að sjá hann ungan
og sætan þvi myndin er frá þvi á
árinu 1936.
Annars er það frá myndinni
að segja að hún er bandarisk af
léttara taginu og þó að hún sé þó
þetta gömul þá ættu margir að
hafa af henni gaman, allavega
afþreyingu, þegar tekið er tillit
til þess hverjir fara með hlut-
verkin.
Efnisþráðurinn er i stuttu
máli sá, að ung stúlka rænir
perlufesti á allfrumlegan hátt
frá skartgripasala i Paris, Hún
reynir undankomu til Spánar en
erfitt er að smygla þýfinu yfir
landamærin. Þvi ómaki er þó
létt af henni, þvi hún hittir fyrir
ungan mann á landamærunum
og tekst að lauma festinni i vasa
hans. Aðalvandamálið verður
bara að ná henni aftur úr hans
vörslum.
Ekki stendur unga stúlkan ein
i þessum stórræðum en hefur
sina aðstoðarmenn. Telur þetta
fólk sig allt til aðalsmanna og
lifir flott.
Þegar til kemur dvinar þó
áhugi ungu stúlkunnar á festinni
en vex að sama skapi á unga
laglega manninum. Fer svo að
hún snýr frá villu sins vegar,
skilar festinni og allt fær á sig
rómantiskan blæ.
-VS
Cary Cooper — reyndar kominn
af léttasta skeiði.
Marlene Dietrich. Hún virðist ekkert eldast þó árin færist yfir hana
svo hún getur þessvegna verið einhvers staðar milli tvitugs og átt-
ræðs á þessari mynd.
HTónlistarhátíð
Noregur - ísland 1975
Útvarpað verður frá tónleik-
um sinfónfuhijómsveitar
hundrað norskra og islenskra
ungmenna i ágúst sl. kl. 20 i
kvöld.
Hljómsveit þessi er árangur
samvinnu Islands og Noregs á
tónlistarsviðinu. I samvinnu við
bróðurfélag sitt i Noregi, Norsk
Musiker Forbund, hefur Félag
islenskra hljómlistarmanna
skipulagt þetta samstarf. Nokk-
ur islensk ungmenni hafa tekið
þátt i námskeiðum, sem haldin
hafa verið við Lýðháskólann i
Elverum. Nú i sumar kom svo
allur þátttakendahópurinn og
hélt hér viku hljómleika.
Upptaka sú, sem leikin verður
i kvöld er frá fyrsta degi hljóm-
leikanna og fóru þeir fram i
Háskólabió.
A efnisskrá er Chaconna eftir
Pál Isólfsson, Fiðlukonsert eftir
Jean Sibelius, Passacaglia,
hljómsveitarverk eftir Ludvik I.
Jensen og Till Eulenspiegel, eft-
ir Richard Strauss.
Einleikari með hljómsveitinni
er Camilla Wicks. Leikur hún
einleik i fiðlukonsert Sibeliusar.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
Camilla Wicks.
er Karsten Andersen. Hann hef-
ur verið einn af aðalstjórnend-
um islensku sinfóniuhljóm-
sveitarinnar og islenskum tón-
listarunnendum þvi að góðu
kunnur. —VS
Karsten Andersen.
Sjónvarp kl. 20.35:
Efnahagsmól 1975 - Horfur 1976
Kastljós er á efnisskrá sjónvarps í
kvöld. Verður þar f jallað um efnahags-
mál á liðnu ári og horfur á næsta ári.
Verður þættinum varið til að f jalla um
þetta eina mál enda af nógu að taka.
Rætt verður við Dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóra og Jón Sigurðsson, forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar.
Stjórnandi þáttarins er Eiður Guðnason.
-VS
Föstudagur
2. janúar
12.25 Fréttir og, veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.40 „Frænkurnar”, smásaga
eftir Itósu Þorsteinsdóttur
Höfundur les.
15.00 M iðdegistónleik ar
Sinfóniuhljómsveitin i
Minneapolis leikur „1812”,
hátiðarforleik op. 49 eftir
Tsjaikovski, Antal Dorati
stjórnar / Filharmoniu-
sveitin i Berlin leikur
Sinfóniu nr. 4 i e-moll op. 98
eftir Brahms, Herbert von
Karajan stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn, ljónshjarta"
eftir Astrid Lindgren Þor-
leifur Hauksson ies þýðingu
sina (4).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 ísiand — Noregur 1975
Frá tónleikum sinfóniu-
hljómsveitar hundrað
norskra og islenzkra ung-
menna i ágúst s.l. Einleik-
ari: Camilla Wick, fiðluleik-
ari. Stjórnandi: Karsten
Andersen. a. Chaconna eftir
Pál Isólfsson. b. Fiðlukon-
sert eftir Jean Sibelius. c.
Passacaglia, hijómsveitar-
verk eftir Ludvik I. Jensen
d. „Till Eulenspiegel”,
hljómsveitarverk eftir
Richard Strauss.
2 1.10 Gullmunnur
Björgvinjar. Séra Sigurjón
Guðjónsson flytur erindi um
norska skáldið Johan Nor-
dal Brun.
21.45 Kórsöngur Don-kósakka-
kórinn syngur rússnesk
þjóðlög, Sergei Jaroff
stjórnar.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Leiklistar-
þáttur Umsjón: Sigurður
Pálsson.
22.50 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Föstudagur
2. janúar 1976
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Kastljós. Þáttur um inn
lend málefni. Umsjónar-
maður Eiður Guðnason.
21.05 Tónleikar i sjónvarpssal-
Manfred Scherzer, fiðlu-
leikari, og Jíirgen Schröder,
píanóleikari, fiytja fiðlu-
Garðarkjör hf.
Hraunbœ 102
óskum viðskiptavinum
vorum gleðilegs nýórs.
Þökkum viðskiptin
á liðnu ári.
Garðakjör hf.
Hraunbœ 102
sónötu op. 30 nr. 3 eftir Beet-
hoven. Stjórn Upptöku Tage
Ammendrup
21.20 ólgandi blóð (Desire)
Bandarisk gamanmynd frá
árinu 1936. Aðalhlutverk
leika Marlene Dietrich og
Gary Cooper. Ung stúlka
rænir verðmætum perlum
frá skartgripasala i Paris
og flýr með þær til Spánar.
Við landamærin hittir hún
Bandarikjamann i sumar-
leyfi. Hann flytur perlurnar
yfir landamærin án þess að
vita af þvi. Þýðandi Heba
Júliusdóttir.
22.50 Dagskrárlok.
Vinningsnúmerin
í Happdrœtti
Styrktarfélags vangefinna
1. vinningur Citroen CX nr: Z-116
2. -6. vinningur bifreið að eigin vali að upphæð
kr. 700 þús. nr: G-10701, Y-3865, R-31003, R-
42590, S-1142.
Þökkum stuðninginn
Styrktarfélag vangefinna