Vísir - 03.03.1976, Blaðsíða 5
Auglýsing
Samkvæmt d-lið 1. gr. laga nr. 55 27. mai
1975, um ráðstöfun gengismunar i þágu
sjávarjítvegsins skv. lögum nr. 2/1975 og
um ráðstafanir vegna hækkunar
brennsluoliuverðs til fiskiskipa, auglýsir
ráðuneytið hér með úthlutun allt að 50
millj. króna úr gengismunarsjóði 1975, til
að bæta eigendum fiskiskipa það tjón sem
þeir verða fyrir, er skip þeirra eru dæmd
ónýt, enda sé tjónið ekki bætt með öðrum
hætti.
Um úthlutun þessa gilda eftirfarandi
reglur:
M. •
Stál- og eikarskip, sem orðin eru 25 ára og
dæmd eru ónýt og afmáð af aðalskipa-
skrá, skv. 3. tl. 1. mgr. 15. gr. laga nr.
53/1970, á árunum 1974, 1975 eða fyrstu
tveim mánuðum ársins 1976 vegna slits,
ryðs, tæringar, maðkskemmda og fúa,
sem ekki er bættur skv. lögum um bráða-
fúatryggingar, koma til greina við úthlut-
un þessa fjár. Skilyrði er að ekki sé meira
en 12 mánuðir liðnir frá þvi viðkomandi
skip var i eðlilegum rekstri og þar til það
var máð af aðalskipaskrá.
II.
Viðmiðun bóta fyrir eikarskip verður sið-
asta vátryggingarmatsfjárhæð skips til
bráðafúatryggingar.
Viðmiðun bóta fyrir stálskip verður mats-
fjárhæð bols, ásamt yfirbyggingu og raf-
lögn.
Bætur verða reiknaðar sem ákveðinn
hundraðshluti af framangreindum mats-
fjárhæðum að frádregnum öðrum hugsan-
legum tjónabótum.
Um greiðslu bóta fer eftir ákvörðun
s já varútvegsráðuney tisins.
III.
Umsóknir um bætur samkvæmt auglýs-
ingu þessari ásamt greinargerðum skulu
hafa borist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir
10. mars 1976.
Sjávarútvegsráðherra mun skipa þriggja
manna nefnd til þess að ákveða bótaþega
og fjárhæðir bóta.
Sjávarútvegsráðuneytið
(20. desember 1975.)
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 77., 78. og 79. tbl. Lögbirtingablaös 1975 á
hluta i Seljalandi 7, þingl. eign Eiinar Arnoddsdóttur fer
fram eftir kröfu Tryggingast. rikisins á eigninni sjálfri,
föstudag 5. mars 1976 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 1., 3. og 5. tbl. Lögbirtingablaös 1975 á
húseign v/Reykjavikurflugvöll, talin eign Andra Heiöberg
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavfk á eign-
inni sjálfri, föstudag 5. mars 1976 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 77., 78. og 79. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á
Nökkvavogi 3, þingl. eign Gústafs Simonarsonar, fer fram
eftir kröfu Jónasar A. Aöalsteinssonar hrl. á eigninni
sjálfri, föstudag 5. mars 1976 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Miðvikudagur 3. marz 1976
VÍSIH
Þeir eru liklega ekki margir, sem koma á svona farartæki til aö sækja
skemmtanir.
Skemmtikvöld
fyrir sjúklinga
6 Landspítalanum:
Tilbreytingalaus heimur
Þeir sem hafa dvalist langa
hrið á sjúkrahúsum þekkja efa-
laust ástandið. Þeir lifa I litlum,
þröngum og tilbreytingalausum
heimi. Sumir eru rúmfastir.
Klukkutima eftir klukkutima,
dag eftir dag, viku eftir viku stara
þeir upp i hvitt loftið i stofunni,
sem þeir hafa legið á siðan þeir
komu. Lestur verður þreytandi til
lengdar. Umræðuefni við hina
sjúklingana þrýtur. Allt sem
drepur tilbreytingaleysið er kær-
komið. Heimsóknir, matartimar,
aðgerðir, stofugangur, simhring-
ing, útvarp, sjónvarp.
Yfirþyrmandi leiðindi kemur
yfir marga á löngum kvöldum.
Framtak nokkurra manna á
Landspitalanum hefur þvi komið
eins og sending af hinum.
Sjálfboðavinna við að
skemmta sjúklingunum
Jóhann Þorvaldsson og félagi
hans Agúst Björnsson hafa nú i
rúma þrjá mánuði staðið fyrir
skemmti- og kvikmyndasýninga-
kvöldum á fimmtudögum fyrir
sjúklinga Landspitalans. Aðsókn-
in hefur aukist jafnt og þétt, og nú
er samkomusalurinn i raun orð-
inn allt of litill.
Um áttaleytið á fimmtudags-
kvöldum byrja sjúklingarnir að
streyma inn. Flestir koma gang-
andi, það eru þeir sem hafa fóta-
vist. Nokkrir koma i hjólastólum
eða á hækjum, og i kjölfarið koma
yfirleitt nokkur rúm, sem sjúkra-
liðar og hjúkrunarkonur ýta á
undan sér.
,,Ég var hérna á spitalanum i
október og nóvember siðastliðn-
Kœrkomin upplyfting
ó tilbreytingalausri
spítalavistinni....
— Fimmtudagur! Bööö! Ekkert sjónvarp. Leiöindaveöur. Hvaö á
maöur aö gera af sér? Fara i bió? Heimsækja kunningjana? Spila plöt-
ur? Skúra eldhúsgólfiö? Setjast inn I stofu og spila? Æ, af hverju geta
þessir menn ekki haft sjónvarp lika á fimmtudögum. Alveg væri ég til-
búinn aö borga hærra afnotagjald.
Ofanskráö mætti efalaust leggja mörgum I munn. Fólki sem kemur
þreytt heim úr vinnu um kvöldmatarleytiö, og finnst þaö slappa best af
fyrir framan sjónvarpiö. Margir sitja viö sjónvarp öll kvöld, sem út-
sending er. Á fimmtudögum er svo fariö i bió.
Fullfriskt fólk kvartar oft undan lélegri sjónvarpsdagskrá, sjón-
varpsleysi á fimmtudögum, leiöinlegu útvarpi. Þvi lciöist, og það vor-
kennir sjálfu sér. En hvað er þaö I samanburði viö sjúklinga á sjúkra-
húsum, sem dvelja þar vikum eöa mánuöum saman, og hafa sama og
engin tækifæri til aö hafa ofan af fyrir sér i tilbreytingaleysi spitala-
vistarinnar?
„Bíókvöld-
in eru
skemmti-
legust”
,,Mér finnst biókvöldin
skemmtilegust,” sagöi Rúnar
Þórarinsson, tæplega tiu ára
gamall sem viö röbbuðum viö á
kvikmyndakvöldinu.
Rúnar lá i rúmi sinu aftast i
salnum. Hann fótbrotnaði, og
var búinn að liggja i mánuð á
spitalanum.
Hann sagðist hafa komið á öll
skemmtikvöldin sem hefðu ver-
ið eftir að hann kom á spitalann.
„Það er ekkert sjónvarp á
fimmtudögum, þannig aö það er
mjög gott aö hafa þessi
skemmtikvöld,” sagöi Rúnar.
Hann sagðist horfa talsvert á
sjónvarp.
„Við fáum þó ekki aö horfa á
allar hasarmyndirnar. Þaö fer
svolitið eftir hjúkrunarkonum,
hvort maöur fær aö horfa á
hasarmyndirnar i sjónvarpinu.
svolitiö eftir hjúkrunarkonum,”
sagði hann.
um. Mér fannst ástæða til að
hressa upp á móralinn, og gera
eitthvað i tilbreytingaleysinu, svo
ég spurði Agúst Björnsson félaga
minn i Flugbjörgunarsveitinni
hvort hann gæti ekki útvegað
kvikmyndir til að sýna. Hann
gerði það, og við sýndum nokkur
kvöld 8 mm kvikmyndir, aðallega
sem Agúst hafði tekið. Siðar
fengum við svo 16 mm sýningar-
vél. Þetta þróaðist svo upp i það,
að Páll B. Helgason læknir á
endurhæfingar- og bæklunardeild
spurði mig, hvort eitthvað fram-
hald gæti orðið á þessu. Viö Agúst
vorum til i það og höfum haldið
þessu áfram, þótt ég hafi út-
skrifast af spitalanum i nóvem-
ber”, sagði Jóhann Þorvaldsson,
þegar Visir leit við á kvikmynda-
sýningakvöldi einn fimmtudaginn
fyrir nokkru.
Nauðsynlegt að
fá ókeypis
skemmtikrafta
„Það eru mest langlegusjúkl-
ingar, sem koma á þessi kvöld.
Þeir sem voru
rúmfastir fengu
„stúkupláss” aftast i
salnum. Jóhann Þor-
valdsson og sjúkraliöi
hjálpast aö viö aö
koma einu rúminu
fyrir. Ljósmyndir:
Jim.
Miðvikudagur 3. mars 1976.
5
Jóhann Þorvaldsson viö sýninga-
vélina. Hann og félagi hans Agúst
Björnsson hafa unniö ómetanlegt
verk við að lyfta drunganum af
tilbreytingalausri spitalavistinni.
væri nauðsynlegt að starfsmaður
á sjúkrahúsinu sæi um þetta.
Sjúklingarnir ánægðir
„Þeir Jóhann og Agúst eiga
mikinn heiður skilinn fyrir starf
sitt,” sagði Páll B. Helgason sér-
fræðingur i orku- og endurhæfing-
arlækningum, sem Visir ræddi
einnig við umrætt kvöld.
Sjúklingar á deild Páls eru þeir,
sem einna lengst dveljast á
spitalanum. Hann þekkir þvi vel
þann leiða sem oft sækir að sjúkl-
ingum eftir,langa dvöl.
„Fólkið er mjög ánægt með
þetta framtak. Það gerir ekki
miklar kröfur um gæði skemmti-
efnisins, bara að það fái eitthvað
til að stytta stundirnar. En þessi
starfsemi byggist eiginlega að
öllu leyti upp á ókeypis vinnu.
Það er ekki hægt að ætlast til að
spitalar fari að leggja fram fé,
þótt þetta sé i raun bráðnauðsyn-
legt. Mörg önnur brýn verkefni
sitja I fyrirrúmi, og fá þó ekki
einu sinni nauðsynlegt fjármagn,
eins og t.d. að það þarf að koma
simakerfi spitalans i lag,” sagði
Páll.
Jákvæð viðbrögð
Fræðslumyndasafns
Hann sagði að auk ókeypis
vinnu þeirra Jóhanns og Agústs
hefði Benedikt Gröndal forstöðu-
maður Fræðslumyndasafns rikis-
ins tilkynnt að framvegis þyrfti
Páll B. Helgason læknir — mikil-
vægt að langlegusjúklingum leið-
ist ekki.
enginn spítalí aö greiöa leigu
fyrir kvikmyndir, sem safnið út-
vegaði.
„Sjúkliiigar hafa þrjá val-
möguleika til að hafa ofan af fyrir
sér. Þeir geta talað saman, hlust-
að og horft á útvarp og sjónvarp,
eða lesið. Það er mikilvægur
þáttur fyrir þá, sem þurfa að
dveljast lengi á sjúkrahúsi að
þeim leiðist ekki. Þess vegna er
þetta framtak kærkomið, og von-
andi að það haldi velli,” sagði
Páll.
— ÓH
Má bjóða ykkur brjóstsykur — þetta var næstum eins og á alvöru
poppkorniö.
biósýningu, þaö vangaöi bara
Við höfum fengið ágætis fólk til að
koma og skemmta með söng,
upplestri, hljóðfæraleik og eftir-
hermum. Gisli Helgason hefur
lesið upp, Arni Johnsen sungið,
Jón Sigurðsson danslagahöfundur
gerði mikla lukku, og Guðmundur
Þ. Guðmundsson var með eftir-
hermur. Fleiri mætti nefna”,
sagði Jóhann ennfremur.
„En grundvöllurinn fyrir
áframhaldi þessara skemmti-
kvölda er i raun og veru sá að sem
allra mest fáist gert endurgjalds-
laust. Við höfum vilyrði fyrir
komu ýmissa skemmtikrafta, og
værum þakklátir öllum, sem vilja
láta sér nægja þakklæti sjúkling-
anna sem endurgjald,” sagði Jó-
hann.
Hann sagði að þessi þáttur
sjúkrahússstarfs væri ekki siður
nauðsynlegur en annað. En þar
sem þetta væri timafrekt starf,
Hefur leqið 10 mánuði á spítala:
„Nauðsynlegt
að langlegu-
sjúklingar fái
tilbreytingu"
Eins og slökkvibílar tilbúnir i
útkall stóðu rúm sjúklinga hlið
við hlið aftast i salnum á fyrstu
hæðinni i Landspitalanum þeg-
ar kvikmyndasýningin hófst. 1
einu rúminu lá Aslaug Magnús-
dóttir, sem ætti nokk að þekkja
leiðindin sem koma yfir lang-
legusjúklinga, þvi hún hcfur
verið rúmliggjandi á spitalan-
um i 1« mánuði.
„Það er óskaplega mikil til-
breyting fyrir mig að hafa þessi
skemmtikvöld, þó ekki sé nema
að fara út af stofunni og sjá ann-
að umhverfi,” sagði Aslaug.
Hún sagði að allt væri skárra
en ekkert til að lifga upp á til-
breytingaleysið i rúmlegunni.
„Það er stundum nóg að láta
aka sér um gangana. En það er
ýmsum erfiðleikum bundið i
gamla hluta Landspitalans,
vegna þess hversu allt er þröngt
þar, T.d. þarf að taka tvö rúm út
af minni stofu til að mitt rúm
komist út. Rúmið kemst heldur
ekki inn á dagstofuna þar sem
sjónvarpið er. En þeir hafa ver-
ið svo elskulegir við mig, að ég
fæ að hafa sjónvarp inni hjá
mér,” sagði Áslaug.
Aslaug Magnúsdóttir
skemintikvöldin mikil til-
breyting, en erfiðleikar við að
komast mcð stór rúm um gang-
ana.
Hún sagði að fimmtudags-
kvöld hefðu þvi oft verið dapur-
leg áður en skemmtikvöldin
hófust.
„Mér finnst að skemmtikvöld
af þessu tagi ættu að vera á
hverjum spitala. Þau eru sér-
staklega nauðsynleg fyrir lang-
legusjúklinga,” sagði Aslaug.
4ra herbergja íbúð
til sölu.
Stærð 120 ferm.
3 svefnherbergi og 30 ferm.
stofa.
Eignaskipti möguleg.
Hara Idur
Guömundsson,
löggiltur fasteignasali,
Hafnarstræti 15.
Simar 15414 og 15415.
ÞURF/Ð ÞER H/BYLl
Þurfið þér að selja?
Þurfið þér að kaupa?
Þurfið þér að skipta?
Verðmetum ibúðina yður aö
kostnaðarlausu.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38. Simi 26277
,Heimasimi 20178
26600
Verðmetum
íbúðina
samdœgurs
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Valdi)
sími 26600
Kvöldsimi 42618.
Fasteignasalan
Fasteignir við allra hæfi
Norðurveri Hátúni 4 a
Simar 21870 og 20998.
usava
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Helgi ólafsson
löggiltur
fasteignasali.
Kvöldsimi 21155.
FASTEIGN ER FRAMTk)
2-88-88
S3HI1IB
FASTEICNASALA - SKIP
OG VERSBRÉF
AÐALFASTEIGNASALAN
AUSTURSTRÆTI 14. 4. HÆO
SÍMI28888
kvöld og helgarsimi 8221 9
Strandgötu 11, ,
Hafnarfiröi.
Simar 52680 — 51888.
Heimasimi 52844.
VONARSTRÆTI 12
simi 27711
Sölustjóri: Swerrlr Wristinsson
Hafnarstræti 11.
Simar: 20424 — 14120
Heima : 85798 — 30008
Fasteignasaian
Óðinsgötu 4.
Simi 15605.
EIGMASALAIM
REYKJAVIK
ÞórðurG. Halldórsson
sími 19540 og 19191
Ingólfsstræti 8
FASTEIGNAVER »/F
Klapparstíg 16,
simar 11411 og 12811
E1GNAÞJÓMUSTAN
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
NJÁLbGÖTU 23
SÍMI: 2 66 50
EKMVAU.
Sudutlandsbraut 10 85740