Vísir - 03.03.1976, Blaðsíða 1
Miövikudagur 3. mars 1976.
LITIL VON TALIN
TIL AÐ HAFRÚN
SÉ OFANSJÁVAR
Eitt lík fundið — Víðtœk leit stendur yfir
Lítil von er nú talin til
þess að Hafrún ÁR-28 sé
ennþá ofan sjávar. Ekkert
hefur til bátsins spurst frá
því í fyrrinótt og búið er að
finna lík matsveinsins sem
var Ingibjörg Guðlaugs-
dóttir, frá Reykjavík. Víð-
tæk leit fer nú fram að hin-
um sjö af áhöfn bátsins.
Þeir eru Valdimar Eiðsson,
skipstjóri og eigandi bátsins, frá
Eyrarbakka, Agúst ólafsson,
stýrimaður, einnig frá Eyrar-
bakka, Þórður Þórisson, vél-
stjóri, frá Eyrarbakka, Július
Stefánsson, annar vélstjóri, frá
Eyrarbakka, og hásetarnir
Haraldur Jónsson, frá Eyrar-
bakka, Guðmundur Sigursteins-
son, frá Blönduósi, og Jakob
Sófaniasson, frá Reykjavik.
Hafrún var 73 rúmlesta stál-
skip, smiöað árið 1957. Siðast
heyrðist til Hafrúnar kl. 01.15 i
fyrrinótt, þá var hún nýfarin frá
Þorlákshöfn og tilkynnti sig á
vesturleið, á leið á loðnumiðin.
Ekkert hefur spurst til hennar
siðan, en i gær um kl. 16, fann vél-
báturinn Jóhannes Gunnar, lik á
reki, tvær milur undan Reykja-
nesi. Það reyndist vera lik Ingi-
bjargar, sem fyrr segir.
Geysi umfangsmikil leit stend-
ur nú yfir. Hannes Hafstein hjá
Slysavarnafélaginu tjáði Visi i
morgun að björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins frá Grinda-
vik, Eyrarbakka og Þorlákshöfn,
gengju fjörur.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
og leitarflugvél og þyrla frá
varnarliðinu taka einnig þátt i
leitinni og fjölmörg skip og bátar
leita á sjó undir stjórn Þorsteins
RE 303. — ÓT.
Hannes Hafstein hjá Slysa-
varnafélaginu sýnir blaða-
manni Visis I morgun leitar-
svæðið á korti. — Ljósm: Jim
Það var glatt á hjalla á barnaheimilinu Kvistaborg i Fossvogi þegar Ijósmyndari Vísis leit þar inn i
morgun. Börnin höfðu búið sér til grlmur og hatta til að nota i tilefni öskudagsins. Þau sögðu okkur, að
það ætti að halda ball með lögum til að dansa eftir. ,,Og svo fáum við líka poppkorn" bættu þau við — og
þau gátu ekki leynt eftirvæntingu sinni. — Ljósm: JIM.
Söngur og gleðskapur á lög-
reglustöðinni á Akureyri
Þaö var heldur betur lif og
fjör á lögreglustöðinni á Akur-
eyrií morgun. Þegar Visir sló
á þráðinn til lögreglunnar þar,
var aö heyra mikinn söng og
gleðskap. Fljótlega fékkst
skýring á öllu fjörinu. Það er
nefnilega öskudagur i dag, og
krakkarnir á Akureyri vita vel
hvernig á að haga sér þá.
Strax klukkan 7 i morgun
voru þau komin á stjá, búin i
alls kyns skrautlega búninga.
Siðan var farið i heimsóknir á
ýmsa staði. Þar taka þau lagiö
og fáistaðinn sælgæti. Lög-
reglan var búin að fá einhver
ósköp af börnum i heimsókn.
Hver hópurinn kog á fætur
öðrum og allir fengu sælgæti.
Það var ekki að heyra annað
en að lögreglan kynni vel að
meta þennan sið, enda fátitt
að gestirhennar séu svona lif-
legir.
— EA.
I
fi
2
Urgur í sjómönn-
um útaf forustunni
— sjá baksíðufrétt
Gjaldþrota-
mál Air Vik-
ing mun taka
langan tíma
Flugfélagið Air Viking hefur
nú verið úrskurðað gjaldþrota
— og hefur félagið verið tekið til
gjaldþrotaskipta aö ósk Olíu-
félagsins h/f. Fyrirtækið er nú i
höndum skiptaréttar og er óvist
um rekstur þess.
Að sögn Unnsteins Beck,
borgarfógeta, geta liðið nokkrir
mánuðir, þar til fer að hilla
undir skiptalok i málinu, þar
sem gefa þarf út innköllun til
kröfuhafa. Er það gert með
þrem auglýsingum i Lög-
birtingablaðir.u — og þurfa að
liða fjórir mánuðir frá birtingu
siðustu auglýsingar þar til
skiptalok geta farið fram.
Unnsteinn sagði að á þessu
stigi málsins væri ekki ákveðið,
hvernig eignum Air Viking yrði
ráðstafað. Fyrst lægi fyrir að
skrásetja eignirfyrirtækisins og
taka þær i vörslu skiptaréttar-
ins. Jafnframt færi strax fram
athugun á bókhaldi fyrirtækis-
ins og útstandandi skuldir, ef
einhverjar væru, innheimtar.
Þegar hugað yrði að þvi,
hvernig eignum fyrirtækisins
yrði ráðstafað, sagði Unnsteinn
að það væri á valdi skiptafundar,
hvort uppboð yrði látið fara
fram, — eða hvort vélarnar
yrðu seldar á annan hátt. Upp-
boð er alltaf lögleg leið og sú al-
gengasta. Unnsteinn sagði að
það væri engan veginn — undir
öllum kringumstæðum heppi-
legasta leiðin, sérstaklega þeg-
ar um jafn óvenjulegar eignir
sem þessar væri að ræða.
Aðspurður sagði Unnsteinn,
að öll gjaldþrot væru send saka-
dómi til umfjöllunar eftir að
skiptaréttur heföi skilað af sér.
Saksóknari ákveður, hvort
ástæða sé til rannsóknar, en
ákvörðun um rannsókn sé ekki
tekin nema ástæða sé til að ætla
að eitthvað saknæmt sé við
reksturinn. — SJ.
Kvikmyndagerðarmenn setja
verkbann á
sjónvarpið
Fara leikarar í samúðarverkfall?
— Þetta bann þýöir væntan-
lega það að þeir félagsmenn i
félagi íslenskra kvikmynda-
gerðarmanna, sem ekki eru
fastir starfsmenn sjónvarpsins
hætta vinnu fyrir sjónvarpið,
sagði Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins.
— Þá þýðir það einnig það, að
sjónvarpið hættir að kaupa
kvikmyndir félagsmanna til
sýningar.
Sagði Pétur að framleiðsla og
vinna þessara manna væri hlut-
fallslega lltil, framleiösla inn-
lends efnis hvildi að mestu leyti
á heröum starfsmanna sjón-
varpsins, þannig aö þetta bann
hefði ekki veruleg áhrif — en þó
nokkur.
Forsaga þessa máls er sú, að
undanfarandi fjögur til fimm ár
hafa staðið yfir samningaviö-
ræður milli kvikmyndageröar-
manna og sjónvarpsins. Upp úr
þeim slitnaði fyrir um hálfum
mánuði. Kennir þar hvor öðr-
um.
Kvikmyndagerðarmenn settu
þá verkbann á vinnu fyrir sjón-
varpið.Þess iná geta aðþeir eru
i Bandalagi fslenskra lista-
manna og hefur Visir fregnað að
leitað hafi veriö eftir stuðningi
þess og annarra aöildarfélaga
BIL. Skýrist það væntanlega á
boðuðum blaöamannafundi i
dag hverjar undirtektir verða.
-VS