Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 16

Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 16
Að ota sínum tota.„. V.H. skrifar: „Húrra fyrir Jakobi Hafstein. Nú er hann byrjaður aftur. Enda kominn ti'mi til, það hefur verið fremur fátt um umræðuefni siðustu daga. Jakob á skilin heiðurslaun listamanna fyrir baráttu sina gegn mafiu þeirri sem telur sig löggilta listamenn. Þessi mafia ég vona þeir fari ekki i mál við mig þótt ég noti orðið) er sam- bærileg við þann hóp listamanna sem einir eru viðurkenndir i Sovétrikjunum. Þótt löggiltu listamennirnir hérna séu eflaust skárrienþeiriaustri,þá er kerfið það sama. Akveðnir menn eru viðurkenndir, eða viðurkenna sjálfa sig sem listamenn, og þá eru verk annarra ekki listaverk, og þeir ekki listamenn. Og ef ein- hver fer að gagnrýna, þá er hann settur á hæli (i Sovét), eða útilok- aður frá sýningaraðstöðu (is- land). Listaráð Kjarvalsstaða á tafar- laust að skýra frá öllum stað- reyndum málsins. Hvers vegna hefur umsóknum Jakobs ekki verið svarað? Hvers vegna er fullt af listamönnum skotið fram fyrir hann, en Jakob settur út á klakann? Ef listráði finnst Jakob ekki hæfur til að sýna á Kjarvals- :úöðum, hvers vegna er það þá ekki sagt hreint út — og rökstutt! Sýnir ekki aðsóknin aö siðustu sýningu Jakobs á Kjarvals- stöðum að honum er fuil þörf á húsnæðinu, og að margir kunna að meta verk hans? Annars er liklega tómt mál að tala um þetta. Reykjavikurborg afsaiaði sér yfirráðaréttindum yfir sýningaraðstöðu I hendur iistamannamafiunni. Það sýnir kannski best styrkleika mafiunnar (er ég annars að stela nafnbótinni frá einhverjum) að það skyldi fást i gegn. Jakob hefur litið að segja i þessa mafiu, nema fá almenningsálitið með sér. Og ef marka má fyrri aðgerðir hans, mun hann reyna það. Annars finnst mér ómaklegt af Jakobi að veitast að Aðalsteini Ingólfssyni vegna þessa. Aðalsteinn er aðeins fram- kvæmdarstjóri listráðsins. Ef ég man rétt, hefur hann þó atkvæðis- rétt I því. En það má lika spyrja Jakob nokkurra spurninga, hann er eng- in heilög kýr fremur en hstráðið. Hvers vegna sækist hann svo mikiö eftir að fá sýningaraðstöðu i Kjarvalsstöðum? Af þvl hann hefursvo mörg verk aö sýna? Nú, af hverju þá ekki að sýna færri verk en oftar? Ég er viss um að aðdáendur hans kynnu að meta það. Þar að auki er mun dýrara að sýna á Kjarvalsstöðum en annars staðar. Ég vil engu spá um raunveru- lega ástæðu Jakobs til að langa til að sýna á Kjarvalsstöðum. Samt læðistságrunuraðmér aö Jakobi þyki gott að vera I sviösljósinu. Illt umtal er betra en ekkert um- tal, stendur einhvers staðar. List- málarar eru margirhér á landi og fáir sem fá góða auglýsingu i fjöl- miðlum. Ekki nema virkilega góðir listamenn. Og Jakob Hafstein hefur sjálfur séð til þess. Hver otar sínum tota. TAKK FYRIR LH Kristinn Guðmundsson biður fyrir eftirfarandi: Innilegt þakklæti til leikara hjá Leikfélagi Hafnar- fjarðar fyrir að bjóða lömuðum börnum úr Hliðar- skóla á sýningu hjá sér 20. mars sl. Þau skemmtu sér konunglega. Vinningarmr voru skran... S.M. SKRIFAR Þar sem reynsla min af hlutaveltu KSÍ á sunnudaginn fyrir viku er mjög lik þvi sem ,,ein áhugasöm” skrifar i Visi 24. mars, langar mig að segja frá minni tombólugöngu. Ég keypti mér 20 miða fyrir 1000 krónur, og af þvi voru aðeins 4 — já fjögur — númer. Hitt var allt núll. Sem sé 20% möguleiki. Hvað hafði ég svo upp úr þessum 4 miðum. Jú, einmitt. 1) Ein brotin sól- gleraugu, 2) einhvers konar rýting úr plasti, 3) spjald með tölum (ég á þar við tölur, sem notaðar eru á föt) og 4) eina hljómplötu. Þegar ég leit á lögin á plötunni, sá ég að annað lagið var hið gull- fallega lag „Dagný” eftir Sigfús Halldórsson. En þegar ég sá hver söngvarinn var, féll þessi vinningur i sama gæðaflokk og hinir þrir. Söngvarinn var nefnilega Sigfús sjálfur, en hann má alls ekki mis- þyrma sinum fögru lögum með þvi að syngja þau sjálfur. En hvað um það. Þarna hafði ég eytt 1000 krónum án þess að fá neitt i staðinn. Þess vegna get ég vel skilið krakkagreyin, sem hafa kannski komið með 2—300 krónur og — eftir minni reynslu — haft út úr þvi i mesta lagi eitt númer, sennilegast þó tóm núll. Nei, góðir hálsar! Betra er að hafa happdrætti en núll. Manni finnst þó að maður hafi þá einhvern möguleika. LIGGUR ÞÉR EITT- HVAÐ Á HJARTA? EF SVO ÞÁ HRINGDU í SÍMA 86611 MILLI KLUKKAN 13-15 EÐA SKRIFAÐU - UTANÁSKRIFTIN ER DAGBLAÐIÐ VÍSIR SÍÐUMÚLA 14 REYKJAVÍK wm, rrrw b! ilg 1111 l» m luTm __________________ 18. Hvenœr má bera blóm og skrautgripi? í öllum samkvæm- um, en gæta skal hófs i þvi sem öðru. Litill blómvöndur lifandi blóma, ein rós eða fjóluvöndull á hálsi, brjósti eða i beltisstað skreytir jafnan einfald- an óbrotinn búning. En i öllum hamingjunnar bænum vel valið, á réttum stað og ekki of stórt — heilt kýrfóður skaðar, en skreytir ekki. — í minni háttar boðum eða samkvæm- um skal spart haldið á öllu skrauti. Það er smekkleysa að hlaða sig gulli, og betra að bera enga skrautgripi á sér en óskira eða svikna. Sérstaklega skal gjalda varhuga við tizkuglingri, svo sem nálum, nælum, kingj- um, sem oft er fánýtt og svikið stundargam- an, sem enginn vill sjá eða nota að skömmum tima liðnum. Þannig á t.d. alls ekki við að hlaða á sig ilduðum (oxyderuðum) og smeittum (emailleruð- um) ósóma. Slikt gerir oft konur að athlægi i augum annara og að gikkjum i veiðistöð glingursins. Þeir, sem eiga skira skartgripi, mega aftur á móti bera þá, þegar eitthvað mik- ið er á seiði, svo sem meiri háttar miðdegis- verðir, dansleikar, mikil kvöldboð, brúð- kaup o.s.frv., en þó þvi að eins, að þeir eigi við búninginn, þar verður smekkvisin að ráða. Rosknum konum fara skrautgripir betur en ungum, en gæta skal jafnan þess, að þeir skrautgripir, sem notaðir eru i hvert skifti, eigi saman, en æpi ekki hver að öðr- um, samræmið er þar fyrir öllu, og þvi betra að bera færri gripi og sjá um, að samræmið ekki raskist. Kona, sem á granatmen, eyrna- hringa úr kóral, de- mant-næli og hárkamb úr tyrkisum, er alls ekki skyldug til að bera öll þessi djásn á sér i einu, þótt mikið sé um að vera, og hún vilji halda sér til. Setjum svo, að einhver kona eigi alla þessa gripi, þá myndi fara vel að nota granat-menið við rósa- litan búning, demants-kingjuna við bláan og tyrkiskamb- inn við hvitað klæðnað. Iburður er litils virði, en smekkvisin er alt. Eyrnarhringunum mætti að ósekju sleppa, þeir minna, þrátt fyrir alt, á villimanna siðu: að særa hold sitt til að stinga inn i sárin alls konar glingri og munurinn minstur, hvort það hangir niður úr „siðuðum” evrópsk- um eyrum, eða svertingjanefjum. Fegurstskraut ungra meyja eru blómin. Gætu þær að ósekju slept öllu öðru skarti, þvi að ekkert skraut skin þar jafn-prýði- lega. Karlar ættu ekki að bera aðra hringa á höndum sér en trú- lofunarhring sinn. Inn- siglishringa þykir nú ekki lengur rétt að bera, allra sizt á visi- fingri. Konum verður þó tæplega láð,, þótt þær hafi fleiri en einn hring á græðifingri og að minsta kosti hring á litla fingri. Fögur hönd ljókkar við litprýði hringa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.