Vísir - 29.03.1976, Blaðsíða 24
Bretar veiddu sjö þús-
und lestir ó fjórum vikum
Erfitt að gera spó fyrir allt órið segir JónJónsson
Heildarafli bresku tog-
aranna á íslandsmiöum á
tímabilinu frá 23. jan. til
13. febrúar í vetur var sjö
þúsund tuttugu og fjögur
tonn.
Þessar upplýsingar er
að finna í breska blaðinu
Fishing News og er hér
aðallega um að ræða
landanir i Grimsby, Hull
og Fleetwood á þessu
fjögurra vikna tímabili.
Sé gert ráð fyrir að bresku
togurunum takist að ná svipuðu
aflamagni á öðrum árstimum,
þrátt fyrir það ástand, sem rikir
á miðunum, þýðir þetta rúm-
lega áttatiu og fjögurra þúsund
tonna ársafla.
,,Þetta eru iskyggilegar tölur
fyrir okkur ” sagði Jón Jónsson
forstöðumaður Hafrannsóknar-
stofnunarinnar er Visir leitaði
álits hans á þessum upplýsing-
um.
,,Við höfum ekki tekið þessar
tölur saman, þar sem við sækj-
um tölur okkar i opinber gögn
sem koma munu seinna.
Það er vissulega mjög slæmt
ef þeir geta haldið áfram að
merja upp þetta aflamagn, með
þessari auknu sókn á miðin.
Hins vegar er erfitt að gera
spá fyrir allt árið út frá þessum
tölum ” sagði Jón Jónsson.-EB
íslandsmeistarar í bridge 1976:
SKUTUST UPP FYRIR
VIÐ MARKLÍNUNA...
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Örn Arnþórsson urðu tslands-
meistarar i tvimenningskeppni i
bridge, sem fram fór núna um
helgina.
Eftir tvisýna keppni i síöustu
tveim umferðunum skutust þeir
upp fyrir Jóhann Jónsson og
Þráin Finnbogason og skildu
þá fimm stig á milli. — Efsta
par hafði 257 stig, en annað par
252 stig yfir meöalskor.
Guðlaugur og örn komust
snemma i keppninni í forystu,
en misstu hana i hendur Jó-
hanns og Þráins, sem siðan
héldu henni út alla keppnina til
siðustu umferðar. —■ Aður en
siðasta umferð hófst.voru Jó-
hann og Þráinn með 261 yfir
meðalskor, og Guðlaugur og
örn með 251 yfir meðalskor. —
Þeir fyrrnefndu töpuðu setunni
á meðan Guðlaugur og örn unnu
sina andstæðinga með 1 stigi.
Jón Asbjörnsson og Sigtrygg-
ur Sigurðsson voru um tima
komnir i annað sæti, meðan Jó-
hann og Þráinn höfðu nær 70
stiga forskot yfir næsta keppi-
naut. — Höfnuðu Jón og Sig-
tryggur i þriðja sætimeð 247 stig
yfir meðalskor, en þó er óút-
kljáð vafaalriði um tæknivillu,
sem gæti munað þá um fimm
stig, ef leiðrétt yrði, og mundu
þeir þá hugsanlega verða jafnir
öðru sætinu.
Einar Þorfinnsson og Páll-
Bergsson voru i 4. sæti með 199
stig yfir meðallag, meðan
fimmta par var með 119stig yfir
meðal, en það voru Hörður Arn-
þórsson og Þórarinn Sigþórs-
son.
—GP.
islandsmeistararnir i tvimenningskeppni i bridge 1976, örn Arn-
þórsson (t.v.) og Guðlaugur K. Jóhannsson.
Þrennt varð fyrir
bílum um helgina
Ekið var á þrjá gangandi veg-
farendur um helgina i Reykjavik.
1 eftirmiðdaginn á laugardag var
ekið á stúlku á Lækjargötu við
Skólabrú. Stúlkan var flutt á
slysadeild. Ekki var lögreglunni
kunnugt um meiðsli.
Aðfaranótt sunnudagsins, rétt
eftir miðnætti, var ekið á gang-
andi vegfaranda á Hverfisgötu.
Ókunnugt um meiðsli.
Þá var ekið á barn á Laugar-
nesvegi i gærdag. Ekki var vitað
nákvæmlega heldur um meiðsli i
þvi tilviki.
-VS
Loðna fannst út af Jökli seint i gærkvöldi, eftir að loðnubátar höfðu i
allan gærdag leitað, allt austur undir Vestmannaeyjar.
Það var Ásberg RE sem fyrstur varð var við loðnu þarna. Sigurður
RE og Bjarni Ólafsson munu einnig hafa fengið slatta. Ekki er enn vit-
að með vissu hvort eitthvertverulegt magn sé þarna á ferð. Loðnuflot-
inn var dreifður og þvi voru ekki margir bátar komnir á miðin er við
höfðum samband við Loðnunefnd i morgun.
Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd sagði i morgun að það myndi
skýrast i dag hvort um væri að ræða mikið magn.
Einn bátur fékk 250 tonn út af Grindavik á föstúdagskvöldið. 7 aðrir
bátar fengu þar loðnu á laugardag alls um 700 tonn.
Loðna sú sem nú veiðist er öll hrygnd og fer þvi I bræðslu. Eftir bræl-
una undanfarið er alls staðar nóg þróarrými. Reyndar þurfa bátarnir
að sigla stutt með aflann, þvi Norglobal er komið á miðin undan Jökli.
— EKG.
Ólíkt
höfumst
vér að
A meðan reykvíkingar telja það
cins sjálfsagt eins og að draga
andann að hafa minnst 20
irekstra á dag, ná seltirningar
þvi að kcyra saman einu sinni i
mánuði. Mánaöarkvótann fyiltu
þeir i morgun. Að sögn lögregl-
unnar var varla hægt að kalla
þetta árekstur, frekar um smá
nudd aö ræða. Hann var þó viður-
kenndur sem slikur og skráður á
spjöld sögunnar.
Það má segja að ólikt höfumst
vér að og mættum við reykvik-
ingar taka seltirninga okkur til
fyrirmyndar i þessum el'num. Ef
til vill er þarna komin ástæðan
fyrir þvi hve fast þeir sóttu aö
losna undan áhrifavaldi reykvik-
inga og öðlast sjálfstæði. — VS.
Mikil mold
á Eiðsgranda
Framkvæmdir eru hafnar
við fyrsta áfanga bygginga á
Eiðsgrandasvæðinu. Er nú
verið að taka grunn blokkar-
byggingar, sem teiknistofan
Óðinstorg hefur teiknað.
Blokkin verður tveir átt-
hyrningarmeð tengibyggingu.
1 henni verða um 150 ibúðir,
þar af rúmlega 60 ibúðir sem
Samtök aldraðra byggja.
Þarna er talsvert djúpt
niður á fastan jarðveg og er
verið að flytja moldina úr
grunninum vestur fyrir hús
Hafskips h/f, en þar mun vera
ætlunin að hækka landið nokk-
uð. — SJ/Ljósm. Loftur.
500
uppástungur um
flugfélagsnafn
Um fimmhundruð tiilögur
um nafn bárust um helgina til
nýja flugfélagsins sem verið
er að stofnsetja. Visir skýrði
frá þvi á laugardag að félagið
fengi ekki að heita Víkingur,
þar sem það nafn er i einka-
eign og ekki falt. Jafnframt
var beðið um uppástungur.
Siminn hjá flugfélagsmönn-
unum stoppaði varla um helg-
ina og er greinilega mikill og
almennur áhugi á að það kom-
ist i loftið. Þá voru um helgina
fundir þar sem rætt var um
rekstrarfyrirkomulag og ann-
að slikt og verður þeim haldið
áfram i dag. Flugíélagsmönn-
um er mikið i mun að fá allt á
hreint sem fyrst, svo að starf-
semin geti hafist. Vegna anna
hefur ekki enn tekist að velja
nafn úr öllum tillögunum sem
bárust.
— ÓT.
Loðna undan Jökli
VERÐUM AÐ HALDA
BORNUM
„Við vonuin að það standi ekki til að flytja borinn.
Það er brýn nauðsyn á þvi að bora að minnsta kosti
eina holu til viðbótar” sagði Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri Akureyrar, i samtali við Visi í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun verður
tekin um það ákvörðun á næstu dögum, hvort boruð
verði ný hola á Laugalandi eða borinn fluttur til
Kröfiu.
,,Það er grundvallarskilyrði að við getum borað
það mikið, að svæðið sé fullkannað fyrir sumarið”
sagði Bjarni. ,,Við verðum að vita hvað við höfum i
höndunum. Eins og er nú er það mjög óljóst hvort
nægilegt vatnsmagn er þarna að hafa fyrir bæinn.
- SEGIR BJARNI EINARSSON
BÆJARSTJÓRI á akureyri
Nú er búið að bora tvær holur á svæðinu. önnur
þeirra tókst geysilega vel, en hin er nú svo til þurr.
Verður gerð tilraun til að sprengja hana út, en komi
ekki neitt vatn úr henni stöndum við mjög illa að
vigi án þriðju holunnar.
Við erum búnir að gera samninga um hönnun
hitaveitu fyrir Akureyri og i þvi sambandi verða
vissar forsendur að liggja fyrir, eins og t.d. vatns-
magn. Ef vatnsmagnið er ekki nóg fyrir allan bæinn
þá verður að vinna hönnunina út frá þvi.
Það er þvi mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa
borinn einum mánuði lengur, svo að hægt sé að
ganga úr skugga um hversu mikið vatn svæðið gef-
ur” sagði Bjarni Einarsson. —SJ
VISIR
.Mánudagur 29. mars 1976