Vísir - 02.07.1976, Blaðsíða 24
Flestir eru sammála um að
gjaldeyrisskammturinn til
ferðamanna sé orðinn allt
VfSIR
Föstudagur 2. júli 1976
„Fífl-
dirfska
að fara
út á
svona
pall,
— festingin eins og
þegar hengd er
mynd á vegg"
— segir Hákon Þor-
steinsson öryggis-
skoðunarmaður
Vegna slyssins er varö viO hús
eitt viö Lindargötu I Reykjavlk I
fyrradag er vinnupallur féll niöur
meö tvo menn, leitaöi Vlsir til
öryggiseftirlits rlkisins og spurö-
ist fyrir hvaöa reglur giltu um
frágang svona vinnupalla.
Hákon Þorsteinsson hjá
öryggiseftirlitinu sagöi að mjög
ákveðnar reglur giltu um slíka
uppsrtningu, og heföi þeim alls
ekki verið fylgt i þessu tilviki. En
oft kvaö hann fólk biöja um aö
slikir pallar væru skoöaöir og
gerö á þeim úttekt.
„Þaö er hrein fifldirfska að
fara út á svona pall, maöur heföi
varla þoraö aö blása á hann eins
og hann var” sagöi Hákon. Sagöi
hann pallinn hafa veriö festan
upp meö átta millimetra boltum
sem festir væru I plasttappa.
Fjórir metrar voru á milli hverr-
ar festingar. „Þetta er svona eins
og þegar maöur festir mynd á
vegg”, sagöi Hákon.
Maöurinn sem slasaöist mest
var sjálfur verktaki, og bar þvi
ábyrgðina á hvernig festingin var
úr garöi gerö. _ah
' -
!- 1
Vinnupallurinn, sem enn hangir
utan á húsinu viö Lindargötu.
Mynd: JA.
Gjaldeyrisyfirvöld hafa nú tekiö fyrir aö Islenskar feröaskrifstof-
ur selji feröamönnum feröir meö erlendum feröaskrifstofum sem
kosta meir en 700 krónur danskar.
t Visi I gær sagöi Björgvin Guðmundsson formaður gjaldeyris-
nefndar aö þessar reglur geröu Islendingum ókleyft aö feröast meö
erlendum feröaskrifstofum.
Þessi ákvöröun gjaldeyrisyfirvalda hefur mikil áhrif á ýmsar
ferðaskrifstofur og leitaöi Vlsir þvi til forráöamanna þeirra og innti
þá álits á breytingunum.
„Gjaldeyrisskammturinn ekki
í samrœmi við veruleikann"
„Núverandi gjald-
eyrisskammtur er alls
ekki i samræmi við
veruleikann", sagði
Kjartan Helgason hjá
ferðaskrifstofunni
Landsýn i samtali við
Visi i gær.
„Sannleikurinn er raunar sá
aö feröaskrifstofurnar eru önn-
ur atvinnugreininsem flytur inn
meiri gjaldeyri en hún aflar.
Hitt er sjávarútvegur.”
Kjartan kvaöst fremur litiö
vilja segja á þessu stigi um þær
breytingar sem gjaldeyrisnefnd
hefur gert. Það er aö ekki má
lengur selja Islendingum feröir
meö erlendum feröaskrifstof-
um.
,,Viö hljótum auðvitað aö
mótmæla því. En þessi mál eru
öll á umræöustigi. Feröaskrif-
stofurnar hafa óskaö eftir fundi
meö gjaldeyrisnefhd I næstu
viku, sagði Kjartan.
„Ég veit aö öll þessi mál eru I
endurskóöun og ég er bjartsýnn
á að þetta leysist”. —EKG
BAGALEGT
##
— segir ferðaskrifstofa
Zoega um aðgerðir
gjaldeyrisyfirvalda
„Þetta er bagalegt. Cooks er
öruggt og gott félag og menn
vilja fá feröir meö þvl”, sagöi
Geir H Zoé'ga hjá ferðaskrif-
stofu ZoCga um aögerðir gjald-
eyrisnefnda. En þeir hafa lengi
haft umboö fyrir bresku feröa-
skrifstofuna Cooks.
„Viö fengum bréf frá gjald-
eyrisnefnd þar sem að sagði að
viö gætum ekki haldið áfram aö
selja feröir I gegn um Cooks.
Síðan höfum viö ekki selt neinn
miða I Cooks feröir.
Þaö eru að vfsu ekki margir
sem tóku þátt i þessum feröum,
þvl viö höfum lagt mesta
áherslu á aö búa til gjaldeyri.
Viö erum elsta umboösskrif-
stofa Cooks I heiminum”, sagöi
Geir. „Þaö er leiöinlegt fyrir
okkur aö þurfa að segja þeim aö
það geti engir farþegar komiö
héöan I feröir meö þeim.”
Cooks feröaskrifstofan hefur
milligöngu um komu farþega
hingaö til lands á vegum feröa-
skrifstofu Zoé'ga. Geir var
spuröur hvort hugsanlegt væri
aö þessar aögeröir gjaldeyrisyf-
irvalda heföu áhrif á þær feröir.
„Ég tel þaö af og frá”, sagöi
hann.
— EKG
„ÞVINGAR ISLENDINGA TIL
AÐ KAUPA DÝRAR FERÐIR'
„Þaö er veriö aö þvinga
Islendinga til þess aö kaupa
dýrustu feröirnar”, sagöi
Bryndls Torfadóttir skrifstofu-
stjóri hjá SAS um nýjustu ráö-
stafanirnar ,1 gjaldeyrismálun-
um. Þar sem ekki má nú selja
islenskum feröamönnum skipu-
lagöar hópferðir meö erlend-
um feröaskrifstofum.
„Þaö eru leyföar yfirfærslur
ef keyptur er venjulegur farseö-
ill. Þetta þýöir að I þassar ferðir
er notaöur fimm tÚ tlu sinnum
meiri gjaldeyrir, en ef islenskar
feröaskrifstofur seldu
islendingum skipulagðar hóp-
feröir meðerlendum feröaskrif-
stofum.
Þetta þýöir þvi aö veriö er aö
þvinga fólk i dýrari feröir sem
leiöir af sér aö þeir sem hafa
peninga ferðast hinir ekki.”
Bryndis sagöi aö enn sem
komiö er hafi þessi nýjasta ráö-
stöfun Igjaldeyrismálunum lltið
aö segja fyrir SAS. SAS hefur
ekki þann hátt á aö selja neitt i
gegn um erlendar feröaskrif-
stofur. Hins vegar sagði
Bryndís aö ætlunin heföi veriö
að SAS seldi feröir I gegn um
dönsku feröaskrifstofuna
Globetrotter, llkt og Útsýn gerir
I gegn um Tjæreborg. „Þessi
ráöstöfun kemur algjörlega I
veg fyrir þaö”, sagöi Bryndis.
—EKG
Gjaldeyrisskammtur óbreyttur í 12 ór
Gjaldeyrisskammtur til Is-
lenskra feröamanna er sá sami
nú og fyrir 12 árum. Dagpening-
ar opinberra starfsmanna i
feröum erlendis er nú 59$ fyrir
amerikufara og 145 DM fyrir
evrópufara en voru 30-45$ árið
1970.
A helmingi þess timabils, sem
ferðamannagjaldeyrir hefur
staöiö i staö hafa þvi dagpen-
ingagreiöslur til opinberra
starfsmanna hækkaö mjög
verulega eöa um nánast
helming I sumum tilfellum.
Þessi hækkun á dagpeningum er
mjög eölileg og sennilega I réttu
hlutfalli viö veröbreytingar á
þessum tima.
Viöræður standa nú yfir milli
gjaldeyrisyfirvalda og feröa-
skrifstofanna. Þær snúast um
möguleika á einhvers konar
rýmkun á gjaldeyrisreglum og
þá einkum um hvort leyfa eigi
sölu á kynnis- og skoöunarferö-
um erlendis I Islenskum krón-
um.
Ólafur Jóhannesson, viö-
skiptaráðherra tjáði Visi aö
reglur um feröamannagjaldeyri
væru I endurskoöun hjá viö-
skiptaráöuneytinu. Einhver
skriður virðist þvi vera aö kom-
ast á þessi mál.
— JOH.
..