Vísir - 20.07.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 20.07.1976, Blaðsíða 1
FLUGSKYUN OKKAR tlGN „Ég get ekki endanlega staðfest/ að skýli þessi séu islensk eign en að lokinni þeirri rannsókn sem ég hef gert sýnist mér svo vera" sagði Páll Ásgeir Tryggva- son, yfirmaður varnar- máladeildar utanríkis- ráðuneytisins Skýli þau sem átt er við eru flugskýlin þrjú á Kef lavíkurf lugvelli, sem varnarliðið hef ur til afnota en íslenskir flugvirkjar fullyrða að nota mætti til viðgerða á íslenska flug- flotanum og spara þannig hundruð miUjóna í gjald- Loðnuflotinn flytur sig stöðugt Loðnubátarnir flytja sig nú stöðugt til. Hjálmar Vilhjálms- son, fiskifræðingur um borð i Bjarna Sæmundssyni, sagði i morgun að I gær hefðu þeir flutt sig af svæðinu 90 miiur norður af Horni og á svæði sem er um 140 milur norður af Siglunesi. Nokkur skip fiuttu sig til baka i nótt og voru þau fyrstu komin á gamla svæðið um klukkan fimm i morg- un. Hjálmar sagðist búast við að hinir flyttu sig i dag, þótt ein- hverjir biðu fram á kvöld. „Það var mikið kastað norður af Siglunesi i gær og i nótt”, sagði Hjálmar. „Það gekk þó erfiðlega að ná loðnunni þar sem torfur eru smáar.” Hjálmar sagði að nokkur afli hefði fengist. Flestir verið með um 150 til 200 tonn. Bjarni Ólafs- son og Rauðsey hefðu siglt til Siglufjarðar með 350 til 400 tonn hvor. Ekkert hefur enn fengist á vestra svæðinu og stendur loðnan þar of djúpt til að gerlegt sé að ná henni. „Við höfum leitað i nágrenni við flotann en ekki orðið varir svo teljandi sé”, sagði Hjálmar. Hjálmar sagðist telja að yfir- leitt væri loðnan á svæðinu norður af Siglunesi betri. Hún væri feit- ari og stærri sem þýddi að betra verð fengist fyrir hana. Á móti kæmi að visu að meiri áta væri i henni. En það væri aðeins spurn- ing um nógu góðar vélar til að hægt væri að vinna loðnu sem væri átumikil. __EKG Verða þau notuð til þess að skapa aðstöðu til viðgerða á flugflotanum hér heima? eyri. Við fyrstu eftirgrennslan Visis kom i ljós að enginn i utanrikis- ráðuneytinu vissi hver með réttu átti þessi skýli. Skrif Visis hrinntu af stað umræðum um málið og rannsókn sem nú hefur leitti Ijós að skýlin eru islensk eign. Flugleiðir vörðu á sfðasta ári 700 milljónum krórna til við- gerða á vélum sinum erlendis og fullyrða flugvirkjar að allar þær viðgerðir mætti framkvæma hér heima ef aðstaða væri fyrir hendi. Flugleiðir munu hafa hug á að sérhæfa viðgerðarþjónustu sina, þannig að félagið geti tekið verk- efni erlendis frá og þénað þannig jafn mikið eða meira en félagið greiðir erlendum aðilum fyrir viðhald á vélum félagsins. Flugleiðir hafa hins vegar mjög bágborna aðstöðu til viðgerða og munu hafa fullan huga á úrbótum i þeim efnum. Páll Ásgeir tók fram, að þó skýlin reyndust islensk eign hefði varnarliðið um- ráðarétt yfir þeim, og ef varnar- liðsmenn hefðu ekki haldið þeim við öll þessi ár væru þau eflaust ónýt. Einnig kom fram hjá Páli, að skýlin væru eign islenska rikisins en ekki Flugleiða og væri eðlileg- ast að flugfélög ættu eigin við- gerðaaðstöðu. —JOH Víkingurinn lendir á Mars í dag ■ 5*2:\'H 7 Skattseðlarnir á leiðinni - sjá bak Þessar gömlu kempur nutu sólarinnar fyrir utan Ctvegsbankann I Reykjavik i gær. Hvað þeir hafa verið að ræða vitum við ekki með fullri vissu. En á svipnum og ákefðinni er ekki óliklegt að einhver þjóðþrifamál hafi borið á góma. Mál málanna, verndun fiskstofnanna hefur liklega verið rætt. Og þá er öruggt að þessir kappar hafa haft á orði að að öðru visi hafi veriðá þeirra sokkabandsárum, þegar sá guli var annað og meira en litill tittur, eins og nú er svo algengt. Visismynd: Kari Jeppesen Olympíu- HUGSJÓNIN er í hœttu Baldur Guðlaugsson skrifar — sjó bls. 8 ERFITT AÐ KENNA SKRIFT í KELDU - HVERFI VÍSIR Á FERÐ FYRIR NORÐAN - BLS. 15 Hakfið ykkur fast" Óli Tynes í loft* belgsflugi með Holberg Móssyni — bls. 2 V \ S

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.