Vísir - 20.07.1976, Blaðsíða 11
vism
Þriðjudagur 20. júll 1976.
VISIR A FERÐ UM LANDIÐ
15
I KELDUHVERFI
„Verst þegar borðin fóru að
hristast í skriftartímanum"
Tún og mannvirki i
Kelduhverfi i Norður-
Þingeyjarsýslu eru viða
illa farin eftir jarð-
skjálftana sem þar urðu
i vetur. Allt að tveggja
metra breiðar sprungur
Svéinn að kasta kúlu. Hann sagð-
ist ekkert hafa orðiö hræddur i
jarðskjálftunum.
eru j jarðveginum, hús
hafa skemmst, stöðu-
vatn myndast, og köld
vatnsból orðið að heitum
laugum. Þannig mætti
lengi telja, og þó eru
e.t.v. ekki allar afleið-
ingar jarðskjálftanna
komnar i ljós ennþá.
Visismenn voru á ferð i
Kelduhverfi fyrir
skömmu, og skoðuðu
verksummerki og tóku
fólk i sveitinni tali.
Við komum fyrst við I simstöð-
inni á Lindarbrekku, og þá hittist
einmitt svo vel á, að Gunnar
Indriðason var að ganga út með
kunningjafólki sinu frá Bolungar-
vik, og ætlaði að sýna þvl eitthvað
af minjum frá jarðskjálftanum.
Var það auðsótt mál að visismenn
fengju að slást i hópinm
Lindarbrekka er einn hinna
svonefndu Keldunesbæja i Keldu-
hverfi, en á þeim slóðum urðu
skemmdir einna mestar i sveit-
inni, og aðeins á Kópaskeri urðu
jarðskjálftarnir harðari.
Viða eru sprungur sjáanlegar,
allt frá þvi að vera nokkurra
sentimetra breiðar, upp i allt að
tveggja metra breiðar gjár, sem
sumar hverjar teygja sig marga
tugi metra. Eru þær sums staðar
á annan metra á dýpt, ýmist þurr-
ar eða með vatni og gufu sem
streymir upp úr þeim. Ein
sprungan gekk undir hlöðu á ein-
um Keldunesbæja, og eyðilagðist
Aður hafði verið talið að heitt
vatn fyndist i Kelduhverfi, en
boranir báru þó ekki árangur þar
fyrir nokkrum árum.
Skammt fyrir norðan Keldu-
nesbæi rákumst við á hóp krakka
sem voru þar að iþróttaæfingum,
og við nánari eftirgrennslan kom
i ljós að þarna voru á ferð ung-
menni úr Ungmennafélaginu
Leifiheppna,oghöfðu fengið ísólf
Gylfa Pálmason iþróttakennara
til að leiðbeina sér. Raunar
kvaðst ísólfur vera meðiþróttaæf
ingar hjá ungmennafélögum i
allri Norður-Þingeyjarsýslu.
„Þetta er nú bara fyrsta æfingin
hérna, en þátttakan og áhuginn
sem þessir krakkar sýna lofar svo
sannarlega góðu”, sagði tsólfur.
Við spurðum krakkana hvort
þeir hefðu ekki verið neitt hrædd i
jarðskjálftunum, og fyrstur varð
fyrir svörum Sveinn Jóhannesson
frá Ardal. „Nehei, ég var ekkert
hræddur. Við vorum i skólanum
þegar þetta var, og þetta var bara
gaman”. Þórarinn nokkur sagðist
heldur ekki hafa verið neitt
hræddur, en „það var bara verst
þegar boröin fóru að hristast i
skriftartimunum”, sagði hann.
Eins og áður segir urðu all-
miklar skemmdir i Kelduhverfi,
eins og viöar á Norðausturlandi.
Tjónabætur þær sem koma eiga i
hlut þeirra kelduhverfinga eru þó
ekki neinar svimandi háar upp-
hæðir, þvi alls eiga að koma tvær
milljónir til skiptannaáalla sveit-
ina. Gunnar i Lindarbrekku kvaö
menn vera nokkuð óánægða með
þetta, og væru jafnvel uppi raddir
um aö neita að taka við þessu fé i
mótmælaskyni.
—AH.
Hér æfa krakkarnir langstökk undir leiösögn tsólfs Gylfa Pálma-
sonar.
Vatnsbólið sem breyttist I heita laug.
J .,■***,
„Þaö var verst þegar borðin fóru aö hristast”, sagði Þórarinn.
það hey sem var inni. Enn hefur
ekki verið gert við hlöðuna, og er
þvi tjón bóndans tilfinnanlegt.
Gunnar i Lindarbrekku sagöi
að fólk hefði vanist þessum ó-
sköpum furðu fljótt, og ekki verið
um að ræða neina hræðslu meðal
fólksins. Hins vegar kvað hann
sér ekki grunlaust um að visis-
menn þeir er hjá honum dvöldust
um tima i vetur hefðu verið tals-
vert smeykir.
Skammt norðan Keldunesbæj-
anna seigstórt landsvæði talsvert,
og streymdi þar um vatn, og
myndaðist þar á tiltölulega
skömmum tima stórt stööuvatn
sem enn er til, og ekkert útlit fyrir
að hverfi aftur. Er það um tveir
kilómetrar á lengd, og allt upp i
einn km á breidd. Var þar áöur
sandur sem Landgræðsla rikisins
hafði að mestu grætt upp. Ekki er
enn búið að gefa vatninu nafn, en
vafalaust verður að finna þvi eitt-
hvert heiti ef það ekki hverfur von
bráðar.
Við einn Keldunesbæjanna var
fyrir landskjálftana kalt vatns-
ból, það kaldasta i hverfinu. 1
skjálftunum brá hins
vegar svo við, að vatnið fór að
hitna, og er nú um 40 stiga heitt.
Er þetta vatnsból nú oröinn vin-
sæll baðstaður krakkanna i ná-
grenninu, en leita veröur annaö
eftir neysluvatni.
Ein sprungan i túninu á Keldunesbæjum. Þarna hafa greinilega
orðið gifurleg átök i jaröskjálftunum í vetur. Myndir Loftur.
MÁL: ANDERS HANSEN
MYNDIR: LOFTUR ÁSGEIRSSON